Andrea skrifaði:
Hallo, ich habe eine Frage zur Anzahl der Maschen: Wenn 17 Maschen 10cm Breite ergeben, sind dann nicht die im Muster genannten Maschen viel zuviel sein? Z.B? Größe S - Rücken …… 1 Randmasche , 1 Masche rechts, 120 Maschen Muster A2, 1 Masche rechts, 1 Randmasche= 124 Maschen = 72 cm bei Nadelstärke 5 Es sollen aber doch nur 54 cm Breite für das Rückenteil sein. Viel Grüße
04.11.2024 - 16:18DROPS Design svaraði:
Liebe Andrea, die 17 Maschen der Maschenprobe sind Glattrechts gestrickt, für den Pullover strickt man Zöpfe, für Zöpfe braucht man mehr Maschen als fürs Glattrechts da Zöpfe die Arbeit zusammenziehen, so sollte Ihre Maschenprobe in der Breite stimmen, dann misst die fertige Arbeit genauso wie bei der Skizze. Viel Spaß beim Stricken!
05.11.2024 - 09:12
Carmela Grassi skrifaði:
Salve, ho lavorato 136 maglie per 10 cm, ma 136 maglie corrispondono a 80 cm, non a 54 come indicato nel modello per la taglia S. 54 cm sono circa 102 maglie, quindi tutte le indicazioni vanno riviste. Che fare?
27.01.2024 - 16:30DROPS Design svaraði:
Buongiorno Carmela, il bordo inferiore è lavorato con i ferri più piccoli per via delle coste. Il modello poi si lavora con i ferri più grandi sul corpo, che sono quelli con cui lavorare il campione. Buon lavoro!
03.02.2024 - 10:31
MURIEL COUSIN skrifaði:
Bonjour Pour le diagramme A1 B a quoi correspond le trait après les deux cases blanches svp Il n apparaît pas dans la légende Cordialement
28.10.2023 - 18:52DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Cousin, ce symbole correspond à 2 mailles ensemble à l'endroit, merci pour votre retour, la correction va être faite le plus rapidement possible. Bon tricot!
30.10.2023 - 16:12
Nelly skrifaði:
L’échantillon est avec des aiguilles 4 ou 5 ? Je l’ai fait avec des aiguilles 4 et il manque deux cm de haut et de large… ça fait beaucoup !
19.10.2023 - 19:58DROPS Design svaraði:
Bonjour Nelly, l'échantillon jersey se tricote avec les aiguilles 5. C'est l'échantillon classique pour cette laine. Essayez éventuellement de bloquer votre échantillon pour voir si vous obtenez plus facilement les mesures. Sinon, il vous faudra utiliser des aiguilles plus grosses pour obtenir le bon échantillon. Bon tricot!
20.10.2023 - 08:10
ÁNGELA GARCÍA ALARCÓN skrifaði:
¿Qué significa el signo / en el esquema A1.B?
19.10.2023 - 13:08DROPS Design svaraði:
Hola Ángela, se trata de una errata en el patrón: el símbolo son 2 puntos juntos de derecho. Lo corregiremos lo antes posible.
22.10.2023 - 23:18
Madlen skrifaði:
Toasted cinnamon
05.08.2023 - 06:29
Kristen skrifaði:
Falling Slowly
03.08.2023 - 18:51
Flaming Heart Sweater#flamingheartsweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með köðlum, tvöföldum kanti í hálsmáli og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 245-10 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG (hægri öxl): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (1 lykkja færri). FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG (vinstri öxl): Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (1 lykkja færri), prjónið 1 lykkju slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. ÚTAUKNING (á við um ermar): Byrjið 1 lykkju á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Nýjar lykkjur eru prjónaðar áfram í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp, í stykkjum sem saumuð eru saman í lokin. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Í lokin er prjónaður upp tvöfaldur kantur í hálsmáli. BAKSTYKKI: Fitjið upp 136-142-150-158-182-194 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað þannig – frá réttu. Stærð S og XXL: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 1-2 lykkjur slétt, A.1A yfir næstu 132-176 lykkjur, 1-2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Stærð M, L, XL, XXXL: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið * prjónið frá *-* yfir næstu 4-8-12-8 lykkjur, A.1A yfir næstu 132-132-132-176 lykkjur, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 4-8-12-8 lykkjur, 1 kantlykkja í garðaprjóni. ALLAR STÆRÐIR: Haldið svona áfram með stroff (A.1A er endurtekið á hæðina) þar til stykkið mælist 10 cm, endið með eina umferð frá réttu. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, brugðnar lykkjur yfir næstu 1-4-8-12-2-8 lykkjur, A.1B yfir lykkjur í A.1A, endið með 1-4-8-12-2-8 lykkjur brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni = 124-130-138-146-166-178 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjón, 1-4-8-12-2-8 lykkjur sléttprjón, A.2 yfir næstu 120-120-120-120-160-160 lykkjur, 1-4-8-12-2-8 lykkjur sléttprjón, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm, fellið af 4-6-9-11-14-19 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum = 116-118-120-124-138-140 lykkjur. Prjónið áfram með mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. Í næstu umferð eru miðju 32-34-36-38-40-42 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja = 41-41-41-42-48-48 lykkjur eftir á öxl. Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í kaðal, eru prjónaðar með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm og fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI. Fitjið upp jafn margar lykkjur og á bakstykki og prjónið á sama hátt og á bakstykki þar til stykkið mælist 51-53-55-56-58-60 cm. Í næstu umferð eru miðju 26-28-30-32-34-36 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð byrjar úrtaka fyrir hálsmáli, fækkið lykkjum í hverri umferð frá réttu þannig: 1 lykkja 4 sinnum, lesið ÚRTAKA = 41-41-41-42-48-48 lykkjur eftir á öxl. Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í kaðal, eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið þar til stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm og fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 60-60-64-64-68-68 lykkjur á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 4 með DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð slétt. Síðan er prjónað stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna / stutta hringprjóna 5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-10-12-10-12-10 lykkjur jafnt yfir = 48-50-52-54-56-58 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar = mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 11 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4½-4-3½-3½-2½-2 cm millibili alls 8-9-10-10-11-12 sinnum = 64-68-72-74-78-82 lykkjur. Þegar ermin mælist 46-44-44-43-39-36 cm, prjónið ermakúpuna fram og til baka á hringprjóna (frá merkiþræði mitt undir ermi) að loka máli. Prjónið fram og til baka þar til ermin mælist 48-48-49-49-47-47 cm, þ.e.a.s. það er klauf 2-4-5-6-8-11 cm efst á ermi. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermakúpuna við handveg – sjá teikningu. Saumið hliðarsauma í ystu lykkjubogana, niður að stroffi (10 cm klauf í hvorri hlið). Saumið ermar í. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið stuttan hringprjón 4 og DROPS Brushed Alpaca Silk. Byrjið frá réttu við annan axlasauminn. Prjónið upp ca 108 til 136 lykkjur í kringum hálsmál (ásamt lykkjum á þræði). Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið hringinn í stroffprjóni (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Prjónið þar til stroffið mælist alls 16 cm. Fellið af. Brjótið kant í hálsmái niður að innanverðu á stykki og saumið niður, passið uppá að kanturinn dragist ekki saman. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #flamingheartsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 245-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.