Nicole skrifaði:
Bonjour J'aimerai savoir quel taille choisir? Il faut choisir sa taille habituelle? Merci
26.03.2022 - 13:47DROPS Design svaraði:
Bonjour Nicole, tout à fait, vous trouverez dans l'en-tête les pointures et la longueur de pied correspondante. Bon tricot!
28.03.2022 - 08:41
Guinha skrifaði:
Thanks for the quick response, but I'm still confused. 11 rows total, starting with row wrong side and finishing with row right side? Could you please explain like this: Row 1 wrong side knit, Row 2 right side knit, Row 3 wrong side knit, Row 4 right side decrease, Row 5 wrong side knit, Row 6 right side knit, Row 7 wrong side knit, Row 8 right side decrease, and then what do I do? I'm lost... Sorry for not getting it
31.01.2022 - 07:27DROPS Design svaraði:
Dear Guinha, starting from WS work: R1: K from WS; R2: K from RS decreasing 1 st on each side, R3: K from WS; R4: K from RS; repeat row 1 to 4 one more time = you have cast off 4 sts in total. Knit 1 more row from WS, 1 more row from RS and cast off on next row from WS. Happy knitting!
31.01.2022 - 10:21
Guinha skrifaði:
Hi, could you please explain how to knit the flap. Do I start knitting on the wrong side? How many rows in total is the flap?
30.01.2022 - 04:31DROPS Design svaraði:
Dear Guinha, the flap is worked back and forth, starting on the wrong side. You should work 11 rows, according to the pattern. Happy knitting!
31.01.2022 - 00:25
Tina skrifaði:
Hi, can I use straight single pointed needles for the back and forth stockinette stitch please? Or the circular needles are recommended for a specific reason... thank you :)
12.12.2021 - 20:22DROPS Design svaraði:
Dear Tina, of cours you can use straight, single pinted stitches, Cirs are used on the modell because they are more accesible these days, and many prefer them, but no reason not to knit with straights if they are more confortable for you. Happy Stitching!
13.12.2021 - 04:02
Meadow Meanderings#meadowmeanderingsslippers |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónaðar og þæfðar tátiljur fyrir herra úr DROPS Alaska. Stærð 26-46.
DROPS 224-33 |
|||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Prjónið 1 lykkju framhjá 1. merki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan 2. merki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur (2. merki situr á milli þessa 2), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan 1. merki, sláið 1 sinni uppá prjóninn = 4 lykkjur fleiri. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 – mynsturteikning sýnir prjónstefnu og hvernig tátiljan er saumuð saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- ÞÆFÐAR TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tátiljan er prjónuð frá tá. Fyrst er prjónað í hring á sokkaprjóna, stykkinu er skipt ofan á rist og prjónað er fram og til baka á hringprjóna að loka máli. Hællinn er saumaður saman fyrir miðju að aftan og stykkið er þæft. TÁTILJA: Fitjið upp 8 lykkjur á sokkaprjóna 5,5 með DROPS Alaska. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið 2 merki í stykkið án þess að prjóna, setjið 1. merki í byrjun á umferð og 2. merki á eftir 4 lykkjur – látið merkin fylgja með í stykkinu. Nú er prjónað sléttprjón hringinn og það eru auknar út 4 lykkjur í næstu umferð – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Aukið svona út í hverri umferð alls 6-6-7-7-8-9-10 sinnum = 32-32-36-36-40-44-48 lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 6-7-8-10-12½-15½-18½ cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 0-2-0-2-2-2-2 lykkjur jafnt yfir allar lykkjur á milli 1. og 2. merkis (þ.e.a.s. frá byrjun á umferð og fram að 2. merki) = 32-34-36-38-42-46-50 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 12-12-13½-15-18-22-26 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið 3-3-2-2-3-4-4 lykkjur slétt, fellið af 1 lykkju, prjónið 8-10-12-14-14-14-16 lykkjur slétt og setjið þessar lykkjur á þráð (= tunga), fellið af 1 lykkju, prjónið 19-19-20-20-23-26-28 lykkjur slétt og prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 3-3-2-2-3-4-4 lykkjur einu sinni til viðbótar = 22-22-22-22-26-30-32 lykkjur í umferð. NEÐRI HLIÐ: Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið á stykki. Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 1 lykkju með 1 uppslætti innan við kantlykkju í hvorri hlið. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið -það eiga ekki að myndast göt. Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 5-5-6-6-7-6-7 sinnum í hvorri hlið = 32-32-34-34-40-42-46 lykkjur. Prjónið fram og til baka í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist alls 21-22-25-28-30-34-38½ cm og næsta umferð er frá réttu er lykkjum fækkað fyrir miðju á stykki til að gera rúnaðari hæl þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 14-14-15-15-18-19-21 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt saman 2 sinnum og prjónið 14-14-15-15-18-19-21 lykkjur = 30-30-32-32-38-40-44 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið eins og áður frá röngu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 13-13-14-14-17-18-20 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt saman 2 sinnum og prjónið 13-13-14-14-17-18-20 lykkjur = 28-28-30-30-36-38-42 lykkjur. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið eins og áður frá röngu. Fellið af allar lykkjur með sléttum lykkjum í næstu umferð. Stykkið mælist alls 23-24-27-30-32-36-40½ cm frá uppfitunarkanti. TUNGA: Setjið til baka 8-10-12-14-14-14-16 lykkjur af þræði á sokkaprjóna 5,5. Prjónið fram og til baka í garðaprjóni og fækkið lykkjum í næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 2 ystu lykkjur í hvorri hlið slétt saman. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð alls 2 sinnum = 4-6-8-10-10-10-12 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá réttu og fellið af með sléttum lykkjum í næstu umferð frá röngu. Prjónið aðra tátilju á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið stykkið saman þannig að affellingarkantur aftan á hæl liggi kant í kant. Sjá mynsturteikningu A.1 sem sýnir hvernig tátiljan er saumuð saman. Saumið saman í ystu lykkjubogana svo saumurinn verði ekki þykkur. Þræðið þráð í gegnum lykkjur frá uppfitjunarkanti, herðið á þræði og festið vel. ÞÆFING: Verkið má þæfa í þvottavél eða þurrkara – lesið útskýringarnar hér að neðan. Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og hver önnur ullarflík Í ÞVOTTAVÉL: Þvottavélar þæfa mismunandi. Ef stykkið hefur þæfst of lítið skaltu bleyta það og prófa að þæfa það aftur. Ef stykkið hefur þæfst of mikið skaltu teygja stykkið í rétta stærð á meðan það er enn blautt GERIÐ ÞANNIG: Settu stykkið í þvottavélina, notaðu þvottakerfi sem tekur um 40 mínútur (ekki ullarþvottakerfi). Þvoðu við 40°C án forþvottar - sápa er valfrjáls. Eftir þvott skaltu móta stykkið á meðan það er enn blautt. Í ÞURRKARA: Að þæfa stykki í þurrkara gefur góða stjórn á því hversu mikið stykkið þæfist. Hægt er að opna þurrkarann á meðan á ferlinu stendur til að athuga stærð verksins. Ef stykkið hefur þæfst of lítið skaltu bleyta það og prófa að þæfa það aftur. Ef stykkið hefur þæfst of mikið skaltu teygja stykkið í rétta stærð á meðan það er enn blautt. GERIÐ ÞANNIG: Leggið stykkið allt í bleyti í vatn. Setjið stykkið síðan í þurrkara og byrjið að þurrka. Þurrkið þar til stykkið er í þeirri stærð sem óskað er eftir - athugið á meðan á ferlinu stendur. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #meadowmeanderingsslippers eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 224-33
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.