Margaret skrifaði:
Thank you so much for a remarkable quick response to my question, considering the time of year!! I wasn't expecting anything until the New Year! I shall certainly look at the colours recommended. Thank you again and Happy New Year.
31.12.2024 - 11:13
Margaret skrifaði:
Hi there, I would like to try to knit a child's Nordic cardigan pattern no. me-080-bn Edge of the Woods knitted in Drops Extra Fine Merino. Is it possible to change the wool to Drops Karisma and if so how do I substitute the colours to match the ones in the pattern?
30.12.2024 - 14:50DROPS Design svaraði:
Dear Margaret, DROPS Merino Extra Fine and Karisma are from the same yarn group, so you can substitute one for the other perfectly as long as the gauge still matches, so remember to work a swatch beforehand with the new yarn. To change colours, you could change: colour 15 for uni color 69 light grey green; colour 06 for mix 54 beige brown; olive 41 (which is discontinued)could be uni colour 52 dark mustard, colour 37 for mix 50, sea green, colour 07 for mix 55, light beige brown and Karisma 01 off-white (the same as in Merino). You can also check all Karisma colours and choose them yourself here: https://www.garnstudio.com/yarn.php?show=drops-karisma&cid=19. Happy knitting!
31.12.2024 - 00:58
Monika skrifaði:
Wie macht man die Knopflöcher in der rechten Blende? Vielen Dank!
17.09.2024 - 12:41DROPS Design svaraði:
Liebe Monika, die werden mit jeweils 1 Umschlag, 2 Maschen links zusammen (in einer Links-Partie) gestrickt. Viel Spaß beim Stricken!
17.09.2024 - 16:11
Silvia Cristina Delgado skrifaði:
Patron talle 44 canesu redondo dibujo nordico
29.05.2024 - 21:29DROPS Design svaraði:
Hola Silvia, puedes concretar tu pregunta? Si quieres patrones con patrón nórdico para adultos, puedes seleccionar "Más así" al final de los materiales y pulsar en nórdico: te mostrará todos nuestros patrones para niños y adultos con dibujo nórdico.
03.06.2024 - 00:29
Katharina skrifaði:
Sind in dem Diagramm nur die Hinreihen oder auch die Rückreihen gekennzeichnet
04.03.2024 - 18:03DROPS Design svaraði:
Liebe Katharina, Diagramme zeigen alle Reihen, dh die Hin- sowie die Rückreihen; lesen Sie von unten nach oben, rechts nach links für die Hin-Reihen und links nach rechts für die Rückreihen; hier lesen Sie mehr. Viel Spaß beim Stricken!
05.03.2024 - 08:55
Dagmar Mikloweit skrifaði:
Ich finde weder bei dieser Jacke,noch bei dem Pullover mit dem gleichen Muster das Diagramm in der Anleitung.MfG.Dagmar
07.10.2023 - 15:41DROPS Design svaraði:
Liebe Dagmar, das Diagram für das Muster finden Sie rechts der Maskskizze. Viel Spaß beim stricken!
09.10.2023 - 08:46
Ewa Mörk skrifaði:
Hej, finns mönstret även i babystorlek? Jag skulle vilja göra en i 6-9 månader och en i 3-4 år... Mvh Ewa
07.05.2022 - 09:58DROPS Design svaraði:
Hei Ewa. Nei, dessverre. Denne modellen fins ikke i str. 6/9 mnd. mvh DROPS Design
09.05.2022 - 09:05
Edge of the Woods Jacket#edgeofthewoodsjacket |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð 2-12 ára.
