Siw Sørensen skrifaði:
Hei, om jeg vil strikke etter denne oppskriften i Drops brushed alpakka silk, hvordan kan jeg regne om masker?
25.12.2021 - 11:04DROPS Design svaraði:
Hej Siv, DROPS Merino Extra Fine og DROPS Brushed Alpaca Silk tilhører ikke samme garngruppe, så hvis du strikker den i Brushed, vil den blive ret så kompakt og få et helt andet udtryk. Rent teknisk kan det lade sig gøre, men da skal du sørge for at få samme strikkefasthed som det står i opskriften. Spørg gerne en DROPS forhandler om hjælp!
03.01.2022 - 15:25
Marianne Hammern skrifaði:
Jeg strikker denne og er ikke ferdig med mønsteret, men det måler allerede 16cm fra halskanten. Skal det måles fra vrangbord eller fra der man avslutter med brun
10.12.2021 - 06:52DROPS Design svaraði:
Hei Marianne, Du måler fra merket som er satt inn når du er ferdig med brun. God fornøyelse!
10.12.2021 - 07:00
Kim Van De Merwe skrifaði:
Prachtige trui in 4 avondjes gebreid! De benodigdheden kloppen niet helemaal, ik heb voor de kleinste maat ongeveer 30 gram bruin gebruikt (in het patroon staat 100) en voor de hoofdkleur blauw precies 150 gram waar hier 250 gram staat. Maar ach, nog 4 avondjes en twee bollen blauw erbij kan ik er nog eentje maken!
31.10.2021 - 10:14
Edge of the Woods Jumper#edgeofthewoodssweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð 2-12 ára.
DROPS Children 41-8 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 74 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 25) = 3. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 72-72-76-76-80-80 lykkjur á hringprjón 3 með litnum brúnn í DROPS Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 24-28-28-32-32-36 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 96-100-104-108-112-116 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Sjá LEIÐBEININGAR og prjónið A.1 hringinn (= 24-25-26-27-28-29 mynstureiningar með 4 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1 eru lykkjur auknar út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Ör-1: Aukið út 30-32-34-36-38-40 lykkjur jafnt yfir = 126-132-138-144-150-156 lykkjur (nú er pláss fyrir 21-22-23-24-25-26 mynstureiningar A.1 með 6 lykkjum). Ör-2: Aukið út 42-36-46-40-50-44 lykkjur jafnt yfir = 168-168-184-184-200-200 lykkjur (nú er pláss fyrir 21-21-23-23-25-25 mynstureiningar A.1 með 8 lykkjum). Ör-3: Aukið út 28-36-32-36-32-40 lykkjur jafnt yfir = 196-204-216-220-232-240 lykkjur (nú er pláss fyrir 49-51-54-55-58-60 mynstureiningar A.1 með 4 lykkjum). Ör-4: Aukið út 16-20-20-20-20-24 lykkjur jafnt yfir = 212-224-236-240-252-264 lykkjur (nú er pláss fyrir 53-56-59-60-63-66 mynstureiningar A.1 með 4 lykkjum). Prjónið A.1 til loka, síðan er prjónað með litnum ljós grágrænn þar til stykkið mælist ca 16-16-16-17-18-19 cm frá prjónamerki við háls. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 31-33-35-36-38-40 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki), setjið næstu 44-46-48-48-50-52 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 62-66-70-72-76-80 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 44-46-48-48-50-52 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 31-33-35-36-38-40 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= hálft bakstykki), Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 136-144-152-160-168-176 lykkjur. Haldið áfram með litnum ljós grágrænn og sléttprjóni hringinn. Prjónið þar til stykkið mælist 15-19-23-25-26-27 cm. Prjónið 1 umferð slétt og aukið JAFNFRAMT út 36-36-36-40-40-40 lykkjur jafnt yfir = 172-180-188-200-208-216 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Haldið svona áfram með stroff í 3-3-3-4-4-4 cm, prjónið síðan 1 umferð stroff með litnum brúnn. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING! Peysan mælist ca 36-40-44-48-50-52 cm frá öxl. ERMI: Setjið 44-46-48-48-50-52 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 50-52-54-56-58-60 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi (mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Prjónið sléttprjón með litnum ljós grágrænn. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2-2½-3-3½-4½-4½ cm millibili alls 6-7-7-7-7-8 sinnum = 38-38-40-42-44-44 lykkjur eftir í umferð. Prjónið þar til ermin mælist ca 14-20-24-27-31-35 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-6-8-6-8-8 lykkjur jafnt yfir = 44-44-48-48-52-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir LEIÐBEININGAR AFFELLING. Ermin mælist ca 17-23-27-31-35-39 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #edgeofthewoodssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 41-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.