Teresa Della Pietra skrifaði:
Secondo me c'è un errore nello schema A4.gli intrecci andrebbero fatti al 14° ferro e non al 17°....che ne dite?
06.02.2025 - 18:38DROPS Design svaraði:
Buongiorno Teresa, il motivo prevede diversi intrecci, al ferro 5, 9 , 13 e 17. Buon lavoro!
09.02.2025 - 11:36
Allison H skrifaði:
I see that in the picture of the blue diamond sleeve -it appears to have approximately 6-10cm of moss stitch A1 at the sleeve cap. The pattern, as written, only mentions the stockinette stitch. I think there is a mistake. am I correct? I am getting ready to begin the sleeves. Thank you.
09.09.2024 - 03:40DROPS Design svaraði:
Dear Allison, the moss stitch you can see at the top of sleeves belong in fact to body, ie that's the stitches worked in A.1 after armhole and to the shoulder on each side of piece. Happy knitting!
09.09.2024 - 11:03
Kari Clausen skrifaði:
Ok; tak for svar ; når jeg skal lukke af til ærmekuppel, sætter jeg så bare markering i midten og lukker masker af på hver side? ( som start /slut)
01.08.2024 - 18:06DROPS Design svaraði:
Hej Kari, ja det stemmer, samme antal masker som der står i opskriften :)
02.08.2024 - 08:19
Kari Clausen skrifaði:
Hej Vil høre, kan jeg strikke ærmer rundt på rundpind på denne opskrift ? Mvh Kari
30.07.2024 - 01:35DROPS Design svaraði:
Hej Kari, ja det kan du gøre :)
01.08.2024 - 10:29
Katja Horeman skrifaði:
Het patroon klopt niet. A3 moet zijn A2, A 2 moet zijn A3. A5 moet zijn A6 A6 moet zijn A5. Verder staan de tekens voor de kleine kabels verkeerd om.
07.07.2024 - 11:30
Sharon skrifaði:
When casting off for the sleeve cap, do I knit a row without casting off when it says cast off 1 stitch 0 times, or move on to casting off 2 stitches each time until 50cm?
21.03.2024 - 12:26DROPS Design svaraði:
Dear Sharon, When the number is 0 for your size, you should go to the next step of the instruction. So, in this case you should move on to casting off 2 stitches. Happy Knitting!
21.03.2024 - 13:40
Angelika Musiolik skrifaði:
Hallo, ich habe den "Blue Diamant " mit der Originalwolle gestrickt. Das Ergebnis war super und die Maschenprobe stimmte. Leider wird er immer breiter (nicht länger). Woran könnte das liegen? Liebe Grüße Angelika
01.03.2024 - 17:50DROPS Design svaraði:
Liebe Angelika, sollte Ihre Maschenprobe stimmen, dann sollten Sie die richtigen Maßen genau wie bei der Maßskizze haben, dh genauso breit. Pflegehinweise finden Sei bei der Farbkarte. Viel Spaß beim Stricken!
04.03.2024 - 07:18
Gaëtan skrifaði:
Bonjour , la j ai un problème comment coudre la manche à mon pull il est arrondi pour la tête de manche mais ça rime pas ? Merci
27.10.2023 - 23:13DROPS Design svaraði:
Bonjour Gaëtane, le milieu sous la manche doit correspondre au milieu des mailles rabattues pour les emmanchures, placez votre manche ici, le milieu du haut de la manche doit être au niveau de la couture d'épaules, épinglez si besoin puis cousez simplement la manche en commençant par le milieu sous la manche en remontant jusqu'à l'épaule puis en redescendant. Bon assemblage!
28.10.2023 - 09:12
Isabelle skrifaði:
Bonjour, Après avoir rabattu les 3 m de chaque côté du rang pour la manche , est-ce qu on rabat tout de suite après 2x 2 m pour la tête de manche ? Merci
23.10.2023 - 12:28DROPS Design svaraði:
Bonjour Isabelle, effectivement, quand vous avez rabattu 3 mailles de chaque côté, rabattez 2 mailles au début des 4-4-6-6-8-8 rangs suivants (= 2-2-3-3-4-4 fois de chaque côté), puis 1 maille de chaque côté en fonction de la taille, puis 2 mailles au début de chaque rang de chaque côté jusqu'à ce que la manche mesure 50 cm (le nombre de fois va dépendre de votre tension en hauteur, veillez juste à avoir rabattu le même nombre de mailles de chaque côté) et enfin rabattez 3 mailles au début des 2 rangs suivants et rabattez les mailles restantes. Bon tricot!
