Christine skrifaði:
So after I have 96 sts on my needle i Work 8 stitches in stockinette stitch, 1 yarn over, A.1a, 1 yarn over, 8 stitches in stockinette stitch, 1 yarn over, A.2a, 1 yarn over, 16 stitches in stockinette stitch, 1 yarn over, A.1a, 1 yarn over, 8 stitches in stockinette stitch, 1 yarn over, A.2a, 1 yarn over, 8 stitches in stockinette stitch. And repeat that for 18 more times? Also what does 2nd round mean?in increase 1 stitch on each side of A.1a/A.2a every 2nd round a total of 19 time
21.03.2022 - 16:37DROPS Design svaraði:
Dear Christine, your first round is correct, on next round, workd: knit 9 , work row 1 in A.1a (= P1, K8, P1), knit 10, work row 1 in A.2a (= P1, K8, P1), knit 18, work row 1 in A.1a, knit 10, work row 1 in A.2a, knit 9. On next round increase with a yarn over before and after each A.1a/A.2a and work round 3 in diagram. Continue like this increasing 8 sts on every other round. Can this help?
22.03.2022 - 09:44
Christine skrifaði:
Ncrease 1 stitch on each side of A.1a/A.2a every 2nd round a total of 19-23-21-25-26-31 times = 240-272-272-304-328-368 stitches. Repeat A.1a and A.2a in height. Would you explain this part?
21.03.2022 - 02:02DROPS Design svaraði:
Dear Christine, on first row in A.1 and A.2 you will increase 2 sts in each A.1/A.2 (to keep the correct width); for the raglan you increase on either side of the diagrams but after whole diagram are done in height, repeat only the -a part = 10 rows ( = cross the stitches every 10th row). Can this help? Happy knitting!
21.03.2022 - 09:09
Christine skrifaði:
Hello! Would you please explain in details the step after I have 96 stitches in the yoke ? Dont understand how it will reach 240. Thank you!
21.03.2022 - 01:50DROPS Design svaraði:
Dear Christine, you start with 80 sts in first size; on the first round on yoke you work A.1/A.2 increasing 2 sts in each diagram (= 2 sts x 4 = 8 sts) and increasing 8 sts for raglan (1st raglan increase) = 96 sts. Now continue working A.1-A.2 (see previous answer about diagrams) increasing now only for raglan 18 more times (= 19 times in total), ie 96 + 8stsx18 = 240 stitches. Happy knitting!
21.03.2022 - 09:40
Nancy Flores skrifaði:
Buenos días donde están los diagramas por favor saludos desde chile
11.03.2022 - 13:32DROPS Design svaraði:
Hola Nancy. El diagrama ya está publicado
11.03.2022 - 17:46
Karine skrifaði:
Bonjour, Je viens de lire les explications du modèle Nature Lyrics, pour l'empiècement je ne retombe pas sur le même nombre de mailles pour la taille L. J'ai bien les 112 m de départ mais en augmentant 21 fois de chaque côte des torsades (21x8=168) j'arrive à 280 m et non pas 272 m. J'ai 8 mailles de plus ce qui pose problème pour la suite du tricot. Soit j'ai mal compris, soit il y a une erreur , j'attends votre retour pour me lancer. Merci. Cordialement.
05.03.2022 - 11:03DROPS Design svaraði:
Bonjour Karine, la 1ère augmentation du raglan a été faite lorsque vous augmentez dans A.1 (= 112 m à la fin de ce tour), autrement dit vous augmentez encore 20 fois pour un total de 21 fois pour le raglan. soit 112 + 8 x 20 = 272 ou 96 + 21x8 + 4 x 2 m (augm A.1/A.2) = 272 m. Bon tricot!
07.03.2022 - 08:31
Ulla skrifaði:
Jeg vil gerne strikke str L men jeg synes 96 m til halskanten er for stort. Er det muligt at starte med mindre maskeantal og så tage dem ud inden raglanærmet starter. Jeg vil også gerne lave en forhøjning i nakken da jeg synes trøjen sidder bedre.
