Nicole skrifaði:
Bonsoir. Vous indiquez 100g de KS ce qui fait 800m et 300g d’alpaca qui font 6 pelotes de 167m =1002m. Pourquoi autant d’alpaga pour un modèle qui nécessite 800m de fil ? 5 pelotes x 167 m équivaut à 835m . Ce qui normalement devrait suffire.
13.02.2023 - 19:01DROPS Design svaraði:
Bonjour Nicole, après vérification, les quantités indiquées sont justes. Pensez à toujours bien vérifier votre échantillon au préalable. Bon tricot!
17.02.2023 - 16:03
Karin skrifaði:
Kan man använda 2 trådar alpaca i stället för kid silk? Blir d dubbel mängd alpaca då?
08.02.2023 - 11:56DROPS Design svaraði:
Hej Karin, ja det kan du og ja det bliver dobbelt DROPS Alpaca :)
10.02.2023 - 09:53
Daniela Guidolin skrifaði:
“ Poi diminuire per lo scalfo all’interno della maglia di vivagno su ogni ferro dal diritto del lavoro per un totale di 1-1-1-5-5-7-7 volte.” Cosa significa? Grazie
19.01.2023 - 19:12DROPS Design svaraði:
Buonasera Daniela, deve diminuire 1 maglia prima/dopo la maglia di vivagno come indicato nel SUGGERIMENTO PER LE DIMINUZIONI, per il numero di volte indicato nelle spiegazioni per la sua taglia. Buon lavoro!
21.01.2023 - 22:29
Anna skrifaði:
Nelle maniche è scritto intrecciare 3 maglie 2-2-2-3-3-4-4 volte a ogni lato. Intrecciare quando la manica misura 50-50-49-49-48-48-48 cm. Bisogna intrecciare solo sul dritto o tutti i ferri?
18.01.2023 - 20:22DROPS Design svaraði:
Buonasera Anna, deve intrecciare all'inizio e alla fine del ferro, quindi può intrecciare all'inizio di ogni ferro. Buon lavoro!
21.01.2023 - 22:35
Anna skrifaði:
Nella lavorazione della manica è scritto: Intrecciare quando la manica misura 50-50-49-49-48-48-48 cm. Ma la taglia S ha la manica più lunga della XXL? Grazie
16.01.2023 - 20:57DROPS Design svaraði:
Buonasera Anna, si, le misure sono corrette. Buon lavoro!
16.01.2023 - 22:21
Marlies Van Dijk skrifaði:
Beste Drops, bedankt voor al die mooie patronen, ik heb er al veel gemaakt. Nu viel mij bij dit patroon op, dat er na de boord geminderd moet worden in een pen recht op de verkeerde kant? Dan zou er dus een ribbeltje komen? Zie het in de Duitse vertaling anders staan. Denk dat dit een vertaalfout is? Ik kom er zelf wel uit, maar voor andere breisters misschien een probleempje? Met vriendelijke groet, Marlies
23.12.2022 - 11:55DROPS Design svaraði:
Dag Marlies,
Bedankt voor het doorgeven; het is nu aangepast in het Nederlandstalige patroon!
04.01.2023 - 21:27
Anna skrifaði:
"Lavorare un ferro a rovescio sul rovescio del lavoro" vuol dire lavorare un ferro a rovescio dopo l'avvio delle maglie? Grazie
14.12.2022 - 17:25DROPS Design svaraði:
Buonasera Anna, significa che il 1° ferro dopo l'avvio delle maglie sarà sul rovescio del lavoro. Buon lavoro!
17.12.2022 - 21:34
Lena Björsell skrifaði:
Hur lång är modellen Drops 235-34?
14.11.2022 - 18:04DROPS Design svaraði:
Hej Lena, du finder blusens mål i måleskitsen nederst i opskriften :)
16.11.2022 - 12:14
Leora Noam skrifaði:
Classic Comfort V
08.08.2022 - 11:47
Tine skrifaði:
Simple and cute.
06.08.2022 - 09:43
Rivière#rivieresweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni með v-hálsmáli. Stærð XS - XXXL.
