DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sweetness Imprint

Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað neðan frá og upp, með gatamynstri og picotkanti. Stærð S - XXXL.

DROPS 231-27
DROPS Design: Mynstur ai-383
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
350-350-400-450-500-550 g litur 33, bleikur sandur

DROPS PERLUTALA, Blóm (ljós bleik) NR 602: 1 stykki í allar stærðir.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 105 lykkjur) mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim 103 lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 20) = 5,1.
Í þessu dæmi er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna ca 4. og 5. hverja lykkju slétt saman, lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat.
Ef auka á út, þá er það gert í þessu dæmi með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 5. hverja lykkju.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

PICOT:
Prjónið 1 lykkju slétt, * stingið inn hægri prjóni á milli 2 næstu lykkja á vinstri prjóni (þ.e.a.s. á milli lykkja á prjóni, ekki í gegnum lykkjurnar), sláið 1 sinni uppá hægri prjón, dragið uppsláttinn fram á milli lykkja og setjið uppsláttinn á vinstri prjón *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum (= 3 nýir uppslættir á vinstri prjóni), prjónið sléttar lykkjur og fellið af 7 lykkjur (= 1. lykkja á hægri prjóni + 3 uppslættir + 3 lykkjur). Haldið nú áfram að prjóna frá *-* og fellið af 7 lykkjur alveg eins meðfram öllum affellingarkantinum.
Þegar ekki eru nægilega margar lykkjur eftir til að gera nýjan picot eru þær lykkjur sem eftir eru felldar af með sléttum lykkjum. Klippið þráðinn og þræðið í gegnum síðustu lykkjuna. Festið enda.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykkið og framstykkin er prjónað fram og til baka í stykkjum, neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar ofan frá og niður, fyrst fram og til baka á hringprjóna síðan er prjónað í hring á sokkaprjóna. Frágangur á stykkinu er eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum eru prjónaðir kantar að framan fram og til baka og fellt er af með picot.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 104-112-120-126-140-154 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna 4 með DROPS Air. Prjónið stroff þannig:
1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 9 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 19-21-23-23-27-29 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 85-91-97-103-113-125 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 5.
Prjónið 1 umferð brugðið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorir hlið.
Prjónið nú mynstur þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 3-6-9-5-10-16 lykkjur sléttprjón, A.2 yfir næstu 70-70-70-84-84-84 lykkjur (= 5-5-5-6-6-6 mynstureiningar með 14 lykkjum), prjónið fyrstu 7 lykkjur í A.2, 3-6-9-5-10-16 lykkjur sléttprjón og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka þar til stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Í byrjun á næstu 2 umferðum eru felldar af 2-4-4-4-7-11 lykkjur fyrir handveg = 81-83-89-95-99-103 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með mynstur eins og áður yfir miðju 77-77-77-91-91-91 lykkjur, 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið og sléttprjón yfir aðrar 1-2-5-1-3-5 lykkjur í hvorri hlið.
Prjónið svona þar til stykkið mælist ca 51-53-55-57-59-61 cm – stillið af að prjónaðar séu minnst 2 umferðir sléttprjón eftir heilt gatamynstur á hæðina áður en úrtaka fyrir hálsmáli byrjar. Stykkið er nú prjónað í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Fellið af miðju 29-29-31-31-33-33 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 25-26-28-31-32-34 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist alls 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 52-56-60-64-72-78 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 4 með DROPS Air. Prjónið stroff þannig:
1 kantlykkja í garðaprjón, A.1 þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 9 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 9-10-10-11-13-13 lykkjur jafnt yfir = 43-46-50-53-59-65 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 5.
Prjónið 1 umferð brugðið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorir hlið til baka frá röngu..
Prjónið nú mynstur þannig:
1 kantlykkja í garðaprjóni, 3-3-4-4-5-5 lykkjur sléttprjón, A.2 yfir næstu 28-28-28-42-42-42 lykkjur (= 2-2-2-3-3-3 mynstureiningar með 14 lykkjum), prjónið fyrstu 7-7-7-0-0-0 lykkjur í A.2 (þ.e.a.s. á einungis við um stærð S, M og L, í stærð XL, XXL og XXXL eru ekki prjónaðar fleiri lykkjur í A.2), 3-6-9-5-10-16 lykkjur sléttprjón og 1 kantlykkja í garðaprjóni.
Haldið svona áfram fram og til baka.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Nú á að fækka lykkjum fyrir v-hálsmáli jafnframt því sem lykkjur eru felldar af fyrir handvegi – lestu því allan næsta kafla áður en þú prjónar áfram.