01.03.2022 - 14:11DROPS Design svaraði:
Hej Ulla, ja selvfølgelig kan du det, du kan evt finde en opskrift med samme strikkefasthed til halsen :)
02.03.2022 - 12:11
Josephine skrifaði:
Spring
18.01.2022 - 19:24
Ineke skrifaði:
Naughty lime
18.01.2022 - 14:30
Wilma skrifaði:
Summer grass
18.01.2022 - 08:26
Lena skrifaði:
Flot sweater med flotte snoninger, længde ser fin ud, den vil jeg bestemt strikke til mig selv 😊
16.01.2022 - 22:40
Nature Lyrics#naturelyricssweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, tvöföldum kanti í hálsmáli og köðlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 230-12 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 80-80-96-96-112-112 lykkjur á stuttan hringprjón 4 með 2 þráðum DROPS Alpaca. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff þannig: 1 lykkja brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 lykkja brugðið. Haldið svona áfram með stroff í 9 cm. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð mitt að aftan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Í næstu umferð er prjónað mynstur og aukið út fyrir laskalínu þannig: Prjónið 8-8-12-12-16-16 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 16-16-24-24-32-32 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8-8-12-12-16-16 lykkjur sléttprjón. Nú eru 96-96-112-112-128-128 lykkjur þegar fyrsta umferð í A.1/A.2 hefur verið prjónuð. Þ.e.a.s. 1 lykkja fleiri fyrir laskalínu hvoru megin við hvert A.1/A.2 og 2 lykkjur fleiri í hverri A.1/A.2. Uppslátturinn í A.1/A.2 er prjónaður áfram slétt svo ekki myndist gat, uppslátturinn sem er eftir er ekki prjónaður snúinn (það eiga að myndast göt). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.1a/A.2a fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 19-23-21-25-26-31 sinnum = 240-272-272-304-328-368 lykkjur. Mynstur A.1a og A.2a er endurtekið á hæðina. Prjónið sléttprjón og mynstur A.1a/A.2a þar til stykkið mælist 21-23-25-27-29-31 cm frá prjónamerki. Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 27-31-33-37-42-47 lykkjur sléttprjón og A.1a eins og áður (10 lykkjur), setjið næstu 46-54-50-58-60-70 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi, prjónið A.2a eins og áður (10 lykkjur), 54-62-66-74-84-94 lykkjur sléttprjón, A.1a eins og áður (10 lykkjur), setjið næstu 46-54-50-58-60-70 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi, prjónið A.2a eins og áður (10 lykkjur), 27-31-33-37-42-47 lykkjur sléttprjón. Klippið þráðinn. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 164-180-192-208-232-252 lykkjur. Byrjið umferð mitt í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir erm. Haldið áfram í sléttprjóni og A.1a/A.2a, lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar fram- og bakstykkið mælist 24 cm frá skiptingu í öllum stærðum, aukið út í næstu umferð þannig: Prjónið 4-4-5-5-6-6 lykkjur sléttprjón og aukið út um 0-0-1-1-0-0 lykkjur, A.3 yfir A.2a, 54-62-66-74-84-94 lykkjur sléttprjón og aukið út um 10-10-14-14-16-18 lykkjur jafnt yfir, A.3 yfir A.1a, 8-8-10-10-12-12 lykkjur sléttprjón og aukið út um 0-0-2-2-0-0 lykkjur, A.3 yfir A.2a, 54-62-66-74-84-94 lykkjur sléttprjón og aukið út um 10-10-14-14-16-18 lykkjur jafnt yfir, A.3 yfir A.1a, 4-4-5-5-6-6 lykkjur sléttprjón og aukið út um 0-0-1-1-0-0 lykkjur = 192-208-232-248-272-396 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff þannig:‘ Stærð S-M: 1 lykkja brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 lykkja brugðið. Stærð L-XL-XXL-XXXL: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1 lykkju slétt. Prjónið stroff í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum. ERMI: Setjið 46-54-50-58-60-70 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 54-62-60-68-72-82 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona með 8-4-5-2½-2-1 cm millibili alls 4-7-5-8-9-13 sinnum = 46-48-50-52-54-56 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 30-29-25-24-21-20 cm. Í næstu umferð er aukið út um 6-8-6-8-6-8 lykkjur jafnt yfir = 52-56-56-60-60-64 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Fellið af með sléttum lykkjum þega stroffið mælist 6 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #naturelyricssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.