Elisabeth Bergqvist skrifaði:
Hur gör man för att få 8 m.ökning? Det är ju 4 markeringar så man behöver göra 2 ökningar vid varje markering men man börjar ju vid startmarkeringen och den ska man ju sticka förbi en maska, så då blir det bara 7 m.ökning. //Elisabeth
02.11.2022 - 09:53DROPS Design svaraði:
Hej Elisabeth, du ökar på varje sida. Läs RAGLAN: Det ökas till raglan på varje sida av 2 maskor slätstickning vid varje markör så här: Sticka 1 maska förbi den första markören, gör 1 omslag om stickan. Sticka tills det återstår 1 maska före nästa markör, gör 1 omslag om stickan. Öka så vid varje markör. De ökade maskorna stickas vridet räta på nästa varv. Sedan stickas de nya maskorna in i mönstret.
02.11.2022 - 14:48
Christina skrifaði:
I oppskriften står det "Mønsteret vil ikke nødvendigvis gå opp hele veien rundt, 2 masker på hver side av hvert merke strikkes i glattstrikk og de resterende maskene tilpasses i forhold til mønsteret på forstykket og bakstykket." Betyr det at de 4 maskene skal strikkes i glattstrikk hele veien, altså hver omgang, eller bare første omgang?
07.10.2022 - 21:34DROPS Design svaraði:
Hei Christina, 4 masker i hver side (2 masker på hver side av begge merkene) er strikket i glattstrikk hver omgang. God fornøyelse!
10.10.2022 - 06:57
Baconnet skrifaði:
Bonjour Comment adapter le modèle en XS pour notamment pour la largeur ? Ou auriez-vous le schéma de ce pull avec ses mesures comme c’est le cas souvent pour vos patrons ? Bien cordialement. Françoise
02.10.2022 - 19:43DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Baconnet, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande, vous trouverez toutefois tous nos modèles de pulls avec ce type de tension et en taille XS ici, cela pourra probablement vous aider à adapter à la bonne taille. Bon tricot!
03.10.2022 - 09:53
Jennifer A skrifaði:
Hej, ser att diagram 1. saknas i mönsterbeskrivningen. Kan ni lägga in detta igen?
19.09.2022 - 09:41DROPS Design svaraði:
Hej Jennifer, jo Diagram A.1 ligger till höger om måttskissen :)
20.09.2022 - 15:16
Nancy Gardner skrifaði:
I am knitting your Provence Dream sweater and at the point where it says to divide for the body and sleeves, it says cast on 6 stitches UNDER THE SLEEVE. What does this mean? I am an experienced knitter and I have never seen this particular instruction and have no idea how to do this. Can you explain please?
17.09.2022 - 23:12DROPS Design svaraði:
Dear Nancy, it's a very common technique when working in the round. You can check how to work these stitches in the following video; after casting on, continue working the stitches in the next part of the body. https://www.garnstudio.com/video.php?id=94&lang=en. Happy knitting!
18.09.2022 - 18:40
Alixandra skrifaði:
I'm a UK 8-10 what size would I need to knit it in ? I can't seem to find the measurements for the sizes?
02.09.2022 - 15:50DROPS Design svaraði:
Dear Alixandra, you can find the measurements in cm for each size under the pattern instructions, in the measurement schematic drawing. You can check how to read this drawing here: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=24&cid=19. Happy knitting!
02.09.2022 - 18:13
Marion skrifaði:
Hej, på garnet står det att man ska handtvätta garnet i 30 grader, kan man tvätta sin färdiga tröja i tvättmaskinen på handtvättsprogrammet 30 grader?
04.08.2022 - 16:18DROPS Design svaraði:
Hej Marion, ja på eget ansvar og hvis du er sikker på din maskine :) man kan altid prøve med en lille strikkeprøve. Sørg for at vaske separat med ull-tvättmedel (inget sköljmedel) :)
05.08.2022 - 12:07
Stephanie Hannah skrifaði:
Is the sweater a bit oversized or is the model wearing a size that is too big for her. I like the sweater,but prefer it to have a more standard fit.
04.08.2022 - 00:26DROPS Design svaraði:
Hi Stephanie, There is a size chart at the bottom of the pattern so you can choose the size you wish to make. Happy crafting!
04.08.2022 - 07:16
Helga Eitel skrifaði:
Nachdem ich nun mehrmals bis zum Doppelkragen aufgeribbelt habe muss ich noch eine Frage zu den Raglanzunahmen stellen die in jeder 2. Reihe erfolgen sollen: Zählt die Zunahmereihe als 1. Reihe? Die zweite wäre dann die Reihe in welcher ich die Umschläge verschränkt stricken muss. In dieser Reihe wieder Umschläge stricken? Dann doch eher in der 3. Reihe, oder sehe ich das falsch? Bitte helfen Sie mir nochmals. Vielen Dank dafür.
28.05.2022 - 10:02DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Eitel, Sie stricken zuerste die 1. Runde der Passe mit Muster und Markierer, dann bei der 2. Reihe in A.1 beginnen die Raglanzunahmen. So werden die Raglanzunahmen in jede gerade Reihe in A.1 (2. 4. 6. usw Reihe) entstehen. Diese Maschen stricken Sie im Muster, so daß das Muster sich verbreiten wird (die Zunahmen am Anfang dem Teil wird wie die vorrige Masche im Diagram gestrickt werden und die Zunahmen am Ende dem Teil wird wie die nächste Masche im Diagram gestrickt werden). Viel Spaß beim stricken!
