Lhomme skrifaði:
Dommages vos modèles sont bien mais malheureusement beaucoup commencent par le haut et avec des aiguilles circulaires je n’aime ni l’un ni l’autre. Je tricote depuis plus de 45 ans, je vais retourner vers d’anciennes méthodes avec des explications beaucoup plus claires. Adieu
16.01.2023 - 21:25
Lhomme skrifaði:
Vos commentaires ne sont pas simples, je tricote depuis 50 ans mais sans aiguilles circulaires et en commençant par le bas, et malheureusement je ne suis pas satisfaite de vos explications. Dommages vos modèles sont sympathiques. Adieu
16.01.2023 - 21:22
Jannica Blom skrifaði:
Hej! Jag har en fråga om bakstycket på denna tröja! Jag har kommit till det att jag ska maska av för ärmhål (3m i början av de två nästkommande varven). Betyder det att jag först ska minska på rätsidan och sen på nästa varv som är avigsidan? Och hur gör jsg i så fall minskningen på avigsidan? Såg ingen video om det! Tacksam för svar 😊
15.01.2023 - 23:08DROPS Design svaraði:
Hei Jannica. Jo, du feller både fra retten og fra vrangen. Se videoen : Maska av - avigsidan. Etter at du har felt av 3 maskeri hver side, skal det fortsettes å felles av, men da innenfor 1 maske i rätstickning og på hver side kun fra retten. Les i oppskriften hvordan det skal felles av fra retten og fra vrangen. mvh DROPS Design
16.01.2023 - 13:36
Claudia skrifaði:
Hallo Kann ich diesen Pullover auch mit 2Fäden Alpaca Stricken?
06.01.2023 - 21:57DROPS Design svaraði:
Liebe Claudia, ja sicher, benutzen Sie den Garnumrechner um die neue Garnmenge für Ihre Größe kalkulieren zu lassen. Viel Spaß beim stricken!
09.01.2023 - 08:51
Hanna skrifaði:
Chciałam pobrać dwa bezpłatne wzory na swetry. Jak mam to zrobi, gdzie jest opcja "pobierz"? Hanna
16.11.2022 - 12:28DROPS Design svaraði:
Witaj Hanno, we wzorach jest opcja DRUKUJ, a jak klikniesz ten przycisk pojawi się możliwość zapisu wzoru jako pliku PDF. Pozdrawiamy!
16.11.2022 - 14:16
Rhapsody in Blue#rhapsodyinbluesweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Flora og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni. Stærð XS - XXXL.
DROPS 236-36 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA (á við um handveg og hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum í byrjun umferðar þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (1 lykkja færri). Fækkið lykkjum í lok umferðar þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja í garðaprjóni (1 lykkja færri). ÚTAUKNING (á við um ermar): Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (1 lykkja fleiri), prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn (1 lykkja fleiri), 1 lykkja slétt og endið með 1 lykkju í garðaprjóni. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkið, bakstykkið og ermar er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp, hvert fyrir sig. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Í lokin er prjónaður kantur í hálsmáli. BAKSTYKKI: Fitjið upp 90-94-102-114-118-126-134 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan fram og til baka í stroffprjóni (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) með 1 lykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan, í 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið um 11 lykkjur jafnt yfir (ekki fækka lykkjum yfir kantlykkjurnar) = 79-83-91-103-107-115-123 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43-44 cm, fellið af 3 lykkjur fyrir handvegi í byrjun á næstu 2 umferðum = 73-77-85-97-101-109-117 lykkjur. Haldið áfram með úrtöku fyrir handveg innan við 1 lykkju í garðaprjóni – sjá ÚRTAKA, í hverri umferð frá réttu alls 1-1-1-5-5-7-7 sinnum = 71-75-83-87-91-95-103 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62-64 cm. Í næstu umferð frá réttu eru felldar af miðju 27-27-29-29-31-31-33 lykkjur fyrir hálsmáli og prjónið út umferðina. Hvor öxl er prjónuð til loka hvor fyrir sig. Setjið fyrstu 22-24-27-29-30-32-35 lykkjur sem voru prjónaðar á þráð eða látið þær hvíla á prjóni (hægri öxl). VINSTRI ÖXL (séð þegar flíkin er mátuð): 22-24-27-29-30-32-35 lykkjur. Byrjið frá röngu. Prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli í byrjun umferðar – sjá ÚRTAKA = 21-23-26-28-29-31-34 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64-66 