Claudia skrifaði:
Hallo Ich möchte diesen Pullover mit Drops Nepal 🧶 stricken.Welche Nadelstärke müsste ich da nehmen?Eigentlich Nadelstärke Nr.5 😊 Vielen Dank Claudia
23.02.2025 - 08:41DROPS Design svaraði:
Liebe Claudia, wenn Sie mit Nepal stricken möchten, dann sollen Sie mit 2 Fäden Nepal stricken, damit die Maschenprobe stimmt (benutzen Sie den Garnumrechner für die neue passende Garnmenge). Wenn Sie lieber mit nur 1 Faden Nepal stricken möchten, sollen Sie dann die ganze Jacke je nach Ihrer Maschenprobe umrechnen, oder hier finden Sie passende Anleitungen. Viel Spaß beim Stricken!
24.02.2025 - 08:41
Sandra Schwittay skrifaði:
Kann man die Jacke auch nur mit einen anstatt zwei Fäden stricken?
06.09.2024 - 20:02
Elizabeth Maidment skrifaði:
Struggling with right hand front instruction , place the outermost 14-14-15-15-16-16 stitches mid-front on a thread for the neckline, working them first to avoid having to cut the strand. Then cast off on each row from the neck as follows: 2 stitches 1 time and 1 stitch 2 times = 16-17-18-20-20-22 shoulder stitches. ? Can you explain more ?
03.08.2024 - 00:03DROPS Design svaraði:
Dear Elizabeth, when you get to the neckline, you knit the first 14-14-15-15-16-16 stitches (starting from the mid-front), put these stitches on a stitch-holder / thread, and *then knit until the end of the row, turn, knit back, turn*, and cast off 2 stitches. Repeat *-*, cast off 1 stitch, repeat *-* and cast off 1 stitch eagain. Happy Knitting!
04.08.2024 - 18:44
Debora skrifaði:
Ik zou iedereen aanraden om op het volgende te letten bij de voorpanden: Na de 5 voorbiessteken in ribbelsteek komen 4 steken in gerstekorrel, zorg ervoor dat na de 5e ribbelsteek (recht gebreid) de 1e steek van gerstekorrel averecht is. Zo voorkom je dat de voorbies 6 steken breed lijkt te zijn.
07.04.2024 - 20:43
Neena SIKKA skrifaði:
Hey.. beautiful pattern..you have explained it so nicely.. you made it so easy to make this pattern.. could not stop myself from commenting.. Thanks dear..lot of blessings for you 💕
06.01.2024 - 10:33
Ineke Meier skrifaði:
Ik kan niet tegen wol, met welk product kan ik dit patroon ook breien?
18.11.2023 - 12:34DROPS Design svaraði:
Dag Ineke,
Je zou deze trui ook van katoen kunnen breien. Houd er dan wel rekening mee dat het werk veel zwaarder wordt. We hebben een katoenkwaliteit in garencategorie C, namelijk DROS Paris. Je kan ook 2 draden van categorie A samen gebruiken. Als je niet tegen gewone wol kunt, zou je ook Merinowol kunnen overwegen. Veel mensen met een allergie voor wol kunnen hier vaak wel tegen. Het kriebelt niet en wordt ook vaak voor babykleding gebruikt.
18.11.2023 - 14:18
Mina skrifaði:
Wanderer
07.08.2023 - 12:21
Danielle Llorens skrifaði:
Mountain forest
06.08.2023 - 16:25
Karina Haupt Larsen skrifaði:
Efterår
05.08.2023 - 19:37
Dianne skrifaði:
The Cables
04.08.2023 - 01:01
Moss Vine Cardigan#mossvinecardigan |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Air eða 1 þræði DROPS Wish. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með köðlum, perluprjóni, klauf í hliðum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð XS - XXL.
