DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5720.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Reflections of Aurora

Heklað pils úr DROPS Safran. Stykkið er heklað ofan frá og niður með öldumynstri og röndum. Stærð S - XXXL.

DROPS 239-27
DROPS Design: Mynstur e-348
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-100-100-150-150 g litur 50, mynta
100-100-100-100-150-150 g litur 72, krít
100-100-100-100-150-150 g litur 70, sæt orkidéa
100-100-100-100-100 100 g litur 63, sægrænn
100-100-100-100-100-100 g litur 65, pistasía
50-50-50-50-100-100 g litur 62, sítróna
50-50-50-50-50-50 g litur 06, gallabuxnablár
50-50-50-50-50-50 g litur 64, ljós beige

TÖLUR:
DROPS TALA NR 521: 3 stykki í allar stærðir.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 3,5.

HEKLFESTA:
22 fastalykkjur / stuðlar á breidd = 10 x 10 cm.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5720.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR-1:
Í öllum umferðum með fastalykkjum er snúið við með 1 loftlykkju, þessi loftlykkja kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju.

HEKLLEIÐBEININGAR-2.
Í hverri umferð með öldumynstri er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur og hver umferð endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.

LOFTLYKKJA:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju / stuðull.

RENDUR:
Það eru heklaðar rendur þannig: ATH! Rendurnar enda mismunandi eftir stærðum:
2 umferð með litur 62, sítróna
6 umferð með litur 65, pistasía
2 umferð með litur 64, ljós beige
2 umferð með litur 63, sægrænn
2 umferð með litur 72, krít
4 umferð með litur 50, mynta
4 umferð með litur 70, sæt orkidéa
4 umferð með litur 72, krít
2 umferð með litur 06, gallabuxnablár
2 umferð með litur 65, pistasía
4 umferð með litur 63, sægrænn
2 umferð með litur 64, ljós beige
4 umferð með litur 70, sæt orkidéa
2 umferð með litur 62, sítróna
3 umferð með litur 72, krít
2 umferð með litur 50, mynta
2 umferð með litur 63, sægrænn
2 umferð með litur 64, ljós beige
4 umferð með litur 06, gallabuxnablár

Ef allar rendurnar hafa verið heklaðar til loka, heklið aftur frá byrjun.

ÚRTAKA:
HEKLIÐ 2 LYKKJUR SAMAN Í 1 STUÐUL:
* Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja færri).

HEKLIÐ 3 LYKKJUR SAMAN Í 1 STUÐUL:
* Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum 2 fyrstu lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 3 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PILS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað ofan frá og niður. Heklað er fram og til baka frá hlið þangað til op / klauf í hlið hefur verið hekluð til loka, síðan er heklað í hring.

PILS:
Heklið 151-165-181-195-225-255 LOFTLYKKJA – sjá útskýringu að ofan, með heklunál 3,5 með litnum mynta í DROPS Safran.
Heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, síðan er hekluð 1 fastalykkja í hverja loftlykkju = 150-164-180-194-224-254 fastalykkjur + 1 loftlykkja – Lesið HEKLLEIÐBEININGAR-1! Heklið 2 umferðir til viðbótar fram og til baka með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. Næsta umferð er hekluð þannig: 2 loftlykkjur, hoppið yfir fyrstu fastalykkju, 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, * 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* út umferðina = 75-82-90-97-112-127 fastalykkjur og 75-82-90-97-112-127 loftlykkjur. Næsta umferð er hekluð þannig: 2 loftlykkjur, hoppið yfir fyrstu fastalykkju frá fyrri umferð og heklið 1 fastalykkju um fyrstu loftlykkju, * 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja um næstu loftlykkju *, heklið frá *-* út umferðina. Endurtakið þessa síðustu umferð þar til stykkið mælist 5-6-6-7-7-8 cm.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Nú er hekluð 1 umferð með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju og 1 fastalykkja um hverja loftlykkju = 150-164-180-194-224-254 fastalykkjur.
Í næstu umfeðr er aukið út jafnt yfir þannig: * 1 fastalykkja í hvora af 2 fyrstu fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* þar til 0-2-0-2-2-2 fastalykkjur eru eftir, heklið 2 fastalykkjur í hvora af þessum fastalykkjum = 200-220-240-260-300-340 fastalykkjur. Síðan eru heklaðar RENDUR – sjá útskýringu að ofan – JAFNFRAMT er heklað öldumynstur fram og til baka þannig:

UMFERÐ 1 (rétta): Heklið 3 loftlykkjur (1 stuðull), 1 stuðull í hverja af næstu 7 fastalykkjum, * heklið næstu 4 fastalykkjur saman 2 og 2 – sjá ÚRTAKA, 1 stuðull í hverja af næstu 8 fastalykkjum, 3 loftlykkjur, 1 stuðull í hverja af næstu 8 fastalykkjum *, heklið frá 8-9-10-11-13-15 sinnum til viðbótar, heklið næstu 4 fastalykkjur saman 2 og 2, 1 stuðull í hverja af síðustu 8 fastalykkjum = 180-198-216-234-270-306 stuðlar.

