Sandra skrifaði:
Buongiorno, vorrei sapere cosa si intende per lavorare in piano il colore e lo sprone. Devo lavorare in tondo oppure avanti e indietro sui Ferri circolari e poi cucire l'apertura? Grazie
08.02.2022 - 12:15DROPS Design svaraði:
Buonasera Sandra, lo sprone e il collo si lavorano in ferri di andata e ritorno. Buon lavoro!
08.02.2022 - 23:30
Francine skrifaði:
Erreur dans les explications de la manche. Il reste 48 mailles et on dit d’augmenter de 4 mailles pour obtenir 44 mailles! Il faudra diminuer pour obtenir 44 mailles.
28.12.2021 - 21:24DROPS Design svaraði:
Bonjour Francine, vous avez raison. Merci de l'avoir notifie. Le modele sera corrige. Bon tricot!
29.12.2021 - 10:48
Gaby Kovács skrifaði:
Kedves szerkesztő, Itt ellentmondást látok. Most le kell kötni a szemeket vagy nem? Vagy csak azt a 24-et? Abban mi a logika? Tegyünk 4 jelölőt a darabba, a köv módon (a szemek lekötése nélkül): Tegyünk kötésjelölőt a darabba, a kör kezdetéhez. Számoljunk ki 46-48-52-52-54-58 szemet itt tegyük a 2. jelölőt a darabba (= a háta). Kössünk 24 szemet, tegyük a 3. jelölőt a darabba (= az ujja). Köszönöm válaszukat Kovács Gaby
25.12.2021 - 18:05
First Leaf#firstleafsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað í stroffprjóni og með laskalínu, prjónað ofan frá og niður. Stærð 2-12 ára.
DROPS Children 41-9 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 40 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 10. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 10. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi 9. og 10. hver lykkja slétt saman. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur sléttprjón (merkið situr á milli þessa 2 lykkja) í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Prjónað er stroffprjón og aukið er út í stroffprjóni, síðan er prjónuð laskalína. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er síðan prjónað í hring á hringprjóna, ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI / BERUSTYKKI: Fitjið upp 88-96-96-96-104-104 lykkjur á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 2,5 með DROPS Baby Merino. Prjónið 1 umferð slétt, síðan er næsta umferð prjónuð þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1 lykkja slétt. Byrjun á umferð er í skiptingunni á milli vinstri öxl og bakstykkis. Prjónið stroffprjón í 3 cm (= kantur í hálsmáli). Setjið 1 merki hér, stykkið er nú mælt héðan. Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju í hverri brugðinni einingu, aukið út í byrjun á hverri brugðinni einingu – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (= 22-24-24-24-26-26 lykkjur fleiri) = 110-120-120-120-130-130 lykkjur í umferð. Haldið áfram í stroffprjóni (= 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið). Þegar stykkið mælist 2½-2½-3-3-3-3½ cm frá merki, aukið út um 1 lykkju í hverri brugðinni einingu, nú er aukið út í lok hverrar brugðinnar einingar (= 22-24-24-24-26-26 lykkjur fleiri) = 132-144-144-144-156-156 lykkjur. Haldið áfram í stroffprjóni (= 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið). Þegar stykkið mælist 5-5-6-6-6-7 cm frá merki, prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjur eru jafnaðar út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA! Þetta er gert til að 2 lykkjurnar sem eru prjónaðar slétt í hverri laskalínu haldi áfram beint yfir 2 lykkjur slétt frá stroffprjóni. Jafnið lykkjufjöldann þannig: Prjónið fyrstu lykkju slétt, aukið út 4-0-4-4-0-4 lykkjur jafnt yfir næstu 40-46-46-46-52-52 lykkjur, prjónið næstu 26 lykkjur slétt án þess að auka út, aukið út 4-0-4-4-0-4 lykkjur jafnt yfir næstu 40-46-46-46-52-52 lykkjur, prjónið síðustu 25 lykkjur slétt án þess að auka út eða fækka lykkjum. Nú hafa verið auknar út alls 8-0-8-8-0-8 lykkjur jafnt yfir = 140-144-152-152-156-164 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Setjið 4 merki í stykkið, þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar. Setjið fyrsta merki í byrjun umferðar, teljið 46-48-52-52-54-58 lykkjur, setjið 2. merki (= bakstykki), teljið 24 lykkjur, setjið 3. merki (= ermi), teljið 46-48-52-52-54-58 lykkjur, setjið 4. merki (= framstykki). Nú eru 24 lykkjur eftir 4. merki. Haldið áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 15-16-17-18-19-20 sinnum = 260-272-288-296-308-324 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 15-15-16-17-18-19 cm frá merki. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 76-80-86-88-92-98 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 54-56-58-60-62-64 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið 76-80-86-88-92-98 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 54-56-58-60-62-64 lykkjur á nýjan þráð (= ermi) og fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur undir ermi. FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 164-172-184-192-200-212 lykkjur í umferð. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! Haldið áfram í sléttprjóni. Prjónið þar til stykkið mælist ca 16-20-23-25-26-27 cm (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 3-3-3-4-4-4 cm að loka máli). Prjónið 1 umferð slétt og aukið út 16-16-16-20-20-20 lykkjur jafnt yfir = 180-188-200-212-220-232 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Prjónið stroff í 3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING. Stykkið mælist ca 36-40-44-48-50-52 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 54-56-58-60-62-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 3 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 60-62-64-68-70-72 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-6-8-8-8 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni, fækkið um 2 lykkjur fyrir miðju undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2-2½-3½-3-4-4 cm millibili alls 6-7-6-8-7-8 sinnum = 48-48-52-52-56-56 lykkjur eftir. Prjónið síðan án úrtöku þar til ermin mælist 15-21-24-27-31-35 cm frá skiptingunni. Nú eru eftir ca 3-3-3-4-4-4 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 4 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 44-44-48-48-52-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING. Ermin mælist 18-24-27-31-35-39 cm frá skiptingunni. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #firstleafsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 41-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.