Lucy skrifaði:
(sorry, I forgot to mark this as a question) Hello, how do I work the saddle increases (M1R/M1L) while at the same time handling increases and YO as a part of pattern A1? For example, what should I do when the pattern calls for SKP or k2tog that includes one of the stitches that was just increased on the new round? Do I ignore this and just handle it as a regular knit stitch? Do I do the YO right after?
09.04.2025 - 07:09DROPS Design svaraði:
Dear Lucy, rather work the stitches in stocking stitch if you don't have enough room for the whole (decrease + YO), so that you will be sure to get the correct lace pattern and not break the increases neither. Happy knitting!
09.04.2025 - 15:56
Lucy skrifaði:
Hello, how do I work the saddle increases (M1R/M1L) while at the same time handling increases and YO as a part of pattern A1? For example, what should I do when the pattern calls for SKP or k2tog that includes one of the stitches that was just increased on the new round and there is not a previous stitch available? Do I ignore this and just handle it as a regular knit stitch? Do I do the YO right after the increase?
09.04.2025 - 07:08
Ree skrifaði:
Hi What is meant by A.2 stitches fitting over A.1 for the SADDLE SHOULDER INCREASE? Would that mean I have to make sure that I'm doing the 20 row 14 stitch repeat?
06.10.2024 - 14:37DROPS Design svaraði:
Dear Ree, you need to adjust the pattern to ensure that the repeats of A.2 will match the position of the A.1 lace pattern (they should look aligned). For example, the lower lace pattern section on A.2 should be worked over the section of A.1 where there was a lower lace pattern section, while the higher lace pattern section is worked over the higher lace pattern section in A.1. You should begin differently or make partial repeats if necessary to adjust the A.2 repeats over the right A.1 sections. Happy knitting!
06.10.2024 - 22:49
Lynne skrifaði:
Hi. Making size XL. Measurement A (first part of saddle measures 19cm approx from the neckline marker. The pattern says it should be 10cm. Then I notice that the original pattern says every round and this has since been corrected to every other round for this first part. My tension is correct. Any idea please?
29.06.2022 - 19:25DROPS Design svaraði:
Dear Lynne, yes a correction has been made to this pattern, you increase a total of 32 times on every round for the saddle shoulders, so that you will work a total of 32 rounds after neck and with 32 rows = 10 cm, your 32 rows will be 10 cm. Happy knitting!
30.06.2022 - 08:56
Colling Mireille skrifaði:
Bonjour. J'adore vos laines. Mais j'ai fait un pull en Flora magnifique . Je l'ai toujours lavé à la main avec un shampoing doux. Au bout d'un an, il est foulé et a rétréci. Impossible à porter. C'est une laine que je n'utiliserai plus. Dommage.
12.04.2022 - 18:43
Petra skrifaði:
Bij de zadels houder staat dat je om de naald totaal 30x moet meerderen. Dat betekent dat je 60 naalden in totaal moet breien. Volgens de steken verhouding van 32 naalden is 10 cm kan ik dus niet op 9 cm hoogte uitkomen zoals in het patroon staat. Moet ik dan elke naald meerderen IPV om de naald?
06.04.2022 - 22:30DROPS Design svaraði:
Dag Petra,
Het lijkt er inderdaad op dat er een foutje in het patroon geslopen is en dat de meerderingen gedaan moeten worden op elke naald in plaats van om de naald. Ik heb het doorgegeven aan de ontwerpafdeling ter controle.
20.04.2022 - 09:12
Josephina skrifaði:
Kan deze snel online komen, ik wil deze trui zo graag breien
14.03.2022 - 13:01
Josephine skrifaði:
Pink roses
18.01.2022 - 19:30
Astrid skrifaði:
Lilje
17.01.2022 - 12:31
Leonor skrifaði:
Petal Paws or Rose Petals
14.01.2022 - 19:04
Pink Peony Sweater#pinkpeonysweater |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Flora. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með axlarsæti, gatamynstri og ¾-löngum ermum. Stærð S - XXXL
DROPS 232-25 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ÚTAUKNING (á við um útaukningu fyrir axlarsæti, ermum og berustykki): Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til hægri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Nýja lykkjan verður snúin til vinstri. Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá skiptingu á milli bakstykkis og hægri ermi, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 156-164-168-172-180-184 lykkjur á hringprjóna 2,5 með DROPS Flora. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð brugðið þar sem fækkað er um 10-14-14-14-14-14 lykkjur jafnt yfir = 146-150-154-158-166-170 lykkjjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Setjið eitt prjónamerki hér – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Að auki eru sett 4 ný prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan – þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar og hvert og eitt að þessum 4 prjónamerkjum eru sett á milli 2 lykkja. Prjónamerkin eru notuð síðar þegar auka á út fyrir axlarsæti. Fyrsta prjónamerki: Setjið fyrsta prjónamerki á undan fyrstu lykkju í byrjun á umferð. Síðan er byrjun á umferð alltaf við fyrsta prjónamerkið. Annað prjónamerki: Teljið 22 lykkjur frá 1. prjónamerki (axlalykkjur), setjið 2. prjónamerki á undan næstu lykkju. Þriðja prjónamerki: Teljið 51-53-55-57-61-63 lykkjur frá 2. prjónamerki (= framstykki), setjið 3. prjónamerki á undan næstu lykkju. Fjórða prjónamerki: Teljið 22 lykkjur frá 3. prjónamerki (= axlalykkjur), setjið 4. prjónamerki á undan næstu lykkju. Það eru 51-53-55-57-61-63 lykkjur eftir á bakstykki á eftir 4. prjónamerki. Látið þessi 4 prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að auka út við hvert og eitt af þessum prjónamerkjum. ÚTAUKNING FYRIR AXLARSÆTI: Lestu allan kaflann áður en þú prjónar! FYRSTA UMFERÐ ER PRJÓNUÐ ÞANNIG: Prjónið sléttprjón yfir axlalykkjur fram að 2. prjónamerki (= 22 lykkjur), aukið út á EFTIR 2. prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2, prjónið A.1 yfir framstykki fram að 3. prjónamerki, aukið út á UNDAN 3. prjónamerki, prjónið sléttprjón yfir axlalykkjur fram að 4. prjónamerki (= 22 lykkjur), aukið út á EFTIR 4. prjónamerki, prjónið A.1 yfir bakstykki fram að fyrsta prjónamerki, aukið út á UNDAN 1. prjónamerki. Nú hafa verið auknar út 4 lykkjur fyrir axlarsæti – lykkjur hafa verið auknar út á framstykki og á bakstykki og fjöldi lykkja á öxlum verður sá sami. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út í hverri umferð eins og útskýrt er að ofan alls 24-28-30-32-32-32 sinnum = 242-262-274-286-294-298 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur A.2, passið uppá að A.2 passi við lykkjur í A.1. Á eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 8-8-9-10-10-10 cm frá prjónamerki við hálsmál. Síðan er aukið út fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING FYRIR ERMAR: Prjónið sléttprjón yfir lykkjur á ermum, mynstur eins og áður á fram- og bakstykki. JAFNFRAMT í næstu umferð er aukið út um 4 lykkjur fyrir ermar þannig: Aukið út um 1 lykkju á EFTIR 1. og 3. prjónamerki og aukið út um 1 lykkju á UNDAN 2. og 4. prjónamerki. Athugið að nú er einungis aukið út á ermum, en fjöldi lykkja á framstykki og bakstykki verður sá sami. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 26-28-32-34-30-28 sinnum = 346-374-402-422-414-410 lykkjur. Stykkið mælist ca 23-24-28-30-28-27 cm frá prjónamerki við hálsmál. ÚTAUKNING Á BERUSTYKKI: Þessi kafli á einungis við um stærðir XL, XXL og XXXL, í stærð S, M og L er útaukningum lokið. Færið 4 prjónamerkin frá útaukningu á ermum, þannig að hvert og eitt af þessum 4 prjónamerkjum sitji í ystu lykkju í hvorri hlið á framstykki og bakstykki. Það eru 90-82-78 lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í hvorri ermi. Í næstu umferð eru auknar út 8 lykkjur fyrir berustykki með því að auka út bæði á undan og á eftir hverri lykkju af þessum 4 lykkjum með prjónamerki í – munið eftir ÚTAUKNING. Nú eru lykkjur auknar út á framstykki, bakstykki og báðum ermum og útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.2 á bakstykki/framstykki og í sléttprjóni á ermum. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 2-7-11 sinnum = 438-470-498 lykkjur. ALLAR STÆRÐIR: = 346-374-402-438-470-498 lykkjur. Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar, mælist stykkið ca 23-24-28-31-32-33 cm frá kanti í hálsmáli. Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið áfram eins og áður án útaukninga að réttu máli. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 74-78-86-94-96-100 lykkjur á þráð fyrri ermi, fitjið upp 8-8-10-12-14-16 lykkjur undir ermi, prjónið 99-109-115-125-139-149 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 74-78-86-94-96-100 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-12-14-16 lykkjur undir ermi, prjónið eins og áður yfir síðustu 99-109-115-125-139-149 lykkjur (bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 214-234-250-274-306-330 lykkjur. Prjónið A.1 í hring, þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í A.2 í hlið eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 21-22-20-19-20-21 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 46-50-52-58-64-68 lykkjur jafnt yfir = 260-284-302-332-370-398 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið aðeins laust af. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 74-78-86-94-96-100 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 3 - prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 82-86-96-106-110-116 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 8-8-10-12-14-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Prjónið sléttprjón þar til ermin mælist 20-19-16-14-13-12 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 4 cm að loka máli. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið jafnframt um 4-4-10-16-16-16 lykkjur jafnt yfir = 78-82-86-90-94-100 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið aðeins laust af. Ermin mælist ca 24-23-20-18-17-16 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #pinkpeonysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 232-25
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.