Tom skrifaði:
Hallo liebes Team, vielen Dank für die Anleitung! Warum nimmt man am Fußrücken auf der einen Seite rechts und auf der anderen Seite rechts verschränkt ab? Warum nicht auf beiden Seiten einfach ganz normal rechts? Sollte man beim anderen Socken spiegelverkehrt vorgehen und die Seite mit den rechtsverschränkten Abnahmen wechseln? Vielen Dank für eure Hilfe! :) LG
06.10.2024 - 22:46DROPS Design svaraði:
Lieber Tom, so wird man abnehmen, damit die Abnahmen bei der Fußrücken spiegelverkehrt sind. Siehe z.B. dieses Video wo wir zeigen, wie man eine ganze Socke (einsch. diese Abnahmen) zeigt. Viel Spaß beim Stricken!
07.10.2024 - 08:41
Mathilde Herforth Caspersen skrifaði:
Hvor mange meter garn skal der bruges til strømperne? Dette fremgår ikke i opskiften så jeg ved ikke hvor mange nøgler garn jeg skal købe.
04.10.2022 - 09:14DROPS Design svaraði:
Hej Mathilde, jo det står under Materialer, du skal bruge 100 g i de to farver (DROPS Fabel farve 100 og 114)(du strikker med dobbelt tråd) :)
07.10.2022 - 15:31
Viviane Chamois skrifaði:
Bonjour Lorsqu'on a fait les diminutions du talon et qu'on a les 58 mailles, on tricote bien de nouveau en rond sur 3 aiguilles (18 -18-22) ou sur 4 (12-12-12-22) ? Merci pour votre aide Viviane
11.09.2022 - 22:07DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Chamois, vous pouvez tricoter sur 3 ou 4 aiguilles au choix, mais vous devez maintenant tricoter toutes les mailles en rond, en jersey. Vous diminuerez de chaque côté des 22 mailles du dessus du pied (celles qui étaient en attente), vous pouvez ainsi garder celles-ci sur une seule aiguille pour mieux repérer où faire les diminutions du cou de pied. Bon tricot!
12.09.2022 - 11:41
Viviane Chamois skrifaði:
Bonjour Lorsqu'on tricote en Côte 2/2 on fait 2 mailles endroits puis deux envers et au rang suivant c'est l'inverse, 2 envers puis deux endroit. Mais quand on tricote en rond avec des aiguilles pointes, comment fait on ? Deux mailles endroits, deux mailles envers et quand on arrive au bout, donc le rang suivant, on continue toujours deux endroits, deux envers ? Merci pour votre aide Viviane
25.08.2022 - 21:45DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Chamois, quand on tricote en rond, on doit toujours tricoter les mailles telles qu'elles doivent se présenter sur l'endroit, autrement dit, vous allez tricoter en côtes 2 mailles endroit/2 mailles envers tout le temps, tricotez simplement les mailles comme elles se présentent à partir du 2ème tour. Bon tricot!
26.08.2022 - 09:50
Chamois skrifaði:
Bonjour, je fais mes premières chaussettes. pouvez vous me préciser deux choses. Le montage de la tige se fait sur 3 ou 4 aiguilles ? De plus que signifie "Au tour suivant, tricoter ensemble à l'envers les 2 mailles de chaque section en mailles envers = 42-45-48 mailles." qu'est ce qu'une section ? Merci pour votre aide car je suis perdue... Viviane
24.08.2022 - 16:04DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Chamois, vous pouvez tricoter avec 3 ou 4 aiguilles, au choix, traditionnellement, on tricote avec les mailles sur 4 aiguilles. Lorsque vous tricotez des côtes, vous avez des mailles endroit et des mailles envers, les "sections en mailles envers" correspondent aux mailles envers dont on va diminuer le nombre - on commence en côtes 2 mailles endroit, 2 mailles envers, puis on va tricoter les 2 m envers ensemble = les côtes sont désormais de 2 mailles endroit, 1 maille envers. Bon tricot!
24.08.2022 - 17:00
Carol Maitland skrifaði:
Hi I would like to knit the above pattern (socks) it says 1 strand in each color.I dont understand does this mean to use 2 strands.My ball of wool is one color.Thks Carol.
15.07.2022 - 22:12DROPS Design svaraði:
Dear Carol, yes, these socks are knitted with 2 strands at the same time. Happy knitting!
16.07.2022 - 20:19
Terry skrifaði:
Like the oversized warm comfy look.
17.01.2022 - 15:39
Hiking Helpers#hikinghelperssocks |
|
![]() |
![]() |
Prjónaðir sokkar í sléttprjóni og stroffprjóni úr 2 þráðum DROPS Fabel. Stærð 35 – 43.
DROPS 229-22 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 5-6-6 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 5-6-6 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 4-5-5 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 4-5-5 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 12-12-14 lykkjur eru eftir á prjóni. ÚRTAKA-2 (á við um úrtöku fyrir tá): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). Endurtakið við hitt prjónamerkið. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, frá stroffi niður að tá. STROFF / LEGGUR: Fitjið upp 56-60-64 lykkjur á sokkaprjóna 4 með 1 þræði í hvorum lit í DROPS Fabel (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 24-26-28 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í næstu umferð eru allar 2 lykkjur brugðið prjónaðar saman í 1 lykkju brugðið = 42-45-48 lykkjur. Prjónið 4 umferðir sléttprjón – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 0-1-0 lykkju = 42-44-48 lykkjur. Prjónið nú hæl og fót eins og útskýrt er að neðan. HÆLL OG FÓTUR: Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 10-11-12 lykkjur og haldið eftir lykkjum á prjóni fyrir hæl, setjið næstu 22-22-24 lykkjur á þráð (mitt ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 10-11-12 lykkjum á prjóni fyrir hæl = 20-22-24 hællykkjur á prjóni. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 6-6-6½ cm. Setjið 1 prjónamerki mitt í síðustu umferð – síðar á að mæla stykkið frá þessu prjónamerki. Prjónið HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð þannig: Prjónið sléttprjón yfir 12-12-14 hællykkjur, prjónið upp 12-13-13 lykkjur meðfram hlið á hæl, prjónið sléttprjón yfir 22-22-24 lykkjur af þræði á fæti og prjónið upp 12-13-13 lykkjur meðfram hinni hlið á hælnum = 58-60-64 lykkjur. Prjónið að miðju undir hæl – umferðin byrja nú hér. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 22-22-24 lykkjur á fæti. Prjónið sléttprjón og fækkið lykkjum í hvorri hlið þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan fyrra prjónamerki á fæti slétt saman og prjónið 2 fyrstu lykkjur á eftir seinna prjónamerki á fæti snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 11-10-10 sinnum = 36-40-44 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 18-19-21 cm frá prjónamerki á hæl, mælt undir fæti. Nú eru eftir 4-5-6 cm að loka máli, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd áður en lykkjum er fækkað fyrir tá eins og útskýrt er að neðan. TÁ: Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á sokknum þannig að það verða 18-20-22 lykkjur bæði ofan á fæti og undir fæti. Prjónið sléttprjón. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-5-7 sinnum og síðan í hverri umferð alls 3-3-2 sinnum = 8-8-8 lykkjur eftir. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum lykkjurnar, herðið á þræði og festið vel. Sokkurinn mælist ca 22-24-27 cm frá prjónamerki á hæl, mælt undir fæti. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #hikinghelperssocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 229-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.