Maikki Oksa skrifaði:
Ohjeeseen liittyy piirros A.1 . Missähän tuota käytetään. En löytänyt ohjeesta siitä mitääm.
29.10.2023 - 16:32DROPS Design svaraði:
Hei, piirros löytyy ohjeen tekstin alapuolelta.
30.10.2023 - 14:18
Ruth Hausner-Pfeiffer skrifaði:
Da ich Mohair nicht vertrage, muss ich das Garn wechseln. Ich könnte auch mit nur einem oder mit zwei Garnen arbeiten. Haben Sie Vorschläge für mich? Danke für Ihre Bemühungen R. Hausner-Pfeiffer
09.10.2022 - 21:04DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Hausner-Pfeiffer, benutzen Sie unseren Garnumrechner um die vorschlagene Alternative sowie die neue Garnmenge zu sehen. Gerne kann Ihnen auch Ihr DROPS Laden damit (auch per Telefon oder per E-Mail) helfen, die beste passende Wolle zu finden. Viel Spaß beim stricken!
10.10.2022 - 09:59
Delphine Roland skrifaði:
Bonjour \r\nJe suis actuellement en train de tricoter ce modèle et je ne vois pas où intervient le diagramme A1. Ai-je oublié quelque chose?\r\nMerci pour votre réponse
12.09.2022 - 12:16DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Roland, le diagramme A.1 n'est utilisé que pour les diminutions de l'encolure devant, pas avant, raison pour laquelle vous ne l'avez peut-être pas encore lu dans les explications - cf DIMINUTIONS (encolure): au tout début des explications. Bon tricot!
12.09.2022 - 17:42
Martina Tauber skrifaði:
Zu diesem Pullover „All About Autumn“ gab es auch eine Strickjacke. Ich finde die Anleitung nicht mehr online, wird sie wieder veröffentlicht?
11.09.2022 - 20:12DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Tauber, diese Jacke wird wahscheinlich später kommen - hier finden Sie alle Modellen dieser Kollektion, die schon veröffentlicht wurden. Danke im voraus für Ihren Geduld. Viel Spaß beim stricken!
12.09.2022 - 11:28
Anita skrifaði:
Lekker kroelen!
02.09.2022 - 19:06
Mahiet Marie skrifaði:
Cocooning d'automne
08.08.2022 - 03:50
Marie Breward skrifaði:
Autumn tunuc
07.08.2022 - 02:11
Kirsten skrifaði:
Hyggesweater med lommer
06.08.2022 - 03:01
Eva skrifaði:
Schlicht und bequem
05.08.2022 - 11:43
All about Autumn#allaboutautumnsweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð síð og stór / oversized peysa úr DROPS Fabel og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni með vösum. Stærð S - XXXL.
DROPS 237-36 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA (á við um úrtöku fyrir hálsmáli): Öll úrtaka er gerð frá réttu! FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í BYRJUN Á UMFERÐ ÞANNIG: Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið A.1 yfir næstu 3 lykkjur. FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í LOK UMFERÐAR ÞANNG: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.1 yfir næstu 3 lykkjur, 1 lykkja slétt. ÚTAUKNING (á við um ermar): Prjónið 1 lykkju slétt fram hjá prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið fyrir bakstykki og framstykki og stykkin eru prjónuð fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón upp það sem ermakúpan byrjar, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka á hringprjóna. Að lokum er prjónaður upp kantur í hálsmáli. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 200-216-228-244-264-288 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði DROPS Fabel og 2 þráðum DROPS Kid-Silk (3 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stykkið mælist 4 cm, prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 24-28-28-28-28-32 lykkjur jafnt yfir = 176-188-200-216-236-256 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 23 cm eru vasar prjónaðir þannig: VASAR: Nú eru prjónaðir 2 vasar á framstykki þannig: Vasarnir eru prjónaðir tvöfaldir og saumaðir saman í hlið í lokin. Prjónið 52-55-61-65-71-79 lykkjur slétt og setjið þær síðan á hjálparprjón / þráð, prjónið 27-29-29-31-33-35 lykkjur slétt, fitjið upp 1 lykkju, snúið. Nú eru vasarnir prjónaðir yfir 28-30-30-32-34-36 lykkjur þannig: Skiptið