DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6930.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Simplicity Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni með v-hálsmáli og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.

DROPS 236-30
DROPS Design: Mynstur z-978
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALAPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
350-400-450-450-500-550 g litur 2915, appelsínugulur

DROPS TALA NR 513: 4 stykki í allar stærðir.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
26 lykkjur á breidd og 34 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6930.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA (á við um úrtöku fyrir v-hálsmáli):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í BYRJUN Á UMFERÐ ÞANNIG:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, prjónið 3 lykkjur brugðið saman.
FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í LOK UMFERÐAR ÞANNIG:
Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur brugðið saman, 1 lykkja slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Prjónið 1 lykkju slétt fram hjá prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt.

HNAPPAGAT:
Prjónið hnappagat, með byrjun frá réttu, þannig:
Prjónið yfir fyrstu 8 lykkjur eins og áður, snúið og prjónið til baka yfir 8 lykkjur eins og áður, prjónið alls 3 umferðir yfir 8 lykkjur (síðasta umferðin er prjónuð frá réttu). Klippið þráðinn.
Prjónið alls 4 umferðir eins og áður yfir þær 8 kantlykkjur sem eftir eru að framan (fyrsta umferð er prjónuð frá réttu) og prjónið síðustu lykkju frá réttu saman með næstu lykkju meðfram kanti á peysu eins og áður. Í síðustu umferð frá röngu er prjónað yfir allar kantlykkjur að framan og haldið er áfram eins og áður yfir allar kantlykkjur að framan.
Prjónið hnappagat þegar kanturinn að framan mælist:
S: 4, 11, 17 og 23 cm.
M: 4, 10, 17 og 24 cm.
L: 4, 10, 17 og 24 cm.
XL: 4, 11, 18 og 25 cm.
XXL: 5, 12, 19 og 26 cm.
XXXL: 5, 13, 20 og 27 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið fyrir bakstykki og framstykki og stykkin eru prjónuð fram og til baka á hringprjóna hvert fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón upp þar til ermakúpan byrjar, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka á hringprjóna. Að lokum eru lykkjur prjónaðar upp meðfram framstykki og prjónaður er tvöfaldur kantur að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 283-307-331-361-397-433 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Alpaca.
Prjónið með byrjun frá röngu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 4½ cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu 5 lykkjur af A.1 (þetta er gert til að mynstrið byrji og endi alveg eins) og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist 8 cm.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu og prjónað er þannig:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið sléttar lykkjur og fækkið um 41-45-49-51-55-63 lykkjur jafnt yfir þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni 242-262-282-310-342-370 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Setjið 1 prjónamerki 61-66-71-78-86-93 lykkjur inn frá hvorri hlið (það eru 120-130-140-154-170-184 lykkjur á milli prjónamerkja = bakstykki). Prjónamerkin merkja hliðar á stykki og eru síðar notuð þegar fella á af lykkjur fyrir handvegi. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Þegar stykkið mælist 23-24-24-25-26-27 cm, byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir v-hálsmáli þegar lykkjur eru felldar af fyrir handvegi og hvort stykki er síðan prjónað hvort fyrir sig eins og útskýrt er að neðan. Sjá V-HÁLSMÁL og HANDVEGUR áður en þú prjónar áfram.

V-HÁLSMÁL:
Þegar stykkið mælist 23-24-24-25-26-27 cm, fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli á hvoru framstykki í næstu umferð frá réttu – sjá ÚRTAKA. Fækkið um 2 lykkjur á hvoru framstykki í 10. hverri umferð alls 8-8-9-9-10-10 sinnum.

HANDVEGUR:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm og næsta umferð er prjónuð frá réttu, fellið af fyrir handvegi þannig: Prjónið eins og áður þar til 1-3-5-9-14-15 lykkjur eru eftir á undan fyrra prjónamerki í hlið, fellið af 2-6-10-18-28-30 lykkjur fyrir handvegi, prjónið eins og áður þar til 1-3-5-9-14-15 lykkjur eru eftir á undan hinu prjónamerkinu, fellið af 2-6-10-18-28-30 lykkjur fyrir handvegi og prjónið eins og áður út umferðina.
Framstykkin og bakstykkið er síðan prjónað hvert fyrir sig.

VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð):
Byrjið frá röngu, prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni að hálsmáli eins og áður og haldið áfram með úrtöku fyrir v-hálsmáli.
Eftir allar úrtöku fyrir v-hálsmáli og handvegi eru 44-47-48-51-52-58 lykkjur eftir á öxl.
Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni að hálsmáli. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Byrjið frá röngu, prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni að hálsi eins og áður og haldið áfram með úrtöku fyrir v-hálsmáli.
Eftir allar úrtöku fyrir v-hálsmáli og handvegi eru 44-47-48-51-52-58 lykkjur eftir á öxl.
Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni að hálsmáli. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm.

BAKSTYKKI:
= 118-124-130-136-142-154 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið sléttprjón.
Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af miðju 28-28-32-32-36-36 lykkjur fyrir hálsmáli (45-48-49-52-53-59 lykkjur eftir á hvorri öxl).
Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja fyrir hálsmáli = 44-47-48-51-52-58 lykkjur.
Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 90-90-90-96-96-102 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með DROPS Alpaca.
Prjónið stroff (1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt). Þegar stykkið mælist 4½ cm, prjónið A.1 yfir allar lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið stykkið með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist 8 cm.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Stykkið er síðan prjónað í sléttprjóni. Í fyrstu umferð er fækkað um 18-16-16-18-18-22 lykkjur jafnt yfir = 72-74-74-78-78-80 lykkjur.
Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (mitt undir ermi).
Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – prjónamerkið er notað þegar auka á út lykkjum mitt undir ermi.
Þegar ermin mælist 16-18-16-16-16-13 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3-2½-2-2-1½-1½ cm millibili alls 11-12-15-16-18-20 sinnum = 94-98-104-110-114-120 lykkjur.
Þegar ermin mælist 49-49-48-47-44-43 cm, skiptist stykkið við prjónamerki og prjónað er síðan fram og til baka á hringprjóna að loka máli. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 50-50-50-50-49-49 cm, þ.e.a.s. það er klauf 1-1-2-3-5-6 cm efst á ermi.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið klaufina efst á ermi við botninn á handvegi og saumið síðan ermina við fram- og bakstykki – sjá teikningu.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Kanturinn að framan er prjónaður neðan frá og upp, þess vegna verður að prjóna upp lykkjur meðfram hægra framstykki með endanum á þræði (svo að síðar verði hægt að prjóna áfram með dokkunni) þannig:
Hafðu endann ca 160-240 cm langan, notaðu endann á þræðinum, byrjaðu neðst á framstykki og prjónaðu upp 1 lykkju í hverja umferð meðfram öllu framstykkinu, innan við 1 kantlykkju með hringprjón 2,5 og DROPS Alpaca.
Fitjið upp 16 lykkjur á prjóninn neðst á framstykki (þ.e.a.s. frá röngu).
Prjónið kant að framan yfir 16 kantlykkjur að framan og prjónið kant að framan saman með lykkjum sem prjónaðar voru upp meðfram kanti á framstykki þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Lyftið fyrstu lykkjunni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi bruðgið með þráðinn framan við stykkið, * prjónið 1 lykkju slétt, lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón ein sog prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir af 16 kantlykkjum að framan, lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, með þráðinn aftan við stykkið, prjónið næstu lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð slétt, snúið.
UMFERÐ 2 (ranga): * Lyftið fyrstu/næstu lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* yfir allar 16 kantlykkjur að framan.
Endurtakið umferð 1 og 2 og prjónið HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan, þar til allar lykkjurnar frá framstykki hafa verið prjónaðar saman með kanti að framan.
Nú er prjónað yfir 16 kantlykkjur þannig:
UMFERÐ 1: * Lyftið fyrstu/næstu lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* yfir 16 lykkjur.
Endurtakið umferð 1 bæði frá réttu og frá röngu í 7-7-8-8-9-9 cm.
Í næstu umferð frá réttu eru allar lykkjur prjónaðar 2 og 2 slétt saman og fellt er af.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Kanturinn er prjónaður neðan frá og upp. Byrjið efst við öxl á framstykki og prjónið upp 1 lykkju í hverja umferð meðfram öllu framstykkinu, innan við 1 kantlykkju með garðaprjóni 2,5 og DROPS Alpaca og fitjið upp 16 lykkjur í lok umferðar. Prjónið kant að framan yfir 16 lykkjur og prjónið kant að framan saman með lykkjur sem prjónaðar voru upp meðfram kanti á framstykki þannig:
UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, * lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir af 16 kantlykkjum að framan, lyftið 2 næstu lykkjum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið saman með þráðinn framan við stykkið, snúið.
UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt saman, * lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, lyftið síðustu lykkjunni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, lyftið síðustu lykkjunni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið.
Endurtakið umferð 1 og 2 þar til allar lykkjurnar af framstykki hafa verið prjónaðar saman með kanti að framan. Nú er prjónað yfir 16 kantlykkjur að framan þannig:
UMFERÐ 1: * Prjónið 1 lykkju slétt, lyftið næstu lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið *, prjónið frá *-* yfir 16 lykkjurnar.
Endurtakið umferð 1 bæði frá réttu og frá röngu í 7-7-8-8-9-9 cm.
Í næstu umferð frá réttu eru allar lykkjur prjónaðar saman og fellt er af þannig:
Lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, fellið lykkjuna af.

