Elisabeth skrifaði:
Liebes team, Mir fing es gleich wie Melanie Blaume. Ich denke, ihr habt bei der Angabe des Diagrams einen Fehler gemacht, kann das sein? Das Kästchen mit dem Kreuz muss doch eine rechte Masche in der Rückreihe sein, damit sich das Kraus rechts ergibt. Das wär toll, wenn ihr das ergänzt. Es steht ja nur rechts in hin-reihe.
09.11.2026 - 14:38
Melanie Blaume skrifaði:
Ich verstehe das Diagramm nicht. A1ist eine hinreihe rechts . Ich Rückreihe links! Das ist das freie Kästchen im Diagramm! Darunter das Kreuz im Kästchen, beschreibt auch hinreihe rechts! Das kann doch nicht sein. Zur Rückreihe steht da nichts. Das verwirrt mich total. Bitte um Hilfe!
06.11.2026 - 15:29DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Blaume, A.1 beginnt mit einer Hinreihe = rechts, dann die 2. Reihe = Rückreihe strickt man rechts (1 Krausrippe), die 3. Reihe strickt man wie die 1. und die 4. wie die 2.. Die 5. Reihe strickt man dann rechts (mit Zunahmen) und die 6. Reihe strickt man dann links (= weiße Kästchen bei den Rückreihen). Viel Spaß beim Stricken!
06.11.2026 - 16:40
Christine skrifaði:
Voor patroon 43-15 dien ik nu de voorbiezen samen te brengen. Ik begrijp niet goed hoe ik dit doe. "De laatste 2 kantsteken plaats je op een extra naald voor het werk. Voeg nu het werk samen als volgt: Plaats de 2 kantsteken op de extra naald op de bovenkant van de 2 kantsteken op het begin van de naald en brei ze 2 aan 2 samen, zodat de biezen samen bevestigd worden (2 steken geminderd en de voorbies met de knoopsgaten is de bovenkant". Hebben jullie aub een filmpje?
04.11.2026 - 04:38
Christine skrifaði:
In mijn vorige bericht staat een typefout Het tweede lapje heb ik met nld 3.75 gemaakt waarbij ik dus 24 steken op 30 nld uitkom Sorry voor het ongemak. Christine
01.11.2026 - 13:52
Christine skrifaði:
Goede middag, Ik heb voor patroon 43-15 een proeflapje gemaakt met breinld 3.5 mm en kwam uit op 28 st en 32 nld. Dus teveel steken op 10 cm breedte. Hoogte was oké. Toch een ander lapje gemaakt met breinld 3.5 mm met 24 st maar dan kom ik maar aan 30 nld. Welke nld gebruik ik het beste? Dank je wel
01.11.2026 - 13:50DROPS Design svaraði:
Dag Christine,
Dat de breedte klopt is het belangrijkst. De hoogte kun je uiteindelijk aanpassen door een paar extra naalden te breien.
02.11.2026 - 08:14
Christine skrifaði:
Jammer dat ik nog geen antwoord mocht ontvangen
28.10.2026 - 10:44
Christine skrifaði:
Is het mogelijk om patroon baby 43-15 te breien in maat 3-6 maand? Is het mogelijk daarvan de beschrijving door te sturen? Ik twijfel nog of ik de alpaca of Merino wol ga gebruiken
26.10.2026 - 17:23DROPS Design svaraði:
Dag Christine,
We hebben alleen de aangegeven maten, dus 1 tot 3 maanden of 6 tot 9 maanden. Bovenaan staan ook de confectiematen aangegeven: 48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104 - 110/116). Verder staat er een maattekening onderaan het patroon. Misschien kun je een bestaand kledingstuk erbij pakken en dan kijken wat het beste in de buurt komt.
28.10.2026 - 17:54
Kim skrifaði:
Is the flounce done in the round? Or its open at the back. I cant see any photos of the back of the dress. I assumed it would be done in the round and I saw that it does say "the next round" However it also says to do garter stitch on the last/first stitch of each row. Thank you in advanced for your reply.