DROPS Children 41-7 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. HNAPPAGAT: Þegar kantur í hálsmáli mælist ca 1½ til 2 cm, fellið af fyrir 1 hnappagati í hægri hlið í kanti í hálsmáli (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur brugðið saman, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 74 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 25) = 2,9. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 3. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kantlykkjur. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Lykkjur fyrir kant að framan eru felldar af og afgangur af berustykki er prjónað fram og til baka með 1 kantlykkju í hvorri hlið við miðju að framan. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 84-84-88-88-92-92 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna 3 með litnum brúnn í DROPS Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri hlið – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Fellið af fyrstu 5 lykkjur (hér á að sauma síðar kant að framan niður), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 74-74-78-78-82-82 lykkjur og aukið JAFNFRAMT út 25-29-29-33-33-37 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING, prjónið stroff eins og áður yfir næstu 4 lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Skiptið yfir á hringprjón 4. Snúið stykkinu, fellið af fyrstu 5 lykkjur, prjónið brugðið þar til 1 lykkja er eftir í umferð (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 99-103-107-111-115-119 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki eftir kantlykkju í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Sjá LEIÐBEININGAR og prjónið næstu umferð frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð (= 24-25-26-27-28-29 mynstureiningar með 4 lykkjur), prjónið fyrstu lykkju í A.1 (þannig að mynstrið byrjar og endar á sama hátt í hvorri hlið við miðju að framan) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Kantlykkjur eru prjónaðar í sama lit eins og fyrsta/síðasta lykkja í mynstri. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1, aukið út um lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ´LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Ör-1: Aukið út 30-32-34-36-38-40 lykkjur jafnt yfir = 129-135-141-147-153-159 lykkjur (nú er pláss fyrir 21-22-23-24-25-26 mynstureiningar A.1 með 6 lykkjur). Ör-2: Aukið út 42-36-46-40-50-44 lykkjur jafnt yfir = 171-171-187-187-203-203 lykkjur (nú er pláss fyrir 21-21-23-23-25-25 mynstureiningar með A.1 með 8 lykkjur). Ör-3: Aukið út 28-36-32-36-32-40 lykkjur jafnt yfir = 199-207-219-223-235-243 lykkjur (nú er pláss fyrir 49-51-54-55-58-60 mynstureiningar A.1 með 4 lykkjur). Ör-4: Aukið út 16-20-20-20-20-24 lykkjur jafnt yfir = 215-227-239-243-255-267 lykkjur (nú er pláss fyrir 53-56-59-60-63-66 mynstureiningar A.1 með 4 lykkjur). Prjónið A.1 til loka, síðan er prjónað með litnum ljós grágrænn þar til stykkið mælist ca 16-16-16-17-18-19 cm frá prjónamerki við hálsmál. Í næstu umferð frá röngu skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 32-34-36-37-39-41 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 44-46-48-48-50-52 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 63-67-71-73-77-81 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 44-46-48-48-50-52 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 32-34-36-37-39-41 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 139-147-155-163-171-179 lykkjur. Haldið áfram með litnum ljós grágrænn og sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið þar til stykkið mælist 15-19-23-25-26-27 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið JAFNFRAMT út um 33-33-33-37-37-37 lykkjur jafnt yfir = 172-180-188-200-208-216 lykkjur. Lykkjur eru auknar út til að stroffið sem prjóna á dragi ekki stykkið saman. Skiptið yfir á hringprjón 3. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3-3-3-4-4-4 cm, prjónið síðan 1 umferð stroff með litnum brúnn. Fellið af með garðaprjón yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá LEIÐBEININGAR AFFELLING! Peysan mælist ca 36-40-44-48-50-52 cm frá öxl. ERMI: Setjið 44-46-48-48-50-52 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 50-52-54-56-58-60 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi (mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Prjónið sléttprjón með litnum ljós grágrænn. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2-2½-3-3½-4½-4½ cm millibili alls 6-7-7-7-7-8 sinnum = 38-38-40-42-44-44 lykkjur eftir í umferð. Prjónið þar til ermin mælist ca 14-20-24-27-31-35 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-6-8-6-8-8 lykkjur jafnt yfir = 44-44-48-48-52-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir LEIÐBEININGAR AFFELLING. Ermin mælist ca 17-23-27-31-35-39 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp frá réttu meðfram framstykki innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni ca 80-92-100-112-120-132 lykkjur á hringprjón 3 með litnum brúnn (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4). Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í ca 2½ til 3 cm – stillið af að kantur að framan sé jafn breiður og breiddin á 5 lykkjum sem felldar voru af í kanti í hálsmáli. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið alveg eins og vinstri kantur að framan, en eftir ca 1 til 1½ cm, fellið af fyrir 5-5-5-6-6-6 hnappagötum jafnt yfir. Neðsta hnappagatið á að vera ca 2 til 3 cm frá neðri kanti. Fallegast er að fella af í brugðinni einingu með því að slá 1 sinni uppá prjóninn og síðan að prjóna 2 lykkjur brugðið saman. FRÁGANGUR: Brjótið niður kant í hálsmáli fallega við kant að framan með sauminn inn að röngu. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #edgeofthewoodsjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 41-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.