Janne skrifaði:
Hej - jeg forstår ikke det med A1 skal strikkes 25 gange - det lyder helt vildt. Så vidt jeg kan se, strækker A1 sig over 44 omgange, så bliver det jo 1100 omgange, hvis det skal gentages 25 gange. Misforstår jeg noget? Undrer mig over hvorfor det står i en parantes efter pil 3? Eller betyder det, at jeg skal strikke frem til pil 3 og så gentage de første 19 omgange af A1 25 gange, før jeg fortsætter med resten af A1?
25.10.2024 - 10:43DROPS Design svaraði:
Hej Janne, du har 225 masker, du strikker A.1 (9 masker i én rapport) 25 gange rundt på bærestykket, (og altså ikke 25 gange i højden) ;)
25.10.2024 - 15:15
Cecilia skrifaði:
Hi! I read under the diagram tips that the pattern should read starting from bottom right. Just to confirm that this will mean (1) of A.1 is nearest to the neck and (4) would be nearest to the waist? Its my first time following such pattern, so just to confirm that I got it right: - after completing double neck - row 1: all knit - row 2: all purl - row 3: [k2tog, yarn over] repeat to the end - row 4: all purl - row 5: all knit then reach (1)?
21.10.2024 - 08:12DROPS Design svaraði:
Dear Cecilia, you get everything right, but the arrow - 1 you knit the 5th row in diagram increasing evenly as explained for your size. Happy knitting!
21.10.2024 - 16:08
Tina Blom Hansen skrifaði:
Hvad betyder 25 rapporter med A1
09.03.2024 - 13:54DROPS Design svaraði:
hei Tina. At A.1 skal strikkes 25 ganger / rapporter. mvh DROPS Design
11.03.2024 - 14:27
Calista skrifaði:
For the sleeve ribbing, it says to INCREASE stitches. Is the ribbing supposed to end up flared? It seems extremely loose.
29.09.2023 - 04:21DROPS Design svaraði:
Hi Calista, We recommend increased stitches for the ribbing so the cuffs are not tight. But if you think this makes them too loose, then you can leave the increases out. Happy knitting!
29.09.2023 - 06:39
Sarah skrifaði:
Hi there! I'm a little confused--what part of the pattern explains what A1 is? Or the arrows? is this the diagram?
01.09.2023 - 07:27DROPS Design svaraði:
Dear Sarah, A.1 is the diagram for the pattern, it will be first worked over 2 sts, then over 9 sts then back over 2 sts. While working A.1 you will increase on each row with an arrow, see written pattern for the number of stitches to increase for your size. Read more about diagrams here. Happy knitting!
01.09.2023 - 08:46
Leanne skrifaði:
Hi, regarding pattern 240-27, I cannot define which row they refer to for the increases. The arrow looks to point in between. Are the increases meant for the knit row or the purl row. Thanking you in advance.
01.05.2023 - 03:28DROPS Design svaraði:
Hi Leanne, The increases are worked on a knitted row. Happy crafting!
02.05.2023 - 06:49
Gaëtan skrifaði:
Bonjour ! Combien de balles de laine pour ce projet pour une taille m, ? Et quel sorte de laine , ici au Québec on n a pas la même marque que vous ! Alors c est quoi l équivalent ? Merci 🙏 et bravo pour votre patron très jolie !
27.03.2023 - 14:34DROPS Design svaraði:
Bonjour Gaëtan, bonne nouvelle: toutes nos laines sont disponibles au Canada (cf ici - contactez Nordic Yarn pour la liste des magasins au Canada). Vous retrouverez la quantité, au poids, pour chaque taille dans l'en-tête, diviser le poids indiqué par le poids de la pelote = ex 300 g Melody /50 g la pelote = 6 pelotes DROPS Melody en taille M. Bon tricot!
27.03.2023 - 15:39
Hege skrifaði:
OBS!! Etter økningen før vrangborden på bolen, går ikke maskeantallet opp med 2 rett og 2 vrang. Så feil i oppskriften. Gjelder alle størrelsene.
17.03.2023 - 15:23
Iwona skrifaði:
Dzień dobry, Czy przerabiając schemat A.1., w rzędach następujących po rzędach z narzutami, powinno się wykonać oczka prawe, czy oczka przekręcone?
