Zuzanna skrifaði:
Doszłam do reglanu, rozmiar S. Mam 118 oczek. Nie rozumiem jak mam robić ścieg fantazyjny. Inny opis w ściegu fantazyjnym, inny opis w raglanie. Jak wygląda pierwsze okrążenie gdy dołączam pierwsze narzuty raglanu?
31.05.2025 - 13:19DROPS Design svaraði:
Witaj Zuzanno, 1-sze okrążenie z dodawaniem oczek na reglan: 1 oczko prawe, dodać 1 o. na reglan (narzut), schemat A.2, dodać 1 o. na reglan (narzut), 2 oczka prawe, dodać 1 o. na reglan (narzut), A.1a, 2-2-2-3-3-3 razy schemat A.1b, A.1c, dodać 1 o. na reglan (narzut), 2 oczka prawe, dodać 1 o. na reglan (narzut), A.2, dodać 1 o. na reglan (narzut), 2 oczka prawe, dodać 1 o. na reglan (narzut), A.1a, 2-2-2-3-3-3 razy A.1b, A.1c, 1 oczko prawe, dodać 1 o. na reglan (narzut). Pozdrawiamy!
04.06.2025 - 08:32
Anita Tillung skrifaði:
Hei igjen! Eg får ikkje diagrammet til å stemme, og lurer på om eg kan ha gjort noko feil. Omgang 16 startar med (1 rett) 1 vrang - 1 rett, osv., og viss eg så skal starte diagrammet på nytt, vil omgang 17 starte med (1 rett) 1 kast (auke) - 2 vrang, osv., og då blir heile mønsteret forskyvd.
18.02.2025 - 15:54DROPS Design svaraði:
Hej Anita, nej du skal først have de 3 vrang før du laver hulmønsteret igen, så du altid får 3vr,1r,3vr imellem hver hulmønster :)
20.02.2025 - 11:48
Anita Tillung skrifaði:
Hei. Korleis/kvar fortset ein mønsteret etter dei første 16 omgangane (altså når ein har strikka så langt som diagrammet viser og skal fortsetje med mønster)?
17.01.2025 - 22:47DROPS Design svaraði:
Hei Anita. Da fortsetter du diagrammene på starten igjen. Og de nye maskene strikkes fortløpende inn i A.1a /A.1c og A.2, slik at de stemmer med resten av mønstret. mvh DROPS Design
20.01.2025 - 10:56
Jocelyne Petit skrifaði:
Je ne comprends pas pourquoi la longueur des manches est plus petite en xxl qu'en S. N'y aurait-il pas une erreur?
15.06.2023 - 14:27DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Petit, en taille XXL, l'empiècement est plus long, la manche sera donc plus courte, mais l'envergure sera plus longue - cf mesures dans le schéma. N'hésitez pas à comparez ces mesures à celles d'un vêtement similaire que vous avez et dont vous aimez la forme, vous pourrez ainsi ajuster plus facilement la longueur des manches en fonction de la longueur que vous souhaitez. Bon tricot!
15.06.2023 - 15:28
Jocelyne Petit skrifaði:
Ou est le diagramme A3. Je ne le trouve pas
06.06.2023 - 14:39DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Petit, vous le trouverez à droite du schéma des mesures, c'est un petit diagramme sur 2 mailles et 8 rangs. Bon tricot!
