Margaret Elizabeth Birks skrifaði:
Is it best to block the finished jumper ( mushroom and berry ) or steam press, or iron with a dry cloth? Thank You Margaret
19.04.2025 - 19:47DROPS Design svaraði:
Dear Margaret, unless specifically stated in the pattern it's best not to block garments such as jumpers since, if done incorrectly, it could deform the garment irreversibly. You can check here, in the care section, how to best take care and wash all garments made with DROPS Karisma. Happy knitting!
19.04.2025 - 20:09
Louise Holm Jensen skrifaði:
Findes denne til mænd?
27.12.2024 - 20:53DROPS Design svaraði:
Hei Louise. Ta en titt på DROPS 246-42. Evnt bruk oppskriften, men se om du bare kan bytte ut diagrammene til 245-11. mvh DROPS Design
02.01.2025 - 14:28
Siiri Buck skrifaði:
Hallo, was passiert wenn die Arbeit schon 23 cm bei Größe M misst bevor das Muster A1 zu Ende gestrickt ist? Danke für ihre Antwort.
28.08.2024 - 10:31DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Buck, dann sollen Sie die Zunahmen früher stricken, damit alle Zunahmen fertig sind bevor Sie die Passe teilen. Viel Spaß beim Stricken!
29.08.2024 - 09:29
Tina Clausen skrifaði:
Hvordan skal udtagningsmaskerne indgå i mønster? De er almindeligvis tegnet ind i diagrammerne, så der han ses om næste mønster skal placeres i forhold til det foregående. På forhånd tak for hjælpen
21.03.2024 - 18:49DROPS Design svaraði:
Hej Tina, jo du strikker over alle masker i diagrammet, der tages ud hvor der ikke er mønster, og udtagningerne stemmer med at gå op i mønster rapporten :)
03.04.2024 - 12:07
MAGNIEN skrifaði:
Bonjour, quand je prends un nouvelle pelote les mailles ne sont pas belles. Que faut-il faire ? Cordialement
13.02.2024 - 17:01DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Magnien, peut-être que cette vidéo peut vous aider? N'hésitez pas à contacter votre magasin, vous y recevrez d'autres astuces / conseils, même par mail ou téléphone. Bon tricot!
14.02.2024 - 07:51
Joanna skrifaði:
Super
25.12.2023 - 12:52
Maria skrifaði:
Jak wyliczyć ilość potrzebnej włóczki
25.11.2023 - 14:38DROPS Design svaraði:
Witaj Mario, potrzebna ilość włóczki dla podanych rozmiarów jest określona we wzorze. Jeśli nie wiesz jaki rozmiar wybrać, zobacz TUTAJ. Pozdrawiamy!
27.11.2023 - 08:14
Mushroom Season Sweater#mushroomseasonsweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, hringlaga berustykki, marglitu mynstri með sveppum og berjum og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 245-11 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. UPPHÆKKUN: Til að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppaðu yfir þennan kafla ef þig langar ekki til að hafa upphækkun. Byrjið frá réttu og prjónið 16-17-18-19-20-21 lykkjur slétt fram hjá merkiþræði, snúið, herðið á þræði og prjónið 32-34-36-38-40-42 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 48-51-54-57-60-63 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 64-68-72-76-80-84 lykkjur brugðið. Snúið herðið á þræði og prjónið 80-85-90-95-100-105 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 96-102-108-114-120-126 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka að merkiþræði að miðju að aftan. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er í uppskrift. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna niður að klauf, síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig að loka máli. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 110-114-118-122-128-132 lykkjur með litnum ljós beige í DROPS Karisma yfir stuttan hringprjón 3 og stuttan hringprjón 4,5 sem haldið er saman. Dragið út hringprjón 4,5 og haldið lykkjum eftir á hringprjóni 3. (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 9 cm. Nú er stroffið brotið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er stroffið prjónað eins og áður JAFNFRAMT því sem önnur hver lykkja er prjónuð saman með annarri hverri lykkju frá uppfitjunarkantinum. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar. Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 26-28-30-32-36-40 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 136-142-148-154-164-172 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (mitt að framan), berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. Nú er prjónuð UPPHÆKKUN aftan í hnakka – lesið útskýringu að ofan. Ef þú vilt ekki hafa upphækkun, haltu áfram eins og útskýrt er að neðan. Prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar 2 umferðir eru eftir þar til berustykkið mælist 4-5-5-6-6-7 cm frá prjónamerki, aukið út 40-42-44-46-52-52 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 176-184-192-200-216-224 lykkjur. Eftir þessar 2 umferðir er prjónað mynstur jafnframt því sem haldið er áfram með útaukningu eins og útskýrt er að neðan – lesið LEIÐBEININGAR og MYNSTUR í útskýringu að ofan. A.1: Prjónið A.1 alls 22-23-24-25-27-28 sinnum hringinn á berustykki. JAFNFRAMT í hverri umferð með ör í mynsturteikningu er aukið út eins og útskýrt er að neðan: ÖR-1: Aukið út 40-48-48-48-56-56 lykkjur jafnt yfir = 216-232-240-248-272-280 lykkjur. ÖR-2: Aukið út 32-40-40-40-48-48 lykkjur jafnt yfir = 248-272-280-288-320-328 lykkjur. ÖR-3: Aukið út 24-24-32-32-32-40 lykkjur jafnt yfir = 272-296-312-320-352-368 lykkjur. ÖR-4: Aukið út 16-16-24-24-24-32 lykkjur jafnt yfir = 288-312-336-344-376-400 lykkjur. ÖR-5: Aukið út 4-4-12-4-4-12 lykkjur jafnt yfir = 292-316-348-348-380-412 lykkjur. Þegar A.1 er lokið, prjónið sléttprjón með litnum ljós beige. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Prjónið þar til stykkið mælist 21-23-24-25-27-29 cm frá prjónamerki. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 44-48-52-53-59-65 lykkjur sléttprjón (hálft bakstykki), setjið næstu 58-62-70-68-72-76 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-16-16-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 88-96-104-106-118-130 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 58-62-70-68-72-76 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-16-16-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 44-48-52-53-59-65 lykkjur eins og áður (hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 192-208-224-244-268-292 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á stykki – mitt í 8-8-8-16-16-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu. Það á að nota merkiþráðinn þegar stykkinu er skipt upp fyrir klauf í hvorri hlið. Prjónið sléttprjón hringinn með litnum ljós beige þar til stykkið mælist 22-22-23-24-24-24 cm frá skiptingu. Nú skiptist stykkið við báða merkiþræðina og framstykkið og bakstykkið er prjónað til loka hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 96-104-112-122-134-146 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 25-27-29-33-35-39 lykkjur jafnt yfir = 121-131-141-155-169-185 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 6 cm. Fellið af aðeins laust. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl. FRAMSTYKKI: = 96-104-112-122-134-146 lykkjur. Prjónið á sama hátt og á bakstykki. ERMI: Setjið 58-62-70-68-72-76 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4,5. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-8-16-16-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi með litnum ljós beige = 66-70-78-84-88-92 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi – þ.e.a.s. mitt í 8-8-8-16-16-16 lykkjur. Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu, það á að nota hann þegar fækka á lykkjum. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4-4-4-3-3-3 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 5½.-4½.-3.-2½.-2.-2. hverjum cm alls 6-7-10-12-13-14 sinnum = 54-56-58-60-62-64 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 36-34-34-33-32-30 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 8 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-22-22-24-24-26 lykkjur jafnt yfir = 74-78-80-84-86-90 lykkjur. Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 8 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 44-42-42-41-40-38 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermin á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mushroomseasonsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 245-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.