Mirjam Heiniger skrifaði:
Guten Tag Wenn ich den Pullover mit der Wolle Drops Merino Extra Fine wie im Beschrieb wasche, (40 Grad Schonwaschgang, ohne Weichspühler, liegend trocknen), geht er auf. Wie muss ich ihn pflegen? Respektive muss ich ihn eine Grösse kleiner stricken und geht er nur beim ersten Waschgang auf? Danke für die Antwort!
12.03.2025 - 14:49DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Heiniger, sollte Ihre Maschenprobe richtig sein, und dann je nach Pflegehinweise gewaschen dann sollte alles schön klappen. Gerne können Sie auch Ihre Maschenprobe zuerst waschen, so sind Sie sicher, beachten Sie nur, dass lieber fester als locker stricken (siehe Farbkarte). Ihr DROPS Händler hat sicher auch noch mehr Tipps für Sie. Viel Spaß beim Stricken!
13.03.2025 - 15:21
Magdalena Pietrasik skrifaði:
W opisie jest podane że trzeba odnieść się do schematu a1 scieg fantazyjny ,ale ja nie widze żadnego schematu oprócz haftu
08.10.2023 - 10:13DROPS Design svaraði:
Witaj Magdaleno, schemat A.1 znajduje się po prawej stronie schematycznego rysunku swetra na dole strony. Pozdrawiamy!
09.10.2023 - 08:28
Margareth skrifaði:
Margrietje
19.01.2022 - 13:08
Hannah skrifaði:
Daisy Dreams
19.01.2022 - 07:53
Shy Daisy#shydaisysweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni með tvöföldum kanti í hálsmáli og útsaumuðum blómum. Stærð S - XXXL.
DROPS 231-34 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 129 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim 127 lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 33) = 3,8. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 3. og 4. hverja lykkju slétt saman og lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur. ÚTAUKNING (á við um ermar): Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón upp að handveg, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka á hringprjóna. Frágangur á stykkinu er útskýrður í uppskrift. Prjónaður er tvöfaldur kantur í hálsmáli í hring á stuttan hringprjón. Að lokum eru blóm saumuð út á framstykkið. BAKSTYKKI: Fitjið upp 129-139-149-163-179-195 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna 3,5 með litnum ljós brúnn í DROPS Merino Extra Fine. Prjónið stroff þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1, þannig að stroffið byrji alveg eins í hvorri hlið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 6 cm. Prjónið nú 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 33-35-37-41-45-49 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 96-104-112-122-134-146 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð brugðið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið nú sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm, fellið af 3-3-4-5-6-7 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum fyrir handveg = 90-98-104-112-122-132 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu, heldur úrtakan áfram fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 3-3-3-4-4-4 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið þar til eftir eru 6-6-6-7-7-7 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 3-3-3-4-4-4 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Prjónið 1 umferð brugðið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (= í hverri umferð frá réttu) alls 3-5-6-8-10-12 sinnum = 84-88-92-96-102-108 lykkjur. Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af miðju 38-38-40-40-42-42 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 22-24-25-27-29-32 lykkjur fyrir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp jafnmargar lykkjur og prjónið alveg eins og á bakstykki. Þegar úrtaka fyrir handveg hefur verið gerð til loka eru 84-88-92-96-102-108 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 44-46-47-49-50-52 cm, setjið miðju 22-22-24-24-26-26 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Hægri öxl: Prjónið frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 3-3-3-4-4-4 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið út umferðina eins og áður. Prjónið 1 umferð brugðið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (= í hverri umferð frá réttu) alls 9 sinnum = 22-24-25-27-29-32 lykkjur fyrir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-60-64 cm. Fellið af. Vinstri öxl: Prjónið frá réttu þannig: Prjónið þar til eftir eru 6-6-6-7-7-7 lykkjur í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 3-3-3-4-4-4 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið 1 umferð brugðið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (= í hverri umferð frá réttu) alls 9 sinnum = 22-24-25-27-29-32 lykkjur yfir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið af. ERMI: Fitjið upp 70-72-74-76-80-82 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með litnum ljós brúnn í DROPS Merino Extra Fine. Prjónið A.1 umferðina hringinn í 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 18-18-18-18-20-20 lykkjur jafnt yfir = 52-54-56-58-60-62 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 10-10-10-9-9-7 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 3½-3-2½-2½-2-2 cm millibili alls 10-11-13-14-16-17 sinnum = 72-76-82-86-92-96 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 46-45-45-44-42-41 cm. Í næstu umferð eru felldar af 6-6-8-10-12-14 lykkjur mitt undir ermi (þ.e.a.s. 3-3-4-5-6-7 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 66-70-74-76-80-82 lykkjur. Prjónið síðan ermakúpu í sléttprjóni fram og til baka, jafnframt eru lykkjur felldar af í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 6-5-4-8-8-9 sinnum, 1 lykkja 0-1-1-2-3-4 sinnum og 3 lykkjur 3-4-5-2-2-1 sinnum = 24-24-26-28-30-32 lykkjur eftir. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist alls 53-53-53-53-52-52 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermakúpu við fram- og bakstykki innan við affellingarkantinn á ermi og innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á fram- og bakstykki. Saumið hliðarsaum frá handveg og niður – skiljið e.t.v. eftir smá klauf 6 cm (jafn langa og stroffið neðst). TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp 120-136 lykkjur innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á stuttan hringprjón 3,5 með litnum ljós brúnn í DROPS Merino Extra Fine. Prjónið A.1 hringinn í 10 cm. Nú er aukið út um 1 lykkju brugðið í annarri hverri brugðinni einingu. Prjónið þar til stroffið mælist 12 cm. Síðar er kantur í hálsmáli brotinn saman tvöfaldur og við frágang þá verður kanturinn í hálsmáli ca 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. ÚTSAUMUR: Nú eru saumuð út eins mörg blóm og óskað er eftir á framstykki. Saumið blómin út jafnt yfir eða eftir eigin ósk. BLÓM: Byrjið á að sauma út leggsaumshnút með litnum sinnep – sjá mynsturteikningu A og útskýringu á mynsturtexta – hnúturinn er saumaður þannig að hann verði ca 0,5 til 1 cm að þvermáli. Þetta er miðjan á blóminu. Síðan eru saumaður keðjusaumur í kringum miðju á blómi með litnum natur – sjá mynsturteikningu B og útskýringu á mynsturtexta, það á að sauma út 5 spor í kringum miðju og hvert spor er ca 1-1,5 cm langt. Klippið þræðina og festið. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #shydaisysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 35 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-34
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.