V-HÁLSMÁL:
Þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm, byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli. Í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað þannig:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), prjónið út umferðina eins og áður. Snúið og prjónið 1 umferð brugðið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið til baka frá röngu.
Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð 1 sinni (= fyrsta úrtakan sem er útskýrð að ofan), í annarri hverri umferð 12-12-13-13-14-14 sinnum og í 4. hverri umferð 3 sinnum = 16-16-17-17-18-18 lykkjur færri fyrir v-hálsmáli – ef úrtaka fyrir v-hálsmáli kemur mitt í gatamynstri, prjónið sléttprjón í stað mynsturs.
HANDVEGUR:
Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm, fellið af 2-4-4-4-7-11 lykkjur fyrir handveg í næstu umferð frá röngu.
Þegar allar úrtökur fyrir v-hálsmáli og handveg hafa verið gerðar til loka eru 25-26-28-31-32-34 lykkjur eftir fyrir öxl. Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist alls 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 52-56-60-64-72-78 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna 4 með DROPS Air. Prjónið stroff þannig:
1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 þar til 1 lykkja er eftir – stillið af að byrjað og endar er með 1 kantlykkju í hvorri hlið (séð frá réttu), þannig að stroffið gangi jafnt upp við frágang á stykki og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 9 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10-11-11-12-14-14 lykkjur jafnt yfir = 43-46-50-53-59-65 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 5.
Prjónið 1 umferð brugðið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið til baka frá röngu. Prjónið nú mynstur þannig:
1 kantlykkja í garðaprjóni, 3-6-9-5-10-16 lykkjur sléttprjón, byrjið á 1.-1.-1.-7.-7.-7. lykkju í A.2 og prjónið A.2 yfir næstu 28-28-28-35-35-35 lykkjur (= 2-2-2-2½-2½-2½ mynstureiningar með 14 lykkjum), prjónið fyrstu 7 lykkjur í A.2, prjónið 3-3-4-4-5-5 lykkjur sléttprjón, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka.

YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA:
Nú á að fækka lykkjum fyrir v-hálsmáli jafnframt því sem lykkjur eru felldar af fyrir handvegi – lestu því allan næsta kafla áður en þú prjónar áfram.

V-HÁLSMÁL:
Þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm, byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli. Í næstu umferð frá réttu er lykkjum fækkað þannig:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, mynstur eins og áður þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), 1 lykkja slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Snúið og prjónið 1 umferð brugðið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið til baka frá röngu.
Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð 1 sinni (= fyrsta úrtakan sem er útskýrð að ofan), í annarri hverri umferð 12-12-13-13-14-14 sinnum og í 4. hverri umferð 3 sinnum = 16-16-17-17-18-18 lykkjur færri fyrir v-hálsmáli – ef úrtaka fyrir v-hálsmáli kemur mitt í gatamynstri, prjónið sléttprjón í stað mynsturs.
HANDVEGUR:
Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm, fellið af 2-4-4-4-7-11 lykkjur fyrir handveg í næstu umferð frá röngu.
Þegar allar úrtökur fyrir v-hálsmáli og handveg hafa verið gerðar til loka eru 25-26-28-31-32-34 lykkjur eftir fyrir öxl. Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist alls 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið af.

