DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2970.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Bellflower Dress

Prjónaður kjóll fyrir börn úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og gatamynstri. Stærð 0 - 4 ára.

DROPS Baby 43-11
DROPS Design: Mynstur z-111-by
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mánaða (2 - 3/4 ára)
Stærðin jafngildir ca hæð á barni í cm:
48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-150-200-200 (200-250) g litur 4010, ljós lavender

DROPS TALA NR 600: 2 stykki í allar stærðir.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 60-60-60-80 (80-80) cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5: lengd 40 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2970.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (á við um fram- og bakstykki):
Lykkjur eru auknar út á undan og á eftir hverju prjónamerki (þ.e.a.s. fyrsta útaukning er gerð á undan hverju prjónamerki, önnur útaukning er gerð á eftir hverju prjónamerki o.s.frv.).
AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU Á UNDAN HVERJU PRJÓNAMERKI ÞANNIG:
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU Á EFTIR HVERJU PRJÓNAMERKI ÞANNIG:
Prjónið að prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat.
Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í vinstri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu innan við 1 lykkju: Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrra hnappagatinu þegar stykkið mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir seinna hnappagatinu þegar stykkið mælist 5-6 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður, fram og til baka á hringprjóna niður að klauf mitt að aftan. Síðan er prjónað í hring. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og kanta á ermum.
Fram- og bakstykkið er síðan prjónað í hring á hringprjóna. Kantar á ermum eru prjónaðir í hring á sokkaprjóna.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 71-77-83-89 (95-95) lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Alpaca.
Prjónið 5 lykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni.
Prjónið stroff í 1 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3.

BERUSTYKKI:
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
5 lykkjur í garðaprjóni, A.1, prjónið A.2 alls 20-22-24-26 (28-28) sinnum og 5 lykkjur í garðaprjóni. Fellt er af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.
Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 131-143-155-167 (179-179) lykkjur í umferð.
Stykkið mælist ca 3-3-3-4-4-4 cm.
Nú er mynstur prjónað þannig:
5 lykkjur í garðaprjóni, A.3, prjónið A.4 alls 19-21-23-25 (27-27) sinnum, A.5 og 5 lykkjur í garðaprjóni.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í síðustu umferð í A.3 til A.5 er aukið út um 0-0-0-0 (0-10) lykkjur jafnt yfir.
Þegar A.3 til A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 191-209-227-245 (263-273) lykkjur.
Stykkið mælist ca 10-10-10-12-12-12 cm.
Í næstu umferð frá réttu eru felldar af 5 fyrstu lykkjur og prjónaðar eru sléttar lykkjur yfir þær lykkjur sem eftir eru = 186-204-222-240 (258-268) lykkjur.
Prjónið nú sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur. Færið umferðina til um 3 lykkjur, þannig að núna byrjar umferðin ca mitt að aftan.
Þegar stykkið mælist 11-11-12-13 (14-15) cm, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið 26-29-30-34 (37-39) lykkjur slétt, setjið næstu 40-44-50-52 (54-56) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4 lykkjur undir ermi, 53-58-61-68 (75-78) lykkjur slétt, setjið næstu 40-44-50-52 (54-56) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4 lykkjur undir ermi og endið með 27-29-31-34 (38-39) lykkjur slétt.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 114-124-130-144 (158-164) lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, setjið 8 prjónamerki í stykkið þannig:
Prjónið 7-7-8-9 (10-10) lykkjur slétt, setjið 1 prjónamerki, * 14-15-16-18 (19-20) lykkjur slétt, setjið 1 prjónamerki, 14-16-16-18 (20-21) lykkjur slétt, setjið 1 prjónamerki *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum, 15-16-17-18 (20-20) lykkjur slétt, setjið 1 prjónamerki og endið með 8-8-9-9 (11-11) lykkjur slétt.
Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu.
Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju á undan hverju prjónamerki – sjá ÚTAUKNING!
Aukið svona út í 4.-4.-5.-5. (6.-6.) hverri umferð alls 9-10-11-12 (12-13) sinnum = 186-204-218-240 (254-268) lykkjur.
Þegar fram- og bakstykki mælist 14-18-21-24 (25-28) cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-4-6-0 (2-4) lykkjur jafnt yfir = 192-208-224-240 (256-272) lykkjur.
Prjónið síðan A.6 umferðina hringinn. Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka, eru 288-312-336-360 (384-408) lykkjur í umferð.
Fellið af með sléttum lykkjum. Kjólinn mælist ca 36-40-44-48 (50-54) cm frá öxl.

