Susi skrifaði:
Könnte ich die Schultern nicht auch zusammenstricken? Könnte ich die Ärmel nicht einfach rund ums Armloch anstricken? Das ist bei den Designs doch inzwischen gängige Praxis, um das lästige und unschöne Annähen der Ärmel zu vermeiden?
30.09.2024 - 16:01DROPS Design svaraði:
Liebe Susi, ja wahrscheinlich können Sie auch die Schulter zusammenstricken und die Ärmel von oben nach unten vom Armloch stricken, so sollen Sie die Anleitung anpassen. Viel Spaß beim Stricken!
01.10.2024 - 08:40
Plaut skrifaði:
Pourrait on avoir l'explication avec des aiguilles non circulaires
05.09.2024 - 09:43
Em skrifaði:
Hej, i mönstret står det att det ska vara 4 varv men rätstickning efter resåren, men det ser inte ut som att det är det på bilderna, så jag undrar om det är fel? Eller har jag missat något?
28.08.2024 - 21:22DROPS Design svaraði:
Hej Em, jo du skal have 4 varv rätstickning efter resåren: RÄTSTICKNING (stickas runt) sticka *1 varv rätt och 1 varv avigt*. Upprepa *-*.
29.08.2024 - 11:54
Ami Sundén skrifaði:
Själva ritningen /diagramet försvann ju!!!!!
16.08.2024 - 20:19
Emmy skrifaði:
Bonjour, Est-il possible de tricoter ce modèle sur l'envers, afin que les mailles barrées qui sont les plus nombreuses soient tricotées en mailles endroit et non envers ? Merci d'avance pour votre réponse
16.07.2024 - 17:59DROPS Design svaraði:
Bonjour Emmy, probablement mais il faut alors ajuster toutes les autres mailles (les croisées et les torsades), c'est certainement plus simple de les tricoter comme indiqué pour que les mailles soient croisées dans le bon sens sur l'endroit. Bon tricot!
29.07.2024 - 10:18
Meike skrifaði:
In der Anleitung steht, dass bei Größe 98/104 bei einer Länge von 35 cm der Armausschnitt abgekettet wird. Ist das richtig? Oder soll es 25 cm heißen? Die Gesamtlänge soll dann 40 cm betragen. Ich befürchte ich muss da etwas aufrippeln. Danke für eine schnelle Antwort und viele Grüße
14.03.2024 - 14:43DROPS Design svaraði:
Liebe Meike, ja stimmt, danke für den Hinweis, eine Korrektur kommt. Viel Spaß beim Stricken!
14.03.2024 - 16:18
Bals skrifaði:
Was bedeuten die Unterstreichungen bei den Groeßen? Ich weiß nicht, wieviel Wolle ich bestellen muss.92-110 ist unterstrichen, 116 dann wieder nicht usw. Welche Groeße gehört zu welcher Wollmenge? Vielen Dank!
18.01.2024 - 16:34DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Bals, die Größen sind die folgenden: 2 Jahre = 92 cm, dann 3/4 Jahren = 98/104 Jahren, 5/6 Jahren =110/1216 cm usw. Am besten messen Sie einen ähnlichen Pullover das Kind hat und vergleichen Sie alle Maße mit den in der Maßskizze so finden Sie die beste passende Größe, hier lesen Sie mehr. Viel Spaß beim stricken!
19.01.2024 - 08:38
MICHEL Véronique skrifaði:
Bonjour. Je recherche le tuto pour augmenter de chaque côté de la maille avec le marqueur et 1 jeté après la maille avec le marqueur. Merci
09.12.2023 - 20:36DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Michel, tricotez la maille avec le marqueur au début du tour, faites 1 jeté, tricotez jusqu'à la fin du tour et faites 1 jeté avant la maille avec le marqueur (vous avez maintenant 1 jeté de chaque côté de la maille avec un marqueur); au tour suivant, tricotez les jetés torse (dans le brin arrière); dans cette vidéo, nous montrons comment augmenter avec des jetés; au rang suivant, on tricote les jetés torse à l'envers, mais ici, vous tricotez les manches en rond, tricotez le jeté torse à l'endroit. Bon tricot!
11.12.2023 - 08:41
Susi skrifaði:
Leider wird auch dieser 2. neue Kinderpullover im Strukturmuster nicht nahtlos von oben gestrickt :-( Ob wir bald die Chance bekommen, so eine Anleitung topdown zu arbeiten ???
04.12.2023 - 11:33DROPS Design svaraði:
Liebe Susi, hier finden Sie alle unsere Pullover, die von oben nach unten gestrickt sind (für Kinder). Viel Spaß beim stricken!
04.12.2023 - 16:14
Jacqueline skrifaði:
Marion Er zit een fout in de beschrijving voor de leeftijd 3/4 jaar. De minderingen van de armsgaten moet aan 25cm gebeuren en niet aan 35cm. Zo zal het wel kloppen.
03.12.2023 - 20:00
Ocean Ropes#oceanropessweater |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Fiesta. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með áferðamynstri, köðlum. Stærð 2 – 12 ára.
