Scent of Lilac Vest#scentoflilacvest |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Heklaður toppur / bolur úr DROPS Safran. Stykkið er heklað ofan frá og niður í gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 241-28 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur, þessar loftlykkjur koma í stað fyrsta stuðul. LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð í A.1. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Toppurinn er fyrst heklaður fram og til baka í stykkjum, ofan frá og niður, síðan eru stykkin sett saman og heklað er fram og til baka frá miðju að framan. BAKSTYKKI: Heklið 13-13-15-15-17-17 LOFTLYKKJA – sjá útskýringu að ofan, með heklunál 3 með DROPS Safran. Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (2 stuðlar) – lesið HEKLLEIÐBEININGAR, 1 stuðul í hverja af næstu 9-9-11-11-13-13 loftlykkjum = 11-11-13-13-15-15 stuðlar. Heklið síðan A.1. Endurtakið 2 efstu umferðir í A.1 þar til stykkið mælist ca 7 cm, geymið stykkið og heklið annað band á öxl / hlýra á sama hátt. Síðan er heklað yfir bæði böndin á öxl / hlýra þannig: Heklið 1 stuðul í hverja af 11-11-13-13-15-15 lykkjum frá fyrra bandi / hlýra á öxl, heklið 43-47-51-55-63-67 loftlykkjur, heklið 1 stuðul í hverja af 11-11-13-13-15-15 lykkjum frá seinna bandi / hlýra á öxl = 65-69-77-81-93-97 lykkjur. Í næstu umferð er heklað þannig: Heklið A.2 yfir fyrstu 5 stuðla, heklið 1 stuðul í hvern stuðul og 1 stuðul í hverja loftlykkju þar til 5 stuðlar eru eftir, heklið A.2. Lestu allan næsta kafla, nú eru heklaðar 2 umferðir með mynstri, jafnframt því frá fyrstu umferð byrjar útaukning í hvorri hlið: Í 2 næstu umferðum er heklað A.3 yfir nýju stuðla í hálsmáli, A.2 yfir 5 ystu stuðla í hvorri hlið og 1 stuðul í hverja lykkju yfir þær lykkjur sem eftir eru. Þegar A.3 hefur verið heklað til loka, heklið 1 stuðul í hverja lykkju og A.2 í hvorri hlið. JAFNFRAMT frá fyrstu umferð í A.3 er aukið út um 1 stuðul í hvorri hlið, aukið út með því að hekla 2 stuðla í 1 stuðul, aukið er út í 5. lykkju inn frá hvorri hlið. Aukið út í hverri umferð alls 11-12-13-14-16-17 sinnum. Eftir alla útaukningu eru 87-93-103-109-125-131 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 17-18-19-19-21-22 cm. Endið með umferð frá röngu, klippið þráðinn. Geymið stykkið og heklið framstykkin. HÆGRA FRAMSTYKKI: Heklið 13-13-15-15-17-17 loftlykkjur með heklunál 3 og DROPS Safran. Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (2 stuðlar), 1 stuðul í hverja af næstu 9-9-11-11-13-13 loftlykkjum = 11-11-13-13-15-15 stuðlar. Heklið síðan A.1. Haldið áfram þar til A.1 hefur verið heklað ca 7 cm. Nú á að auka út í hvorri hlið, ekki er aukið út alveg eins í byrjun og í lok umferðar. Haldið áfram með stuðla með A.2 yfir ystu 5 lykkjur í hvorri hlið og aukið út þannig: Aukið út um 1 stuðul að hlið og 2 stuðla við miðju að framan. Aukið er út í hverri umferð, aukið er út í 5. lykkju inn frá hlið (byrjun umferðar séð frá réttu) og í 5. og 6. stuðul frá miðju að framan (í lok umferðar séð frá réttu). Aukið út með því að hekla 2 stuðla í hvern stuðul. Aukið út í hverri umferð alls 11-12-13-14-16-17 sinnum (aukið út um 3 stuðla í hverri umferð). Eftir alla útaukningu eru 44-47-52-55-63-66 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 17-18-19-19-21-22 cm. Endið með umferð frá röngu. VINSTRA FRAMSTYKKI: Heklið 13-13-15-15-17-17 loftlykkjur með heklunál 3 og DROPS Safran. Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (2 stuðlar), 1 stuðul í hverja og eina af næstu 9-9-11-11-13-13 loftlykkjum = 11-11-13-13-15-15 stuðlar. Heklið síðan A.1. Haldið áfram þar til A.1 hefur verið heklað ca 7 cm. Nú á að auka út í hvorri hlið, ekki er aukið út eins í byrjun og í lok umferðar. Haldið áfram með stuðla með A.2 yfir ystu 5 lykkjur í hvorri hlið og aukið út þannig: Aukið út um 2 stuðla við miðju að framan og 1 stuðul í hlið. Aukið er út í hverri umferð, aukið er út í 5. og 6. lykkju inn frá miðju að framan (byrjun umferðar séð frá réttu), og í 5. lykkju inn frá hlið (lok umferðar séð frá réttu). Aukið út með því að hekla 2 stuðla í hvern stuðul. Aukið út í hverri umferð alls 11-12-13-14-16-17 sinnum (aukið út um 3 stuðla í hverri umferð). Nú eru stykkin hekluð saman. FRAM- OG BAKSTYKKI: Heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (2 stuðlar), heklið 1 stuðul í hverja af 4 loftlykkjum, heklið 1 stuðul í hvern stuðul / loftlykkju frá vinstra framstykki, heklið 8-12-12-18-16-20 loftlykkjur, heklið 1 stuðul í hvern stuðul / loftlykkju frá bakstykki, heklið 8-12-12-18-16-20 loftlykkjur, heklið 1 stuðul í hvern stuðul / loftlykkju frá hægra framstykki, heklið 8 loftlykkjur í lok hægra framstykkis. Snúið og heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni (2 stuðlar) og heklið 1 stuðul í hverja af 4 loftlykkjum, heklið 1 stuðul í hvern stuðul / loftlykkju út umferðina = 203-223-243-267-295-315 stuðlar. Heklið A.4 yfir lykkjur í hægri kanti að framan og A.5 yfir lykkjur í vinstri kanti að framan og 1 stuðul í hvern stuðul yfir þær lykkjur sem eftir eru. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm frá þar sem stykkin voru sett saman. Heklið 1 umferð þar sem aukið er út um 14 stuðla jafnt yfir (ekki er aukið út yfir lykkjur í A.4/ A.5) = 217-237-257-281-309-329 stuðlar. Heklið (séð frá réttu) A.5, A.6 þar til 12 lykkjur eru eftir, heklið fyrstu lykkju í A.6, heklið A.4. Þegar A.6 hefur verið heklað einu sinni á hæðina er toppurinn tilbúinn. Klippið þráðinn og festið. Toppurinn mælist ca 44-46-48-50-52-54 cm frá öxl. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Tölur eru saumaðar í vinstri kant að framan. Staðsetjið efstu töluna 1 cm niður frá hálsmáli, neðstu töluna ca 4 cm frá neðri kanti og þær 3-3-3-4-4-4 tölur sem eftir eru jafnt á milli. Tölunum er hneppt í gegnum gat í hægri kanti að framan. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #scentoflilacvest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 6 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 241-28
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.