DROPS 244-31 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. PERLUPRJÓN (prjónað fram og til baka): UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-*. UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið umferð 2. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: XS: 12, 22, 32, 42 og 52 cm. S: 12, 22, 32, 43 og 54 cm. M: 12, 20, 29, 38, 47 og 56 cm. L: 12, 21, 30, 39, 48 og 57 cm. XL: 12, 21, 30, 39, 49 og 59 cm. XXL: 12, 21, 31, 41, 51 og 61 cm. ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum): Byrjið 1 lykkju á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn er staðsettur mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat (= 2 lykkjur fleiri). Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp, í stykkjum sem saumuð eru saman í lokin. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Að lokum er prjónaður upp tvöfaldur kantur í hálsmáli. Framstykkin eru prjónuð með köðlum og perluprjóni, bakstykkið er prjónað í perluprjóni. BAKSTYKKI: Fitjið upp 76-84-92-92-100-108 lykkjur á hringprjón 6 með 2 þráðum DROPS Air eða 1 þræði DROPS Wish. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað þannig – frá réttu: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 lykkju garðaprjón. Prjónið stroff svona í 10 cm, endið með umferð frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu og fækkið um 18-22-26-22-24-26 lykkjur jafnt yfir = 58-62-66-70-76-82 lykkjur. Prjónið síðan PERLUPRJÓN með 1 lykkju garðaprjón í hvorir hlið – lesið útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 41-42-43-44-45-46 cm, fellið af 4-5-5-5-7-8 lykkjur fyrir handvegi í byrjun á næstu 2 umferðum = 50-52-56-60-62-66 lykkjur. Prjónið áfram með mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm. Í næstu umferð eru felldar af miðju 16-16-18-18-20-20 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsmáli er fækkað um 1 lykkju = 16-17-18-20-20-22 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm og fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 42-46-50-50-54-58 lykkjur á hringprjón 6. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, síðan er prjónað frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, A.1, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 20-24-28-28-32-36 lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið stroff svona í 10 cm. Skiptið yfir á hringprjón 8. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá röngu: 1 lykkja í garðaprjóni, brugðnar lykkjur yfir næstu 20-24-28-28-32-36 lykkjur og fækkið um 4-6-8-6-7-8 lykkjur jafnt yfir þessar, 16 lykkjur brugðið og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni = 38-40-42-44-47-50 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 4 lykkjur perluprjón, A.3, perluprjón yfir næstu 16-18-20-22-25-28 lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 12 cm, byrjar affelling fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 41-42-43-44-45-46 cm, fellið af 4-5-5-5-7-8 lykkjur fyrir handveg í næstu umferð frá réttu = 34-35-37-39-40-42 lykkjur. Þegar stykkið mælist 53-55-57-58-60-62 cm, setjið ystu 14-14-15-15-16-16 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli, en til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn. Síðan eru lykkjurnar felldar af í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 16-17-18-20-20-22 lykkjur eftir á öxl. Lykkjur í A.3 eru nú prjónaðar í sléttprjóni. Fellið af þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 42-46-50-50-54-58 lykkjur á hringprjón 6. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, síðan er prjónað frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 20-24-28-28-32-36 lykkjur, A.1, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið stroff svona í 10 cm. Skiptið yfir á hringprjón 8. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá röngu: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 16 lykkjur brugðið, brugðnar lykkjur yfir næstu 20-24-28-28-32-36 lykkjur og fækkið um 4-6-8-6-7-8 lykkjur jafnt yfir þessar, 1 kantlykkja í garðaprjóni = 38-40-42-44-47-50 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 16-18-20-22-25-28 lykkjur perluprjón, A.2, 4 lykkjur perluprjón og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 41-42-43-44-45-46 cm, fellið af 4-5-5-5-7-8 lykkjur fyrir handveg í næstu umferð frá hlið = 34-35-37-39-40-42 lykkjur. Þegar stykkið mælist 53-55-57-58-60-62 cm, setjið ystu 14-14-15-15-16-16 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli, en til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn. Síðan eru lykkjur felldar af í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 16-17-18-20-20-22 lykkjur eftir á öxl. Lykkjur í A.2 eru núna prjónaðar í sléttprjóni. Fellið af þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm. ERMI: Fitjið upp 44-44-48-48-52-52 lykkjur á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 6. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 8. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 14-12-14-14-16-16 lykkjur jafnt yfir = 30-32-34-34-36-36 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar = mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 11 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með 6½-6½-6-5-5-4 cm millibili alls 6-6-6-7-7-8 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Þegar ermin mælist 47-46-45-44-43-41 cm, prjónið ermakúpuna fram og til baka (frá miðju undir ermi) á hringprjóna að loka máli. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 51-51-50-49-49-48 cm, þ.e.a.s. það er klauf ca 4-5-5-5-6-7 cm efst á ermi. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasaumana. Saumið hliðarsauma í ystu lykkjubogana, niður að stroffi (10 cm klauf í hvorri hlið). Saumið ermakúpuna við handveg. Saumið síðan klauf efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu og mitt að framan og prjónið upp ca 84 til 96 lykkjur í kringum hálsmál (ásamt lykkjum af þráðum) á stuttan hringprjón 6. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið með byrjun frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið stroff svona í 8 cm. Fellið af 4 kantlykkjur að framan í hvorri hlið og haldið áfram með stroff með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið þar til stroffið mælist alls 16 cm. Fellið af. Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið það niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að kanturinn í hálsmáli dragi ekki stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju á köntum að framan með smáu spori. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mossvinecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 36 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 244-31
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.