06.06.2023 - 17:07
Kari Larsen Sannes skrifaði:
Hei. Hvor er diagram A 3
08.06.2022 - 22:57DROPS Design svaraði:
Hej Kari, diagram A.3 ligger til højre for måleskitsen :)
10.06.2022 - 08:36
Saara skrifaði:
Midsummer Rose
14.01.2022 - 16:42
Lost in Summer Sweater#lostinsummersweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, gatamynstri og ¾ löngum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 231-49 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 106-110-114-118-124-128 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með DROPS Muskat. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Eftir stroffið er prjónuð 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-8-4-18-12-8 lykkjur jafnt yfir = 118-118-118-136-136-136 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert prjónamerki er sett á milli 2 lykkja. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, teljið 25 lykkjur (ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 34-34-34-43-43-43 lykkjur (framstykki), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 25 lykkjur (ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 34-34-34-43-43-43 lykkjur eftir á eftir síðasta prjónamerki (bakstykki). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að auka út við hvert prjónamerki. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Nú á að prjóna mynstur og auka út fyrir laskalínu. Lesið MYNSTUR og LASKALÍNA áður en prjónað er áfram! MYNSTUR: Prjónið frá réttu þannig: 1 lykkja slétt, A.2, prjónið 2 lykkjur slétt, A.1a, prjónið A.1b alls 2-2-2-3-3-3 sinnum, A.1c, prjónið 2 lykkjur slétt, A.2, prjónið 2 lykkjur slétt, A.1a, A.1b alls 2-2-2-3-3-3 sinnum, A.1c, 1 lykkja slétt. Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! ATH: Þessi 4 prjónamerki sitja á milli 2 lykkja í sléttprjóni. LASKALÍNA: JAFNFRAMT í hverri umferð er aukið út um 8 lykkjur fyrir laskalínu. Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við 2 lykkjur í sléttprjón í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur jafnóðum inn í A.1a /A.1c og A.2 á sama hátt og útskýrt er í mynsturteikningu. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 23-26-30-32-37-41 sinnum = 302-326-358-392-432-464 lykkjur. Prjónið mynstur án þess að auka út þar til stykkið mælist 20-22-24-26-28-30 cm frá prjónamerki við hálsmál. Skiptið berustykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. prjónið næstu umferð þannig: Prjónið 3-4-4-2-4-6 lykkjur eins og áður (hluti af bakstykki), setjið næstu 65-69-77-85-91-95 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn, prjónið 86-94-102-111-125-137 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 65-69-77-85-91-95 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn, prjónið 83-90-98-109-121-131 lykkjur eins og áður (alls 86-94-104-112-124-136 lykkjur á bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 184-200-216-238-266-290 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn, en yfir 2 lykkjur frá hverri gataumferð á berustykki, prjónið A.3, þ.e.a.s. í 4. hverri umferð fléttast lykkjurnar, sem áður voru í gataumferð, í línu beint yfir hverri gataumferð, þannig að það myndast línur á fram- og bakstykki eftir berustykki. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 22 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 58-64-70-76-86-92 lykkjur jafnt yfir = 242-264-286-314-352-382 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af aðeins laust. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl. ERMI: Setjið 65-69-77-85-91-95 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 71-75-83-93-99-103 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi (mitt í 6-6-6-8-8-8 lykkjur). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki, prjónið 3-3-3-4-4-4 lykkjur í sléttprjóni, haldið áfram með A.2 yfir lykkjur frá berustykki og prjónið 3-3-3-4-4-4 síðustu lykkjur í sléttprjóni. Þegar ermin mælist 4-4-4-3-3-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-4-4-3-2½-2 cm millibili alls 2-2-2-3-3-3 sinnum = 67-71-79-87-93-97 lykkjur. Þegar stykkið mælist 15-13-12-10-9-7 cm frá skiptingu, prjónið 2 lykkjur í hverri gataumferð slétt saman, að auki er fyrsta og síðasta lykkja í umferð prjónuð slétt saman (= alls 9-9-9-11-11-11 lykkjur færri) = 58-62-72-76-82-86 lykkjur. Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, en lykkjan sem stendur ein mitt undir ermi er prjónuð brugðið í stærð S og XXL og hún er prjónuð slétt í stærð M, L, XL og XXXL. Prjónið þar til ermin mælist 19-17-16-14-13-11 cm frá skiptingu. Í næstu umferð í stærð M, L og XXXL eru prjónaðar 2 lykkjur brugðið saman hvoru megin við lykkju mitt undir ermi = 58-60-70-76-82-84 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) – stillið af að stroffið passi við lykkjurnar út umferðina. Prjónið þar til ermin mælist 23-21-20-18-17-15 cm frá skiptingu. Fellið aðeins laust af. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lostinsummersweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-49
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.