Houarner skrifaði:
Bonjour Est-il possible de tricoter ce modèle avec des aiguilles droites ?
07.03.2023 - 16:26DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Houarner, tout à fait, cette leçon pourra vous aider à faire les ajustements nécessaires. Bon tricot!
07.03.2023 - 16:30
Delphine Roland skrifaði:
Bonjour Comment coudre ensemble les 43 mailles rabattues du devant avec les 48 du dos pour les épaules? Je n'arrive pas à comprendre pourquoi il n'y a pas le même nombre.... Merci
05.11.2022 - 15:43DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Roland, les diminutions de l'encolure ont été corrigées, merci pour votre retour. Bon tricot!
18.11.2022 - 13:29
Mary Luz skrifaði:
La manga se teje en redondo o es en patrón plano, gracias espero me aclaren esta duda.
02.10.2022 - 19:33DROPS Design svaraði:
Hola Mari Luz, la manga se trabaja en redondo. Tambíen puedes trabajar de ida y vuelta y después coser en el centro bajo la manga; en este caso tienes que añadir a cada lado 1 punto de orillo extra (para la costura) y los aumentos se trabajan antes y después del punto orillo.
04.10.2022 - 15:15
Lesley Albutt skrifaði:
Thank you for your reply to my question about the neckline. That is how I read the pattern as you have explained. However the photo doesn't appear to show a 4 over 4 cable? On the neckline.
29.09.2022 - 08:59DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Albutt, the cable is worked just at the bottom of V-neck, stitches are crossed as front piece is divided into 2 pieces, that might be the reason why it's quite discreet on the picture. Happy knitting!
29.09.2022 - 12:04
Lesley Albutt skrifaði:
I am finding the explanation for knitting the neckline confusing. Can we please have a diagram or a close up picture. I am a machine knitter and will need to translate, but first I need to thoroughly understand the hand knitting technique. Many thanks.
29.09.2022 - 06:49DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Albutt, after you have crossed the stitches in the middle of the row, you continue each side separately and decrease for the V-neck as explained under DECREASE TIP (applies to decreases for V-neck): as follows (see your size): 1 stitch every 6th row 3 times then 1 stitch every 4th row 9 or 10 times (see size) and 1 stitch every other row 2-2-3-3-4-5 times - decrease at the beginning of a row from RS on right shoulder /at the end of a row from RS on left shoulder (when garment is worn). Hope it can help. Happy knitting!
29.09.2022 - 08:47
Aga skrifaði:
Dyniowy urok
06.08.2022 - 11:27
Iya skrifaði:
Street style
06.08.2022 - 06:49
Bent skrifaði:
Sød hverdags bluse
04.08.2022 - 18:17
Simplicity#simplicitysweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni með v-hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 236-38 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA (á við um úrtöku fyrir v-hálsmáli): Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ LYKKJUM Í BYRJUN Á UMFERÐ ÞANNIG: Prjónið 4 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. FÆKKIÐ LYKKJUM Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 lykkjur slétt. ÚTAUKNING (á við um ermar): Prjónið 1 lykkju slétt fram hjá prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið fyrir bakstykki og framstykki og stykkin eru prjónuð fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón upp þar til ermakúpan byrjar, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 282-306-330-360-396-432 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Alpaca. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 4½ cm, prjónið A.1 yfir allar lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist 8 cm. Næsta umferð er prjónuð slétt og það er fækkað um 42-46-50-52-56-64 lykkjur jafnt yfir = 240-260-280-308-340-368 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm, fellið af fyrir handveg þannig: Prjónið 119-127-135-145-156-169 lykkjur, fellið af 2-6-10-18-28-30 lykkjur, prjónið 118-124-130-136-142-154 lykkjur og fellið af 2-6-10-18-28-30 lykkjur (þ.e.a.s. síðustu 1-3-5-9-14-15 lykkjur í umferð og fyrstu 1-3-5-9-14-15 lykkjur í næstu umferð) = 118-124-130-136-142-154 lykkjur á hvoru framstykki/bakstykki. Hvort stykki er nú prjónað til loka hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af miðju 26-26-30-30-32-34 lykkjur fyrir hálsmáli (46-49-50-53-55-60 lykkjur eftir á hvorri öxl). Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja fyrir hálsmáli = 45-48-49-52-54-59 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 118-124-130-136-142-154 lykkjur. Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 34-36-37-39-40-41 cm, skiptist framstykkið og lykkjum er fækkað fyrir v-hálsmáli í næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 54-57-60-63-66-72 lykkjur, setjið 4 prjónamerki á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni, 54-57-60-63-66-72 lykkjur slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Snúið og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni og 58-61-64-67-70-76 lykkjur sléttprjón, snúið (59-62-65-68-71-77 lykkjur á hvorri öxl). Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli – sjá ÚRTAKA, þannig: Fækkið um 1 lykkju í 4. hverri umferð alls 4-4-6-6-8-9 sinnum og eftir það 1 lykkju í 6. hverri umferð alls 5-5-5-5-4-4 sinnum = 50-53-54-5759-64 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Í næstu umferð frá öxl, fellið af fyrstu 45-48-49-52-54-59 lykkjur = 5 lykkjur eftir. Prjónið sléttprjón yfir þessar 5 lykkjur í ca 7-7-8-8-8-9 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 90-90-90-96-96-102 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með DROPS Alpaca. Prjónið stroff (1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt). Þegar stykkið mælist 4½ cm, prjónið A.1 yfir allar lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið stykkið með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist 8 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Stykkið er síðan prjónað í sléttprjóni. Í fyrstu umferð er fækkað um 18-16-16-18-18-22 lykkjur jafnt yfir = 72-74-74-78-78-80 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – prjónamerkið er notað þegar auka á út lykkjum mitt undir ermi. Þegar ermin mælist 16-18-16-16-16-13 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3-2½-2-2-1½-1½ cm millibili alls 11-12-15-16-18-20 sinnum = 94-98-104-110-114-120 lykkjur. Þegar ermin mælist 49-49-48-47-44-43 cm, skiptist stykkið við prjónamerki og prjónað er síðan fram og til baka á hringprjóna að loknu máli. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 50-50-50-50-49-49 cm, þ.e.a.s. það er klauf 1-1-2-3-5-6 cm efst á ermi. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið klaufina efst á ermi við botninn á handvegi og saumið síðan ermina við fram- og bakstykki – sjá teikningu. Saumið 5 lykkjur á hvoru framstykki saman og saumið þær við hálsmál á bakstykki. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #simplicitysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 236-38
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.