Theressa skrifaði:
How do I work A2 and A3. Is it just one color? Do I switch between the 2. What part of the sock am I working on?
28.03.2026 - 17:54DROPS Design svaraði:
Dear Theressa, just follow the colours written for each symbol, ie work A.2 one time at the beginning of the round, then repeat A.3, then work A.4 one time in width, then work A.2 one time in width and repeat A.3 to the end of the round (see number of times for your size). Happy knitting!
07.04.2026 - 09:52
Theressa skrifaði:
How do I work A2 and A3. Is it just one color?
28.03.2026 - 17:20
Monijesu skrifaði:
Love this Fair Isle pattern. I can\'t wait to try it
27.02.2023 - 14:46
Elizabeth Glover skrifaði:
This is the cutest pattern, both of them. Completely irresistible and I have two grand children who will love them too. Please design more, e.g. leg warmers, double layer scarves, roomy hats with double ear warm brims for outdoor hockey (really necessary), sweaters for warm-up after figure skating, tabards for hikes, after-swimming hoodies for boys, zip up sweaters for frisbee. When I see Drops I know the patterns are good.
16.05.2022 - 02:44
Dancing Bunny Socks#dancingbunnysocks |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónaðir sokkar fyrir börn úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður, í sléttprjóni með marglitu mynstri með kanínum / páskakanínum. Stærð 24 - 43. Þema: Páskar.
DROPS Children 41-34 |
|||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 7-6-8-8-7-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 7-6-8-8-7-7-7 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 6-5-7-7-6-6-6 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 6-5-7-7-6-6-6 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 7-9-9-9-11-13-15 lykkjur eru eftir á prjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um tá): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerkið situr mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). Endurtakið við hitt prjónamerkið. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, frá stroffi og niður að tá. Lengd á sokk samsvarar lengd á fæti. Ef óskað er eftir að sokkurinn strekkist aðeins þegar hann er mátaður, þá er hægt að prjóna aðeins styttra á lengdina áður en fellt er af fyrir tá. STROFF / LEGGUR: Fitjið upp 44-44-52-52-60-60-68 lykkjur á sokkaprjóna 3 með litnum sægrænn í DROPS Karisma. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan 1 umferð stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Skiptið yfir í litinn ljós grágrænn og haldið áfram þar til stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-5 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 40-40-48-48-56-56-64 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið A.1 alls 5-5-6-6-7-7-8 sinnum umferðina hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í umferð merktri með ör-1 er fækkað um 2-0-2-0-4-4-4 lykkjur jafnt yfir = 38-40-46-48-52-52-60 lykkjur. Í umferð merktri með ör-2 er fækkað um 0-0-0-0-4-0-4 lykkjur jafnt yfir = 38-40-46-48-48-52-56 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 15-15-15-15-16-16-17 cm. Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið sléttprjón með litnum ljós brúnn að réttu máli. Klippið þráðinn. Prjónið nú hæl og fót eins og útskýrt er að neðan. HÆLL OG FÓTUR: Haldið eftir fyrstu 10-10-12-12-12-13-14 lykkjum á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 19-21-23-25-25-27-29 lykkjur á þráð (mitt ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 9-9-11-11-11-12-13 lykkjum á prjóni fyrir hæl = 19-19-23-23-23-25-27 hællykkjur á prjóni. Prjónið mynstur fram og til baka yfir hællykkjur frá réttu þannig: STÆRÐ 24/25 - 26/28 - 29/31 - 32/34 - 35/37 - 41/43: Prjónið A.2, prjónið A.3 alls 2-2-3-3-3-4 sinnum, A.4, A.2, prjónið A.3 alls 2-2-3-3-3-4 sinnum. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. STÆRÐ 38-40: Prjónið A.3 alls 4 sinnum, A.4, A.2, prjónið A.3 alls 3 sinnum, prjónið fyrstu lykkju í A.3. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. ALLAR STÆRÐIR: Þegar A.2 til A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina, mælist hællinn ca 5½ cm. Prjónið 0-0-0-0-½-½-1 cm sléttprjón fram og til baka með litnum sægrænn, hællinn mælist nú ca 5½-5½-5½-5½-6-6-6½ cm. Setjið 1 prjónamerki mitt í síðustu umferð – síðar á að mæla stykkið frá þessu prjónamerki. Prjónið HÆLÚRTAKA með litnum sægrænn – sjá útskýringu að ofan! Eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð með litnum ljós brúnn þannig: Prjónið sléttprjón yfir 7-9-9-9-11-13-15 hællykkjur, prjónið upp 12-12-12-12-13-13-14 lykkjur meðfram hlið á hæl, prjónið sléttprjón yfir 19-21-23-25-25-27-29 lykkjur af þræði ofan á fæti og prjónið upp 12-12-12-12-13-13-14 lykkjur meðfram hinni hliðinni á hælnum = 50-54-56-58-62-66-72 lykkjur. Prjónið að miðju undir hæl – umferðin byrjar núna hér. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 19-21-23-25-25-27-29 lykkjur ofan á fæti. Prjónið sléttprjón með litnum ljós brúnn og fækkið lykkjum í hvorri hlið þannig: Prjónið síðustu 2 lykkjur á undan fyrra prjónamerki ofan á fæti slétt saman og prjónið fyrstu 2 lykkjur á eftir seinna prjónamerki ofan á fæti snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 3-3-3-3-4-4-4 sinnum og síðan í annarri hverri umferð alls 5-6-6-6-6-6-7 sinnum = 36-40-40-44-48-48-56 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 10-12-13-15-17-18-20 cm frá prjónamerki á hæl, mælt undir fæti. Prjónið A.5 í kringum fótinn. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón með litnum sægrænn þar til stykkið mælist 11-13-14-16-18-19-21 cm frá prjónamerki á hæl, mælt undir fæti. Nú eru eftir ca 4-4-4-4-4-5-5 cm til að loka máli, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd áður en lykkjum er fækkað fyrir tá eins og útskýrt er að neðan. TÁ: Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á sokknum þannig að það verða 17-18-19-20-21-23-25 lykkjur bæði ofan á og undir fæti. Prjónið sléttprjón með litnum sægrænn. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 6-6-6-5-5-5-5 sinnum og síðan í hverri umferð alls 0-1-1-3-3-4-5 sinnum = 10-8-10-8-10-10-10 lykkjur eftir. Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum lykkjurnar, herðið að þræði og festið vel. Sokkurinn mælist ca 15-17-18-20-22-24-26 cm frá prjónamerki á hæl, mælt undir fæti. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dancingbunnysocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 41-34
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.