ERMI:
Ermar eru prjónaðar ofan frá og niður.
Fitjið upp 61-65-69-71-75-79 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Air. Prjónið sléttprjón fram og til baka í 1-2-2-2-4-6 cm. Prjónið síðan stykkið hringinn þannig:
Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð, þ.e.a.s. það verður lítil klauf á ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar lykkjum er fækkað undir ermi. Skiptið yfir á sokkaprjón 5.
Prjónið mynstur hringinn frá miðju undir ermi þannig:
Prjónið 20-22-24-25-27-29 lykkjur sléttprjón, A.2 yfir næstu 14 lykkjur, prjónið fyrstu 7 lykkjur í A.2 (þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins) og 20-22-24-25-27-29 lykkjur sléttprjón.
Þegar ermin mælist 3-4-4-4-6-8 cm frá uppfitjunarkanti, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 5½-4-3½-3½-3-2 cm millibili alls 6-7-8-8-9-11 sinnum = 49-51-53-55-57-57 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist alls 39-39-38-38-38-37 cm – stillið af að prjónaðar séu minnst 2 umferðir sléttprjón eftir heilt gatamynstur á hæðina.
Nú eru eftir 9 cm að loka máli.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 11-13-13-13-13-13 lykkjur jafnt yfir = 60-64-66-68-70-70 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið A.1 hringinn í 9 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir snúnar sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Ermin mælist alls 48-48-47-47-47-46 cm.
Prjónið aðra hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma – byrjið yst á öxl og saumið inn að hálsmáli. Saumið ermakúpuna við handveg og saumið klaufina efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. Saumið hliðarsauma frá handvegi og niður innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. Setjið eitt prjónamerki mitt aftan í hnakka. Prjónamerkið er notað þegar lykkjur eru prjónaðar upp fyrir kant að framan.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Byrjið neðst á hægra framstykki, frá réttu með hringprjón 4 og DROPS Air.
Prjónið upp ca 139 til 163 lykkjur innan við 1 kantlykkju upp að prjónamerki mitt að aftan í hnakka. Lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4 + 3. Snúið og prjónið stroff (fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu) þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, JAFNFRAMT er aukið út nákvæmlega þar sem V-hálsmálið byrjar þannig:
Stillið af að næsta lykkja sé prjónuð slétt, * prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* 4 sinnum (= 4 lykkjur fleiri), endið með fyrstu lykkju í A.1 og 1 kantlykkju í garðaprjóni = ca 143-167 lykkjur. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat og lykkjur eru prjónaðar inn í stroff (= A.1).
Haldið áfram með stroff fram og til baka í 2 cm. Fellið nú af fyrir 1 hnappagati þar sem úrtaka fyrir v-hálsmáli byrjar.‘
HNAPPAGAT: Sláið 1 sinni uppá prjóninn eftir 1 lykkju snúna slétt, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt.
Haldið áfram með stroff þar til stroffið mælist 4½ cm. Fellið af með PICOT – sjá útskýringu að ofan.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Byrjið við prjónamerki mitt aftan í hnakka og prjónið upp jafn margar lykkjur og á hægri kanti að framan með hringprjón 4 og DROPS Air.
Snúið og prjónið stroff (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu) þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, JAFNFRAMT er aukið út nákvæmlega þar sem V-hálsmálið byrjar þannig:
Stillið af að næsta lykkja sé prjónuð slétt, * prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* 4 sinnum (= 4 lykkjur fleiri), endið með fyrstu lykkju í A.1 og 1 kantlykkju í garðaprjóni = ca 143-167 lykkjur. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat og lykkjur eru prjónaðar inn í stroff (= A.1).
Haldið áfram með stroff fram og til baka í 4½ cm. Fellið af með PICOT – sjá útskýringu að ofan. Saumið tölur í vinstri kant að framan og saumið saman 2 kanta að framan mitt aftan í hnakka.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = snúin slétt lykkja frá réttu, snúin brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið svo það myndist gat
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = ermakúpan er saumið við handveg þannig: Saumið a við A og b við B
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Sweetness Imprint

KnittingTrendy, France

Sweetness Imprint

yully_knit, Korea, Democratic People's Republic of

Skrifaðu athugasemd um DROPS 231-27

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (27)

country flag Katie Franklin wrote:

Great pattern! Knitted this up with Knit Picks Wonderfluff in Wonderland Heather! [I live in the states so Drops is hard to come by :( ] I used 4.5 & 4 mm needles and I used ~300 grams of yarn. I wish I could post a picture here because it is such a lovely gift for my mother!

17.03.2024 - 18:16

country flag Barbora wrote:

Hello, if Im beginning the test for knitting tension what size of needle am I suppose to use 4mm or 5 mm? It doesnt say in the manual. Thank you

28.01.2024 - 18:16

DROPS Design answered:

Dear Barbora, the 4mm needles are only used for the rib. So, since we will only use the 5mm needles for the stocking stitch pattern we need to calculate the gauge with those. Happy knitting!

