Joanna Gibowska skrifaði:
Spódnica bardzo mi się podoba. Moja jest w kolorze 03. Radziłabym jednak zrobić rozmiar większą i trochę dłuższą, bo wiskoza po praniu się kurczy, a tej wełny nie wolno prasować. Dół wykończyłam szydełkiem. Super 👍
01.06.2023 - 10:59DROPS Design svaraði:
Joasiu, jak zaczniesz ją nosić, to spódniczka znów się troszkę rozciągnie i nie powinna być zbyt mała. Bardzo dziękujemy za zainteresowanie naszymi wzorami i włóczkami :) Pozdrawiamy!
01.06.2023 - 11:37
Laetitia skrifaði:
Bonjour Dans le matériel, il est écrit qu'il faut des aiguilles 3 et 4 mais dans les explications je ne vois pas à quel moment il faut prendre les aiguilles 4 mm. Pouvez vous m'éclairer sur ce point svp? Merci
26.04.2023 - 22:41DROPS Design svaraði:
Bonjour Laetitia, effectivement, nos stylistes vont vérifier cela le plus rapidement possible, merci pour votre retour. Vous devrez changer pour l'aiguille circulaire 4 après la bordure doublée (pour la partie JUPE. Bon tricot!
27.04.2023 - 08:23
Henriette Bildt Pedersen skrifaði:
Den er så enkel og fin, håber på mange stemmer til den
22.01.2023 - 16:36
Kari Little skrifaði:
Rosebud Skirt
19.01.2023 - 10:12
Rosa G skrifaði:
Sweet skirt
18.01.2023 - 17:44
Lunea skrifaði:
Just "skirty"
17.01.2023 - 20:29
Rose Whisper Skirt#rosewhisperskirt |
|
![]() |
![]() |
Prjónað pils úr DROPS Belle. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 240-11 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ÚTAUKNING-1: Aukið út í hvorri hlið þannig: Prjónið 4 lykkjur fram hjá prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttprjón þar til 4 lykkjur eru eftir á undan næsta prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur sléttprjón, 4 lykkjur garðaprjón (prjónamerkið situr mitt á milli þessa 4 lykkja), prjónið 2 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttprjón þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur sléttprjón og 2 lykkjur garðaprjón. Það hafa verið auknar út 4 lykkjur í umferð, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt – það eiga ekki að myndast göt. ÚTAUKNING-2: Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á UNDAN hverju prjónamerki í umferð. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt – það eiga ekki að myndast göt. Aukið út til skiptis á UNDAN og á EFTIR prjónamerkjum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PILS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. FALDUR OG KANTUR: Fitjið upp 140-152-168-184-212-236 lykkjur á hringprjón 3. Prjónið hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist 1½ cm (faldur innan á pilsi). Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 1½ cm. Brjótið faldinn inn að innanverðu á stykki, svo hægt verði að prjóna faldinn saman með lykkjum á prjóni í næstu umferð. Prjónið næstu umferð þannig: * Stingið inn hægri prjóni í næstu lykkju á vinstri prjóni, stingið inn prjóni í sömu lykkju neðst meðfram uppfitjunarkanti, prjónið þessar 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt og 2 lykkjur brugðið frá vinstra prjóni, hoppið yfir 3 lykkjur meðfram uppfitjunarkanti *. Prjónið frá *-* umferðina hringinn. Nú hefur 4. hver lykkja frá uppfitjunarkanti verið prjónuð saman með lykkjum á prjóni (faldur fyrir teygju sem er síðar þrædd inn í). Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stroffið mælist alls 5 cm. PILS: Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 4 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, setjið eitt prjónamerki á milli þessa 4 lykkja, prjónið 66-72-80-88-102-114 lykkjur sléttprjón, prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni og setið eitt prjónamerki á milli þessa 4 lykkja, prjónið 66-72-80-88-102-114 lykkjur sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram í sléttprjóni með 4 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið að loknu máli. Þegar stykkið mælist 6 cm eru sett 8 merkiþræðir í stykkið án þess að prjóna. Teljið frá prjónamerki í hlið og setjið merkiþræði þannig: * Teljið 14-15-16-18-21-23 lykkjur og setjið einn merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 14-15-17-18-21-24 lykkjur og setið einn merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 14-16-18-20-22-24 lykkjur og setjið einn merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 14-15-17-18-21-24 lykkjur og setjið einn merkiþráð á undan næstu lykkju, nú eru eftir 14-15-16-18-21-23 lykkjur fram að prjónamerki í hlið *. Endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar. Nú hafa verið settir 4 merkiþræðir í framhlið á pilsinu og 4 merkiþræðir í bakhlið á pilsinu. Í næstu umferð er aukið út við prjónamerkin og merkiþræðina – sjá ÚTAUKNING-1 og ÚTAUKNING-2 í útskýringu að ofan og aukið út mismunandi eftir stærðum þannig: STÆRÐ S - M - L: Í fyrsta skipti sem aukið er út, aukið út við bæði prjónamerkin og við merkiþræðina, síðan er útaukningin endurtekin við prjónamerkin með 1½-1½-1½ cm millibili þar til aukið hefur verið út alls 22-23-23 sinnum og útaukning við merkiþræðina með 11-11-12 cm millibili þar til aukið hefur verið út alls 3 sinnum. STÆRÐ XL - XXL - XXXL: Í fyrsta skipti sem aukið er út, aukið út við bæði prjónamerkin og við merkiþræðina, síðan er útaukningin endurtekin við prjónamerkin til skiptis með 1½ og 2 cm millibili þar til aukið hefur verið út alls 24-24-24 sinnum og útaukning við merkiþræðina með 13-14-15 cm millibili þar til aukið hefur verið út alls 3 sinnum. ALLAR STÆRÐIR: Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka eru 252-268-284-304-332-356 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón og garðaprjón þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm. Fellið af með sléttum lykkjum. FRÁGANGUR: Klippið teygju í lengd sem passar. Þræðið teygjuna inn í gegnum faldinn í mitti efst á pilsinu, hnýtið hnút. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #rosewhisperskirt eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 240-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.