Mascha skrifaði:
Hallo! Der Pulli gefällt mir sehr gut. Gibt es ihn auch in einer Damenversion? - Aber meine eigentliche Frage ist: Was bedeutet "den Faden anziehen" (bei den verkürzten Reihen)? Vielen Dank im Voraus für die Antwort!
08.03.2023 - 21:20DROPS Design svaraði:
Liebe Mascha, hier finden Sie die Damenversion. In diesem Video, Zeit 02:53 sieht man, wie der Faden fest gezogen wird, um ein Loch am Anfang der verkürtzen Reihen zu vermeiden. Viel Spaß beim stricken!
09.03.2023 - 08:13
Early Moorning Mist#earlymoorningmistsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með tvöföldum kanti í hálsmáli og laskalínu. Stærð S - XXXL.
DROPS 233-6 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð á undan/eftir 1 lykkju sléttprjón (lykkja með prjónamerki Í). Aukið út fyrir fram- og bakstykki á undan 1. og 3. prjónamerki og á eftir 2. og 4. prjónamerki þegar prjónað er frá réttu / eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki þegar prjónað er frá röngu. Aukið út fyrir ermar á eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki þegar prjónað er frá réttu / á undan 1. og 3. prjónamerki og á eftir 2. og 4. prjónamerki þegar prjónað er frá röngu. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður frá röngu þannig: Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka aftur yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar hann er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið i fremri lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt. Uppslátturinn er prjónaður frá réttu þannig: Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka aftur yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar hann er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri). Það eiga ekki að myndast göt. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann (uppslátturinn snýr til vinstri). Það eiga ekki að myndast göt. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 88-92-96-100-104-108 lykkjur á stuttan hringprjón 5 með DROPS Air. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 13 cm. Í næstu umferð eru sett 4 prjónamerki í stykki, þetta er gert samtímis sem aukið er út um 4 lykkjur í umferð sem er útskýrð að neðan – prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu: Prjónið 10-12-12-14-14-16 lykkjur og aukið jafnframt út um 1 lykkju (hálft bakstykki), setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju, prjónið 21 lykkjur slétt (ermi), setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju, prjónið 21-23-25-27-29-31 lykkjur og aukið jafnframt út um 2 lykkjur jafnt yfir (framstykki), setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju, prjónið 21 lykkjur slétt (ermi), setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju, prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 11-11-13-13-15-15 lykkjur og aukið jafnframt út um 1 lykkju (hálft bakstykki) = 92-96-100-104-108-112 lykkjur. Klippið þráðinn. HÁLSMÁL: Skiptið yfir á hringprjón 5. Nú er hálsmálið prjónað með stuttum umferðum JAFNFRAMT því sem aukið er út fyrir laskalínu – þetta er gert eins og útskýrt er að neðan. Byrjið frá réttu, 2 lykkjur á undan lykkju með 3. prjónamerki (þ.e.a.s. í vinstri hlið á hálsmáli að framan, séð þegar flíkin er mátuð). Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki í, þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá lykkju með 2. prjónamerki (hægri hlið í hálsmáli að framan – það hafa verið auknar út 8 lykkjur fyrir laskalínu). Snúið stykkinu, herðið á þræði, prjónið til baka frá röngu og aukið út fyrir laskalínu þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem stutta umferðin byrjaði við 3. prjónamerki (það hafa verið auknar út 8 lykkjur fyrir laskalínu). Snúið stykkinu, herðið á þræði, prjónið til baka frá réttu og aukið út fyrir laskalínu þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við 2. prjónamerki (það hafa verið auknar út 8 lykkjur fyrir laskalínu). Snúið stykkinu, herðið á þræði, prjónið til baka frá röngu og aukið út fyrir laskalínu þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá 3. prjónamerki (það hafa verið auknar út 8 lykkjur fyrir laskalínu). Klippið þráðinn. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: = 124-128-132-136-140-144 lykkjur. Nú er prjónað í hring yfir allar lykkjur eins og útskýrt er að neðan. STÆRÐ S, M, L og XL: Byrjið mitt að aftan, prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu á fram- og bakstykki og ermum (þ.e.a.s. hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki í) í annarri hverri umferð alls 2-8-10-11 sinnum = 140-192-212-224 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og útaukningar fyrir laskaínu, en í annað hvert skipti sem aukið er út, aukið nú einungis á fram- og bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. aukið út á fram- og bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 18-15-14-16 sinnum á fram- og bakstykki (9-7-7-8 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 24-27-28-31 sinnum á fram- og bakstykki og 15-19-21-23 sinnum á ermum. Á eftir síðustu útaukningu eru 248-280-296-320 lykkjur í umferð. Farðu áfram í ALLAR STÆRÐIR. STÆRÐ XXL og XXXL: Byrjið mitt að aftan, prjónið sléttprjón og haldið áfram með útaukningar fyrir laskalínu í hverri umferð á fram- og bakstykki 2-6 sinnum og í annarri hverri umferð á ermum 1-3 sinnum = 152-180 lykkjur. Síðan er aukið út á fram- og bakstykki og ermar (þ.e.a.s. hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki í) í annarri hverri umferð alls 10-7 sinnum = 232-236 lykkjur. Haldið nú áfram í sléttprjóni og útaukningar fyrir laskalínu, en í annarri hverri umferð sem aukið er út, aukið nú einungis á fram- og bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. aukið út á fram- og bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 18-22 sinnum á fram- og bakstykki (9-11 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 34-39 sinnum á fram- og bakstykki og 24-25 sinnum á ermum. Á eftir síðustu útaukningu eru 340-368 lykkjur í umferð. Farðu áfram í ALLAR STÆRÐIR. ALLAR STÆRÐIR: = 248-280-296-320-340-368 lykkjur. Prjónið sléttprjón án útaukningar þar til stykkið mælist 21-23-25-27-29-31 cm mælt mitt að framan á eftir stroffi í hálsmáli. Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 37-42-43-48-51-58 lykkjur sléttprjón (hálft bakstykki), setjið næstu 49-57-61-65-67-69 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 75-83-87-95-103-115 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 49-57-61-65-67-69 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 38-41-44-47-52-57 lykkjur sléttprjón (hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 162-178-190-206-226-250 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 30 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 18-22-22-26-26-34 lykkjur jafnt yfir = 180-200-212-232-252-284 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 49-57-61-65-67-69 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 55-63-69-73-77-79 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 9-5-3½-3-2½-2½ cm millibili alls 5-8-10-11-12-12 sinnum = 45-47-49-51-53-55 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 43-41-40-38-36-35 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 5 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónað að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 7-5-7-5-7-5 lykkjur jafnt yfir = 52-52-56-56-60-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 48-46-45-43-41-40 cm frá skiptingu. Prjóni hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki og festið niður með 4 punktum með því að sauma það niður með einu spori í hverja laskalínu. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #earlymoorningmistsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 233-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.