Jo-jo skrifaði:
Hi, please can you help with my query on the stitch count for the sleeves? Many thanks
15.11.2022 - 14:26DROPS Design svaraði:
Dear Jo-Jo, the increases on sleeves have now been edited - thanks for noticing. Happy knitting!
18.11.2022 - 13:17
Jo-jo skrifaði:
Hi, please can I check the stitch count for the sleeves. I\'m making the second size, and there are 47 stitches after all increases. This makes the top of the sleeve too narrow to fit the overall 40cm armhole. 47/1.3 = 36cm. Does it have to be slightly stretched to fit, or should there be more increases? \r\n\r\nMany thanks\r\n\r\nJo
07.11.2022 - 08:40
Marina Pezzotti skrifaði:
I'm trying to follow the directions of the DROPS 235-32 pattern but I have a question on the rib of the sweater called Salt and Pepper. On the photograph the rib seems to be a single rib with 1 twisted knit and 1 twisted purl, but on the A1 diagram and instructions it is not clear that this is the case. It gives 2 purls and 2 knits. Can this please be explained? I might misunderstand the instructions since I always work without patterns, so I need a little help with this one. Thank you.
05.10.2022 - 01:00DROPS Design svaraði:
Hi Marina, The rib is K2 twisted, purl 2 from the right side and K2, purl 2 twisted from the wrong side (the diagram is read from right to left from the right side and left to right from the wrong side). Happy knitting!
05.10.2022 - 06:48
Ilona skrifaði:
Milky-way
07.08.2022 - 22:06
Ilona skrifaði:
Milky-way
07.08.2022 - 22:06
Deborah skrifaði:
Midnight memories
07.08.2022 - 02:39
Beatrice skrifaði:
Graphite
06.08.2022 - 17:19
Salt & Pepper#saltandpeppersweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Fabel og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað í sléttprjóni, klauf í hliðum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð XS - XXL.
DROPS 235-32 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. SKIPT UM ÞRÁÐ: Til þess að litaskiptin með Fabel verði falleg þegar byrjað er á nýrri dokku verður að finna dokku sem byrjar á þeim lit sem síðast var prjónað með. ÚRTAKA (á við um hálsmál): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á undan hálsmáli þannig: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir á undan hálsmáli, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið út umferðina eins og áður (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á eftir hálsmáli þannig: Prjónið fyrstu 4 lykkjur eins og áður, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). ÚTAUKNING (á við um ermar): Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið, framstykkið og ermar er prjónað fram og til baka á hringprjóna í stykkjum og saumað saman í lokin. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp. Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring á stuttan hringprjón. Bakstykkið er 6 cm lengra en framstykkið. Ekki er fitjaður upp sami fjöldi á bakstykki og framstykki, þetta er gert svona til að koma í veg fyrir að stroffið dragist meira saman á bakstykki þar sem stroffið er lengra. BAKSTYKKI: Fitjið upp 104-116-132-140-152-164 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði DROPS Fabel og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu 2 lykkjur í A.1 þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stroffið mælist 18 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 44-51-61-63-67-72 lykkjur jafnt yfir, fitjið upp 1 lykkju í lok umferðar = 61-66-72-78-86-93 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, síðan eru prjónaðar brugðnar lykkjur út umferðina, fitjið upp 1 lykkju í lok umferðar = 62-67-73-79-87-94 lykkjur. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Lesið SKIPT UM ÞRÁÐ! Þegar stykkið mælist 41-42-43-44-45-46 cm, fellið af 1-2-3-5-6-6 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 60-63-67-69-75-82 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni þar til stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm. Nú eru felldar af miðju 20-21-23-23-23-24 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 19-20-21-22-25-28 lykkjur fyrir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 92-100-112-120-132-144 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu 2 lykkjur í A.1 þannig að mynstrið byrji og endi alveg eins, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stroffið mælist 12 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 32-35-41-43-47-52 lykkjur jafnt yfir, fitjið upp 1 lykkju í lok umferðar = 61-66-72-78-86-93 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, síðan eru prjónaðar brugðnar lykkjur út umferðina, fitjið upp 1 lykkju í lok umferðar = 62-67-73-79-87-94 lykkjur. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm, fellið af 1-2-3-5-6-6 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 60-63-67-69-75-82 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 46-48-49-51-52-54 cm. Setjið nú miðju 12-13-15-15-15-16 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið nú lykkjum fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð frá réttu alls 5 sinnum = 19-20-21-22-25-28 lykkjur fyrir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 58-62-62-66-66-70 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 10 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 18-21-19-21-21-24 lykkjur jafnt yfir = 40-41-43-45-45-46 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið 1 umferð brugðið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar ermin mælist 16 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 7½.-7½.-6.-5½.-4.-3½.cm millibili alls 5-5-6-6-7-8 sinnum = 50-51-55-57-59-62 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 50-50-50-50-49-47 cm. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt – stillið af að byrjað sé á sama lit í dokku og byrjun á fyrri ermi. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermakúpu við handveg. Saumið síðan efstu 1-2-2-4-5-5 cm á ermi við botn á handvegi – sjá teikningu. Saumið sauma undir ermi og hliðarsauma í eitt – innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni frá ermi og niður að stroffi á fram- og bakstykki (= 12 cm klauf á framstykki og 18 cm klauf á bakstykki). TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju, ca 80-96 lykkjur (meðtaldar lykkjur á þræði að framan) á stuttan hringprjón 5. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið A.1 hringinn í 11 cm. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #saltandpeppersweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 235-32
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.