UMFERÐ 2: Heklið 3 loftlykkjur (1 stuðull) + 1 stuðul í fyrsta stuðul, 2 stuðlar í hvorn af næstu 2 stuðlum, 1 stuðull í hvern af næstu 3 stuðlum, * heklið næstu 6 stuðla saman 3 og 3, 1 stuðull í hvern af næstu 6 stuðlum, 3 stuðlar um loftlykkjuboga, 3 loftlykkjur, 3 stuðlar um sama loftlykkjuboga, 1 stuðull í hvern af næstu 6 stuðlum *, heklið frá *-* 8-9-10-11-13-15 sinnum til viðbótar, heklið næstu 6 stuðla saman 3 og 3, endið með 1 stuðul í hvern af næstu 3 stuðlum og 2 stuðlar í hvern af síðustu 3 stuðlum = 200-220-240-260-300-340 stuðlar.
UMFERÐ 3: Heklið 3 loftlykkjur (1 stuðull) + 1 stuðull í fyrsta stuðul, 2 stuðlar í næsta stuðul, 1 stuðull í hvern af næstu 5 stuðlum, * heklið næstu 6 stuðla saman 3 og 3, 1 stuðull í hvern af næstu 7 stuðlum, 2 stuðlar um loftlykkjuboga, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar um sama loftlykkjuboga, 1 stuðull í hvern af næstu 7 stuðlum *, heklið frá *-* 8-9-10-11-13-15 sinnum til viðbótar, heklið næstu 6 stuðla saman 3 og 3, endið með 1 stuðul í hvern af næstu 5 stuðlum og 2 stuðlar í hvorn af síðustu 2 stuðlum = 200-220-240-260-300-340 stuðlar.
Endurtakið 3. umferð 1 sinni til viðbótar, snúið stykkinu. Nú mælist stykkið ca 11-12-12-13-13-14 cm.
Hér líkur klaufin / opið, síðan er næsta umferð hekluð þannig: 3 loftlykkjur + 1 stuðull í fyrsta stuðul, 2 stuðlar í næsta stuðul, 1 stuðull í hvern af næstu 5 stuðlum, * heklið næstu 6 stuðla saman 3 og 3, 1 stuðull í hvern af næstu 7 stuðlum, 2 stuðlar um loftlykkjuboga, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar um sama loftlykkjuboga, 1 stuðull í hvern af næstu 7 stuðlum *, heklið frá *-* 8-9-10-11-13-15 sinnum til viðbótar, heklið næstu 6 stuðla saman 3 og 3, 1 stuðull í hvern af næstu 5 stuðlum, 2 stuðlar í hvorn af 2 síðustu stuðlum í umferð, 3 loftlykkjur, 1 keðjulykkja í 3. loftlykkju í byrjun á umferð = 200-220-240-260-300-340 stuðlar.

Næsta umferð er hekluð þannig – sjá HEKLLEIÐBEININGAR-2: * 1 stuðull í hvern og einn af fyrstu 7 stuðlum, heklið næstu 6 stuðla saman 3 og 3, 1 stuðull í hvern af næstu 7 stuðlum, 2 stuðlar um loftlykkjuboga, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar um sama loftlykkjuboga *, heklið frá *-* umferðina hringinn.
Haldið áfram hringinn með öldumynstri. JAFNFRAMT í næstu umferð er aukið út um 2 stuðla í hverri mynstureiningu með því að hekla 3 stuðla + 3 loftlykkjur + 3 stuðla um hvern loftlykkjuboga í stað 2 stuðla + 3 loftlykkjur + 2 stuðla (þ.e.a.s. það er aukið út frá 10 til 11 stuðla meðfram hverjum vinkil, umferðina hringinn) = 220-242-264-286-330-374 stuðlar. Endurtakið útaukningu alveg eins í 6. hverri umferð 5 sinnum til viðbótar = 320-352-384-416-480-544 stuðlar (á eftir síðustu útaukningu eru 16 stuðlar meðfram hverjum vinkil). Heklið áfram þar til pilsið mælist ca 68-70-72-74-76-78 cm þar sem stykkið er lengst. Klippið þræðina og festið.

