Kirsten skrifaði:
Jeg venter stadig på svar fra spørgsmål om 246-3. Spørgsmålene har jeg uddybet d 23/2. Håber i vil hjælpe mig videre.
26.02.2025 - 15:50DROPS Design svaraði:
Hei Kirsten. Vi svarer fortløpende på spørsmål (daglig), men om det er veldig mange spørsmål kan det ta litt tid. Men husk du kan alltid kontakte en DROPS forhandler om hjelp. mvh DROPS Design
03.03.2025 - 14:29
Kirsten skrifaði:
Jeg strikker i str L og har nu 145 m i bærestykket, er nået til udtagningen i mønsterdiagrammet, men kan ikke komme videre da jeg ikke forstår udtagningen. På sidste pind i A1 tages der (i str L ) 2 m ud jævnt fordelt = 275, I mønsterdiagrammet er der markeret 4 pinde med udtagninger, hvor mange masker tages ud på henholdsvis 1-2-3-4 de 4 pinde markeringer til jeg når de 275 m og hvad betyder de omtalte 2m jævnt fordelt, mønsteret skal jo passe sammen.
23.02.2025 - 12:03DROPS Design svaraði:
Hei Kirsten. Oval sort prikk = økninger. Forklaring på hvordan du øker står over diag (siste ikonet). I str. L har du 145 masker når du starter på diag. Strikk 7 stolpemasker som før, deretter strikker du A.1 (3 masker), så strikker du A.2 til det gjenstår 11 masker på pinnen (du har da strikket A.2 31 ganger), så strikkes A.3 før du avslutter pinnen med 7 stolpemasker. Så strikker du A.1+A.2+A.3 1 gang i høyden og da øker du på pinne 7-11-15-17 = 273. Når du skal strikke siste pinne av diag øker du 2 masker jevnt fordelt på pinnen, mønstret kan forskyve seg litt, men du får riktig maskeantall når du skal strikke etter diag A.4+A.5+A.6. mvh DROPS Design
03.03.2025 - 10:33
Lucia skrifaði:
Buona sera, vorrei fare questo cardigan ma solo di colore cammello...come posso fare? Grazie della risposta
19.01.2025 - 19:06DROPS Design svaraði:
Buonasera Lucia, per un'assistenza così personalizzata si può rivolgere al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!
21.01.2025 - 23:06
Barbara skrifaði:
U heeft mijn vraag van 9 januari nog niet beantwoord en dat hoeft niet meer. Ik heb mijn fout ontdekt en opgelost door toch maar 30 steken in de laatste naald te meerderen.
11.01.2025 - 11:26
Barbara skrifaði:
Ik heb een probleem met het aantal steken dat ik moet meerderen in de laatste naald van A1. Er staat: Op de laatste naald in A.1 meerdert u 0-4-2-6-4-2 steken verdeeld = 233-261-275-303-317-331 steken. Ik zou dan met 6 steken op 303 steken uit moeten komen. Maar ik heb er 30 nodig? Ik heb volgens mij netjes de meerderingen van A1-A3 gedaan want de figuurtjes kloppen wel. Moet ik nu dan maar 30 steken meerderen om goed uit te komen?
09.01.2025 - 16:27DROPS Design svaraði:
Dag Barbara,
In totaal moet je na die 6 steken meerderen 303 steken op de naald hebben, dus ook de biessteken e.d. meegerekend. Dus niet alleen de steken van A.1 maar alle steken.
11.01.2025 - 13:48
Sandra skrifaði:
How much wool would be needed if knitting in one colour only?
06.01.2025 - 18:35DROPS Design svaraði:
Dear Sandra, as we worked it with pattern, we don't have the matching amount for one-color cardigan and we unfortunately do not have it anymore, but you can add all colors together, you might require somewhat less. Your DROPS Store might help you - even per mail or telephone. Happy knitting!
07.01.2025 - 09:25
Ben Gilmartin skrifaði:
On the photo the buttons and button holes seem to be on the wrong way round for a men's cardigan, or am I just confused!
