Monika skrifaði:
Zastanawiam się, czy jeśli użyję Cotton Merino to robótka bardziej się rozciagnie niż w włóczek rekomendowanych?
12.09.2024 - 19:30DROPS Design svaraði:
Witaj Moniko, jak pracuję merynosem, zawsze robię sobie nieco większą próbkę, piorę ją i suszę. Wtedy mam pewność jak bardzo może rozciągnąć się robótka. Popatrz jeszcze TUTAJ - zasady prania i konserwacji. Pozdrawiamy!
13.09.2024 - 08:16
MARIE-PAULE FINCK skrifaði:
Bonjour, Dans le paragraphe de l'empiecement, il est ecrit d'augmenter 18 fois mais il n'est pas précisé combien de mailles. Est-ce 8 mailles réparties sur tout le tour ? J'avoue ne pas bien comprendre. Merci pour votre aide que j'attends avec impatience. Cordialement
09.10.2023 - 15:01DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Finck, vous devez augmenter comme indiqué sous RAGLAN (autrement dit: 1 m de chaque côté de chaque marqueur soit 8 mailles par tour d'augmentations) 18 fois au total tous les 2 tours: tricotez 1 tour en augmentant comme indiqué ci-dessus, 1 tour sans augmenter et tricotez 18 fois ces 2 tours (36 tours au total). Bon tricot!
09.10.2023 - 16:25
Anna skrifaði:
Prośba o korektę - w polskim opisie jest błąd: Increase like this 20-20-18-20-20-22 times on the body (10-10-9-10-10-11 times on the sleeves) Dodawać tak samo 15-17-14-17-16-19 razy na tyle i przodzie (5-7-5-7-6-8 razy na rękawach)
06.05.2023 - 22:31DROPS Design svaraði:
Dziękuję Anno, wzór został poprawiony i korekta dodana. Pozdrawiamy i dziękujemy za zainteresowanie naszymi wzorami!
07.05.2023 - 19:59
Latitude#latitudesweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Karisma eða DROPS Puna. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, laskalínu og röndum. Stærð S - XXXL.
DROPS 233-3 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 3 lykkjur (prjónamerkið situr í miðju á þessum lykkjum) í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. RENDUR: Rendur eru prjónaðar þannig: * Prjónið 4 umferðir með litnum natur / natur, prjónið 4 umferðir með litnum ljós perlugrár / ljós grár *, prjónið frá *-* að loknu máli. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum og í hlið á fram- og bakstykki): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 108-112-118-124-128-134 lykkjur á hringprjón 4 með litnum natur / natur í DROPS Karisma eða DROPS Puna. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið hringinn í stroffprjóni (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til stykkið mælist 13 cm (það á að brjóta kant í hálsmáli niður síðar). BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið jafnframt því sem prjónað er þannig: Prjónið 1 lykkju slétt og setjið 1. prjónamerki í þessa lykkju, prjónið 27 lykkjur slétt (ermi), prjónið 1 lykkju slétt og setjið 2. prjónamerki í þessa lykkju, prjónið 25-27-30-33-35-38 lykkjur slétt (framstykki), prjónið 1 lykkju slétt, setjið 3. prjónamerki í þessa lykkju, prjónið 27 lykkjur slétt (ermi), prjónið 1 lykkju slétt og setjið 4. prjónamerki í þessa lykkju, prjónið 25-27-30-33-35-38 lykkjur slétt (bakstykki). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 5-7-5-10-11-18 lykkjur jafnt yfir á milli 2. og 3. prjónamerkis (30-34-35-43-46-56 lykkjur fyrir framstykki) og á milli 4. og 1. prjónamerkis (30-34-35-43-46-56 lykkjur fyrir bakstykki) = 118-126-128-144-150-170 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt á milli 4. og 1. prjónamerkis, héðan er nú stykkið mælt. Nú er prjónað sléttprjón jafnframt því sem aukið er út fyrir LASKALÍNA og prjónaðar eru RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Aukið út í annarri hverri umferð alls 10-13-18-17-20-21 sinnum = 198-230-272-280-310-338 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með útaukningar fyrir laskalínu, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á fram- og bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. aukið er út á fram- og bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 20-20-18-20-20-22 sinnum á fram- og bakstykki (10-10-9-10-10-11 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 30-33-36-37-40-43 sinnum á fram- og bakstykki og 20-23-27-27-30-32 sinnum á ermum. Á fram- og bakstykki eru 90-100-107-117-126-142 lykkjur á milli 2. og 3. prjónamerkis og á milli 4. og 1. prjónamerkis, á ermum eru 67-73-81-81-87-91 lykkjur á milli 1. og 2. prjónamerkis og á milli 3. og 4. prjónamerkis. Þegar öll útaukning fyrir fram- og bakstykki og ermar hefur verið gerð til loka eru 318-350-380-400-430-470 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón og rendur þar til stykkið mælist 23-24-26-27-29-31 cm frá prjónamerki. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 1 lykkju slétt (lykkja með 1. prjónamerki tilheyrir bakstykki), setjið næstu 67-73-81-81-87-91 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur í hlið undir ermi, prjónið næstu 92-102-109-119-128-144 lykkjur (framstykki), setjið næstu 67-73-81-81-87-91 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur í hlið undir ermi, prjónið síðustu 91-101-108-118-127-143 lykkjur (afgangur af bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 200-220-234-258-276-308 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum í hliðum. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og röndum. Þegar stykkið mælist 5 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 5-6-6-6-6-6 cm millibili alls 4-4-4-4-4-3 sinnum = 184-204-218-242-260-296 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 28-29-29-30-30-30 cm frá skiptingu – stillið af að endað sé með minnst 2 umferðir í litnum natur / natur (nú eru eftir ca 5 cm að loknu máli) og afgangur af stykki er prjónaður í litnum natur / natur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-16-20-24-24-24 lykkjur jafnt yfir = 200-220-238-266-284-320 lykkjur. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 67-73-81-81-87-91 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-8-10-10-10 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 75-81-89-91-97-101 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau aðeins síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og röndum. Þegar ermin mælist 5 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 3½-3-2-2-1½-1½ cm millibili alls 10-12-15-15-16-17 sinnum = 55-57-59-61-65-67 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 41-41-40-38-37-35 cm frá skiptingu – stillið af að endað sé með minnst 2 umferðir í litnum natur / natur og afgangur af stykki er prjónaður með litnum natur / natur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 5-7-5-7-7-5 lykkjur jafnt yfir = 60-64-64-68-72-72 lykkjur. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 46-46-44-43-42-40 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður með nokkrum sporum við hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #latitudesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 233-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.