Silvia Andrade skrifaði:
Não entendi a parte que diz para começar o diagrama mas repetir por 11 vezes o motivo de 6 malhas....perde me explicar, por favor?
04.06.2024 - 03:58DROPS Design svaraði:
Bom dia, O diagrama A.1 é composto por 6 malhas, daí estar especificado que se repetem essas 6 malhas 11 vezes na carreira, ou seja, a primeira carreira tem 11 motivos de 6 malhas (este motivo depois passa a ter mais malhas devido aos amentos que se vão fazer). Bons tricôs!
04.06.2024 - 11:16
June Fletcher skrifaði:
Does this jumper really only require 100g of the grey for the smallest size ? That seams a very small amount , thanks June
17.01.2024 - 15:53DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Fletcher, correct, in first size you need only 100 g DROPS Air due to the meterage of the yarn, use the yarn converter to see how much yarn you would need using another one. Happy knitting!
18.01.2024 - 08:28
Heini skrifaði:
Neuloin koon 3/4 -vuotiaalle. Ostin ohjeessa käytettyä lankaa ohjeessa annetun määrän. Lanka loppui kesken. Onneksi saatoin jatkaa puseron hihoja ja helmaa kuviovärillä. Kuvioväri tuli näin käytettyä loppuun. Jämälankoja ei jäänyt, mikä sinänsä on hyvä asia.
03.09.2023 - 09:55
Marla Spencer skrifaði:
Now I understand. I thought the yarn converter was used when you wanted to change to a yarn in a different group. I became confused though when I saw that the skeins in group C varied in length…..thus my question. It all makes sense now. I’m sorry for my confusion. Thank you for your patience.
02.03.2023 - 13:52DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Spencer, you are very welcome, do not hesitate to come back if you have any further question. Happy knitting!
02.03.2023 - 15:00
Marla Spencer skrifaði:
I don’t want to replace the yarn. The yarn converter suggested in the answer above doesn’t help. I want to know how much yarn I need for size 7/8 in the group C Big Merino maroon mix 12.
01.03.2023 - 22:46DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Spencer, this jumper and the hat are both worked with DROPS Air, if you want to use Big Merino instead, you have to use the yarn converter to check the new amount of yarn, So that you will need in size 7/8 150 g DROPS Air or 300 g DROPS Big Merino main colour and 50 g Air or 100 g Big Merino in a contrasted colour. Happy knitting!
02.03.2023 - 10:57
Marla Spencer skrifaði:
I have chosen pattern Merry Hearts sweater(size 7/8 and yarn from group C DROPS Big Merino maroon mix 12 for the main color and Big Merino off white uni color 01 for the hearts. How much yarn do I need.
20.02.2023 - 19:56DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Spencer, use our Yarn converter it will calculate the new required amount of yarn. Happy knitting!
21.02.2023 - 10:30
Elin Nybø skrifaði:
Følgende står under avsnittet om Erme, og gir ikke mening: "Det er kortere mål i de større størrelsene pga videre hals og lengre bærestykke."
13.02.2023 - 16:30
Merry Hearts#merryheartssweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa og húfa / jólasveinahúfa fyrir börn úr DROPS Air. Peysan er prjónuð ofan frá og niður, með hringlaga berustykki og hjartamynstri. Húfan er prjónuð í sléttprjóni með stroffi. Þema: Jól.
DROPS Children 41-3 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 60 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 10. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 10. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi 9. og 10. hver lykkja slétt saman. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-3 (á við um húfu): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). Endurtakið við hvert prjónamerki. LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 60-64-64-68-68-72-76 lykkjur á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 4 með litnum milligrár í DROPS Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 5. BERUSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð mitt að aftan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-8-14-10-16-12-14 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 66-72-78-78-84-84-90 lykkjur. Prjónið nú eftir mynsturteikningu A.1 (= 11-12-13-13-14-14-15 mynstureiningar með 6 lykkjum). ATH! Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð og lestu LEIÐBEININGAR! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 176-192-208-208-224-224-240 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt með litnum milligrár, þar sem fækkað er um 4-8-12-8-12-4-8 lykkjur jafnt yfir = 172-184-196-200-212-220-232 lykkjur. Haldið áfram með litnum milligrár og sléttprjón þar til stykkið mælist ca 15-15-16-17-18-19-20 cm frá prjónamerki. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 25-27-29-30-32-33-34 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), setjið næstu 36-38-40-40-42-44-48 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 50-54-58-60-64-66-68 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 36-38-40-40-42-44-48 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 25-27-29-30-32-33-34 lykkjur sem eftir eru slétt (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 112-120-128-132-140-144-148 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni og með litnum milligrár. Prjónið þar til stykkið mælist ca 16-20-23-25-26-27-28 cm frá skiptingu (eða óskaðri lengd, nú eru eftir ca 3-3-3-4-4-4-4 cm að loka máli). Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3-3-3-4-4-4-4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING. Klippið þráðinn og festið. Peysan mælist ca 36-40-44-48-50-52-54 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 36-38-40-40-42-44-48 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 42-44-46-46-48-50-54 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn með litnum milligrár. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með 3-5-6-7-8-9-10 cm millibili alls 4 sinnum í öllum stærðum = 34-36-38-38-40-42-46 lykkjur eftir. Prjónið án úrtöku þar til ermin mælist 15-20-24-26-30-34-37 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 3-3-3-4-4-4-4 cm að loka máli. Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt og aukið jafnframt út 6-4-6-6-4-6-2 lykkjur jafnt yfir = 40-40-44-44-44-48-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-3-3-4-4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir LEIÐBEININGAR AFFELLING! Ermin mælist ca 18-23-27-30-34-38-41 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, frá stroffi og upp að topp á húfu. Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 96-100-104-108-112 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum natur í DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4-5-5-6-6 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-12-12-12-12 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 84-88-92-96-100 lykkjur. Skiptið yfir í litinn hindber og prjónið sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 18-19-19-19-20 cm frá uppfitjunarkanti, fækkið um 0-4-2-0-4 lykkjur jafnt yfir = 84-84-90-96-96 lykkjur. Setjið nú 6 prjónamerki í stykkið með 14-14-15-16-16 lykkjur á milli prjónamerkja. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju á undan hverju prjónamerki – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-3 (= 6 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 2-2-2-3-3 sinnum. Fækkið síðan lykkjum í 6.-7.-7.-7.-7. hverri umferð alls 10-10-11-11-11 sinnum = 12 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist alls ca 50-52-54-56-58 cm og prjónið allar lykkjur slétt saman 2 og 2 = 6 lykkjur. Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þráðinn og festið vel. DÚSKUR: Gerið einn dúsk ca 5 cm að þvermáli með litnum natur. Saumið dúskinn niður efst á húfu. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #merryheartssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 41-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.