KANTUR Á ERMI:
Setjið 40-44-50-52 (54-56) lykkjur af þræði í annarri hliðinni á stykki á sokkaprjóna 3 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 4 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 44-48-54-56 (58-60) lykkjur.
Prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar ermin mælist 1-1-1-2-2-2 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 4-3-3-4 (5-6) lykkjur jafnt yfir = 48-51-57-60 (63-66) lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5.
Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið). Fellið af með sléttum lykkjum þegar kantur í ermi mælist 4-4-4-5-5-5 cm frá skiptingu.
Prjónið hinn kant á ermi á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Leggið hægri kant (kantur sem felldur var af) undir vinstri kant og saumið niður.
Saumið tölur í hægri kant.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = prjónið 7 lykkjur í sömu lykkju þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, en bíðið með að sleppa lykkjunni sem prjónað var í af vinstri prjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum, sleppið lykkjunni sem prjónað var í af prjóni, uppslátturinn er EKKI prjónaður snúinn í næstu umferð
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð svo ekki myndist stór göt

symbols = 2 lykkjur slétt saman

symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = prjónið 4 lykkjur í sömu lykkju þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, en bíðið með að sleppa lykkjunni sem prjónað var í af vinstri prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, sleppið lykkjunni sem prjónað var í af prjóni, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, svo ekki myndist stór göt
symbols = prjónið 3 lykkjur í sömu lykkju þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, en bíðið með að sleppa lykkjunni sem prjónað var í af vinstri prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju, sleppið lykkjunni sem prjónað var í af prjóni
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 43-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (18)

country flag Lone Mathiesen wrote:

Hvordan strikker jeg A3, 4 og 5 på pinde frem og tilbage så det kommer til at se ud ligesom når A6 strikkes på rundpind.

12.04.2024 - 06:38

DROPS Design answered:

Hei Lone. Følge tekstforklaringen til diagrammene, på hvordan de ulike ikonene skal strikkes fra retten og hvordan de skal strikkes fra vrangen. mvh DROPS Design

15.04.2024 - 13:05

country flag Katja wrote:

A.1 wird laut Anleitung 6 Reihen gestrickt. Wenn ich das Kleid für eine Zweijährige stricke, fällt A.1 in den letzten 4 Reihen weg und es verschiebt sich das A.2-Muster... ? Verstehe ich das richtig?

01.04.2024 - 11:58

DROPS Design answered:

Liebe Katja, die erste Masche vor A.2 stricken Sie immer wie in A.1, dh immer 1 Masche glatt rechts nach der Blende und vor A.2 (von der Vorderseite gesehen), so ist das Muster symmetrisch. Viel Spaß beim stricken!

02.04.2024 - 15:10

country flag Anna M Høi Fodgaard wrote:

Altså skal de 7 masker strikkes der hvor man på sidste pind fra retsiden strikkede 2 sammen i Diagram A3 eller i masken før ?

27.02.2024 - 09:16

DROPS Design answered:

Hei Anna. Usikker på hva du mener med de7 maskene. Det er 7 masker på siste pinne i A.5 og deretter strikkes de 5 kantmaskene i retstrikk. I A.3 er det 3 masker etter de 5 kantmaskene i retstrikk på siste pinne. mvh DROPS Design

04.03.2024 - 11:39

country flag Anna wrote:

Hvad gør jeg når antal masker jeg har slået op ikke passer med antal i mønster. For eksempel slutter A3 med slå om før de 5 retmasker . Og mit arbejde måler efter A3 ca. 9 cm. Inden jeg begynder på A4og A5 og arbejdet først efter A4ogA5 skal måle ca 10 cm. Jeg strikker størrelse 1-3 måneder og min strikkeprøve passede .