yfir á prjón 3 og 1 þráð DROPS Fabel. Fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið brugðnar lykkjur og aukið út um 17-17-17-18-21-22 lykkjur jafnt yfir út umferðina og fitjið upp 1 lykkju í lok umferðar = 46-48-48-51-56-59 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar vasinn mælist 36 cm (mælt frá þar sem fyrstu lykkjur voru settar á þráð) prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og 1 þráð DROPS Fabel og 2 þræði DROPS Kid-Silk og prjónið þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið sléttar lykkjur og fækkið um 17-17-17-18-21-22 lykkjur jafnt yfir, þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman = 27-29-29-31-33-35 lykkjur. Prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 18-20-20-24-28-28 lykkjur frá fram- og bakstykki, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 27-29-29-31-33-35 lykkjur og prjónið vasa yfir þessar lykkjur alveg eins. Þegar vasinn hefur verið prjónaður til loka eru prjónaðar sléttar lykkjur yfir næstu 52-55-61-65-71-79 lykkjur. Prjónið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm fellið af fyrir handveg þannig: Prjónið 42-43-45-47-51-54 lykkjur slétt (hálft bakstykki), fellið af næstu 4-8-10-14-16-20 lykkjur, prjónið 84-86-90-94-102-108 lykkjur slétt (framstykki), fellið af næstu 4-8-10-14-16-20 lykkjur og prjónið síðustu 42-43-45-47-51-54 lykkjur slétt (hálft bakstykki). Framstykkið og bakstykkið er síðan prjónað hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 84-86-90-94-102-108 lykkjur. Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 63-65-67-69-71-73 cm, fellið af miðju 32-32-34-34-36-36 lykkjur fyrir hálsmáli (26-27-28-30-33-36 lykkjur eftir á hvorri öxl). Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsmáli er fækkað um 1 lykkju fyrir hálsmáli = 25-26-27-29-32-35 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Prjónið eins og bakstykki þar til stykkið mælist 57-59-60-62-63-65 cm = 84-86-90-94-102-108 lykkjur. Í næstu umferð eru miðju 22-22-20-20-22-22 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli (31-32-35-37-40-43 lykkjur eftir á hvorri öxl). Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 2 lykkjur fyrir hálsmáli – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð alls 3-3-4-4-4-4 sinnum = 25-26-27-29-32-35 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 44-44-48-48-52-52 lykkjur á sokkaprjóna 4 með 1 þræði DROPS Fabel og 2 þráðum DROPS Kid-Silk (3 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6-4-6-4-6-6 lykkjur jafnt yfir = 38-40-42-44-46-46 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu – prjónamerkið er notað þegar auka á út mitt undir ermi. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5 og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 9-10-8-10-8-10 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3½-3-3-2½-2½-2 cm millibili alls 11-12-13-13-14-15 sinnum = 60-64-68-70-74-76 lykkjur. Þegar ermin mælist 47-45-45-43-41-39 cm, prjónið ermakúpuna fram og til baka á hringprjóna að loka máli. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 48-48-48-47-46-45 cm, þ.e.a.s. það er klauf 1-3-3-4-5-6 cm efst á ermi. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermakúpuna við handveg. Saumið síðan klauf efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. Saumið hliðarsauma á báðum vösum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp lykkjur frá réttu meðfram hálsmáli með stuttum hringprjón 4 og 1 þræði DROPS Fabel og 2 þráðum DROPS Kid-Silk (3 þræðir). Prjónið upp 84 til 116 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði mitt að framan). Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir allar lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar kantur í hálsmáli mælist 5 cm. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #allaboutautumnsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 237-36
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.