Françoise Rudaz skrifaði:
Bonjour ! Je désire signaler que chez les hommes les boutonnières se trouvent sur le devant gauche. Et non pas sur le devant droit comme indiqué sur les explications du modèle. Merci de rectifier ceci. Certaines tricoteuses pourraient être déçues. Bien à vous !
06.06.2025 - 17:22
Wil skrifaði:
Goedemiddag Drops-team, waarschijnlijk heb ik iets verkeerd gedaan. Bij het minderen voor de V-hals begin je aan de goede kant. De 4e naald is bij mij dan de verkeerde kant. Dat heb ik dus niet gedaan en daar ben ik denk ik de fout ingegaan. Ik heb steeds de 3e naald , goede kant geminderd. Is het patroon verkeerd uitgelegd of ben ik fout en moet ik het uithalen?
27.05.2025 - 16:39DROPS Design svaraði:
Dag Wil,
Wanneer er staat dat je moet beginnen met minderen, minder je gelijk in die eerste naald aan de goede kant. De volgende keer dat je mindert is 4 naalden later, dus weer aan de goede kant.
28.05.2025 - 21:17
Wil skrifaði:
Dankjewel voor de duidelijke uitleg.
26.05.2025 - 21:47
Wil skrifaði:
Goedemiddag Drops-team, ik loop vast in de uitleg van het patroon voor de V- hals met de minderingen. Als ik het lees worden de minderingen aan de goede kant gemaakt. Maar het telpatroon A1 zegt: 3 averechts samen. Ook de omslag uitleg tussen 2 steken aan de verkeerde kant: waar komen die .. dat is A2 ?Ik vind het nogal moeilijk uitgelegd, is mijn mening.
26.05.2025 - 16:13DROPS Design svaraði:
Dag Wil,
De 3 steken averecht samen breien worden inderdaad aan de goede kant gemaakt. De omslag van A.2 wordt op de verkeerde kant gemaakt. Je breit eerst 1 steek averecht (boven de 3 samen gebreide steken en dan maak je een omslag.
26.05.2025 - 21:05
Fatima Tameur skrifaði:
Bonjour, Désolée, mais pour moi ce n’est pas très clair. Pour les diminutions pour la taille XL, après avoir fait la m. lisière puis la m. endroit, faut-il tricoter 2x2m ensemble pour faire les diminutions puis la figure 1 et inversément pour la fin du rang ? Je vous remercie d'avance pour votre réponse. Je vous souhaite une belle fin de journée. Cordialement, Fatima Tameur
08.05.2025 - 17:05DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Tameur, diminuez comme indiqué sous DIMINUTIONS: après les 2 premières mailles comme dans A.1 pour diminuer 2 m/A.2 pour diminuer 1 m pour le devant droit; avant les 2 dernières mailles comme dans A.1 pour diminuer 2 m et avant les 2 dernières mailles comme dans A.3 pour diminuer 1 m pour le devant bauche. Dans tous les cas, vous tricotez 3 m ens à l'env sur l'envers, mais dans A.2 et dans A.3, au rang suivant sur l'envers, faites 1 jeté en plus pour qu'il n'y ait finalement qu'une seule maille de diminuée: dans A.2 tricotez 1 m env, 1 jeté et dans A.3, 1 jeté, 1 m env. Bon tricot!
09.05.2025 - 07:45
Fatima Tameur skrifaði:
Bonjour, je suis arrivée au 39 cm du gilet mais je ne comprends pas très bien comment il faut faire pour les diminution. Je vous remercie d'avance pour votre réponse. Belle journée. Cordialement, Fatima Tameur
06.05.2025 - 12:24DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Tameur, vous tricotez la taille XL? À 39 cm de hauteur totale, vous commencez à diminuer pour l'encolure: diminuez d'abord 4 fois 2 m de chaque côté tous les 4 rangs puis 4 fois 1 maille 4 fois tous les rangs (les dernières diminutions se feront probablement après avoir divisé l'ouvrage aux emmanchures, car en même temps, à 46 cm vous rabattre 8 mailles pour chacune des emmanchures et terminerez chaque partie séparément. Retrouvez sous DIMINUTIONS au début des explications comment diminuer 2 m/ 1 m au début du rang (devant droit)/à la fin du rang (devant gauche). Bon tricot!