26.02.2024 - 23:58

DROPS Design answered:

Hei Anna. Du må ha riktig maskeantall for at oppskriften skal stemme. Når A.1 og A.2 er strikket 1 gang i høyden skal du ha 143 masker. Så strikkes det 5 kantmasker + A.3 (1 maske) + A.4 (x 21) + A.5 (6 masker) + 5 kantmasker =143 masker. A.1 + A.2 = 3 cm, A.3, A.4 + A.5 = cm 7 cm, så når A.3, A.4 + A.5 er strikket 1 gang i høyden, måler arbeidet ca. 10 cm (om strikkefastheten er overholdt). Usikker på hva du mener med «For eksempel slutter A3 med slå om før de 5 retmasker». Du starter med de 5 retmaskene og deretter strikkes A.3. På slutten av pinnen, slutter du med A.5 og deretter 5 retmasker. Mvh DROPS Design

04.03.2024 - 11:00

country flag Christina wrote:

Hej! Stickar Belllflower Dress storlek 1/3. Stickar på oket och förstår inte hur jag ska läsa A3 och A4. Sticka A3 står det ( hela stapeln?) Därefter A4. Har svårt att se vad som är A4. Förstår att det inte är hela diagramfiguren. Tacksam för svar.

13.02.2024 - 18:28

DROPS Design answered:

Hej Christina. Ja du stickar enligt beskrivningen först 5 m rätstickning, maskorna på första raden i A.1, A.2 totalt 22 gånger, 5 m rätstickning. När du stickat på detta sätt så hela A.1 och A.2 stickats på höjden så fortsätter du enligt beskrivningen såhär: 5 m rätstickning, A.3, A.4 totalt 21 gånger, A.5 och 5 m rätstickning. Sticka till hela diagrammen är stickade på höjden. A.3 är delen längst till höger under måttskissen, A.4 är delen i mitten under måttskissen och A.5 är delen längst till vänster under måttskissen. Mvh DROPS Design

15.02.2024 - 14:09

country flag Anna wrote:

Buona sera Com'è si fa quattro aumenti in una maglia? Ho visto il video ma è di 5 magmie Grazie mille

12.10.2023 - 20:19

DROPS Design answered:

Buonasera Anna, a quale parte del modello sta facendo riferimento? Buon lavoro!

19.10.2023 - 23:34

country flag Anna Maria wrote:

Buongiorno Sto lavorando la misura di due anni.Non ho capito il diadramma 3 4 5 Dopo le 5 mag a legaccio debbo fare 4 mg in una poi faccio il diagramma 4 ma quante sono 6? Non ho capito Grazie

07.10.2023 - 12:12

DROPS Design answered:

Buonasera Anna Maria, si esatto, dopo A.3 lavora A.4. Buon lavoro!

09.10.2023 - 23:18

country flag Anna Maria wrote:

Buongiorno. Sto lavorando la misura 2 anni: nel diagramma 1 debbo fare x 6 giri? Poi fare il diagramma a2 x 26 volte?Grazie mille

05.10.2023 - 11:31

DROPS Design answered:

Buonasera Anna Maria, no, deve lavorare 5 maglie a maglia legaccio, A.1 (1 maglia) e ripetere il diagramma A.2 per 26 volte. Buon lavoro!

05.10.2023 - 21:46

country flag Leena Haapakoski wrote:

Ruutupiirroksessa A2, " Oikea silmukka oikealta puolelta, nurja silmukka nurjalta puolelta" . Neulotaanko nämä tuohon samaan silmukkaan, eli että lisääntyy yksi silmukka?

24.03.2023 - 09:27

DROPS Design answered:

Tämä silmukka neulotaan joko oikein oikealta puolelta tai nurin nurjalta puolelta, eli työhön ei tehdä lisäystä.

27.03.2023 - 18:32

country flag Meike Bauer wrote:

Wie stricke ich den Umschlag in A2 in der Rückreihe, rechts oder links? Und sehe ich das richtig, dass auch auf der Rückreihe ein Umschlag gearbeitet wird? Wie stricke ich den dann in der Hinreihe?

14.03.2023 - 08:52

DROPS Design answered:

Liebe Frau Bauer, stricken Sie den Umschlag wie im Diagram bei der nächsten Reihe gezeigt, dh den 1. stricken Sie links verschränkt und die 2 nächsten Umschläge stricke Sie rechts verschränkt (so haben Sie Bündchen 2 M li, 1 M re).. Viel spaß beim stricken!

14.03.2023 - 10:13