Gabrielle Gauthier skrifaði:
Bonjour, Est-ce que c’est possible d’avoir ce patron en français, SVP?? Merci
04.10.2024 - 14:19DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Gauthier, bien sûr, cliquez à tout instant sur le menu déroulant à côté de l'icône imprimante pour changer la langue des explications, ou bien ici pour celui-ci. Bon tricot!
04.10.2024 - 15:56
Agnes Mayer skrifaði:
Hallo! Habe die Schuhe in Größe 41 gestrickt. Leider war die Hauptwolle (hier hellblau) zu wenig. Ist schade, dass die Vorgaben nicht stimmen. Mit freundlichen Grüßen
27.01.2024 - 19:15
Gaetane skrifaði:
Bonjour ! J ai réussit ! Auriez vous un autre motif que celle du chat 🐱 comme patron? En étant dans le même patron du chausson ? Comme exemple un hockeyeur ou autre ? Merci 🙏
09.12.2023 - 14:12DROPS Design svaraði:
Bonjour Gaetane, félicitations! Nous n'avons pas ce type de motifs, mais vous retrouverez ici tous nos modèles de chaussons. L'un d'eux pourra peut-être vous inspirer? Bon tricot!
11.12.2023 - 08:33
Gaetane skrifaði:
Bonjour c est quoi des groupes de fil C et À ? Merci 🙏 (Tricoter ensuite jusqu'à la maille rabattue, puis continuer en allers et retours à partir de là. ) Est-ce que rendu à la maille Rabattue on tourne pour continuer au point mousse etc. . .? Merci 🙏
08.12.2023 - 12:37
Gaetane skrifaði:
Bonjour ! Que veut dire le sigle, étoile = mailles au dessus du pied ? Je ne saisi pas ça ? Merci 🙏 je veut le réaliser pour ma fille qui a 2 chat 🐱😉 merci 🙏
05.12.2023 - 12:01DROPS Design svaraði:
Bonjour Gaetane, la maille avec ce symbole doit être celle qui se trouve au milieu de celles du dessus du pied, autrement dit la maille centrale des 7 ou 9 mailles du dessus du pied (cf taille). Cette leçon explique comment centrer un modèle et pourra vous aider ici. Bon tricot!
05.12.2023 - 16:01
Iris Hagen skrifaði:
Hallo Drops Team, ich habe eine Frage zu den blauen Socken mit der Katze ... gibt es eine Anleitung für einen 4 1/2 jährigen Jungen auch ? Über eine Antwort würde ich mich sehr freuen . Vielen Dank für ihre Bemühungen, mit freundlichen Grüßen Iris H.
10.10.2023 - 20:44DROPS Design svaraði:
Liebe Iris H., hier finden Sie diese Socken in der Grösse 24 bis 43. Hoffentlich kann es Ihnen helfen. Viel Spaß beim stricken!
11.10.2023 - 08:45
Maria S skrifaði:
Hallo, \r\nich liebe das Muster und würde mich gerne daran versuchen. Ist die Wolle, die im Beispiel verwendet wurde, denn sehr kratzig oder eher nicht, da sie aus 100% Schurwolle besteht? Falls ja, was wäre ein guter Ersatz?\r\nVielen Dank schonmal im Voraus 😊
07.10.2023 - 12:12
Sam Lowrie skrifaði:
This doesn't pertain to the pattern itself, but I would like to print off the pattern to keep notes but the pattern photo pops up without any pattern notation, just the pictures of the purple/black socks. Hopefully it's just a formatting error - Thanks!
05.10.2023 - 18:00DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Lowrie, click on "Print" then choose "pattern" to open a new window, check your printer settings then launch printing. Happy knitting!
06.10.2023 - 09:00
Bewitched Cat Socks#bewitchedcatsocks |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónaðar tátiljur úr DROPS Alaska. Stykkið er prjónað frá tá og upp í marglitu mynstri með köttum. Stærð 35-43. Þema: Halloween.
DROPS 244-44 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ÚTAUKNING: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir að prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið við hitt prjónamerkið. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúið slétt til að koma í veg fyrir gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna frá tá og upp. Síðan skiptist stykkið til að gera op fyrir fót, síðan er prjónað fram og til baka fram þar til hællinn hefur verið prjónaður til loka. Hællinn er saumaður saman mitt að aftan og táin er saumuð saman að framan. Lykkjur eru prjónaðar upp í kringum op fyrir fót og stroff / leggur er prjónað í hring í stroffprjóni. TÁTILJA: Fitjið upp 16-18-20 lykkjur á sokkaprjóna 4,5 með DROPS Alaska í litnum svartur. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið 2 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna þannig: Teljið 5-5-6 lykkjur og setjið prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 7-9-9 lykkjur og setjið eitt prjónamerki á undan næstu lykkju. Byrjun umferðar er mitt undir fæti (það eru 7-9-9 lykkjur ofan á fæti og 9-9-11 lykkjur undir fæti). Setjið einn merkiþráð í miðju af 7-9-9 lykkjum ofan á fæti og látið prjónamerkin og merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu. Prjónið hringinn í sléttprjóni, jafnframt því sem í næstu umferð er aukið út hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu í annarri hverri umferð alls 5 sinnum = 36-38-40 lykkjur. Þegar stykkið mælist 4-5-6 cm prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1 – finndu þína stærð í mynsturteikningu. Passið uppá að lykkja merkt í mynsturteikningu mæti lykkju með merkiþræði ofan á fæti. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka, prjónið afgang af tátilju með litnum kornblár. Prjónið þar til stykkið mælist 11½-12½-14 cm. Prjónið 1 umferð slétt og fellið af miðjulykkju mitt ofan á tátilju = 35-37-39 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram þar sem miðjulykkjan var felld af, nú er prjónað fram og til baka héðan. Prjónið GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, þar til stykkið mælist 22-24-27 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið af með sléttum lykkjum og skiljið eftir ca 20 cm þráð áður en klippt er frá (notað við frágang). FRÁGANGUR: Brjótið affellingarkantinn saman tvöfaldan, notið þráðinn og saumið saman mitt að aftan – saumið í ysta lykkjuboga á lykkju þannig að saumurinn verði ekki þykkur. Notið litinn svartur til að sauma lykkjurnar saman frá uppfitjunarkanti framan á tá, leggið efri hlið ofan á neðri hlið og saumið saman þannig að saumurinn verði flatur og fallegur þegar tátiljan er notuð. STROFF – LEGGUR: Notið litinn kornblár og sokkaprjóna 4. Prjónið upp ca 44-48-52 lykkjur í kringum opið á táilju (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4). Passið einnig uppá að prjóna upp lykkjur mitt að framan svo ekki myndist gat þar. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) hringinn í 12-13-14 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. ÚTSAUMUR: Notið afgang af litnum sinnep, saumið út með lykkjuspori yfir lykkjur sem eru augu í hverjum ketti. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bewitchedcatsocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 244-44
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.