FRÁGANGUR:
Saumið kantinn að framan við miðju að aftan og saumið við kant í hálsmáli á bakstykki.
Saumið tölur í.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu

symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn

symbols = prjónið 3 lykkjur slétt saman
symbols = byrjið í þessari umferð
symbols = ermakúpan er saumið við handveg þannig: Saumið a við A og b við B
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 236-30

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (8)

country flag Hannie Deen wrote:

Er staat bij de mouwen: Voeg een markeerdraad in op het begin van de naald. (MIDDEN ONDER DE MOUW)Verderop staat in het patroon: Als de mouw 49 cm meet, verdeel dan het werk op de markeerdraad en brei heen en weer gebreid op de rondbreinaald tot de gewenste afmetingen. Brei tot de mouw ongeveer 50 cm meet, dus er is een split van 1 cm OP DE BOVENKANT van de mouw. Waarom eerst MIDDEN ONDER, dan de BOVENKANT van de mouw? Ik begrijp sowieso het nut van de split niet. Kunt u dit uitleggen?

18.01.2024 - 19:43

DROPS Design answered:

Dag Hannie,

Nee er is een split aan de onderkant van de mouw, niet aan de bovenkant. Deze split zit dus bij de oksel. Bij het in elkaar naaien wordt de split aan het pand genaaid zoals te zien is in de tekening onderaan het patroon.

21.01.2024 - 12:10

country flag Heather wrote:

Hello! I am currently making this sweater in a size medium, and I would like to raise the shoulder seam if possible. I have narrow shoulders, and I was wondering if following the directions for the size small at the v-neck section would help create this effect. Thanks so much!

25.03.2023 - 16:28

DROPS Design answered:

Dear Heather, to raise the shoulder seam you need to work a new armhole and sleeve cap. The v-neck section won't affect the shoulder seam. You can check the following pattern for an alternative armhole and sleeve cap: https://www.garnstudio.com/pattern.php?id=11115&cid=19 Happy knitting!

26.03.2023 - 22:34

country flag Anja wrote:

Wie viele Maschen soll man denn für die Armausschnitte abketten? Es steht nur, dass man Maschen abketten soll. Leider nicht, wie viele.

14.03.2023 - 19:40

DROPS Design answered:

Liebe Anja, sehen Sie unter ARMAUSSCHNITTE (nach dem Absatz V-AUSSCHNITT: - es wird zuerst für den V-Auschnitt abgenommen, aber bevor diese Abnahmen fertig sind, wird man für den Armausschnitt abketten. Viel Spaß beim stricken!

15.03.2023 - 09:47

country flag Kirsten wrote:

Hallo liebes Drops-Team! Bei angegebener Nadelstärke, erhalte ich mit 24 Maschen in der Breite 10cm. Nach Maschenproben mit verschiedenen Nadelstärken, kann ich 26 Maschen in der Breite nicht erreichen. Auf der Banderole für die Alpacawolle steht für die Maschenprobe 24 Maschen in der Breite. Liegt vielleicht ein Fehler vor, und man braucht nur 24 Maschen? Liebe Grüße Kirsten

03.01.2023 - 19:10

DROPS Design answered:

Liebe Kristen, für diese Jacke sollen Sie 26 Maschen in der Breite haben, versuchen Sie mal mit kleineren Nadeln, z.B. 2,5 anstatt 3 oder eben 2. Hier lesen Sie mal mehr über Maschenprobe. Viel Spaß beim stricken!

04.01.2023 - 08:59

country flag Therese Rosenqvist wrote:

Jeg mangler et mål-diagram på denne flotte trøje

03.10.2022 - 17:51

DROPS Design answered:

Hei Therese, Du finner en målskisse på bunnen av oppskriften. God fornøyelse!

04.10.2022 - 06:52

country flag Inita Strike wrote:

Energy boost

06.08.2022 - 11:26

country flag Janine wrote:

Pumpkin Spice

06.08.2022 - 09:39