DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7744.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Misty Day

Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Lima. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.

DROPS 246-8
DROPS Design: Mynstur li-156
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS LIMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
550-600-650-750-800-850 g litur 7810, khaki

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7744.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju á eftir / undan 2 lykkjur í sléttprjóni í hverri skiptingu á milli framstykkis / bakstykkis og erma (prjónamerkið situr á milli þessa 2 lykkja og þessar lykkjur eru núna kallaðar laskalínulykkjur í mynstri). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan, síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni.

Uppslátturinn er prjónaður á undan og á eftir laskalínulykkjum þannig:
Á UNDAN 2 laskalínulykkjum:
Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið vinstri prjóni inn aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka yfir á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri). Það á ekki að myndast gat.
Á EFTIR 2 laskalínulykkjum:
Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann (uppslátturinn snýr til vinstri). Það á ekki að myndast gat.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum og í hliðum á fram- og bakstykki):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 3 lykkjur slétt (prjónamerkið situr í miðju á þessum 3 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 120-124-128-132-136-140 lykkjur með DROPS Lima yfir stuttan hringprjón 3 og stuttan hringprjón 4 sem haldið er saman.
Dragið út stutta hringprjón 4 og haldið lykkjum eftir á stuttum hringprjóni 3. (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur).
Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið).
Þegar stroffið mælist 4½ cm, prjónið 1 umferð brugðið yfir allar lykkjur (uppábrot). Síðan heldur stroffið áfram eins og áður (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til kantur í hálsmáli mælist 9 cm frá uppfitjunarkanti.
Nú er stroffið brotið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð í stroffprjóni eins og áður jafnframt því sem önnur hver lykkja er prjónuð saman með annarri hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar). Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu.
Setjið 1. prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð (í slétta lykkju), teljið 25 lykkjur (ermi), setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 33-35-37-39-41-43 lykkjur (framstykki), setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 25 lykkjur (ermi), setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju. Nú eru 33-35-37-39-41-43 lykkjur eftir á eftir síðasta prjónamerki (bakstykki).
Prjónið 1 umferð slétt – JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju í hverja lykkju með prjónamerki í með því að prjóna 1 lykkju slétt framan við og aftan við hverja af þessum 4 lykkjum. Að auki er aukið út um 2 lykkjur jafnt yfir bæði á framstykki og bakstykki – lesið ÚTAUKNING (lykkjum er ekki aukið út yfir ermar) = 128-132-136-140-144-148 lykkjur.
Færið 4 prjónamerkin til þannig að þau sitji á milli lykkju með prjónamerki og útauknu lykkju, í hverri skiptingu á milli framstykkis / bakstykkis og erma.
Næsta umferð er prjónuð þannig: Byrjið umferð eftir prjónamerki í byrjun umferðar, prjónið 1 lykkju sléttprjón, aukið út um 1 lykkju fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á undan 2. prjónamerki, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við laskalínulykkjur, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á undan 3. prjónamerki, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við laskalínulykkjur, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á undan 4. Prjónamerki, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við laskalínulykkjur, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir í umferð (á undan 1. prjónamerki), aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 1 lykkju sléttprjón (8 lykkjur fleiri).

Síðan er prjónað sléttprjón jafnframt því sem aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalínulykkjur í annarri hverri umferð alls 10-16-20-19-18-13 sinnum (ásamt útaukningu eins og útskýrt er að ofan) = 208-260-296-292-288-252 lykkjur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið áfram í sléttprjóni og útaukningu fyrir laskalínu, en í annarð hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykki / bakstykki (4 lykkjur fleiri í umferð). Þ.e.a.s. aukið er út á framstykki / bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið er út til skiptis um 4 og 8 lykkjur. Aukið svona út alls 16-14-12-16-20-28 sinnum á fram- og bakstykki (8-7-6-8-10-14 sinnum á ermum).
Nú hefur verið aukið út alls 26-30-32-35-38-41 sinnum á fram- og bakstykki og 18-23-26-27-28-27 sinnum á ermum.

Á eftir síðustu útaukningu eru 304-344-368-388-408-420 lykkjur á prjóni. Prjónið sléttprjón án útaukninga þar til stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm mitt að framan – mælt eftir stroffi í hálsmáli.

Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið 1 lykkju sléttprjón, setjið næstu 61-71-77-79-81-79 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 9-9-11-13-15-21 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 91-101-107-115-123-131 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 61-71-77-79-81-79 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 9-9-11-13-15-21 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið síðustu 90-100-106-114-122-130 lykkjur í sléttprjóni (bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 200-220-236-256-276-304 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki – í miðjulykkju sem fitjuð var upp í handvegi. Prjónið sléttprjón fram að fyrri merkiþræði – umferðin byrjar núna hér. Prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar stykkið mælist 8 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur í hvorri hlið á fram- og bakstykki – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 8. hverjum cm alls 3 sinnum í hvorri hlið = 188-208-224-244-264-292 lykkjur.
Prjónið síðan þar til stykkið mælist 31 cm frá skiptingu.
Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 20-22-22-22-26-30 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 208-230-246-266-290-322 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið af aðeins laust. Peysan mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 61-71-77-79-81-79 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 4 - prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 9-9-11-13-15-21 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 70-80-88-92-96-100 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 9-9-11-13-15-21 nýjar lykkjur sem prjónaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við prjóanmerki og prjónið sléttprjón hringinn.
Prjónið þar til ermin mælist 42-41-40-38-37-35 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff.
Prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 6 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum – munið eftir ÚTAUKNING = 60-62-64-66-68-70 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 48-47-46-44-43-41 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 246-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Kessareff Danièle wrote:

Bonjour, Je ne comprends pas où je dois placer le repère de début du rang. Pouvez vous m’aider svp. Je suis en train de faire les augmentations de l’empiècement. Merci beaucoup.

08.04.2024 - 17:49

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Kessaref, le marqueur du début des tours se met avant la 1ère maille du tour, le 1er marqueur du raglan se met dans la 1ère maille du tour (utilisez 2 sortes de marqueurs si besoin). Bon tricot!

09.04.2024 - 08:32

country flag Tanja wrote:

Hallo liebes Team. Ich habe Schwierigkeiten mit dem Kragen. Er sitzt nicht bei uns nicht gut. Kann ich den Kragen nachträglich wieder aufribbeln und ihn von der Brust aus neu hochstricken? Ich denke, in unserem Fall sollte ich für einen besseren Sitz verkürzte Reihen stricken. Wie mache ich dies am Besten, ohne gleich alles zu ruinieren (bin schon fast beim Abschlussbündchen)? Danke

26.03.2024 - 14:36

DROPS Design answered:

Liebe Tanja, Kragen können Sie ja danach wiederaufribbeln und dann von unten nach oben neu stricken. Wenn Sie verkürzten Reihen brauchen, kann Ihnen dieses Video helfen, damit können Sie anpassen. Viel Spaß beim Stricken!

02.04.2024 - 10:28

country flag Susan Krog wrote:

Ifm. bærestykket kan jeg ikke få maskeantallet til at passe. Jeg strikker i str. L, 128 m, efter 8 masker til raglan og 2 m til for- hhv. bagstykke, ender jeg med 140 og ikke 136, som der står i opskriften. Hvilken forskel gør 2x2 masker på for- og bagstykke.

30.01.2024 - 23:28

DROPS Design answered:

Hei Susan. Du starter med 128 masker og 4 merker i arbeidet Så strikkes det en omgang der det økes ved å strikke 2 masker i hver av de 4 maskene med merke i (ikke på hver side av merkene) = 4 økte masker + det økes 2 masker jevnt fordelt på forstykket og 2 masker jevn fordelt på bakstykket = 4 økte masker. Da blir det= 4+4+128= 136 masker. mvh DROPS Design

09.02.2024 - 09:44

country flag Marie wrote:

Bonjour« Continuer en jersey en augmentant pour le raglan mais augmenter maintenant une fois sur 2, que pour le devant et le dos. Autrement dit, on va augmenter tous les 2 tours pour le devant et le dos et tous les 4 tours pour les manches, je ne sais pas où faire les augmentations c’est au niveau du raglan (dos/devant) ou faire les augmentions n’importe où sur le devant et le dos? Et après pour les bras? Merci

25.01.2024 - 20:19

DROPS Design answered:

Bonjour Marie, suivez bien les indications de chaque partie lorsque vous avez mis les marqueurs: la 1ère manche se trouve entre les marqueurs 1 et 2, le devant entre les marqueurs 2 et 3, la 2ème manche entre les marqueurs 3 et 4 et le dos entre les marqueurs 4 et 1. Vous augmentez ensuite exactement comme avant: au début du dos/devant 1 maille après les 2 mailles endroit des raglans au début du devant/dos et 1 maille avant les 2 mailles endroit des raglans à la fin du devant/dos. Bon tricot!