05.03.2024 - 14:58
Manuela Rohrssen skrifaði:
Die Musteranleitung entspricht nicht dem Bild. Bild entspricht der Musteranleitung vom Pullover.bittr melden Sie sich Danke
13.01.2024 - 17:11
Autumn Reflections Cardigan#autumnreflectionscardigan |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, marglitu mynstri og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 246-3 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 96 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 14 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 14) = 5,8. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 5. og 6. hverja lykkju, ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. KANTLYKKJUR: Í byrjun umferðar eru prjónaðar 2 kantlykkjur þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt. Í lok umferðar eru prjónaðar 2 kantlykkjur þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt. Endurtakið þetta í byrjun og í lok hverrar umferðar. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, 3 lykkjur slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-6-6 næstu hnappagötum með 10-11-10-10-10-11 cm millibili. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þegar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 84-88-92-96-100-104 lykkjur á hringprjón 4 með litnum kamel DROPS Nepal. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 5 cm. Fitjið upp 6 nýjar lykkjur í lok 2 næstu umferða = 96-100-104-108-112-116 lykkjur. Prjónið síðan þannig – frá réttu: Prjónið 2 KANTLYKKJUR – lesið útskýringu að ofan, 5 lykkjur í garðaprjóni (= 7 kantlykkjur að framan), * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt, 5 lykkjur í garðaprjóni, 2 KANTLYKKJUR (= 7 kantlykkjur að framan). Haldið svona áfram með stroff í 5 cm (prjónaðir hafa verið alls 10 cm í stroffprjóni). Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 82-86-90-94-98-102 lykkjur, jafnframt því sem aukið er út um 14-18-20-24-26-28 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING, prjónið síðustu 7 lykkjur sem áður = 110-118-124-132-138-144 lykkjur. Kantur í hálsmáli er síðar brotinn niður og saumaður fastur, þannig að það myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið sléttprjón með 7 kantlykkjum að framan í hvorri hlið með litnum kamel í 4 cm – munið eftir að fella af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 15-19-21-25-27-29 lykkjur jafnt yfir = 125-137-145-157-165-173 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu (kantlykkjur að framan halda áfram sem áður). Lesið LEIÐBEININGAR og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið A.1, A.2 þar til 11 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.3 og 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni eins og áður. Kantlykkjur að framan eru alltaf prjónaðar í litnum kamel niður að umferð með ör í A.2, eftir það eru kantlykkjur prjónaðar í litnum beige (ef liturinn beige er ekki notaður í mynstri, er þræðinum snúið á milli kantlykkja að framan og lykkja í mynstri til að koma í veg fyrir göt, til að þurfa ekki að þræða þráðinn yfir allar lykkjurnar í umferðinni, er hægt að gera litlar dokkur fyrir kantlykkjur að framan í hvorri hlið). Í síðustu umferð í A.1 er aukið út um 0-4-2-6-4-2 lykkjur jafnt yfir = 233-261-275-303-317-331 lykkjur. Síðan er prjónað þannig: 7 kantlykkjur að framan eins og áður, A.4, A.5 þar til 12 lykkjur eru eftir, prjónið A.6 og 7 kantlykkjur að framan eins og áður. Þegar A.4, A.5 og A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 265-297-313-345-361-377 lykkjur á prjóni. Stykkið er síðan prjónað í sléttprjóni og kantlykkjur að framan eins og áður með litnum beige. Þegar stykkið mælist 24-24-25-26-28-30 cm, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuðu þannig: Prjónið 46-50-52-58-62-65 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 48-56-60-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 77-85-89-101-109-115 lykkjur eins og áður (bakstykki), setjið næstu 48-56-60-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið þær 46-50-52-58-62-65 lykkjur sem eftir eru eins og áður (framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 181-197-209-233-253-269 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 7 kantlykkjum að framan í hvorri hlið með litnum beige þar til stykkið mælist 34-36-37-38-38-38 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 19-19-19-23-27-27 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan) = 200-216-228-256-280-296 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Næsta umferð er prjónið frá röngu þannig: 7 kantlykkjur að framan eins og áður, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 7 kantlykkjur að framan eins og áður. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Fellið af aðeins laust með sléttprjóni frá réttu. Peysan mælist ca 68-70-72-74-76-78 cm frá öxl. ERMI: Setjið 48-56-60-64-64-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-62-68-72-74-78 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi – mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn með litnum beige. Þegar stykkið mælist 3 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 5-4-3½-3-3-2½ cm millibili alls 7-9-10-12-11-13 sinnum = 40-44-48-48-52-52 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 40-40-40-39-38-36 cm frá skiptingu. Nú eru eftir 6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-8-8-8-8-8 lykkjur jafnt yfir = 48-52-56-56-60-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 46-46-46-45-44-42 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op mitt framan í köntum að framan með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #autumnreflectionscardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 246-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.