Emma skrifaði:
Svar til: Hei Emma. Usikker på hvilken du mener, men bruk vår søkemotor og se om den allerede ligger ute (Klikk på Gratis Opskrifter - Dame- Jakker&Cardigans, scroll ned og velg Strikket og deretter Striper under Tema). Håper du finner den der. mvh DROPS Design Jeg har kigget opskrifter igennem og kan ikke finde dem. kan du svare på, om der er forårskollektions-opskrifter, som endnu ikke er offentliggjort?
07.03.2022 - 13:26DROPS Design svaraði:
Hej Emma, Er det ml-082 du mener, for så kommer den i løbet af et par uger :) Forår & Sommer 2022
09.03.2022 - 10:58
Elena skrifaði:
I’m curious what size the model is wearing? And her height? Thanks
03.03.2022 - 17:16DROPS Design svaraði:
Dear Elena, persons wearing the same size will not wear the same pullover the same way because they will all look different. You will read more about sizing here. Happy knitting!
04.03.2022 - 10:27
Emma Damgård Jensen skrifaði:
Hej, I har haft en stribet sweater og cardigan med knapper i pastel-farver (hvid, lyseblå mm.) i jeres forårskollektion. Der stod, at opskrifterne var ved at blive lavet, men nu er de forsvundet. Kommer de tilbage? Jeg ville meget gerne strikke dem
01.03.2022 - 18:48DROPS Design svaraði:
Hei Emma. Usikker på hvilken du mener, men bruk vår søkemotor og se om den allerede ligger ute (Klikk på Gratis Opskrifter - Dame- Jakker&Cardigans, scroll ned og velg Strikket og deretter Striper under Tema). Håper du finner den der. mvh DROPS Design
07.03.2022 - 12:03
Emma Damgård Jensen skrifaði:
Hej, I har haft en stribet sweater og cardigan med knapper i pastel-farver (hvid, lyseblå mm.) i jeres forårskollektion. Der stod, at opskrifterne var ved at blive lavet, men nu er de forsvundet. Kommer de tilbage? Jeg ville meget gerne strikke dem
01.03.2022 - 13:00
Sonja skrifaði:
Meow
05.02.2022 - 06:52
Charlaine skrifaði:
Petit chat
02.02.2022 - 13:40
Margrét skrifaði:
Pink breeze
17.01.2022 - 01:13
Sweetness Imprint Sweater#sweetnessimprintsweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað neðan frá og upp, með gatamynstri og picotkanti. Stærð S - XXXL.
DROPS 231-28 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 104 lykkjur) mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim 102 lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 19) = 5,3. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna ca 4. og 5. hverja lykkju slétt saman, lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Ef auka á út, þá er það gert í þessu dæmi með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). PICOT: Prjónið 1 lykkju slétt, * stingið inn hægri prjóni á milli 2 næstu lykkja á vinstri prjóni (þ.e.a.s. á milli lykkja á prjóni, ekki í gegnum lykkjurnar), sláið 1 sinni uppá hægri prjón, dragið uppsláttinn fram á milli lykkja og setjið uppsláttinn á vinstri prjón *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum (= 3 nýir uppslættir á vinstri prjóni), prjónið sléttar lykkjur og fellið af 7 lykkjur (= 1. lykkja á hægri prjóni + 3 uppslættir + 3 lykkjur). Haldið nú áfram að prjóna frá *-* og fellið af 7 lykkjur alveg eins meðfram öllum affellingarkantinum. Klippið þráðinn og þræðið í gegnum síðustu lykkjuna. Festið enda. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón í stykkjum. Ermar eru fyrst prjónaðar fram og til baka á hringprjóna, síðan er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. Frágangur á stykkinu er eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli í hring á hringprjóna þar sem fellt er af með picot. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 104-112-120-126-140-154 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna 4 með DROPS Air. Prjónið stroff þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 9 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 19-21-23-23-27-29 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 85-91-97-103-113-125 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð brugðið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorir hlið. Prjónið nú mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 3-6-9-5-10-16 lykkjur sléttprjón, A.2 yfir næstu 70-70-70-84-84-84 lykkjur (= 5-5-5-6-6-6 mynstureiningar með 14 lykkjum), prjónið fyrstu 7 lykkjur í A.2, 3-6-9-5-10-16 lykkjur sléttprjón og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka þar til stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í byrjun á næstu 2 umferðum eru felldar af 2-4-4-4-7-11 lykkjur fyrir handveg = 81-83-89-95-99-103 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með mynstur eins og áður yfir miðju 77-77-77-91-91-91 lykkjur, 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið og sléttprjón yfir aðrar 1-2-5-1-3-5 lykkjur í hvorri hlið. Prjónið svona þar til stykkið mælist ca 42-44-45-47-48-50 cm – stillið af að prjónaðar séu minnst 2 umferðir sléttprjón eftir heilt gatamynstur á hæðina áður en úrtaka fyrir hálsmáli byrjar. Stykkið er nú prjónað í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Setjið miðju 15-15-17-17-17-19 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af lykkjur í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 3 sinnum og 1 lykkju 2 sinnum = 25-26-28-31-33-34 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist alls 50-52-54-56-58-60 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. BAKSTYKKI. Fitjið upp lykkjur og prjónið stroff og mynstur alveg eins og á framstykki. Fækkið lykkjum fyrir handvegi alveg eins og á framstykki. Prjónið þar til stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm, stillið af að prjónaðar séu minnst 2 umferðir sléttprjón eftir heilt gatamynstur á hæðina áður en úrtaka fyrir hálsmáli byrjar. Stykkið er nú prjónað í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Fellið af miðju 29-29-31-31-33-33 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstju umferð frá hálsmáli er felld af 1 lykkja = 25-26-28-31-32-34 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist alls 50-52-54-56-58-60 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Ermar eru prjónaðar ofan frá og niður. Fitjið upp 61-65-69-71-75-79 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Air. Prjónið sléttprjón fram og til baka í 1-2-2-2-4-6 cm. Prjónið síðan stykkið hringinn þannig: Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð, þ.e.a.s. það verður lítil klauf á ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar lykkjum er fækkað undir ermi. Skiptið yfir á sokkaprjón 5. Prjónið mynstur hringinn frá miðju undir ermi þannig: Prjónið 20-22-24-25-27-29 lykkjur sléttprjón, A.2 yfir næstu 14 lykkjur, prjónið fyrstu 7 lykkjur í A.2 (þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins) og 20-22-24-25-27-29 lykkjur sléttprjón. Þegar ermin mælist 3-4-4-4-6-8 cm frá uppfitjunarkanti, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 5½-4-3½-3½-3-2 cm millibili alls 6-7-8-8-9-11 sinnum = 49-51-53-55-57-57 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist alls 39-39-38-38-38-37 cm – stillið af að prjónaðar séu minnst 2 umferðir sléttprjón eftir heilt gatamynstur á hæðina. Nú eru eftir 9 cm að loka máli. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 11-13-13-13-13-13 lykkjur jafnt yfir = 60-64-66-68-70-70 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið A.1 hringinn í 9 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir snúnar sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Ermin mælist alls 48-48-47-47-47-46 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma – byrjið yst á öxl og saumið inn að hálsmáli. Saumið ermakúpuna við handveg og saumið klaufina efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. Saumið hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið upp við aðra öxlina og prjónið upp 92 til 110 lykkjur innan við 1 kantlykkju á stuttan hringprjón 4 með DROPS Air. Lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4. Prjónið A.1 hringinn í 4 cm. Fellið af með PICOT – sjá útskýringu að ofan. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweetnessimprintsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-28
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.