Annamaria Evangelisti skrifaði:
Si ho ripreso 64 maglie in totale
03.02.2024 - 14:11DROPS Design svaraði:
Buonasera Annamaria, non ci sono errori nel numero di maglie da riprendere: magari la sua tensione è cambiata riprendendo le maglie, può provare con un numero di ferri maggiore. Buon lavoro!
17.03.2024 - 18:36
Annamaria Evangelisti skrifaði:
Si tutte le misure corrispondono, il problema è solo nel collo
03.02.2024 - 12:13DROPS Design svaraði:
Buongiorno Annamaria, ha considerato anche le maglie in sospeso? Buon lavoro!
03.02.2024 - 14:08
Annamaria Evangelisti skrifaði:
Si, tutto corrisponde
03.02.2024 - 11:56
Annamaria Evangelisti skrifaði:
Si, tutto corrisponde
03.02.2024 - 11:51
Annamaria Evangelisti skrifaði:
Ho lavorato il modello seguendo le istruzioni per la taglia S. Ho un problema con il collo che risulta stretto, più piccolo della testa. Devo riprendere più maglie delle 64 indicate? Grazie per l' attenzione
03.02.2024 - 11:43DROPS Design svaraði:
Buongiorno Annamaria, il suo campione corrispondeva a quello indicato? Buon lavoro!
03.02.2024 - 11:49
Soft Journey#softjourneysweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca Bouclé og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni, klauf í hliðum og ¾ langar ermar. Stærð S - XXXL.
DROPS 230-9 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 93 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim 91 lykkju sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 23) = 3,9. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 3. og 4. hverja lykkju slétt saman. ÚTAUKNING (á við um ermar): Öll útaukning er gerð frá réttu! Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykkið og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, hvort fyrir sig. Bakstykkið er 3 cm lengra en framstykkið. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna. Öll stykkin eru prjónuð neðan frá og upp. Frágangur á peysunni er útskýrður í uppskrift. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli í hring á hringprjóna. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 93-102-108-120-129-144 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1 þannig að stroffið verði alveg eins í hvorri hlið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 10 cm. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 23-26-26-30-31-36 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 70-76-82-90-98-108 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið sléttprjón fram og til baka, jafnframt er fitjuð upp 1 ný lykkja í lok næstu 2 umferða (= kantlykkjur) = 72-78-84-92-100-110 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm, fellið lykkjur af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2-3-4-5-5-5 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 0-0-0-1-2-4 sinnum og 1 lykkja 1-2-2-2-2-2 sinnum = 66-68-72-74-78-80 lykkjur. Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 44-46-48-49-51-53 cm, setjið miðju 10-10-12-12-14-14 lykkjurnar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af lykkjur í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 3 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 2 sinnum = 20-21-22-23-24-25 lykkjur fyrir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist alls 50-52-54-56-58-60 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. BAKSTYKKI: Fitjið upp 93-102-108-120-129-144 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkju í A.1 þannig að stroffið verði alveg eins í hvorri hlið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 13 cm. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 23-26-26-30-31-36 lykkjur jafnt yfir = 70-76-82-90-98-108 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið sléttprjón fram og til baka, jafnframt er fitjuð upp 1 ný lykkja í lok næstu 2 umferða (= kantlykkjur) = 72-78-84-92-100-110 lykkjur. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, fellið lykkjur af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2-3-4-5-5-5 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 0-0-0-1-2-4 sinnum og 1 lykkja 1-2-2-2-2-2 sinnum = 66-68-72-74-78-80 lykkjur. Prjónið sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, setjið miðju 24-24-26-26-28-28 lykkjurnar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 20-21-22-23-24-25 lykkjur fyrir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist alls 53-55-57-59-61-63 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 54-57-60-66-69-72 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkjuna í A.1 þannig að stroffið verði alveg eins í hvorri hlið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroffið í 5 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 12-13-13-16-16-16 lykkjur jafnt yfir = 42-44-47-50-53-56 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 8 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 13-13-12-11-11-10 cm = 46-48-51-54-57-60 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 19-18-16-15-15-11 cm. Aukið nú út alveg eins í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 4-4-5-5-6-6 sinnum = 54-56-61-64-69-72 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 28-27-26-25-25-22 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Prjónið nú sléttprjón, jafnframt eru lykkjur felldar af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2-3-4-5-5-5 lykkjur 1 sinni, 3-2-2-2-2-2 lykkjur 3-4-5-6-6-8 sinnum og 6-7-6-4-6-3 lykkjur 1 sinni = 20-20-21-22-23-24 lykkjur eftir. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 34 cm í öllum stærðum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju garðaprjón á fram- og bakstykki og innan við affellingarkant á ermakúpu. Saumið sauminn undir ermum og síðan niður yfir hliðarsauma innan við 1 kantlykkju niður þar sem stroffið byrjar. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp 64-64-70-72-75-75 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í kringum hálsmál á stuttan hringprjón 4,5 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið sléttprjón hringinn í 9 cm. Fellið af – sjá AFFELLING. Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #softjourneysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 230-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.