30.05.2022 - 07:51
Helga Eitel skrifaði:
Ich habe mit Musterzeichnungen meine Probleme, daher meine Frage: Was bedeutet die 4 unterhalb der Zeichnung? Ist es richtig dass es sich um das große Perlmuster handelt welches hier 2 M. Re., 2 M. li, 2 Reihen rechte Maschen und dann versetzt gestrickt wird? Vielen Dank.
25.05.2022 - 09:21DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Eitel, es bedeutet, daß das Muster über 4 Maschen gestrickt bzw wiederholt wird. A.1 wird bei der 1. bzw 2. Runde so gestrickt: 1 re, 2 li, 1 re, bei der 3. + 4. Runde stricken Sie alle Maschen rechts, bei der 5. + 6. Runde stricken Sie: 1 li, 2 re, 1 li, bei der 7. + 8. Runde stricken Sie alle Maschen rechts; diese 8 Runden wiederholen Sie so. Viel Spaß beim stricken!
25.05.2022 - 16:22
Provence Dream#provencedreamsweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, perluprjóni og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 230-15 |
|||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. LASKALÍNA: Aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við 2 lykkjur sléttprjón við hvert prjónamerki þannig: Prjónið 1 lykkju fram hjá fyrsta prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan næsta prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið svona út við hvert prjónamerki. Útauknar lykkjur eru prjónaðar snúnar slétt í næstu umferð. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í mynstur. ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna ofan frá og niður, síðan skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 100-100-110-120-120-130 lykkjur á hringprjón 4,5 með DROPS Air. Prjónið stroff hringinn (3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stykkið mælist 4 cm. Prjónið 1 umferð stroff og fækkið lykkjum þannig: * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 80-80-88-96-96-104 lykkjur. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til stykkið mælist 16 cm frá uppfitjunarkanti, síðar á að brjóta stroffið saman tvöfalt þannig að það verði tvöfaldur kantur í hálsmáli ca 8 cm. Prjónið 1 umferð slétt. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Setjið eitt prjónamerki í stykkið í byrjun á umferð. Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið JAFNFRAMT er prjónað þannig: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, prjónið 1 lykkju sléttprjón, prjónið 12 lykkjur í mynstri A.1 (ermi), prjónið 2 lykkjur sléttprjón og setjið 1 prjónamerki á milli þessa 2 lykkja, prjónið 24-24-28-32-32-36 lykkjur í mynstri A.1 (framstykki), prjónið 2 lykkjur sléttprjón og setjið 1 prjónamerki á milli þessa 2 lykkja, prjónið 12 lykkjur í mynstri A.1 (ermi), prjónið 2 lykkjur sléttprjón og setjið 1 prjónamerki á milli þessa 2 lykkja og prjónið 24-24-28-32-32-36 lykkjur í mynstri A.1 (bakstykki), prjónið 1 lykkju sléttprjón. LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM! Í næstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan og haldið er áfram með mynstur A.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 21-24-26-28-31-33 sinnum = 248-272-296-320-344-368 lykkjur. Prjónið mynstur eins og áður án útaukninga þar til stykkið mælist 21-23-24-26-28-30 cm frá prjónamerki. Nú skiptist stykkið fyrir ermar og fram- og bakstykki frá byrjun á umferð (á milli bakstykkis og ermi) þannig: Prjónið 4-3-2-2-4-4 lykkjur (bakstykki), setjið næstu 48-56-62-66-68-72 lykkjur á þráð (ermi), fitjið upp 6-6-8-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn í hlið undir ermi, prjónið 76-80-86-94-104-112 lykkjur (framstykki), setjið næstu 48-56-62-66-68-72 lykkjur á þráð (ermi), fitjið upp 6-6-8-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn í hlið undir ermi og prjónið síðustu 72-77-84-92-100-108 lykkjur (það eru alls 76-80-86-94-104-112 lykkjur á bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 164-172-188-204-224-240 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið. Haldið áfram hringinn með mynstri A.1. Mynstrið kemur ekki til með ganga jafnt upp alla leiðina hringinn, 2 lykkjur hvoru megin við hvert prjónamerki eru prjónaðar í sléttprjóni og þær lykkjur sem eru eftir stillast af miðað við mynstur á framstykki og bakstykki. Þegar stykkið mælist ca 4 cm frá skiptingu er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með ca 6-7-6-6-7-5 cm millibili alls 4-3-4-4-3-4 sinnum = 148-160-172-188-212-224 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist ca 25-25-26-26-25-25 cm frá skiptingu – stillið af að endað sé með 2 umferðir sléttprjón (eða prjónið að óskaðri lengd, þar til ca 5 cm eru eftir að loka máli). Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist ca 55-57-59-61-63-65 cm frá öxl. ERMI: Setjið 48-56-62-66-68-72 lykkjur af öðrum þræðinum á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 5, prjónið að auki upp 6-6-8-8-8-8 lykkjur í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið á fram- og bakstykki = 54-62-70-74-76-80 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í miðju af 6-6-8-8-8-8 nýjum lykkjum sem prjónaðar voru upp undir ermi = byrjun á umferð. Haldið áfram hringinn með mynstri A.1, mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp alla leiðina hringinn, 2 lykkjur hvoru megin við prjónamerki eru prjónaðar í sléttprjóni og þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar eins og áður. Þegar stykkið mælist ca 3 cm frá skiptingu er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – munið eftir ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með ca 4-2½-1½-1½-1½-1 cm millibili alls 7-11-15-15-16-18 sinnum = 40-40-40-44-44-44 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist ca 35-34-33-31-30-28 cm frá skiptingu – stillið af að endað sé með 2 umferðir sléttprjón (eða prjónið að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 5 cm að loka máli). Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur í næstu umferð. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #provencedreamsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.