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING! HÆGRI ÖXL (séð þegar flíkin er mátuð): = 22-24-27-29-30-32-35 lykkjur. Byrjið frá röngu. Prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli í lok umferðar – sjá ÚRTAKA = 21-23-26-28-29-31-34 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64-66 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING! FRAMSTYKKI: Fitjið upp 90-94-102-114-118-126-134 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan fram og til baka í stroffprjóni (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið í 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið um 11 lykkjur jafnt yfir (ekki fækka lykkjum yfir kantlykkjur) = 79-83-91-103-107-115-123 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 38-39-40-41-42-43-44 cm, fellið af 3 lykkjur fyrir handvegi í byrjun á næstu 2 umferðum. Haldið áfram með úrtöku innan við 1 lykkju í garðaprjóni – munið eftir ÚRTAKA, í hverri umferð frá réttu alls 1-1-1-5-5-7-7 sinnum = 71-75-83-87-91-95-103 lykkjur í umferð. Prjónið eins og áður þar til stykkið mælist 48-50-51-53-54-56-57 cm og næsta umferð er frá réttu. Prjónið yfir fyrstu 25-27-30-32-33-35-38 lykkjur, setjið miðju 21-21-23-23-25-25-27 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og prjónið út umferðina. Hvor öxl er prjónuð til loka hvor fyrir sig. Setjið fyrstu 25-27-30-32-33-35-38 lykkjur sem voru prjónaðar á þráð eða látið þær hvíla á prjóni (vinstri öxl). HÆGRI ÖXL (séð þegar flíkin er mátuð): = 25-27-30-32-33-35-38 lykkjur. Byrjið frá röngu. Prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli í byrjun umerðar – sjá ÚRTAKA og fækkið lykkjum svona alls 4 sinnum = 21-23-26-28-29-31-34 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64-66 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING! VINSTRI ÖXL (séð þegar flíkin er mátuð): = 25-27-30-32-33-35-38 lykkjur. Byrjið frá röngu. Prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Í fyrstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir hálsmáli í lok umferðar – sjá ÚRTAKA og fækkið lykkjum svona alls 4 sinnum = 21-23-26-28-29-31-34 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64-66 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING! ERMI: Fitjið upp 46-46-50-50-54-54-58 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan fram og til baka í stroffprjóni (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið þar til stroffið mælist 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið um 6-4-6-6-8-6-8 lykkjur jafnt yfir (ekki fækka lykkjum yfir kantlykkjur) = 40-42-44-44-46-48-50 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið fram og til baka í sléttprjóni með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar ermin mælist 8 cm, aukið út um 1 lykkju innan við 2 lykkjur í hvorri hlið á stykki – sjá ÚTAUKNING! Aukið svona út með 7-6-5-4½-4-3½-3½ cm millibili alls 6-7-8-9-10-11-11 sinnum = 52-56-60-62-66-70-72 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 48-48-47-46-46-44-44 cm. Fellið nú af lykkjur í hvorri hlið fyrir ermakúpu þannig: Fellið af 3 lykkjur alls 2-2-2-3-3-4-4 sinnum í hvorri hlið. Fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru, stykkið mælist ca 50-50-49-49-48-48-48 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermakúpu við handveg. Saumið ermasauma og hliðarsauma í eitt innan við 1 lykkju í garðaprjóni. Endurtakið í hinni hliðinni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Lykkjur eru prjónaðar upp innan við 1 lykkju frá réttu á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund. Byrjið mitt að aftan. Prjónið upp ca 76 til 96 lykkjur, meðtaldar lykkjur af þræði (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4). Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til kanturinn í hálsmáli mælist ca 9 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Brjótið kantinn í hálsmáli inn að röngu þannig að hann mælist ca 4 til 4½ cm, festið að innanverðu á stykki (saumið nokkur spor við hvora öxl) þannig að kanturinn í hálsmáli liggi fallega. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #rhapsodyinbluesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 33 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 236-36
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.