26.01.2024 - 07:56

country flag Françoise wrote:

Bonjour, j\'essaie de trouver à quoi correspondent les tailles en terme de centimètres, (S, M, L, XL, XXL), je ne trouve rien sur votre site à cet égard ? Merci de votre aide.

19.01.2024 - 14:18

DROPS Design answered:

Bonjour Françoise, retrouvez toutes les mesures correspondant à chaque taille dans le schéma en bas de page; mesurez un pull similaire qui lui plaît et comparez ces mesures à celles du schéma, vous trouverez ainsi facilement sa taille, retrouvez plus d'infos ici. Bon tricot!

19.01.2024 - 16:03

country flag Marie wrote:

Bonjour, ma question concerne les 4 mailles à augmenter dans les 4 mailles avec le marqueur juste après voir tricoter le col doublé : je ne comprends comment on fait pour tricoter "la maille alternativement dans le brin avant et le brin arrière" ? un grand merci pour votre réponse. Marie

19.01.2024 - 07:57

DROPS Design answered:

Bonjour Marie, dans cette vidéo, nous montrons comment tricoter la même maille, alternativement dans le brin avant et dans le brin arrière. Bon tricot!

19.01.2024 - 09:36

country flag Yvonne wrote:

Thank you! I understand now. I am a complete beginner so I needed that bit of extra help.

05.01.2024 - 19:18

country flag Yvonne wrote:

Hello. Thank you for trying to help me with Misty Day. Sorry, but this is what I still don't understand. " In addition, increase 2 stitches evenly over each of the front and back pieces". You have shown me HOW to increase, but not WHERE. WHERE exactly in the front and back pieces should I knit the 4 extra stitches that are to be done evenly over them? Should I increase somewhere in the middle? Or should I increase one third and then two thirds of the way along?

05.01.2024 - 09:49

DROPS Design answered:

Dear Yvonne, increase these stitches evenly as explained under INCREASE TIP:, and in this lesson we explain how to increase evenly - use the number of stitches for your size for fornt/back piece and divide it by the number of sts to increase (= 2), the lesson will help you to know how to make the increases. Happy knitting!

05.01.2024 - 15:33

country flag Yvonne wrote:

I am knitting Misty Day in Drops Lima. I have read the pattern and watched the video 'How to increase to raglan and how to work the stitches the round after'. I do not understand the first row. I understand how to increase 8 stitches every second row but I do not understand "increase 1 stitch in each of the 4 marker-stitches by knitting 1 in both the front and back loop. In addition, increase 2 stitches evenly over each of the front and back pieces". WHERE do I knit these extra 8 stitches?

05.01.2024 - 00:46

DROPS Design answered:

Dear Yvonne, on the very first round on yoke you will increase evenly 2 sts on front piece + 2 ss on back piece and at the same time knit the stitches with the markers (the raglan sts) in front and back of loop (see video), this means you will increase 4 sts (4 markers) = on this round you will increase a total of 8 stitches. Happy knitting!

05.01.2024 - 08:23

country flag Wiola wrote:

Dzień dobry, mam pytanie do DROPS 246-8 rozmiar M. Po dodaniu wszystkich oczek na reglan mam dla rozmiaru M: 344 oczka wg. wzoru. Ale niestety już na tym etapie długość karczku za wykończeniem dekoltu wynosi 24 cm. Czy mogę w tym momencie podzielić robótkę i zdjąć oczka na nitkę na rękaw? Pomijając fragment: \"Dalej przerabiać dżersejem...\" Druty mam 4 mm i włóczkę Lima Drops. Nie zrobiłam próbki na początku i stąd ta rozbieżność.

17.12.2023 - 19:50

DROPS Design answered:

Witaj Wiolu, jeżeli po przymierzeniu swetra okazuje się, że tu powinien być podkrój rękawa, to oczywiście - teraz podziel robótkę i zdejmij oczka na nitki na rękawy. Pozdrawiamy!

18.12.2023 - 08:05