Laura skrifaði:
En saa A3 kuvion silmukoita täsmäämään kolmannella kerroksella vaan jäljelle jää 4 silmukkaa ennen keskitakaa. Mitä ymmärrän väärin ohjeesta?
27.06.2026 - 15:55DROPS Design svaraði:
Hei, tarkista, että olet piirroksen A.3 mallineuleen 1.kerroksella lisännyt 6 silmukkaa ja kaventanut 2 silmukkaa jokaisessa mallikerrassa.
30.06.2026 - 17:35
Mar skrifaði:
Where can I find the rest of the outfit? -The top and socks?
25.02.2026 - 14:31DROPS Design svaraði:
Hi Mar, There are 2 photos a short way down the page showing the socks and top. If you click on these, the patterns come up. Regards, Drops Team.
26.02.2026 - 06:25
Line skrifaði:
Je ne sais pas comment suivre le plan A3, vu que. Que faire à la ligne 3, je vois que je glisse 1 maille, tricote 1 maille et on passe par dessus, tricote 1 maille et 2 mailles ensemble, mais après??? Merci de me répondre
18.11.2025 - 22:51DROPS Design svaraði:
Bonjour Line, ensuite (cette diminution est au 4ème rang, pas au 3ème) vous tricotez les mailles suivantes du diagramme = les 7 m endroit de la fin de A.3 et vous répétez ce motif tout du long. Vous trouverez un motif similaire à celui-ci en vidéo ici et là. Bon tricot!
19.11.2025 - 08:34
Judi skrifaði:
Can I make this dress into a long sleeved dress? How?? Could I get instructions?
06.08.2023 - 08:04
Veronica skrifaði:
Hei! På tabell A1 og A2 finner jeg ikke forklaringen på hvordan strikke mønsteret. Hvordan strikker man de rutene med plusstegn i seg?
20.02.2023 - 17:10DROPS Design svaraði:
Hej Veronica. De strikkes vrang. Mvh DROPS Design
23.02.2023 - 13:46
Gisela Stehno skrifaði:
Bei der Teilung von Vorder und Rückenteil. 20Maschen stricken und 20 Maschen abketten? Oder still legen? Liebe Grüße Gisela
30.04.2022 - 08:05DROPS Design svaraði:
Liebe Gisela, die 20 Maschen zwischen Rücken- und Vorder-Teile werden abgekettet. Viel Spaß beim stricken!
02.05.2022 - 08:12
Bellflower Shorts#bellflowershorts |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónaðar buxur fyrir börn úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri og stroffprjóni. Stærð 1 mánaða - 2 ára.
DROPS Baby 43-13 |
||||||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ------------------------------------------------------ BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna niður að opi fyrir fætur. Síðan skiptist stykkið og hvort stykki er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Að lokum er prjónaður kantur í hring meðfram opi fyrir fætur. BUXUR: Fitjið upp 112-120-128 (136) lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Alpaca. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið A.1 yfir allar lykkjur. Endurtakið A.1 á hæðina þar til stykkið mælist 2 cm. Í næstu umferð er prjónað þannig: Prjónið A.2 alls 7-7-8 (8) sinnum, A.1 alls 0-1-0 (1) sinnum og A.2 alls 7-7-8 (8) sinnum. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru prjónaðar sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stroffið mælist 4 cm. Nú er prjónuð upphækkun að aftan þannig: UPPHÆKKUN AÐ AFTAN: Til að flíkin passi betur eru buxurnar prjónaðar hærri að aftan en að framan. Þetta er gert með því að prjóna stuttar umferðir fram og til baka þannig: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt að aftan. Byrjið frá réttu og prjónið 9 lykkjur stroffprjón fram hjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 18 lykkjur stroffprjón. Snúið, herðið á þræði og prjónið 27 lykkjur stroffprjón, snúið, herðið á þræði og prjónið 36 lykkjur stroffprjón. Snúið, herðið á þræði og prjónið 45 lykkjur stroffprjón, snúið, herðið á þræði og prjónið 54 lykkjur stroffprjón. Snúið, herðið á þræði og prjónið stroffprjón til baka að miðju að aftan. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið nú mynstur með byrjun mitt að aftan þannig: Prjónið A.3 yfir allar lykkjur. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, mælist stykkið ca 12 cm þar sem það er styst. Prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 17-18-19 (20) cm (mælt mitt að framan), nú skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki þannig: Prjónið 19-20-21 (21) lykkjur slétt (hálft bakstykki), fellið af næstu 18-20-22 (26) lykkjur, prjónið 38-40-42 (42) lykkjur slétt (framstykki), fellið af næstu 18-20-22 (26) lykkjur og prjónið síðustu 19-20-21 (21) lykkjur slétt (hálft bakstykki). Klippið þráðinn. BAKSTYKKI: Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir 38-40-42 (42) lykkjur á bakstykki JAFNFRAMT í byrjun á hverri umferð eru felldar af 2 lykkjur. Fellið af svona af í hverri umferð alls 7 sinnum í hvorri hlið = 10-12-14 (14) lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið þar til stykkið mælist 7 cm frá skiptingu. Fellið af. FRAMSTYKKI: Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir 38-40-42 (42) lykkjur á framstykki JAFNFRAMT í byrjun á hverri umferð eru felldar af 4 lykkjur. Fellið svona af í hverri umferð alls 2 sinnum í hvorri hlið, síðan 2 lykkjur alls 3 sinnum í hvorri hlið = 10-12-14 (14) lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni þar til stykkið mælist 7 cm frá skiptingu. Fellið af. STROFFKANTUR: Prjónið upp ca 59 til 77 lykkjur frá réttu meðfram öðru opi fyrir fót á hringprjón 2,5 með DROPS Alpaca (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 3 + 2). Síðan er prjónað stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar kanturinn mælist 3 cm er fellt af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjóni kant í kringum bæði opin fyrir fætur. FRÁGANGUR: Saumið saman opið í klofi innan við 1 kantlykkju – þ.e.a.s. saumið saman annan stroffkantinn, saumið síðan sauminn í klofi og að lokum hinn stroffkantinn. TVINNUÐ SNÚRA: Klippið 4 þræði ca 3 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna tvöfalda saman og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút í hvorn enda. Byrjið mitt að framan og þræðið snúruna upp og niður í gegnum gataumferð á buxum. Hnýtið slaufu mitt að framan. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bellflowershorts eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 43-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.