Suzanna Mårtensson skrifaði:
I mönstret står att man ska använda liten rundsticka 3 när man gör halskanten. I beskrivningen i början av beskrivningen att man ska använda rundsticka 3 längd 80 cm, rundsticka 4 som är 40 cm och ch 80 cm. Alltså det nämns inte rundsticka 3 som bör vara 40 cm.
05.06.2025 - 19:29DROPS Design svaraði:
Hei Suzanna. Halskanten strikkes frem og tilbake, så det spiller ingen rolle om man vil bruke 40 cm eller 80 cm. Når du skal strikke ermene kan du bruke settpinner, om du ikke har en liten (40 cm) rundpinne. mvh DROPS Design
10.06.2025 - 13:15
Bianca Eijkhout skrifaði:
Hoe kun je in hemelsnaam aan het begin van de meld 1steek afhalen de dan de draad voor het werk leggen en dan de volgende steek recht breien ? Zouden jullie mij dit uit kunnen leggen, hartelijk dank alvast
21.01.2025 - 18:44
Caro skrifaði:
Hallo zusammen, Habt ihr einen Tipp für mich wenn der Ausschnitt für die Ärmel an der Achsel etwas zu eng geworden ist. Vielen Dank. Mit freundlichen Grüßen
30.12.2024 - 15:36DROPS Design svaraði:
Liebe Caro, wie meinen Sie mit "zu eng"? Brauchen Sie mehr Maschen unter die Ärmel? Dann können Sie vielleicht mehr Maschen anschlagen/auffassen? Oder vielleicht am besten Ihr DROPS Händler mal fragen, sicher kann man Ihnen dort weiterhelfen (auch per Telefon oder per E-Mail); Viel Spaß beim Stricken!
02.01.2025 - 14:56
Marita Brockhoff skrifaði:
Hallo möchte diese Jacke stricken aber ohne Muster. Wieviel Wolle brauche ich dann? MfG M. Brockhoff
17.04.2024 - 16:30DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Brockhoff, da diese Jacke mit Muster gestrickt wurde, haben wir leider nur die Garnmenge für das Farbige Muster und die Jacke haben wir nicht mehr; am besten zählen Sie alle Farben zusammen, wahrscheinlich brauchen Sie etwas weniger. Gerne kann Ihnen damit ihr DROPS Händler - auch per E-Mail or Telefon - weiter helfen. Viel Spaß beim Stricken!
18.04.2024 - 07:52
Marie-Laure Bougant skrifaði:
Bonjour, Pouvons-nous remplacer les augmentations avec jeté par une augmentation intercalaire envers ? Merci d’avance. Marie-Laure
24.02.2024 - 14:38DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Bougant, vous pouvez tout à fait utiliser la technique que vous souhaitez pour augmenter. Bon tricot!
26.02.2024 - 08:17
Marie-Laure skrifaði:
Bonjour, Pour le diagramme, chaque ligne représente un rang endroit puis envers? Dans ce cas devons nous faire les augmentations sur l'envers? Merci pour votre aide.
02.02.2024 - 19:08DROPS Design svaraði:
Bonjour Marie-Laure, effectivement, les diagrammes montrent tous les rangs, ceux sur l'endroit (que l'on doit lire de droite à gauche) mais aussi ceux sur l'envers (que l'on doit lire de gauche à droite); augmentez comme indiqué dans le diagramme, si c'est un rang sur l'envers, faites les jeté sur l'envers et tricotez les torse à l'endroit au rang suivant sur l'endroit. Bon tricot!
05.02.2024 - 08:00
Ewa skrifaði:
Om jag följer mönstret för knapphål, står det att knapphålen blir på höger sida om koftan sitter på. Då mönstret är en herrtröja borde väl knapphålen vara på vänster sida? Tacksam för svar då jag ska börja sticka koftan.