11.03.2023 - 21:35DROPS Design svaraði:
Witaj Iwono, w tym przypadku należy przerobić oczka prawe (zwykłe, nie przekręcone). Wtedy dziurki/ażur będzie widoczny, jak na zdjęciu. Pozdrawiamy!
13.03.2023 - 08:51
Karin Villadsen skrifaði:
Jeg kunne godt bruge, at der ved en opskrift bliver angivet ca. sværhedsgrad. Så kan jeg bedre vurdere, om det er et projekt, jeg tør kaste mig over:-)
23.02.2023 - 11:01
French Vanilla#frenchvanillasweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, hringlaga berustykki og gatamynstri á berustykki. Stærð XS - XXL.
DROPS 240-27 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING: Aukið út með því að slá sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 76-80-84-88-92-92 lykkjur með DROPS Melody yfir stuttan hringprjón 4 og stuttan hringprjón 5,5 sem haldið er saman. Dragið út stutta hringprjón 5,5 og haldið lykkjum eftir á hringprjóni 4 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1 lykkju slétt. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 9 cm. Nú er stroffið brotið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð í stroffprjóni eins og áður jafnframt því sem 4. hver lykkja er prjónuð saman með 4. hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 24-26-28-28-30-30 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 100-106-112-116-122-122 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (mitt að framan), berustykkið er mælt frá þessu prjónamerki! Síðan er berustykkið prjónað eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 3-3-4-4-5-5 cm frá prjónamerki að framan, aukið út um 32-34-36-38-40-40 lykkjur jafnt yfir = 132-140-148-154-162-162 lykkjur. Nú er prjónað A.1 hringinn á berustykki. JAFNFRAMT í hverri umferð merkri með ör í A.1 eru lykkjur auknar út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚTAUKNING! Ör-1: Aukið út um 26-28-30-34-36-40 lykkjur jafnt yfir = 158-168-178-188-198-202 lykkjur. Ör-2: Aukið út um 24-26-28-32-36-40 lykkjur jafnt yfir = 182-194-206-220-234-242 lykkjur. Ör-3: Aukið út um 16-22-19-32-36-37 lykkjur jafnt yfir = 198-216-225-252-270-279 lykkjur (nú er pláss fyrir 22-24-25-28-30-31 lykkjur með A.1 hringinn á berustykki). Ör-4: Aukið út um 22-20-23-24-22-33 lykkjur jafnt yfir = 220-236-248-276-292-312 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 21-21-22-24-25-27 cm frá prjónamerki að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er að neðan (í nokkrum af stærðunum kemur A.1 ekki til með að vera lokið þegar stykkinu er skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar – afgangur af A.1 er prjónað til loka á fram- og bakstykki og ermum). Prjónið 34-36-38-42-44-48 lykkjur eins og áður (hálft bakstykki), setjið næstu 42-44-46-52-56-58 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 68-74-78-86-90-98 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 42-44-46-52-56-58 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir síðustu 34-38-40-44-46-50 lykkjur (hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 148-160-172-188-200-220 lykkjur. Ef A.1 hefur ekki verið prjónað til loka á berustykki, prjónið A.1 til loka á fram- og bakstykki. Síðan er prjónað sléttprjón þar til stykkið mælist 23-25-26-26-27-27 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 28-30-34-38-42-42 lykkjur jafnt yfir = 176-190-206-226-242-262 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af aðeins laust. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl. ERMI: Setjið 42-44-46-52-56-58 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5,5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 48-50-54-60-66-70 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi – þ.e.a.s. mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Ef A.1 hefur ekki verið prjónað til loka á berustykki, prjónið A.1 til loka á ermi. Síðan er prjónað sléttprjón. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 4-4-4-3-3-3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-4-4-6½-3½-3 cm millibili alls 2-2-3-5-8-9 sinnum = 44-46-48-50-50-52 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 36-36-36-34-33-32 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 7 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-14-16-14-14-16 lykkjur jafnt yfir = 56-60-64-64-64-68 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 7 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 43-43-43-41-40-39 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #frenchvanillasweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 240-27
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.