DROPS 235-34 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA (á við um handveg og hálsmál aftan í hnakka): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum í byrjun umferðar þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (1 lykkja færri). Fækkið lykkjum í lok umferðar þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja í garðaprjóni (1 lykkja færri). ÚTAUKNING (á við um ermar): Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (1 lykkja fleiri), prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn (1 lykkja fleiri), 1 lykkja slétt og endið með 1 lykkju í garðaprjóni. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkið, bakstykkið og ermar er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp, hvert fyrir sig. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli. BAKSTYKKI: Fitjið upp 90-94-102-114-118-126-134 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan fram og til baka í stroffprjóni (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) með 1 lykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan, í 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið um 11 lykkjur jafnt yfir (ekki fækka lykkjum yfir kantlykkjurnar) = 79-83-91-103-107-115-123 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43-44 cm, fellið af 3 lykkjur fyrir handvegi í byrjun á næstu 2 umferðum = 73-77-85-97-101-109-117 lykkjur. Haldið áfram með úrtöku fyrir handveg innan við 1 lykkju í garðaprjóni – sjá ÚRTAKA, í hverri umferð frá réttu alls 1-1-1-5-5-7-7 sinnum = 71-75-83-87-91-95-103 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62-64 cm. Í næstu umferð frá réttu eru felldar af miðju 23-23-25-25-27-27-29 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka hvor fyrir sig. Setjið fyrstu 24-26-29-31-32-34-37 lykkjur sem voru prjónaðar á þráð eða látið þær hvíla á prjóni (hægri öxl). VINSTRI ÖXL (séð þegar flíkin er mátuð): Byrjið frá röngu. Prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli í byrjun umferðar – sjá ÚRTAKA = 23-25-28-30-31-33-36 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64-66 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING! HÆGRI ÖXL (séð þegar flíkin er mátuð): Byrjið frá röngu. Prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli í lok umferðar – sjá ÚRTAKA = 23-25-28-30-31-33-36 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64-66 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING! FRAMSTYKKI: Fitjið upp 90-94-102-114-118-126-134 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan fram og til baka í stroffprjóni (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið í 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið um 10 lykkjur jafnt yfir (ekki fækka lykkjum yfir kantlykkjurnar) = 80-84-92-104-108-116-124 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 30-31-32-33-34-35-36 cm. Fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli í næstu umferð frá réttu, þannig: Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, prjónið 38-40-44-50-52-56-60 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt og setjið þessar 2 lykkjur á þráð fyrir v-hálsmáli, prjónið 38-40-44-50-52-56-60 lykkjur slétt og endið með 1 lykkju í garðaprjóni = 39-41-45-51-57-57-61 lykkjur á hvorri öxl. Prjónið nú hvora öxl til loka hvora fyrir sig. HÆGRI ÖXL (séð þegar flíkin er mátuð): = 39-41-45-51-53-57-61 lykkjur. Nú á að fækka lykkjum fyrir v-hálsmáli – lestu kaflann V-HÁLSMÁL og HANDVEGUR að neðan áður en þú prjónar áfram. Úrtaka fyrir v-hálsmáli er ekki enn byrjuð, nema að þú hefur skipt stykkinu fyrir v-hálsmál. V-HÁLSMÁL: Byrjið frá röngu, prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli þannig: Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, 3 lykkjur sléttprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur út umferðina eins og áður. Fækkið lykkjum svona til skiptis í annarri hverri og 4. hverri umferð alls 12-12-13-13-14-14-15 sinnum. HANDVEGUR: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43-44 cm, fellið af 3 lykkjur fyrir handveg í byrjun á umferð frá röngu. Haldið áfram með úrtöku fyrir handveg innan við 1 lykkju í garðaprjóni – sjá ÚRTAKA, í hverri umferð frá réttu alls 1-1-1-5-5-7-7 sinnum. Þegar allar úrtökur fyrir v-hálsmáli og handveg hafa verið gerðar til loka, eru 23-25-28-30-31-33-36 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64-66 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – munið eftir AFFELLING. VINSTRI