13.01.2024 - 23:33DROPS Design svaraði:
Hej Ewa, på den her model er knaphullerne på højre forkant og passer med billedet. MEN det stemmer, de fleste sætter knapperne på højre forkant på herrejakker, så gør du bare det :)
16.01.2024 - 12:23
Boreal Circle Cardigan#borealcirclecardigan |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 246-10 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka/fækka eigi jafnt yfir, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 139 lykkjur) mínus kanta að framan (t.d. 14 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d.16) = 7,8. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 7. og 8. hverja lykkju og ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, prjónið ca 7. og 8. hverja lykkju slétt saman. KANTLYKKJUR: Í byrjun á umferð eru prjónaðar 2 kantlykkjur þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Í lok umferðar eru prjónaðar 2 kantlykkjur þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt. Endurtakið þetta í byrjun og í lok hverrar umferðar. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þegar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Síðan er fellt af fyrir 6-6-6-7-7-7 næstu hnappagötum með ca 9-9½-10-8½-9-9 cm millibili. Neðsta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 127-135-141-145-151-155 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með litnum ljós brúnn í DROPS Karisma. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, endið með 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff. Þegar stroffið mælist 6 cm, eru fitjaðar upp 6 nýjar lykkjur í lok 2 næstu umferða = 139-147-153-157-163-167 lykkjur. Haldið áfram með stroff, en prjónið KANTLYKKJUR – lesið útskýringu að ofan – yfir 2 ystu lykkjur í hvorri hlið og garðaprjón yfir 5 lykkjur innan við kantlykkjur – þ.e.a.s. það eru 7 kantlykkjur að framan, þær 2 ystu af þessum 7 lykkjum eru prjónaðar eins og kantlykkjur. Kantlykkjur að framan eru alltaf prjónaðar í litnum ljós brúnn. Þegar stroffið mælist 12 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 16-16-18-18-20-20 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur að framan) – lesið ÚTAUKNING / ÚRTAKA, í þessari umferð byrjar einnig affelling fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan = 123-131-135-139-143-147 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, kantar að framan halda áfram eins og áður. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Lesið LEIÐBEININGAR! Prjónið síðan þannig – frá réttu: 7 kantlykkjur að framan eins og áður, A.1 þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1 (þannig að mynstrið byrji og endi á sama hátt), 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Jafnframt í hverri umferð með ör í mynsturteikningu er aukið út þannig: ÖR 1: aukið út 24-28-28-32-36-40 lykkjur jafnt fördelat = 147-159-163-171-179-187 lykkjur. ÖR 2: aukið út 24-28-32-36-36-40 lykkjur jafnt yfir = 171-187-195-207-215-227 lykkjur. ÖR 3: aukið út 24-28-32-36-36-40 lykkjur jafnt yfir = 195-215-227-243-251-267 lykkjur. ÖR 4: aukið út 24-28-32-36-36-40 lykkjur jafnt yfir = 219-243-259-279-287-307 lykkjur. ÖR 5: aukið út 28-28-32-36-40-40 lykkjur jafnt yfir = 247-271-291-315-327-347 lykkjur. ÖR 6: aukið út 28-28-32-36-40-40 lykkjur jafnt yfir = 275-299-323-351-367-387 lykkjur. ÖR 7: aukið út 28-32-32-36-40-44 lykkjur jafnt yfir = 303-331-355-387-407-431 lykkjur. ÖR 8: aukið út 31-31-31-35-39-43 lykkjur jafnt yfir = 334-362-386-422-446-474 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 7 kantlykkjur að framan í hvorri hlið og með litnum ljós brúnn. Þegar stykkið mælist 21-24-25-26-28-30 cm, mælt eftir stroffi í hálsmáli, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er að neðan. SKIPTIÐ STYKKINU FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR ÞANNIG: Prjónið 56-61-64-69-74-80 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 62-66-72-80-82-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 98-108-114-124-134-146 lykkjur sléttprjón (bakstykki), setjið næstu 62-66-72-80-82-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 56-61-64-69-74-80 lykkjur eins og áður (framstykki). Fram- og bakstykkið og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 222-242-258-278-302-330 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 7 kantlykkjum að framan í hvorri hlið með litnum ljós brúnn þar til stykkið mælist 37-36-37-38-38-38 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 23-25-25-27-31-33 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 245-267-283-305-333-363 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig. 7 kantlykkjur að framan eins og áður, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 7 kantlykkjur að framan eins og áður. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum frá réttu. Peysan mælist ca 68-70-72-74-76-78 cm frá öxl. ERMI: Setjið 62-66-72-80-82-84 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-72-80-88-92-96 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi – mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við merkiþráð og prjónið sléttprjón hringinn með litnum ljós brúnn. Þegar stykkið mælist 3 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 5-5-3½-2½-2½-2 cm millibili alls 8-8-11-14-15-16 sinnum = 52-56-58-60-62-64 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 44-41-41-40-39-37 cm frá skiptingu. Nú eru eftir 4 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-6-6-6-6-6 lykkjur jafnt yfir = 58-62-64-66-68-70 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 48-45-45-44-43-41 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfalt uppábrot í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op mitt framan í köntum að framan með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #borealcirclecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 246-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.