Marie skrifaði:
Er der blevet rettet i størrelsesangivelserne for denne trøje? Da jeg gik i gang med at strikke den for nogle uger siden, viste den størrelse XS-XXL, som det stadig fremgår af diagram A.1, og jeg valgte str. L, som altså var nr 4 fra venstre. Men nu angives der str. S-XXXL, og nr 4 fra venstre står således til str XL? Trøjen er i hvert fald alt for stor nu hvor den er færdig - ærgerlige spildte kræfter.
25.10.2022 - 22:39DROPS Design svaraði:
Hej Marie, nej vi har ikke ændret i opskriften. Men det skal vi gøre så det står ens i opskrift og diagram. Beklager og tak for info!
26.10.2022 - 09:32
Hansson skrifaði:
Letar efter mönster för 1 tr Fabel+1 tr Kid silk, polotröja med raglan. Kan jag använda detta Mönster men utan fler färger/ränder som i detta? Är det något jag behöver tänka på om jag gör så?
11.10.2022 - 11:47DROPS Design svaraði:
Hej Hansson. Det går helt fint att göra tröjan utan ränder. Mvh DROPS Design
13.10.2022 - 14:01
Viera skrifaði:
Nádherný model . Veľmi sa mi páči voľba použitej vlny. A hlavne farebná kombinácia.👍
07.10.2022 - 22:01
Marie skrifaði:
There is a small mistake in the instruction: After finishing the neck rib in size L, take out 20 stitches, not 16, to reach a total of 120 stitches before continuing with A.1.
06.10.2022 - 09:49
Eva skrifaði:
Kan man godt strikke lommer i denne model som i 236-8 uden der går kludder i farverne?
29.09.2022 - 13:14DROPS Design svaraði:
Hej Eva, ja det bliver sikkert flot, prøv du bare det :)
29.09.2022 - 15:18
Christine skrifaði:
Ein einfacher aber trotzdem sehr schicker Kuschelpullover für kalte Wintertage.
06.08.2022 - 17:53
Le’ Drezen skrifaði:
Bon basique
06.08.2022 - 17:08
Rina skrifaði:
Lijkt me een heerlijke trui voor koude winteravonden of voor mooie herfstwandelingen.
05.08.2022 - 23:19
Sherwood Forest#sherwoodforestsweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Fabel og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður, með hringlaga berustykki, röndum og sléttprjóni. Stærð XS - XXL.
DROPS 237-18 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. RENDUR: Prjónið rendur þannig: * Prjónið 1 umferð með litnum country fair í DROPS Fabel + litnum öskugrár í DROPS Kid-Silk. Prjónið 1 umferð með litnum grár í DROPS Fabel + litnum öskugrár DROPS Kid-Silk *, prjónið frá *-*. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna, ofan frá og niður. Allt stykkið er prjónað úr 1 þræði DROPS Fabel og 1 þræði DROPS Kid-Silk (2 þræðir). KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 110-115-120-125-130-135 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með litnum country fair í DROPS Fabel og 1 þræði DROPS Kid-Silk. Peysan er prjónuð í RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið) í 4 cm. Nú er fækkað um 1 lykkju í hverri brugðinni einingu, fækkið lykkjum með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman = 88-92-96-100-104-108 lykkjur. Haldið áfram með stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Prjónið þar til stroffið mælist 12 cm. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 4,5. BERUSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð mitt að aftan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-10-18-20-22-24 lykkjur jafnt yfir = 96-102-114-120-126-132 lykkjur. Nú er prjónað A.1 yfir allar lykkjur. ATH! Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 256-272-304-320-336-352 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 0-0-0-4-8-12 lykkjur jafnt yfir = 256-272-304-324-344-364 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist ca 20-22-23-25-27-29 cm frá prjónamerki. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 38-40-44-49-53-56 lykkjur (hálft bakstykki), setjið næstu 52-56-64-64-66-70 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 76-80-88-98-106-112 lykkjur (framstykki), setjið næstu 52-56-64-64-66-70 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið þær 38-40-44-49-53-56 lykkjur sem eftir eru (hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað til loka hvert fyrir sig. Stykkið er núna mælt héðan! Klippið þráðinn. FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 164-176-192-216-236-248 lykkjur í umferð. Byrjið umferð mitt í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í annarri hliðinni. Haldið áfram í sléttprjóni og röndum. Prjónið þar til stykkið mælist 27 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 8-8-12-12-12-12 lykkjur jafnt yfir = 172-184-204-228-248-260 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn. Prjónið stroff í 6 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 52-56-64-64-66-70 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4,5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 6-8-8-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 58-64-72-74-78-82 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-8-8-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón, haldið áfram með rendur. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 6-4-3-2½-2½-2 cm millibili alls 6-8-11-11-12-13 sinnum = 46-48-50-52-54-56 lykkjur. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 38-36-36-35-34-32 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt og aukið jafnframt út um 2-4-2-4-2-4 lykkjur jafnt yfir = 48-52-52-56-56-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 42-40-40-39-38-36 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sherwoodforestsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 237-18
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.