17.06.2026 - 17:14DROPS Design svaraði:
Dear Kim, flounce is worked back and forth on circular needle. The pattern will be fixed, thanks for noticing. Happy knitting!
18.06.2026 - 08:21
Marij Van Kruysdijk skrifaði:
Rok: Zie ook mijn "opmerking". Van 88 st naar 132 st is dus 44 st gemeerderd. Als ik de beschrijving volg, 2 st rechts, dan de 3e st meerderen, kom ik niet aan 44 st. Betreft de kleinste maat
28.04.2026 - 20:51DROPS Design svaraði:
Dag Marij,
Je meerdert niet in de derde steek, maar je meerdert door de draad tussen de tweede en derde steek op te nemen en deze gedraaid recht te breien. In een van de video's die bij het patroon geplaatst zijn (Hoe meerdert u met M1) wordt getoond hoe je dit doet.
04.05.2026 - 14:37
Hanneke skrifaði:
Hallo, Wordt de ruche heen en weer gebreid of rond gebreid? mvrgr Hanneke
28.04.2026 - 17:53DROPS Design svaraði:
Dag Hanneke,
De ruche wordt heen en weer gebreid.
29.04.2026 - 19:33
Sweet Primrose Dress#sweetprimrosedress |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónaður kjóll fyrir börn úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, gatamynstri og pífu á berustykki. Stærð 0 – 6 ára.
DROPS Baby 43-15 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT (mitt að aftan): Fellið af fyrir hnappagötum frá réttu þegar 2 lykkjur eru eftir í umferð þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 síðustu lykkjur slétt saman. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar berustykkið mælist 1½ cm frá prjónamerki í hálsmáli. Fellið síðan af fyrir 2 næstu hnappagötum með ca 3-3-3-4 (4-4½-5) cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, setjið stykkið saman og afgangur af stykki er prjónaður í hring. Berustykkið skiptist fyrir pils og kant á ermum. Pilsið er prjónað í hring á hringprjóna. Kantar á ermum eru prjónaðir í hring á sokkaprjóna. Að lokum eru prjónaðar upp lykkjur meðfram berustykki fyrir pífu. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 66-72-76-82 (86-90-96) lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Alpaca. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið 4 umferðir sléttprjón fyrir fald fyrir saum með 2 lykkjur í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 lykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, endið með 2 lykkjur í garðaprjóni (uppábrot). Prjónið 5 umferðir sléttprjón með 2 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið – JAFNFRAMT í síðustu umferð er aukið út um 5-11-13-13 (15-17-23) lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir ystu 2 lykkjur í hvorri hlið) = 71-83-89-95 (101-107-119) lykkjur. Setjið 1 merki eftir 2 fyrstu lykkjurnar í umferð. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. Berustykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 3. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1 alls 11-13-14-15 (16-17-19) sinnum, prjónið fyrstu lykkjuna í A.1 þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins, endið með 2 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPAGAT mitt að aftan – sjá útskýringu að ofan! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, eru 137-161-173-185 (197-209-233) lykkjur í umferð og berustykkið mælist ca 9-9-9-9 (13-13-13) cm frá merki við hálsmál. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 142-162-178-194 (196-218-234) lykkjur (ekki er aukið út/lykkjum fækkað yfir ystu 2 lykkjur í hvorri hlið). Prjónið síðan sléttprjón með 2 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist ca 10-10-11-12 (14-14-15) cm, en stillið af að síðasta umferðin sé prjónuð frá réttu og setjið 2 síðust lykkjurnar í garðaprjóni á prjóni frá réttu á hjálparprjón framan við stykkið. Nú er stykkið sett saman mitt að aftan, þ.e.a.s. prjónið þannig: Leggið 2 lykkjur garðaprjón af hjálparprjóni við 2 lykkjur garðaprjón í byrjun á umferð og prjónið garðaprjóns lykkjurnar slétt saman 2 og 2, þannig að kanturinn að framan verði á sínum stað (nú hefur fækkað um 2 lykkjur og kanturinn með hnappagötum liggur efst), prjónið 18-20-22-25 (26-29-31) lykkjur slétt (ca ½ bakstykki), setjið