Elliot skrifaði:
Mönstret är otroligt stort. Jag har dubbelcheckat min sticktätthet och den matchar men för stl CL, som ska vara 68cm platt är mitt 78cm platt. Med 262 maskor och 16 maskor per 10 cm blir 262 maskor 165 cm. Blir gigantiskt.
24.10.2022 - 15:09
Monika skrifaði:
Must have in autumn 🍂 Look so comfortable:)
08.08.2022 - 10:50
Dagmar skrifaði:
Autumn Dream
08.08.2022 - 09:41
Kerstin skrifaði:
Cozyautumn Cardigan
07.08.2022 - 13:05
JaninatheMermaid skrifaði:
Looks so cozy 😍 love it Es sieht so kuschelig aus ❤ ich liebe es
06.08.2022 - 06:17
Nelleke skrifaði:
Heel mooi, wil ik zeker gaan maken.
05.08.2022 - 11:17
@ratamaskor skrifaði:
Så vackert
04.08.2022 - 20:54
Patricia Andarde skrifaði:
Casaco Patrícia
04.08.2022 - 16:00
Tiril skrifaði:
Så fin
04.08.2022 - 12:27
All about Autumn Cardigan#allaboutautumncardigan |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð síð og stór / oversized peysa úr DROPS Fabel og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni með v-hálsmáli og vösum. Stærð S - XXXL.
DROPS 237-17 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA (á við um úrtöku fyrir v-hálsmáli): Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í BYRJUN Á UMFERÐ ÞANNIG: Prjónið 8 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, prjónið A.1 yfir næstu 3 lykkjur. FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í LOK UMFERÐAR ÞANNG: Prjónið þar til 12 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.1 yfir næstu 3 lykkjur, 1 lykkja slétt, 8 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. ÚTAUKNING (á við um ermar): Prjónið 1 lykkju slétt fram hjá prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 6, 15, 24, 33 og 41 cm. M: 6, 15, 24, 33 og 41 cm. L: 6, 15, 24, 33 og 41 cm. XL: 6, 15, 24, 33 og 42 cm. XXL: 6, 16, 25, 34 og 43 cm. XXXL: 6, 16, 26, 35 og 44 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið fyrir bakstykki og framstykki og stykkin eru prjónuð fram og til baka á hringprjóna hvert fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón upp það sem ermakúpan byrjar, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 218-234-246-262-282-306 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði DROPS Fabel og 2 þráðum DROPS Kid-Silk (3 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Í næstu umferð (frá réttu) er prjónað stroff þannig: 8 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 10 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt, 8 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff. Þegar stroffið mælist 4 cm, prjónið 1 umferð slétt (frá réttu) og fækkið um 26-30-30-30-30-34 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur að framan) = 192-204-216-232-252-272 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki 52-55-58-62-67-72 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 88-94-100-108-118-128 lykkjur fyrir bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau merkja hliðar á fram- og bakstykki og eru notuð þegar fækka á lykkjum fyrir handveg. Prjónið sléttprjón með 8 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 23 cm eru vasar prjónaðir þannig: VASAR: Nú eru prjónaðir vasar á hvort framstykki, í næstu umferð frá réttu, þannig: Vasarnir eru prjónaðir tvöfaldir og saumaðir saman í hlið í lokin. Prjónið 8 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 9-10-10-12-14-14 lykkjur slétt og setjið þær síðan á hjálparprjón / þráð, prjónið 27-29-29-31-33-35 lykkjur slétt, fitjið upp 1 lykkju, snúið. Prjónið nú vasa yfir 28-30-30-32-34-36 lykkjur þannig: Skiptið yfir á prjón 3 og 1 þráð DROPS Fabel. Fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjón, prjónið brugðnar lykkjur og aukið út um 17-17-17-18-21-22 lykkjur jafnt yfir út umferðina og fitjið upp 1 lykkju í lok umferðar = 46-48-48-51-56-59 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar vasinn mælist 36 cm (mælt frá þar sem fyrstu lykkjur voru settar á þráð) prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og 1 þráð DROPS Fabel og 2 þræði DROPS Kid-Silk og prjónið þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið sléttar lykkjur og fækkið um 17-17-17-18-21-22 lykkjur jafnt yfir, þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman = 27-29-29-31-33-35 