Joey skrifaði:
Right Sleeve: My question is about where to measure from, based on the section I've included below. Insert 1 marker in the middle of the row – USED TO MEASURE FROM. AT THE SAME TIME when the sleeve measures 4-4-5-5-6-7 cm FROM THE MARKER-THREAD, decrease 2 stitches under the sleeve... So it changes what you're measuring from? Or is it supposed to still be from the first marker? Thank you
06.08.2023 - 18:47DROPS Design svaraði:
Dear Joey, yes, once you insert the marker thread you will measure from there, unless stated otherwise (for example, if it says from the cast-on edge). The marker thread inserted later on in the right sleeve at the beginning of the round will follow the work upwards, so it can't be used for measuring. So it's 4-4-5-5-6-7 cm from the marker "used to measure from". Happy knitting!
06.08.2023 - 22:18
Martine skrifaði:
Ik zie dat A1 gecorrigeerd is, maar ik was al bezig het achterpand te breien. Moet ik dit nu uithalen? Komt het ook uit als ik doorga? Alleen de streep begint dan iets lager?
23.03.2023 - 22:58DROPS Design svaraði:
Dag Martine,
Om eerlijk te zijn weet ik niet hoe A.1 eruit zag voordat het gewijzigd is. Als het aantal naalden waarover de strepen gebreid worden gewijzigd is, wat me het meest logisch lijkt, kan je inderdaad gewoon door breien en de hoogte afmetingen aan houden.
24.03.2023 - 19:19
Jenny skrifaði:
Hej! Skulle vilja sticka denna tröja i annat garn men i konverteraren när jag skall se vilket garn jag kan använda istället för soft Tweed så finns ej 8 trådar som alternativ. Soft tweed är ju 8 trådar om jag ej förstått fel?
14.03.2023 - 20:01DROPS Design svaraði:
Hej Jenny, du vælger DROPS Soft Tweed, skriver antal gram i din størrelse, og vælger 1 tråd som denne er strikket i, så får du masser af alternativer op fra garngruppe B :)
15.03.2023 - 10:30
Mascha skrifaði:
Ahoi! Ich möchte diesen Pulli gern ohne Streifen stricken. Wieviel Garn benötige ich dann für Größe XL, 550 g + 200 g = 750 g? Oder etwas weniger? Vielen Dank im Voraus für die Hilfe.
12.03.2023 - 21:56DROPS Design svaraði:
Liebe Mascha, da wir dieses Modell nur mit Streifen gestrickt haben, haben wir leider keine Erfahrung für die Garnmenge mit nur einer Farbe, aber ja, am besten kalkulieren Sie so, es kann sein, daß wir etwas weniger brauchen. Viel Spaß beim stricken!
13.03.2023 - 10:28
Sailor Stripes#sailorstripessweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Soft Tweed eða DROPS Daisy. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með skáhallandi öxl / evrópskri öxl, röndum og háum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 239-39 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- RENDUR: Sjá mynsturteikningu A.1. LEIÐBEININGAR RENDUR (á við um rendur þegar prjónað er í hring): Til að fá fallega litaskiptingu í byrjun og í lok umferðar þegar rendur eru prjónaðar, er hægt að prjóna þannig: Skiptið yfir í nýjan lit og prjónið 1 umferð. Fyrsta lykkjan í næstu umferð er prjónuð þannig: Lyftið upp lykkjunni undir fyrstu lykkju á vinstri prjón (lykkjan er lyft upp í aftari lykkjubogann) og setjið þessa lykkju yfir á vinstri prjón. Síðan er þessi lykkja prjónuð slétt saman með næstu lykkju á vinstri prjóni. Með þessu þá sést skipting á milli lita minna. ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU: Aukið út til vinstri Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. Aukið út til hægri Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU: Aukið út til vinstri Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. Aukið út til hægri Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Efri hlutinn á bakstykki er prjónaður fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður þar til handvegur hefur verið prjónaður til loka. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram hvorri öxl, aukið er út fyrir hálsmáli og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður þar til handvegur hefur verið prjónaður til loka. Framstykkið og bakstykkið er sett saman. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp í kringum hvorn handveg. Ermakúpan er prjónuð fram og til baka á hringprjóna, síðan er afgangur af ermi prjónaður í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli í hring. BAKSTYKKI: Fitjið upp 39-39-43-43-47-47 lykkjur á hringprjón 4 í litnum natur í DROPS Soft Tweed eða DROPS Daisy. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Setjið 1 prjónamerki innan við ystu 3 lykkjur í hvorri hlið. Prjónamerkin eiga að sitja í ystu 3 lykkjum í hverri umferð í framhaldinu. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka. JAFNFRAMT er aukið út á EFTIR prjónamerki í byrjun á umferð (séð frá réttu) og á UNDAN prjónamerki í lok umferðar – sjá ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Í næstu umferð (ranga) er aukið út alveg eins – sjá ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU. Haldið áfram í sléttprjóni og aukið út alveg eins bæði frá réttu og frá röngu alls 34-38-40-44-46-50 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Á eftir síðustu útaukningu eru 107-115-123-131-139-147 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 12-14-14-16-16-18 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið með litnum natur þar til stykkið mælist ca 4-5-5-6-7-8 cm (mælt yst meðfram handvegi). Nú er prjónað A.1 fram og til baka yfir allar lykkjur og er endurtekið á hæðina – lesið RENDUR. Haldið áfram þar til stykkið mælist ca 15-16-16-17-18-19 cm (mælt yst