06.05.2025 - 13:42
Pinçon skrifaði:
Merci pour votre réponse, je prendrai peut être des aiguilles circulaires pour les manches. Cordialement
28.02.2025 - 17:44
Pinçon skrifaði:
Bonjour, Je voulais savoir si au lieu des aiguilles circulaires, je peux utiliser des aiguilles simples de même numéro ? Je n'aime pas beaucoup tricoter avec des aiguilles circulaires... Merci pour votre réponse. Cordialement
28.02.2025 - 14:52DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Pinçon, tout à fait, vos mailles seront juste davantage serrées lorsque vous tricoterez le bas du gilet, pour les manches, cette leçon pourra vous aider à adapter les explications. Bon tricot!
28.02.2025 - 17:14
Nicole Chapdelaine skrifaði:
Bonjour La veste se fait en point jersey alors pourquoi le Diagramme Merci
13.02.2025 - 16:00DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Chapdelaine, les diagrammes A.1 à A.3 montrent les diminutions pour l'encolure et les emmanchures - cf POINT FANTAISIE et DIMINUTIONS au début des explications. Bon tricot!
14.02.2025 - 08:23
Patricia skrifaði:
Hello, Does the measurement in the overview of the next section include the ribbed area? For example, I am working on the XL size and the measurement is 15¾". I am not able to tell with the schematic. Also, are the measurements for the schematic in centimeters or inches? Thank you for the clarification.
16.01.2025 - 03:49DROPS Design svaraði:
Dear Patricia, rib are included there, measure from cast on edge. All measurements in chart are in cm - convert into inches here. Happy knititng!
16.01.2025 - 16:36
City Ranger#cityrangercardigan |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með v-hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 246-7 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um úrtöku fyrir v-hálsmáli og handvegi): Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, prjónið A.1 yfir næstu 3 lykkjur. FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.1 yfir næstu 3 lykkjur, 1 lykkja slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni. FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, prjónið A.2 yfir næstu 3 lykkjur. FÆKKIÐ UM 1 LYKKJU Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.3 yfir næstu 3 lykkjur, 1 lykkja slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni. ÚTAUKNING (á við um ermar): Prjónið 1 lykkju slétt fram hjá merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir 5 hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið 2 lykkjur saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. – ATH: Það er fallegast að fella af fyrir hnappagötum með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman í einni einingu með 2 lykkjur brugðið (séð frá réttu). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Neðsta hnappagatið er staðsett ca 5 cm frá neðri kanti og efsta hnappagatið er staðsett ca 25-27-29-30-31-32 cm frá öxl og niður. Neðstu 3 hnappagötin eru staðsett jafnt yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið og bakstykkið og framstykkin er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvert fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón upp þar sem ermakúpan byrjar, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka á hringprjóna. Í lokin er prjónaður kantur í hálsmáli / kantur að framan í kringum allt opið á peysunni. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 192-208-224-240-264-280 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Nepal. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur brugðið og 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið um 30-34-38-38-46-46 lykkjur jafnt yfir = 162-174-186-202-218-234 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 merkiþráð 41-44-47-51-55-59 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 80-86-92-100-108-116 lykkjur á bakstykki á milli merkiþráða). Látið merkiþræðina fylgja með í stykkinu, merkiþræðirnir merkja hliðar á fram- og bakstykki og eru notaðir þegar fella á af fyrir handvegi. Prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Þegar stykkið mælist 38-38-38-39-40-41 cm, byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli. JAFNFRAMT því sem lykkjum er fækkað fyrir v-hálsmáli eru lykkjur felldar af fyrir handveg og hvort stykki er prjónað fyrir sig eins og útskýrt er að neðan. Lestu V-HÁLSMÁL og HANDVEGUR áður en þú prjónar áfram. V-HÁLSMÁL: Þegar stykkið mælist 38-38-38-39-40-41 cm, fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli í hvorri hlið í næstu umferð frá réttu – lesið ÚRTAKA. Fækkið um 2 lykkjur í hvorri hlið í 4. hverri umferð alls 4 sinnum í öllum stærðum. Síðan er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við 4. hverja umferð alls 3-3-4-4-5-5 sinnum. HANDVEGUR: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 43-44-45-46-47-48 