Pia Backholm skrifaði:
Hej, På ärmarna stickar man tre rätt och tre fel o sedan skall man vid 23 cm öga med 2 maskor varje 2 cm (m storlek). Det går ju inte jämt ut när man stickar 3 rätt 3 fel. Hur skall man sticka dom nya maskorna? Mvh. Pia
14.11.2021 - 16:39DROPS Design svaraði:
Hej Pia. Nej mönstret kommer inte stämma hela vägen runt när du ökar under ärmen (det stämmer först när du ökat 6 maskor = en hel rapport). De ökade maskorna stickar du så att mönstret stämmer utifrån ärmen och in mot mitten (men mitt under kommer det alltså oftast inte stämma) som diagram A.3. Mvh DROPS Design
18.11.2021 - 09:14
Mara skrifaði:
Mooie trui maar snap niks van patroon. Wanneer averecht om blokjes te krijgen? Wanneer A2 en A3? Dit soort dingen staan nergens in het patroon. Ben na het halsboord gestopt. Erg jammer, vond hem erg leuk.
08.11.2021 - 07:40
München skrifaði:
This is a beautiful Pullover. When does this come out or is there a model like this already existing? High waste and slim style?.. Thank you so much for all your work.
01.10.2021 - 09:10
Courvasier Catherine skrifaði:
Ce modèle me plaît beaucoup et la laine aussi. Je vous remercie de bien vouloir nous donner la date de la mise en ligne des explications et du nombre de pelotes pour le tricoter. Remerciements, bien cordialement.
29.09.2021 - 09:06
Roos Jansen skrifaði:
Can't wait till this pattern is available. Any date when to expect it?
06.09.2021 - 00:03
Ingela Lagesson skrifaði:
Denhär modellen kan jag tänka mig att sticka. Inga vida armar och kroppsnära modell. Snyggt!
26.08.2021 - 23:22
Avely skrifaði:
Drops of winter
04.08.2021 - 10:02
Vanilla District#vanilladistrict |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alaska. Stykkið er prjónað með tvöföldum kanti í hálsmáli, stroffprjóni og áferðamynstri. Stærð XS - XXXL.
DROPS 227-11 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum): Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið lykkju með prjónamerki eins og áður, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir, svo ekki myndast göt. Prjónið síðan nýjar lykkjur jafnóðum inn í A.3. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón neðan frá og upp að handveg. Síðan er bakstykkið og framstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig að loka máli. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón neðan frá og upp að handveg, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka á hringprjóna að loka máli. Stykkið er saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli í stroffprjóni, í hring á stuttan hringprjón. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 144-168-180-192-216-240 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Alaska. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð brugðið og 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.1 hringinn (= 24-28-30-32-36-40 mynstureiningar með 6 lykkjum). Setjið 1 prjónamerki í 2. lykkju í umferð og 1 prjónamerki í 74.-86.-92.-98.-110.-122. lykkju í umferð (= í hliðar á fram- og bakstykki – prjónamerkin sitja í 2. lykkju í A.1). Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Þegar stykkið mælist 21 cm, prjónið A.2 hringinn. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið síðan A.3 hringinn (= 24-28-30-32-36-40 mynstureiningar með 6 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm, fellið af fyrir handveg, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Byrjið 2-2-3-3-4-4 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki í, fellið af 5-5-7-7-9-9 lykkjur fyrir handveg (prjónamerki situr í miðju af þessum 5-5-7-7-9-9 lykkjum), prjónið 67-79-83-89-99-111 lykkjur eins og áður (= framstykki), fellið af 5-5-7-7-9-9 lykkjur fyrir handveg, prjónið 67-79-83-89-99-111 lykkjur eins og áður (= bakstykki). Bakstykkið og framstykkið er síðan prjónað hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 67-79-83-89-99-111 lykkjur. Haldið áfram með A.3 fram og til baka eins og áður og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-0-1-2 sinnum, 2 lykkjur 0-2-3-3-4-5 sinnum og 1 lykkja 1-3-3-3-3-4 sinnum = 65-65-65-71-71-71 lykkjur eftir. Haldið áfram með A.3 með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, fellið af miðju 23-23-23-29-29-29 lykkjurnar af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram eins og áður og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsi = 19 lykkjur eftir á öxl í öllum stærðum. Prjónið þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 67-79-83-89-99-111 lykkjur. Haldið áfram með A.3 fram og til baka eins og áður og fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-0-1-2 sinnum, 2 lykkjur 0-2-3-3-4-5 sinnum og 1 lykkju 1-3-3-3-3-4 sinnum = 65-65-65-71-71-71 lykkjur eftir. Haldið áfram með A.3 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 48-50-52-53-55-57 cm, setjið miðju 9-9-9-15-15-15 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 2 sinnum = 19 lykkjur eftir á öxl í öllum stærðum. Prjónið þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. Fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 56-56-64-64-64-72 lykkjur á sokkaprjóna 5 með DROPS Alaska. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið 1 umferð brugðið og 1 umferð slétt. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 3 lykkjur slétt, 5 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Haldið svona áfram með stroff. Setjið 1 prjónamerki í 2. lykkju í umferð (= mitt undir ermi – prjónamerkið situr í miðju af 3 lykkjum slétt). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Þegar stykkið mælist 5 cm, fækkið allar 5 lykkjur brugðið til 4 lykkjur brugðið með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman í byrjun á hverri brugðinni einingu = 49-49-56-56-56-63 lykkjur. Haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. þegar stykkið mælist 18 cm, fækkið allar 4 lykkjur brugðið til 3 lykkjur brugðið alveg eins = 42-42-48-48-48-54 lykkjur. Haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Þegar stykkið mælist 21 cm, prjónið A.2 hringinn. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, skiptið yfir á sokkaprjóna 5. Prjónið síðan A.3 hringinn (= 7-7-8-8-8-9 mynstureiningar með 6 lykkjum). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 23-23-22-22-23-23 cm, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3-2-3-2-1½-1½ cm millibili alls 9-12-9-12-15-8 sinnum, síðan er einungis aukið út í stærð XXXL með 1 cm millibili alls 7 sinnum = 60-66-66-72-78-84 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 50-48-48-47-46-44 cm (það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari axla og lengri ermakúpu). Fellið nú af lykkjur mitt undir ermi, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Byrjið 2-2-3-3-4-4 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki í, fellið af 5-5-7-7-9-9 lykkjur eins og áður og prjónið þær 55-61-59-65-69-75 lykkjur eins og áður. Prjónið síðan ermakúpu á hringprjón 5 eins og útskýrt er að neðan. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður og fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 3-3-2-3-3-2 sinnum og 1 lykkju 0-3-5-3-5-11 sinnum í hvorri hlið. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 56-57-58-57-58-59 cm. Fellið af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið. Fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 57-58-59-58-59-60 cm ofan frá og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á framstykki/bakstykki. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu mitt að aftan og prjónið upp ca 72-78-78-84-90-90 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 4,5 – lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 6. Byrjið í 2. umferð í A.2 og prjónið A.2 hringinn. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.1 hringinn þar til kantur í hálsmáli mælist ca 15-15-15-17-17-17 cm (meðtalið A.2). Prjónið 1 umferð sléttprjón. Skiptið yfir á hringprjón 5 og fellið af með sléttum lykkjum – sjá AFFELLING! Brjótið niður stroffið að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #vanilladistrict eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 227-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.