HNESLUR / LYKKJUR:
Meðfram hlið á opi í hlið sem snýr að bakstykki, heklið kant að framan með hneslum / lykkjum þannig: Heklið 3 umferðir með fastalykkjum og litnum mynta fram og til baka. Síðan eru heklaðar 3-3-3-4-4-4 hneslur / lykkjur jafnt yfir í næstu umferð – 1 hnesla / lykkja = 3 loftlykkjur, hoppið yfir 1 cm, heklið 1 fastalykkju í næstu lykkju. Neðsa lykkjan á að vera ca 1 cm frá neðri kanti á klauf og efsta ca 1 cm frá toppi.
Heklið til baka þannig: 1 fastalykkja í hverja fastalykkju og 3 fastalykkjur um hvern loftlykkjuboga, klippið þráðinn og festið.

FALDUR FYRIR TÖLUR:
Meðfram hinni hlið á opinu eru heklaðar 5 umferðir með fastalykkjum og litnum mynta fram og til baka. Klippið þráðinn og festið. Saumið tölur í 1. umferð á faldinum þannig að þær passið við hneslur / lykkjur.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 239-27

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Ann Joshage wrote:

Hej varför är början av vänstra sidan av era mönster borta? Oläs bar då hela texten inte kommer med.

07.10.2023 - 12:21

country flag Mary Nielsen wrote:

Hej flot nederdel og elegant Ved afsnittet, hækle information 2 , hvad skal hækle for at for en spids mønster ved sidesømmen ? Skal jeg starte med 2 stgm i hver af de 2 sidste stgm ? Jeg har sand farve safran som jeg glædes til at lave den i . Please as soon as possible..tusind tak. Mary.

03.10.2023 - 15:16

DROPS Design answered:

Hej Mary, jeg forstår ikke spørgsmålet... du får automatisk spidserne hvis du følger opskriften, zig-zag mønsteret starter ved 1.RÆKKE og alle rækker beskrives i opskriften :)

12.10.2023 - 15:43

country flag Lisbeth Høyer wrote:

Forskyder den første stangmaske på en omgang sig ikke to fordi man slår 2 m om luft maske bue, hvad gør man så når man kommer hen til at man skal strikke de 3 m sammen og samtidig skifte farve til en ny omgang ?

26.08.2023 - 09:25

DROPS Design answered:

Hei Lisebeth. Litt usikker på hvor du er i oppskriften, skriv gjerne hvilken rad du hekler ( og str. du hekler). Ta også en titt på hvelkevidoene som du finner nederst på oppskriften. mvh DROPS Design

11.09.2023 - 11:55

country flag Lisbeth Høyer wrote:

Jeg havde glemt de 3 luftmasker, inden man begynder at hækle rundt.

24.08.2023 - 12:29

country flag Lisbeth Høyer wrote:

Jeg har det samme problem ,når man begynder at hækle rundt som Christina, skal der ikke laves en bue af 3 luftmasker i samlingen, så det også bliver sik sak mønster der, det stemmer heller ikke med antal masker. Vil gerne se en nederdel bagfra med samlingen om muligt .

24.08.2023 - 12:01

country flag Aslaug Lerbæk Lerbaek wrote:

Jeg vil hekle skjørtet ensfarget - hvor nye garn da?

29.06.2023 - 17:13

DROPS Design answered:

Hej Aslaug, det har vi ingen information om, men vi gætter at du skal bruge ca 500 g i de mindste størrelser og ca 700 g i de største størrelser :)

30.06.2023 - 09:03

country flag Tze Moi Ang wrote:

I finished my skirt and noticed the curly result (yellow stripe immediately after the waist band. Why is that and if I were to make another one, can I improve the design? And do you have other color combinations for suggestion? Thanks.

19.04.2023 - 11:53

DROPS Design answered:

Dear Mrs Ang, you can block your skirt, ie spray water and let dry flat, this should help. Enjoy your skirt!

19.04.2023 - 13:11

country flag Cherry Lim wrote:

It would be very nice if this zig-zag pattern in the form of a dress with a slightly flared skirt can be created, similar to the knitted dress version :)

08.04.2023 - 17:55

country flag Christina Rasmussen wrote:

Hej med jer Når jeg begynder at hækle rundt, så siger opskriften ikke noget om at tage ud i de første 2 og sidste 2 masker… men så passer maskerne ikke med 7 stm efterfulgt af 2x3 indtagninger og der er ikke siksak mønster i samlingen… skal der ikke tages ud på en eller dansen måde??? Håber mit spørgsmål giver mening😅

26.03.2023 - 13:37

DROPS Design answered:

Hej Christina, det stemmer, du tager ud i luftmaskerne som beskrevet i opskriften, da vil antal masker stemme :)

12.04.2023 - 14:40

country flag Dinah wrote:

🇧🇷 Quais os passos para aumentar, ou seja um tamanho maior para mulheres cheinhas? São múltiplos de quanto? Obrigada.

20.03.2023 - 17:24

DROPS Design answered:

Bom dia, Este modelo tem explicações para os tamanhos S - M - L - XL - XXL - XXXL Basta seguir as instruções para os números acima. Bom croché!

21.03.2023 - 09:54