ÖXL (séð þegar flíkin er mátuð): = 39-41-45-51-53-57-61 lykkjur. Fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli og handvegi eins og útskýrt er að neðan. V-HÁLSMÁL: Byrjið frá röngu, prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli þannig: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (1 lykkja færri), prjónið 3 lykkjur sléttprjón og 1 lykkju í garðaprjóni. Fækkið lykkjum svona til skiptis í annarri hverri og 4. hverri umferð alls 12-12-13-13-14-14-15 sinnum. HANDVEGUR: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43-44 cm, fellið af 3 lykkjur fyrir handveg í byrjun á umferð frá réttu. Haldið áfram með úrtöku fyrir handveg innan við 1 lykkju í garðaprjóni – sjá ÚRTAKA, í hverri umferð frá réttu alls 1-1-1-5-5-7-7 sinnum. Þegar allar úrtökur fyrir v-hálsmáli og handveg hafa verið gerðar til loka, eru 23-25-28-30-31-33-36 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64-66 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – munið eftir AFFELLING. ERMI: Fitjið upp 46-46-50-50-54-54-58 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan fram og til baka í stroffprjóni (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið þar til stroffið mælist 6 cm (stillið af að næsta umferð sé frá réttu). Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, prjónið 44-44-48-48-52-52-56 lykkjur slétt, fækkað er um 6-4-6-6-8-6-8 lykkjur jafnt yfir, endið með 1 lykkju í garðaprjóni = 40-42-44-44-46-48-50 lykkjur. Prjónið fram og til baka í sléttprjóni með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar ermin mælist 8 cm, aukið út um 1 lykkju innan við 2 lykkjur í hvorri hlið á stykki – sjá ÚTAUKNING! Aukið svona út með 7-6-5-4½-4-3½-3½ cm millibili alls 6-7-8-9-10-11-11 sinnum = 52-56-60-62-66-70-72 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 48-48-47-46-46-44-44 cm. Fellið nú af lykkjur í hvorri hlið fyrir ermakúpu þannig: Fellið af 3 lykkjur alls 2-2-2-3-3-4-4 sinnum í hvorri hlið. Fellið af þegar stykkið mælist 50-50-49-49-48-48-48 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermakúpu við handveg. Saumið ermasauma og hliðarsauma í eitt innan við 1 lykkju í garðaprjóni. Endurtakið í hinni hliðinni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Lykkjur eru prjónaðar upp innan við 1 lykkju frá réttu á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund. Byrjið mitt að aftan. Prjónið upp ca 54 til 66 lykkjur fram að 2 lykkjum sem settar voru á þráð mitt að framan (stillið af að lykkjufjöldinn sé deilanlegur með 2), setjið lykkjur af þræði á vinstri prjón og prjónið þessar lykkjur slétt saman (miðjulykkjur á framstykki), prjónið upp 2 lykkjur fleiri en á vinstri hlið að framan að miðju að aftan (þ.e.a.s. lykkjufjöldinn sé deilanlegur með 4, þ.e.a.s. ca 56 til 68 lykkjur) = ca 112 til 136 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki á milli 2 lykkja að miðju að framan, þessar lykkjur eru miðjulykkjur og eiga að vera sléttar lykkjur í stroffi. ATH! Teljið frá miðjulykkjum og til baka í byrjun á umferð þannig að stroffið geti byrjað þannig að það verða 2 lykkjur brugðið á undan 2 miðjulykkjum sem eiga að prjónast slétt. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerkið situr hér. Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Það eru enn 2 lykkjur slétt mitt að framan (1 lykkja slétt í hvorri hlið á prjónamerki). Haldið áfram hringinn og fækkið lykkjum við prjónamerki í hverri umferð þar til kanturinn í hálsmáli mælist ca 4 cm. Prjónið 1 umferð stroff án þess að fækka lykkjum við prjónamerki, hér er kanturinn í hálsmáli brotinn síðar saman tvöfaldur. Nú á að auka út hvoru megin við miðjulykkjur í hverri umferð þannig: Prjónið stroff eins og áður fram þar til 1 lykkja er eftir að prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (miðjulykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið stroff eins og áður út umferðina, uppslátturinn er prjónaður snúinn í stroffprjóni í næstu umferð. Haldið áfram hringinn og aukið svona út við prjónamerki í hverri umferð þar til kantur í hálsmáli mælist ca 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið kantinn í hálsmáli að innanverðu á stykki og festið affellingarkantinn með nokkrum sporum að innanverðu á stykki þannig að hálsmálið liggi fallega. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #rivieresweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 235-34
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.