Maura Tavella skrifaði:
Buongiorno, per cortesia avrei bisogno di un chiarimento: sto provando a fare questo modello, ma con i ferri diritti perchè i circolari non li so usare. ho letto da qualche parte che si deve dividere a metà i punti totali. ho avviato 88 maglie per la taglia L, ma quando ho fatto tutte le diminuzioni per lo scalfo, mi rimangono 66 maglie e non 72 come da voi indicato. Come mai? Vi ringrazio se vorrete chiarirmi e cordiali saluti.
17.01.2022 - 00:53DROPS Design svaraði:
Buonasera Maura, se sta lavorando in piano alla fine del paragrafo CORPO si ritrova con 82 maglie, poi può proseguire con le istruzioni riportate per il DIETRO. Buon lavoro!
18.01.2022 - 22:53
Erika skrifaði:
Hvor stor , f eks. brystmål, er størrelserne. Mvh Erika
06.01.2022 - 23:34DROPS Design svaraði:
Hej Erika, du finder målene i måleskitsen nederst i opskriften, du ganger de 44-48-x-x-x cm med 2 for at få omkredsen/brystmål
13.01.2022 - 11:53
Hennie skrifaði:
Hoeveel steken meer opzetten wanneer ik alleen een hoefijzer kabel in het voorpand brei?
19.12.2021 - 14:07DROPS Design svaraði:
Dag Hennie,
Helaas is het voor ons niet mogelijk om patronen aan te passen naar persoonlijke wensen. Je zou kunnen kijken bij een patroon met een dergelijke kabel hoeveel steken er gemeerderd worden voordat de kabel start en die steken extra opzetten (of meerderen na de boord).
19.12.2021 - 18:57
Aline skrifaði:
Dankuwel😉
11.12.2021 - 13:59
Aline skrifaði:
Geachte Ik kan niet breien met rondbreinaalden. Mag ik u vragen om mij de instructies /werkwijze om deze trui met 2 naalden (226-28)te breien aub? Alvast bedankt Mvg Aline
06.11.2021 - 16:48DROPS Design svaraði:
Dag Aline,
Om een patroon aan te passen om op rechte naalden te breien hebben we een instructie gemaakt. Deze vind je hier.
11.11.2021 - 07:48
Susanne skrifaði:
Autumn Jade
02.09.2021 - 19:55
Hanna skrifaði:
Moss in the woods
12.08.2021 - 18:48
Apikin skrifaði:
Il est parfait ...jusqu'à la couleur !
04.08.2021 - 18:32
Serene Forest#sereneforestsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 226-28 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni (= 2 lykkjur fleiri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna upp að handveg, síðan skiptist stykkið og framstykkin og bakstykkið er prjónað til loka hvert fyrir sig. Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. Stykkið skiptist þegar fellt er af fyrir ermakúpu og síðan er prjónað fram og til baka. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 148-164-176-192-216-236 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjón 5. Haldið áfram í sléttprjóni hringinn yfir allar lykkjur, ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, prjónið næstu umferð þannig – fellið nú af fyrir handveg og framstykki/bakstykki er prjónað til loka hvort fyrir sig: Prjónið 68-76-82-90-102-112 lykkjur, fellið af 6 lykkjur, prjónið 68-76-82-90-102-112 lykkjur, fellið af 6 lykkjur, hvort stykki er nú prjónað til loka fyrir sig, fram og til baka. Setjið fyrstu 68-76-82-90-102-112 lykkjur á þráð og prjónið síðan yfir síðustu 68-76-82-90-102-112 lykkjur á bakstykki eins og útskýrt er að neðan. BAKSTYKKI: = 68-76-82-90-102-112 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni fram og til baka, JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið: Fellið af 2 lykkjur 1-1-1-2-3-4 sinnum og 1 lykkja 0-2-3-4-6-7 sinnum = 64-68-72-74-78-82 lykkjur. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af miðju 24-26-28-30-32-34 lykkjur fyrir hálsmáli og axlirnar eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð við hálsmál = 19-20-21-21-22-23 lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm (= 19-20-21-22-23-24 cm frá skiptingu fyrir handveg), fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 68-76-82-90-102-112 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni fram og til baka, JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið: Fellið af 2 lykkjur 1-1-1-2-3-4 sinnum og 1 lykkja 0-2-3-4-6-7 sinnum = 64-68-72-74-78-82 lykkjur. Þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm, setjið miðju 18-20-22-24-26-28 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og axlirnar eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig. Fellið síðan af lykkjur í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 19-20-21-21-22-23 lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm (= 19-20-21-22-23-24 cm frá skiptingu fyrir handveg), fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, í hring á sokkaprjóna/hringprjóna. Stykkið skiptist þar sem lykkjur voru felldar af fyrir ermakúpu og síðan er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 48-50-52-54-56-58 lykkjur á sokkaprjón 4 með Air. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stykkið mælist 4 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 5 og prjónið sléttprjón. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Haldið áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 10-8-6-4-3½-2½ cm millibili alls 4-5-6-8-9-11 sinnum = 56-60-64-70-74-80 lykkjur. Þegar stykkið mælist 43-42-42-42-41-39 cm, fellið af 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki (= 6 lykkjur felldar af mitt undir ermi), prjónið síðan ermina fram og til baka. ATH! Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari axla og lengri ermakúpu. Fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 3-3-3-3-3-4 sinnum og 1 lykkja 1-2-2-2-3-3 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkju í hvorri hlið þar til ermin mælist 50 cm í öllum stærðum, fellið síðan af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið, fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 51 cm í öllum stærðum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu við annan axlasauminn. Notið stutta hringprjóna 4 og prjónið upp ca 64 til 82 lykkjur í kringum hálsmál, meðtaldar lykkjur á þræði að framan (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2). Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið stroffið niður efst í hálsi að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist uppábrot. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sereneforestsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-28
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.