28.01.2024 - 23:15

country flag Iona Jeanie Eadie wrote:

I understand your schematic drawings to calculate which size I should knit but can you please say which size the model is wearing as this will give the 'truest' indication of the size I need to knit. AND just to clarify: the bottom of the garment smallest size 49 (x 2) = 98cm, which = 38inches, and is this for the FINISHED garment? AND since it appears to be square in shape, does this mean the finished bust measurement would also be 38 inches please? :)

18.09.2023 - 21:04

country flag Iona Jeanie Eadie wrote:

I understand your schematic drawings to calculate which size I should knit but can you please say which size the model is wearing as this will give the 'truest' indication of the size I need to knit. AND just to clarify: the bottom of the garment smallest size 49 (x 2) = 98cm, which = 38inches, and is this for the FINISHED garment? AND since it appears to be square in shape, does this mean the finished bust measurement would also be 38 inches please? :)

18.09.2023 - 21:03

DROPS Design answered:

Dear Mrs Eadie, the shematic drawing shows the finished measurements in cm, so that width of piece on the bottom will be 49 cm in size S lying flat x 2 = 98 cm circumference. Our models most often wear a size S or a size M. Measuring a similar garment you have and like the shape will help you finding the best matching size, as every body is different. Happy knitting!

19.09.2023 - 09:07

country flag Flo wrote:

Hallo... Ein schönes Teil 😄. Gibt es die Anleitung auch in deutsch, Englisch oder französischer? Danke

24.07.2023 - 12:26

DROPS Design answered:

Liebe Flo, alle unsere Anleitungen sind in deutsch, English und französisch erhältlich :) Klicken Sie auf dem dropdown Menu unter die Fotos um die Sprache zu ändern. Viel Spaß beim stricken!

28.07.2023 - 08:08

country flag Christy wrote:

Hello! I'm having trouble understanding how to do the ribbing for the right and left side. Where do I place the marker? And are the ribbings suppose to be separated then?

09.07.2023 - 22:54

DROPS Design answered:

Dear Christy, the marker was inserted in the center of the back of the neck, in the section ASSEMBLY. Now you will pick up stitches on both sides, from the bottom edge of the right front piece for the right edge and from the bottom edge of the left front piece for the left edge. Pick up stitches upwards toward the back of the neck until reaching the marker. You can see how to pick up stitches in the following video: https://www.garnstudio.com/video.php?id=58&lang=en. So they won't be separated from their respective front piece but left and right edges will be separate from each other. Ensure that both edges have the same amount of stitches. Happy knitting!

10.07.2023 - 18:00

country flag Hyunjung wrote:

Hello, I'm on right front piece right now and I think there is a mistake on V-neck decreasing for XL and XXL size. For XL, there are 59 sts before decrease and if I follow the pattern, I'm gonna have 33 sts on my needle. (59-1-1-14-3-7= 33) Could you please check this part again?

16.02.2023 - 19:23

country flag Tatiana wrote:

Dziękuję bardzo. Już wszystko jasne🙃

15.02.2023 - 14:55

country flag Tatiana wrote:

Poproszę o pomoc:) pytanie dotyczy obszycia przodów; w którym miejscu dodajemy oczka na dole i początku dekoltu V; nie rozumiem co to jest dół, a co początek dekoltu V; czy to jest miejsce, gdzie zaczynamy zamykać oczka na dekolt, czy sam dół robótki w obu przodach?

14.02.2023 - 21:06

DROPS Design answered:

Witaj Tatiano, dół swetra jest na dole prawego przodu i tyłu (od środka przodów). Od tego momentu zaczynasz nabieranie oczek na obszycia przodów. Dół/początek dekoltu V jest to miejsce, gdzie będzie znajdował się pierwszy guzik (na górze swetra); tutaj dodajemy oczka, aby łuk ładnie się układał. Pozdrawiamy!

15.02.2023 - 08:31

country flag Monika wrote:

Dziękuję w końcu zrozumiałam 😀😀

21.11.2022 - 10:19