Carla Roodenburg skrifaði:
Ik ben bezig met dropshot patroon 795. Er staat bij de beschrijving van de pas, dat je voor de raglan voor maat L 32 keer in totaal afkant. De telrekening is 16 naalden hoe komen ze dan bij 32 keer en er staat bij de uitleg van raglan iedere 2 de naald. Wat is nu de bedoeling? Ik snap het niet meer. Graag hoor ik hoe en wat nu de bedoeling is.
09.07.2022 - 20:10DROPS Design svaraði:
Dag Carla,
Het is de bedoeling dat je het patroon van A.3, A.4 en A.5 in de hoogte voortzet. Dus je breit niet alleen de 16 naalden van het patroon, maar je gaat gewoon verder tot de gewenste lengte van de pas zoals beschreven in de tekst.
24.07.2022 - 13:05
Marlinde skrifaði:
Wouldn't it be of great benefit if you were to note the amount of positive ease? This pattern for example is very loosely fitted, but others seem more form fitting. If you give an indication of the positive ease people can easily determine which size chart to follow.
07.07.2022 - 11:03
Max skrifaði:
Cosa vuol dire esattamente "Inserire i segnapunti 1 maglia all’interno dei davanti e del dietro." ? Dove vanno inseriti esattamente tra il corpo e la manica? e le diminuzioni vanno fatte prima e dopo i segnapunti?
14.06.2022 - 14:57DROPS Design svaraði:
Buonasera Max, deve contare una maglia dalla fine del davanti e dietro e inserire i segnapunti. Per le diminuzioni deve seguire il paragrafo raglan. Buon lavoro!
15.06.2022 - 21:41
Montse López skrifaði:
Butterfly
04.02.2022 - 14:48
Heather L Lewis skrifaði:
Dolly
16.01.2022 - 04:52
Race the Wind#racethewindsweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónaður toppur úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með laskalínu, gatamynstri og stuttum vængjaermum. Stærð S – XXXL.
DROPS 232-18 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Lykkjum er fækkað mismunandi á fram- og bakstykki. Á ermum er úrtakan teiknuð inn í A.3 og A.5. Á fram- og bakstykki er lykkjum fækkað þannig: Fækkið um 1 lykkju á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið næstu lykkju, prjónamerki. Fækkið um 1 lykkju á eftir prjónamerki þannig: Prjónamerki, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið næstu lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. Fækkið um 4 lykkjur í annarri hverri umferð (2 lykkjur á framstykki og 2 lykkjur á bakstykki). Að auki kemur úrtaka á ermum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Síðan eru ermar prjónaðar fram og til baka á hringprjóna upp að handveg. Ermarnar eru síðan settar inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki. Berustykkið og kantur í hálsmáli er prjónað í hring. Ermakantar eru ekki saumaðir saman, þannig að það verður klauf undir ermum. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 266-280-308-336-378-406 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Muskat. Prjónið A.1 umferðina hringinn. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, eru 190-200-220-240-270-290 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð þar sem fækkað er um 6-0-0-0-6-2 lykkjur jafnt yfir = 184-200-220-240-264-288 lykkjur. Setjið 2 prjónamerki í stykkið, 1 í byrjun á umferð og 1 eftir 92-100-110-120-132-144 lykkjur (hliðar). Haldið áfram í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið þar til stykkið mælist 27-26-25-24-23-23 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af fyrstu 4 lykkjur í umferð fyrir handveg, prjónið næstu 84-92-102-112-124-136 lykkjur (framstykki), fellið af næstu 8 lykkjur fyrir handveg, prjónið næstu 84-92-102-112-124-136 lykkjur (bakstykki), fellið af síðustu 4 lykkjur í umferð fyrir handveg. Klippið þráðinn. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Ermin er prjónuð fram og til baka. Fitjið upp 159-171-183-195-207-219 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Muskat. Prjónið þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.2 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju í sléttprjóni og 1 lykkju í garðaprjóni. Síðasta umferð í A.2 er prjónuð þannig – frá röngu (nú eru 81-87-93-99-105-111 lykkjur í umferð): Fellið af fyrstu 8 lykkjur í umferð, prjónið þar til 8 lykkjur eru eftir, fellið af þessar lykkjur = 65-71-77-83-89-95 lykkjur. Klippið þráðinn. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handvegi = 298-326-358-390-426-462 lykkjur. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið. Setjið prjónamerki 1 lykkju inn á framstykki og bakstykki. Byrjið umferð mitt að aftan. LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM! Lesið LASKALÍNA. Í fyrstu umferð byrjar úrtaka fyrir laskalínu, JAFNFRAMT er prjónað þannig: Prjónið sléttprjón yfir lykkjur frá fram- og bakstykki eins og áður. Lykkjur á ermum eru prjónaðar þannig: A.3, A.4 er prjónað 6-7-8-9-10-11 sinnum, prjónið A.5. Í hvert skipti sem A.3 og A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, hefur lykkjum verið fækkað þannig að það er pláss fyrir 2 mynstureiningum færri af A.4 á hvorri ermi. Á framstykki og bakstykki er lykkjum fækkað fyrir laskalínu eins og útskýrt er að ofan í annarri hverri umferð alls 24-28-32-36-40-44 sinnum = 130-130-134-138-146-154 lykkjur. Þegar öll úrtaka fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki hefur verið gerð til loka mælist stykkið ca 17-20-23-26-29-31 cm frá þar sem fram- og bakstykki og ermar var sett saman. Prjónið 1 umferð þar fækkað er um 18-14-14-10-14-16 lykkjur jafnt yfir = 112-116-120-128-132-138 lykkjur. Prjónið síðan kant í hálsmáli eins og útskýrt er að neðan. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Skiptið yfir á stuttan hringprjón 3. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Toppurinn mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl og niður. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #racethewindsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 232-18
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.