Mariam skrifaði:
Hi, I’m struggling with sleeve cap part. Can you explain how to do it? Pattern just says that I should work the sleeve cap back and forth there is no stitch count or something like that. Thanks in advance
28.10.2023 - 09:06DROPS Design svaraði:
Dear Mariam, you should have 51-53-55-59-61-65-67 stitches, as stated above. Then, you work back and forth, continue with the pattern as before, but back and forth, over all stitches, until the sleeve measures 49-49-49-49-48-48-48 cm. Happy knitting!
29.10.2023 - 22:55
Liz skrifaði:
I'd like to make this in Drops Air but am struggling to work out how much yarn I would need and other changes I'd need to make. Can you advise me please? Thank you.
08.07.2023 - 20:12DROPS Design svaraði:
Dear Liz, you will need approx. the same amount of grams of DROPS Air compared to DROPS Melody. For example, you need 150gr of the main Colour of DROPS Melody for the smallest size. That is 420m. 420/150m (per ball of Air) = 2.8 balls of Air. But since you will need to compensate for the gauge, we recommend an extra ball of Air for each colour. Remember to check the gauge and read the following lessons for more information: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=14&cid=19; https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=25&cid=19. Happy knitting!
10.07.2023 - 17:14
Marine skrifaði:
J’aimerais faire le drop Mélody 231-58 mais il bleu ciel n’est pas dans la rubrique commande. ? Sans le bleu pas possible de le faire !!😥😥
25.05.2022 - 14:28DROPS Design svaraði:
Bonjour Marine, n'hésitez pas à contacter directement votre magasin préféré, ils pourront vous dire, même par mail ou téléphone, quand ils comptent recevoir cette couleur. Bon tricot!
25.05.2022 - 16:26
Marine skrifaði:
Que voulez vous dire par « Répéter ensuite A.3 en hauteur avant la fin. « …avant la fin c’est où ?
13.05.2022 - 12:55DROPS Design svaraði:
Bonjour Marine, faute de frappe désolée, il fallait lire "jusqu'à la fin", correction faite, merci. Bonne continuation!
13.05.2022 - 13:37
Petra Löfås skrifaði:
Hej! Jag har noterat att nästan alla era tröjmönster stickas på rundstickor men fram och tillbaka. Jag undrar varför man inte helt enkelt stickar de runt på runstickan. Då slipper man klumpiga monteringar och sticka aviga - i alla fall till delningen vid bålen. Vänliga hälsningar Petra
04.05.2022 - 13:35DROPS Design svaraði:
Hej Petra, nej de fleste strikkes faktisk rundt :) Men vi har fået ønsker om at lave nogle opskrifter som strikkes frem og tilbage. Du er naturligvis altid velkommen til at strikke dem rundt på rundpind :)
04.05.2022 - 15:06
Mixed Berries Sweater#mixedberriessweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með marglitu mynstri og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð XS - XXXL.
DROPS 231-58 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚTAUKNING (á við um ermar): Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp. Stykkið skiptist við handveg og hvort stykki er prjónað til loka fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stutta hringprjóna, neðan frá og upp. Þegar stykkið hefur verið saumað saman, prjónið tvöfaldan kant í hálsmáli. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 140-154-166-178-190-206-230 lykkjur á hringprjón 4,5 með litnum ljós blár í DROPS Melody. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 8-10-10-10-10-14-14 lykkjur jafnt yfir = 132-144-156-168-180-192-216 lykkjur. Prjónið síðan A.1 alls 11-12-13-14-15-16-18 sinnum hringinn á fram og bakstykki. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.2 alveg eins. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.3 alveg eins. A.3 er endurtekið á hæðina að loka máli. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39-40 cm, fellið af fyrir handvegi í hvorri hlið þannig: Fellið af fyrstu 3-4-6-7-8-9-13 lykkjur, prjónið 61-65-67-71-75-79-83 lykkjur mynstur, fellið af næstu 5-7-11-13-15-17-25 lykkjur, prjónið 61-65-67-71-75-79-83 lykkjur mynstur, fellið af síðustu 2-3-5-6-7-8-12 lykkjurnar. Klippið þráðinn. Hvort stykki er nú prjónað til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 61-65-67-71-75-79-83 lykkjur. Haldið áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60-62 cm, fellið af miðju 21-23-23-25-25-27-27 lykkjur fyrir hálsmáli. Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 19-20-21-22-24-25-27 lykkjur á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62-64 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 61-65-67-71-75-79-83 lykkjur. Haldið áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 44-46-48-49-51-52-54 cm, setjið miðju 11-13-13-13-13-15-15 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli. Hvor öxl er prjónið til loka fyrir sig. Fellið síðan af í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 2-2-2-3-3-3-3 sinnum = 19-20-21-22-24-25-27 lykkjur á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62-64 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 46-48-50-52-54-56-58 lykkjur á sokkaprjóna 4,5 með litnum ljós blár í DROPS Melody. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 6. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 5-5-5-5-5-7-7 lykkjur jafnt yfir = 41-43-45-47-49-49-51 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Að auki er sett 1 prjónamerki í miðjulykkju í umferð. Teljið út frá miðjulykkju hvar mynstri á að byrja og prjónið A.1 ermina hringinn (prjónamerkið á ermi á að passa með miðjulykkju í mynsturteikningu – mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp mitt undir ermi). Haldið áfram með mynstur á hæðina alveg eins og á fram- og bakstykki. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 32-31-30-28-27-26-23 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3-3-3-2½-2½-2-2 cm millibili alls 5-5-5-6-6-8-8 sinnum = 51-53-55-59-61-65-67 lykkjur. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Þegar ermin mælist 47-46-45-44-43-42-39 cm, prjónið ermakúpu fram og til baka (frá miðju undir ermi) á hringprjóna að loka máli. Prjónið þar til ermin mælist 49-49-49-49-48-48-48 cm, þ.e.a.s. það myndast klauf ca 2-3-4-5-5-6-9 cm efst á ermi. Fellið aðeins laust af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermakúpu við handveg. Saumið síðan klaufina efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið stuttan hringprjón 4,5 og litinn ljós blár, byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp ca 64-72-72-76-76-84-84 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði). Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 10-10-11-11-12-12 cm. Fellið aðeins laust af. Brjótið niður stroffið efst í hálsi að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mixedberriessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-58
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.