24.10.2023 - 08:43
Gaetane skrifaði:
Bonjour , diminuer 4 mailles dans les mailles endroit mailles de chaque A.2 et A.5 / A.3 et A.6 = il reste 27-29-30-32-33-35 mailles pour l’épaule. Ça veut tu dire diminuer 4 m dans A3 et 4m dans A6 = alors 8 m de chaque côté d épaule c est ça ? Pour arriver à 27 m ! Merci
15.10.2023 - 23:15DROPS Design svaraði:
Bonjour Gaetane, tout à fait, on va diminuer 4 m dans A.2 et 4 m dans A.5 (et 4 m dans A.3 et 4 m dans A.6 pour l'autre épaule). Bon tricot!
16.10.2023 - 10:11
Blue Diamond#bluediamondsweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Soft Tweed. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með köðlum, perluprjóni, tvöföldum kanti í hálsmáli og ísaumuðum ermum. Stærð S - XXXL
DROPS 236-29 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um ermar): Öll útaukning er gerð frá réttu! Sláið 1 sinni uppá prjóninn í hvorri hlið innan við 1 kantlykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ----------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkið, bakstykkið og ermar er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvert fyrir sig, neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli í hring á hringprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 116-124-136-148-160-172 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Soft Tweed. Prjónið stroff fram og til baka þannig – fyrsta umferð er prjónuð frá réttu: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slátt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið svona stroff þar til stykkið mælist 5 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 16-14-18-20-20-20 lykkjur jafnt yfir = 100-110-118-128-140-152 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan mynstur frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið mynstur A.1 þar til 1 lykkja er eftir og 1 kantlykkja í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm, fellið af lykkjur fyrir handvegi í hvorri hlið, í byrjun á hverri umferð þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 0-1-2-2-3-4 sinnum, 1 lykkja 0-1-1-4-6-8 sinnum = 94-98-102-106-110-114 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 57-59-61-63-65-67 cm, fellið miðju 38-38-40-40-42-42 lykkjur af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja = 27-29-30-32-33-35 lykkjur. Prjónið mynstur A.1 þar til stykkið mælist 59-61-63-65-67-69 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 116-124-136-148-160-172 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Soft Tweed. Prjónið stroff fram og til baka þannig – fyrsta umferð frá réttu: : 1 kantlykkja í garðaprjón, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið svona stroff þar til stykkið mælist 5 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 12-14-10-8-8-8 lykkjur jafnt yfir = 128-138-146-156-168-180 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan mynstur frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið mynstur A.1 yfir 11-16-20-25-31-37 lykkjur, prjónið A.2, A.3, A.4, A.5, A.6, prjónið 11-16-20-25-31-37 lykkjur A.1 og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm, fellið lykkjur af fyrir handvegi í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 0-1-1-2-3-4 sinnum, 1 lykkja 0-1-3-4-6-8 sinnum = 122-126-130-134-138-142 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 51-53-54-56-57-59 cm, fækkið um 12 lykkjur jafnt yfir sléttar lykkjur í mynstri A.4 = 110-114-118-122-126-130 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu eru miðju 32 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli. Síðan eru axlir prjónaðar til loka hvor fyrir sig og lykkjur eru felldar af fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2-2-3-3-3-4 sinnum = 35-37-38-40-41-43 lykkjur eftir í umferð. Þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm, fækkið um 4 lykkjur í sléttum lykkjum í hverju A.2 og A.3 / A.5 og A.6 = 27-29-30-32-33-35 lykkjur á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 59-61-63-65-67-69 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 62-62-66-66-70-70 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Soft Tweed. Prjónið stroff fram og til baka þannig – fyrsta umferð er frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið stroff svona þar til stykkið mælist 7 cm – passið uppá að næsta umferð sé frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið um 8-6-8-8-10-8 lykkjur jafnt yfir = 54-56-58-58-60-62 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 8 cm, aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 2½-2½-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 15-15-16-19-19-21 sinnum = 84-86-90-96-98-104 lykkjur. Þegar stykkið mælist 45-44-43-42-41-40 cm, fellið af 3 lykkjur í hvorri hlið. Fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: 2 lykkjur 2-2-3-3-4-4 sinnum, 1 lykkja 0-1-0-1-0-1 sinni. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 50 cm í öllum stærðum, fellið af 3 lykkjur í hvorri hlið, síðan eru felldar af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist 51 cm í öllum stærðum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring, byrjið frá réttu við annan axlasauminn. Notið hringprjón 3,5 og DROPS Soft Tweed. Prjónið upp ca 96 til 108 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið 1 umferð brugðið og 1 umferð slétt. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 11 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bluediamondsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 236-29
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.