DROPS Children 47-32 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um mitt undir ermi): Lykkjum er aukið út hvoru megin við lykkju með prjónamerki (= 1 lykkja slétt). Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir lykkju með prjónamerki, prjónið út umferðina og aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan lykkju með prjónamerki. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúið. Eftir það eru nýjar lykkjur prjónaðar jafnóðum inn í mynstur A.1. Lykkja með prjónamerki er alltaf prjónuð slétt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi, eftir það skiptist stykkið. Bakstykki og framstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp að ermakúpu, eftir það skiptist ermin mitt að neðan og prjónað er fram og til baka að loka máli. Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring á stuttan hringprjón. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 176-192-204-220-232-248 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Fiesta. Prjónið stroffprjón hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan og fækkið um 10-14-14-18-18-22 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 166-178-190-202-214-226 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið í byrjun umferðar og eftir 83-89-95-101-107-113 lykkjur = hliðar. Síðan er prjónað mynstur frá byrjun umferðar þannig: A.1 yfir fyrstu 7-10-13-16-19-22 lykkjur (endið með fyrstu lykkju í A.1), prjónið A.2, A.3, A.4, A.3, A.2 (70 lykkjur miðjumynstur), prjónið A.1 yfir næstu 13-19-25-31-37-43 lykkjur (endið með fyrstu lykkju í A.1), prjónið A.2, A.3, A.4, A.3, A.2 (70 lykkjur miðjumynstur), prjónið A.1 yfir síðustu 6-9-12-15-18-21 lykkjur. Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 22-25-28-31-34-36 cm – stillið af að næsta umferð sé umferð með oddatölu í mynstri, prjónið næstu umferð þannig: Fellið af fyrstu 5-8-9-10-11-12 lykkjur í umferð fyrir handveg, prjónið 74-74-78-82-86-90 lykkjur eins og áður, fellið af næstu 9-15-17-19-21-23 lykkjur fyrir handveg, prjónið 74-74-78-82-86-90 lykkjur eins og áður, fellið af síðustu 4-7-8-9-10-11 lykkjur fyrir handveg. Klippið þráðinn. Nú er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Setjið fyrstu 74-74-78-82-86-90 lykkjur á þráð fyrir framstykki og prjónið áfram yfir síðustu 74-74-78-82-86-90 lykkjur á bakstykki. BAKSTYKKI: = 74-74-78-82-86-90 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður, þegar stykkið mælist 34-38-42-46-50-53 cm, fækkið um 6 lykkjur jafnt yfir miðju 34 lykkjur = 68-68-72-76-80-84 lykkjur. Í næstu umferð eru felldar af miðju 24-24-28-30-30-32 lykkjur fyrir hálsmáli og axlir eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsmáli er fækkað um 1 lykkju = 21-21-21-22-24-25 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður þar til stykkið mælist ca 35-39-43-47-51-54 cm. Í næstu umferð er fækkað um 2 lykkjur yfir kaðal í A.2 = 19-19-19-20-22-23 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 36-40-44-48-52-55 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Setjið til baka 74-74-78-82-86-90 lykkjur af þræði á hringprjón 4. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 32-35-39-42-46-48 cm, fækkið um 6 lykkjur jafnt yfir miðju 34 lykkjurnar = 68-68-72-76-80-84 lykkjur. Í næstu umferð eru miðju 16-16-20-22-22-24 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og axlir eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig. ATH! Nú er ekki lengur prjónað kaðlamynstur í A.4, lykkjur sem eru eftir af A.4 eru prjónaðar brugðið frá réttu og slétt frá röngu. Fækkið lykkjum í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fækkið um 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 3 sinnum = 21-21-21-22-24-25 lykkjur. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 35-39-43-47-51-54 cm. Í næstu umferð er fækkað um 2 lykkjur yfir kaðal í A.2 = 19-19-19-20-22-23 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 36-40-44-48-52-55 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Fitjið upp 48-50-54-56-58-60 lykkjur á sokkaprjóna 3 með DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Fiesta. Prjónið stroffprjón (1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Prjónið 4 umferðir garðaprjón og fækkið jafnframt um 3-2-3-2-4-4 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 45-48-51-54-54-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið A.1 hringinn – setjið 1 prjónamerki í fyrstu sléttu lykkjuna í umferð og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Þegar stykkið mælist 6 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út hvoru megin við lykkjuna með prjónamerki í – lesið ÚTAUKNING. Haldið áfram með A.1 og endurtakið útaukningu með 1½-2-2-2½-2-2½ cm millibili alls 12-12-12-14-15-17 sinnum = 69-72-75-82-84-90 lykkjur. Þegar stykkið mælist 25-29-33-37-40-45 cm, skiptist stykkið með því að fella af lykkju með prjónamerki í. Prjónið síðan fram og til baka í mynstri eins og áður þar til ermin mælist alls 26-32-36-40-44-49 cm, það er núna klauf ca 1-3-3-3-4-4 cm efst undir ermi. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermakúpu við handveg. Eftir það er klaufin saumuð efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu með DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Fiesta og stuttan hringprjón 3 – prjónið upp ca 64 til 90 lykkjur (ásamt lykkjum af þræði, lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2). Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Prjónið síðan stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið þar til kantur í hálsmáli mælist 8½ cm og fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli ca 4 cm. Til að koma í veg fyrir að kanturinn í hálsmáli verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #oceanropessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 47-32
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.