cm og næsta umferð er prjónuð frá réttu, fellið af fyrir handveg þannig: Prjónið eins og áður þar til 2-3-4-4-4-5 lykkjur eru eftir á undan fyrri merkiþræði í hlið, fellið af 4-6-8-8-8-10 lykkjur fyrir handvegi, prjónið eins og áður þar til eftir eru 2-3-4-4-4-5 lykkjur á undan seinni merkiþræði, fellið af 4-6-8-8-8-10 lykkjur fyrir handvegi og prjónið eins og áður út umferðina. Framstykkin og bakstykkið er núna prjónað áfram hvert fyrir sig. VINSTRA FRAMSTYKKI: Byrjið frá röngu, prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og haldið áfram með úrtöku fyrir v-hálsmáli. Að auki er lykkjum fækkað fyrir handvegi þannig: HANDVEGUR: Í byrjun á næstu umferð frá réttu er fækkað um 1-1-1-2-2-2 lykkjur, síðan er fækkað um 1 lykkju í 4. hverri umferð alls 0-0-0-1-3-3 sinnum – munið eftir ÚRTAKA. Eftir alla úrtöku fyrir v-hálsmáli og handveg eru 27-29-30-32-33-36 lykkjur eftir á öxl. Prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Fellið af þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: Byrjið frá röngu, prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og haldið áfram með úrtöku fyrir v-hálsmáli. Að auki er lykkjum fækkað fyrir handveg þannig: HANDVEGUR: Í lok næstu umferðar frá réttu er fækkað um 1-1-1-2-2-2 lykkjur, síðan er fækkað um 1 lykkju í 4. hverri umferð alls 0-0-0-1-3-3 sinnum – munið eftir ÚRTAKA. Eftir alla úrtöku fyrir v-hálsmáli og handveg eru 27-29-30-32-33-36 lykkjur eftir á öxl. Prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Fellið af þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm. BAKSTYKKI: = 76-80-84-92-100-106 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Að auki er lykkjum fækkað fyrir handveg þannig: Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1-1-1-2-2-2 lykkjur í hvorri hlið á stykki, síðan er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið í 4. hverri umferð alls 0-0-0-1-3-3 sinnum – munið eftir ÚRTAKA = 74-78-82-86-90-96 lykkjur. Þegar stykkið mælist 59-61-63-65-67-69 cm, fellið af miðju 18-18-20-20-22-22 lykkjur fyrir hálsmáli (28-30-31-33-34-37 lykkjur eftir á hvorri öxl). Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja fyrir hálsmáli = 27-29-30-32-33-36 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 48-48-52-52-56-56 lykkjur á sokkaprjóna 4 með DROPS Nepal. Prjónið 1 umferð slétt. Síðan er prjónað stroffprjón hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 8-6-8-8-10-10 lykkjur jafnt yfir = 40-42-44-44-46-46 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar (mitt undir ermi). Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu – það á að nota hann síðar þegar auka á út mitt undir ermi. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5 og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 12-12-9-11-9-12 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4½-4-4-3-3-2½ cm millibili alls 10-11-12-13-14-15 sinnum = 60-64-68-70-74-76 lykkjur. Þegar ermin mælist 55-55-55-51-50-50 cm, prjónið næstu umferð þannig: Byrjið 2-3-4-4-4-5 lykkjum á undan merkiþræði, fellið af 4-6-8-8-8-10 lykkjur, prjónið sléttprjón út umferðina = 56-58-60-62-66-66 lykkjur. Síðan er ermakúpan prjónuð þannig: Byrjið frá röngu og prjónið sléttprjón fram og til baka og fellið af lykkjur í byrjun á hverri umferð frá hlið þannig: Fellið af 9-9-10-5-4-4 lykkjur alls 2-2-2-5-6-6 sinnum í hvorri hlið = 20-22-20-12-18-18 lykkjur. Fellið af. Ermin mælist ca 57-57-57-56-56-56 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju meðfram handvegi. KANTUR AÐ FRAMAN: Setjið 1 prjónamerki mitt aftan í hnakka á bakstykki, prjónamerkið er notað þegar helmingur af lykkjum í kanti að framan er talinn. Kantur að framan er prjónaður upp innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Byrjið neðst niðri á hægra framstykki frá réttu og prjónið upp ca 131-135-139-143-149-153 lykkjur meðfram öllum kanti að framan upp að prjónamerki í hnakka, á hringprjón 4 – látið prjónamerkið sitja hér. Haldið áfram að prjóna upp ca 131-135-139-143-149-153 lykkjur meðfram öllum kanti að framan niður að kanti á vinstra framstykki, alls á lykkjufjöldinn að vera deilanlegur með 4 + 2 = ca 262-270-278-286-298-306 lykkjur. Það er mikilvægt að stroffið verði ekki of laust með of mörgum lykkjum, en stroffið á heldur ekki að dragast saman með of fáum lykkjum. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 2 lykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 2 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff. Þegar stykkið mælist 2 cm fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – lesið útskýringu að ofan. Haldið áfram þar til stroffið mælist 4 cm. Fellið af aðeins laust. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cityrangercardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 246-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.