næstu 32-38-42-44 (44-48-52) lykkjur á þráð fyrir kant á ermi, fitjið upp 6-6-6-6 (8-8-8) nýjar lykkjur á prjóni (í hlið undir ermi), prjónið 38-42-46-52 (54-60-64) lykkjur slétt (framstykki), setjið næstu 32-38-42-44 (44-48-52) lykkjur á þráð fyrir kant fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6 (8-8-8) nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið þær 18-20-22-25 (26-29-31) lykkjur sem eftir eru slétt (ca ½ bakstykki). Prjónið síðan pilsið eins og útskýrt er að neðan. PILS: = 88-96-104-116 (124-136-144) lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hlið á stykki – mitt í 6-6-6-6 (8-8-8) lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Prjónið sléttprjón yfir lykkjur á bakstykki fram að merki í hlið - umferðin byrjar núna hér. Prjónið 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 2 lykkjur slétt, takið upp þráðinn á undan næstu lykkju og prjónið þráðinn snúið slétt (1 lykkja fleiri) *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 132-144-156-174 (186-204-216) lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt án útaukninga. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 6 lykkjur slétt, takið upp þráðinn á undan næstu lykkju og prjónið þráðinn snúið slétt (1 lykkja fleiri) *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 154-168-182-203 (217-238-252) lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Þegar pilsið mælist 2 cm frá skiptingu er næsta umferð prjónuð þannig: * 14 lykkjur slétt, takið upp þráðinn á undan næstu lykkju og prjónið þráðinn snúið slétt (1 lykkja fleiri) *, prjónið frá *-* þar til eftir eru 0-0-0-7 (7-0-0) lykkjur, prjónið 0-0-0-7 (7-0-0) lykkjur slétt = 165-180-195-217 (232-255-270) lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón þar til pilsið mælist 17-21-24-27 (29-33-38) cm frá skiptingunni – JAFNFRAMT í síðustu umferð er aukið út um 1-0-1-1 (0-1-0) lykkju = 166-180-196-218 (232-256-270) lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* umferðina hringinn (uppábrot). Prjónið sléttprjón í 2 cm fyrir fald fyrir saum. Fellið aðeins laust af. KANTUR Á ERMUM: Setjið lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 2,5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-6 (8-8-8) lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 38-44-48-50 (52-56-60) lykkjur. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Fellið aðeins laust af. FRÁGANGUR: Brjótið niður faldinn fyrir saum efst í hálsmáli að innanverðu á stykkinu. Saumið faldinn niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn í hálsmáli dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju að aftan á köntum með smáu spori. Brjótið inn faldinn neðst á pilsinu að röngu og saumið niður alveg eins. Saumið tölur að aftan. PÍFA: Takið upp lykkjur eins og útskýrt er að neðan, í síðustu brugðnu umferðina (séð frá réttu) sem prjónaðar voru í A.1. Haldið á stykkinu upp og niður, þ.e.a.s. með hálsmálið að þér. Notið hringprjón 2,5 og DROPS Alpaca. Byrjið mitt að aftan, nákvæmlega eftir 2 lykkjur í garðaprjóni, takið upp 1 lykkju í efri lykkjubogann í hverja brugðna lykkju, fram þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð = ca 111-131-141-151 (193-205-229) lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, takið upp þráðinn á undan næstu lykkju og prjónið þráðinn snúið slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni = 219-259-279-299 (383-407-455) lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, takið upp þráðinn á undan næstu lykkju og prjónið þráðinn snúið slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni = 327-387-417-447 (573-609-681) lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka án útaukningar, með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til pífan mælist ca 3-3-3½-4 (4-5-5) cm. Skiptið yfir á hringprjón 3. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum frá réttu. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweetprimrosedress eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 43-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.