lykkjur. Prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 104-110-122-130-142-158 lykkjur frá fram- og bakstykki, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 27-29-29-31-33-35 lykkjur og prjónið vasa yfir þessar lykkjur á sama hátt. Þegar vasinn hefur verið prjónaður til loka eru prjónaðar sléttar lykkjur yfir næstu 9-10-10-12-14-14 lykkjur og 8 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið sléttprjón með 8 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Þegar stykkið mælist 42-42-42-43-44-45 cm, byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli. JAFNFRAMT því sem lykkjum er fækkað fyrir v-hálsmáli og fellt er af fyrir handvegi og hvert stykki er síðan prjónað til loka hvert fyrir sig eins og útskýrt er að neðan. Lestu V-HÁLSMÁL og HANDVEGUR áður en þú prjónar áfram. V-HÁLSMÁL: Þegar stykkið mælist 42-42-42-43-44-45 cm, fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli í hvorri hlið í næstu umferð frá réttu – sjá ÚRTAKA. Fækkið um 2 lykkjur í hvorri hlið í 4. hverri umferð alls 7-7-8-8-9-9 sinnum. HANDVEGUR: Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm og næsta umferð er prjónuð frá réttu, fellið af fyrir handveg þannig: Prjónið eins og áður þar til 2-4-5-7-8-10 lykkjur eru eftir á undan fyrra prjónamerki í hlið, fellið af 4-8-10-14-16-20 lykkjur fyrir handveg, prjónið eins og áður þar til 2-4-5-7-8-10 lykkjur eru eftir að hinu prjónamerkinu, fellið af 4-8-10-14-16-20 lykkjur fyrir handvegi og prjónið eins og áður út umferðina. Framstykkin og bakstykkið er síðan prjónað hvert fyrir sig. VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð): Byrjið frá röngu, prjónið sléttprjón með 8 kantlykkjum að framan í garðaprjóni við miðju að framan. Haldið áfram með úrtöku fyrir hálsmáli frá réttu innan við 9 lykkjur. Eftir allar úrtökur fyrir v-hálsmáli og handvegi eru 36-37-37-39-41-44 lykkjur eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm, fellið af fyrstu 28-29-29-31-33-36 lykkjur í næstu umferð frá réttu = 8 kantlykkjur að framan eftir á prjóni. Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir þessar lykkjur í 9-9-10-10-11-11 cm. Fellið af. HÆGRA FRAMSTYKKI: Byrjið frá röngu, prjónið sléttprjón með 8 kantlykkjum að framan í garðaprjóni við miðju að framan. Haldið áfram með úrtöku fyrir hálsmáli frá réttu innan við 9 lykkjur. Eftir allar úrtökur fyrir v-hálsmáli og handvegi eru 36-37-37-39-41-44 lykkjur eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm, fellið af fyrstu 28-29-29-31-33-36 lykkjur í næstu umferð frá röngu = 8 kantlykkjur að framan eftir á prjóni. Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir þessar lykkjur í 9-9-10-10-11-11 cm. Fellið af. BAKSTYKKI: = 84-86-90-94-102-108 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 63-65-67-69-71-73 cm, fellið af miðju 26-26-30-30-34-34 lykkjur fyrir hálsmáli (26-27-28-30-33-36 lykkjur eftir á hvorri öxl). Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsmáli er fækkað um 1 lykkju = 28-29-29-31-33-36 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 44-44-48-48-52-52 lykkjur á sokkaprjóna 4 með 1 þræði DROPS Fabel og 2 þráðum DROPS Kid-Silk (3 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6-4-6-4-6-6 lykkjur jafnt yfir = 38-40-42-44-46-46 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – prjónamerkið er notað þegar auka á út mitt undir ermi. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5 og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 9-10-8-10-8-10 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3½-3-3-2½-2½-2 cm millibili alls 11-12-13-13-14-15 sinnum = 60-64-68-70-74-76 lykkjur. Þegar ermin mælist 47-45-45-43-41-39 cm, prjónið ermakúpuna fram og til baka á hringprjóna að loka máli. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 48-48-48-47-46-45 cm, þ.e.a.s. það er klauf 1-3-3-4-5-6 cm efst á ermi. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermakúpu að handvegi. Saumið síðan klauf efst á ermi við botn á handvegi – sjá teikningu. Saumið hliðarsauma á báðum vösum. Saumið saman kant að framan mitt að aftan og saumið við hálsmál á bakstykki. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #allaboutautumncardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 237-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.