meðfram handvegi) og A.1 hefur verið prjónað 3 sinnum á hæðina. Klippið þráðinn. Setjið lykkjur á þráð og geymið stykkið. Prjónið framstykkið eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: Byrjið með hægri öxl (séð þegar flíkin er mátuð). Prjónið upp frá réttu 34-38-40-44-46-50 lykkjur innan við 1 lykkju meðfram hægri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. prjónið upp 1 lykkju í hverja umferð meðfram kanti efst á bakstykki) með litnum natur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Haldið áfram í sléttprjóni fram og til baka. Þegar stykkið mælist 6 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út um 1 lykkju fyrir hálsmáli innan við 3 lykkjur í lok hverrar umferðar frá réttu, lesið ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Aukið út fyrir hálsmáli svona alls 6-6-7-7-8-8 sinnum. Á eftir síðustu útaukningu eru 40-44-47-51-54-58 lykkjur í umferð. Klippið þráðinn og setjið lykkjur á þráð þegar síðasta útaukning frá réttu hefur verið gerð. Nú er vinstri öxl prjónuð eins og útskýrt er að neðan. Prjónið upp frá réttu 34-38-40-44-46-50 lykkjur innan við 1 lykkju meðfram vinstri öxl á bakstykki með litnum natur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu (þ.e.a.s. frá hálsi): Haldið áfram í sléttprjóni fram og til baka. Þegar stykkið mælist 6 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út um 1 lykkju fyrir hálsmáli innan við 3 lykkjur í byrjun á hverri umferð frá réttu, lesið ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Aukið út fyrir hálsmáli svona alls 6-6-7-7-8-8 sinnum. Á eftir síðustu útaukningu eru 40-44-47-51-54-58 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið sléttprjón yfir 40-44-47-51-54-58 lykkjur frá vinstra framstykki, fitjið upp 27-27-29-29-31-31 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið sléttprjón yfir 40-44-47-51-54-58 lykkjur frá hægra framstykki = 107-115-123-131-139-147 lykkjur. Síðan er prjónað sléttprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 14-15-17-18-19-20 cm (mælt yst meðfram handvegi) prjónið A.1 – munið eftir útskýringu að ofan. Haldið áfram þar til stykkið mælist ca 25-26-28-29-30-31 cm og það eru alls 3 rendur alveg eins og á bakstykki. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið rendur eins og áður yfir 107-115-123-131-139-147 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 6-6-10-10-14-18 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir 107-115-123-131-139-147 lykkjur frá bakstykki og fitjið upp 6-6-10-10-14-18 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) = 226-242-266-282-306-330 lykkjur. Haldið áfram með A.1 hringinn á fram- og bakstykki þar til stykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm, mælt frá efsta punkti á öxl á framstykki- endið eftir nokkrar umferðir með litnum natur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 22-26-26-26-30-30 lykkjur jafnt yfir = 248-268-292-308-336-360 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm með litnum natur. Fellið aðeins laust af. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm, mælt frá efsta punkti á öxl á framstykki. HÆGRI ERMI: Notið hringprjón 4 og litinn natur, prjónið upp frá réttu 32-34-34-36-38-40 frá botni á handvegi og upp að öxl (meðfram bakstykki) og 53-55-59-61-63-65 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram framstykki) = 85-89-93-97-101-105 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – prjónamerkið á að nota til að mæla frá. Byrjið frá röngu og prjónið sléttprjón fram og til baka þar til ermin mælist 1-1-2-2-3-4 cm. Nú er stykkið sett saman og afgangur af ermi er prjónaður í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist ca 3-3-3-4-4-4 cm. Prjónið síðan A.1 – munið eftir LEIÐBEININGAR RENDUR. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 4-4-5-5-6-7 cm frá þar sem prjónamerki var sett, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-3-2½-2½-2-1½ cm millibili alls 12-12-14-14-16-16 sinnum = 61-65-65-69-69-73 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 42-41-40-40-39-38 cm. Nú eru eftir ca 6 cm að loka máli. Endið eftir nokkrar umferðir með litnum natur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjum er aukið út jafnt yfir = 68-72-72-76-76-80 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 48-47-46-46-45-44 cm. Saumið botninn á handvegi – sjá teikningu. VINSTRI ERMI: Notið hringprjón 4 og litinn natur, prjónið upp frá réttu 53-55-59-61-63-65 lykkjur frá botni á handvegi og upp að öxl (meðfram framstykki) og 32-34-34-36-38-40 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi á hinni hliðinni (meðfram bakstykki) = 85-89-93-97-101-105 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – prjónamerkið er notað til að mæla frá. Afgangur af ermi er prjónaður á sama hátt og hægri ermi. Saumið botninn á handvegi – sjá teikningu. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við aðra axlarlínuna og prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju ca 120-140 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með litnum natur. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm. Fellið af. Ef maður vill hafa tvöfaldan kant í hálsmáli er stroffið brotið niður að innanverðu á stykki. Saumið nokkur spor við hvora öxl þannig að hálsmálið leggist fallega. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sailorstripessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 239-39
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.