Kaia skrifaði:
Ik had dit patroon in maat xl gemaakt bij het voorpand mag je de hals wel op 60cm beginnen in plaats van 62cm. Mijn hoofd past er nog net door. En als ik de mouw tot 40 cm had gebreid plus de boord er nog aan dan had ik een driekwart mouw gehad. Dus ik heb hem tot 50cm gebreid en dan nog de boord erbij. Om een normale mouw te krijgen. Dit zijn een paar dingen die ik heb gevonden bij het breien van deze trui.
01.12.2024 - 22:19
Celine skrifaði:
Voor de schouder wordt er een naald recht gebreid aan de verkeerde kant. bij het afwerken lees ik: Naai de schoudernaden samen aan de binnenkant van de afkantrand. is hier een video van of kun je uitleggen hoe ik de schouders aan elkaar naai?
03.08.2022 - 15:34DROPS Design svaraði:
Dag Celine,
Vermoedelijk staat er een fout in en brei je niet 1 naald recht aan de verkeerde kant, maar brei je 1 naald aan de verkeerde kant zoals de steken zich voordoen. Anders zou je een ribbel krijgen aan de goede kant. Als je daarna afkant met recht aan de goede kant, kun je de schouders aan elkaar naaien met maassteken.
06.08.2022 - 11:13
Grace Day skrifaði:
Hello again, Thank you for your prompt response. Is there a video showing how to knit this cable? Thank you again.
28.02.2022 - 15:39DROPS Design svaraði:
Dear Grace, you could use this video, but working 9 stitches in the cable needle instead of 3. https://www.garnstudio.com/video.php?id=19&lang=en. Happy knitting!
28.02.2022 - 16:10
Grace skrifaði:
Hello, Regarding chart A.1- the way I understand it, there is a yarn over between 2 stitches =19 (?). Then on the way back?
28.02.2022 - 00:06DROPS Design svaraði:
Dear Grace, A.1 is worked over 9 sts; 1st row = *K1, YO* x 9 = you increase 9 sts = there are 18 sts. On next row purl all yarn overs twisted to avoid holes (= see 3rd symbol). Happy knitting!
28.02.2022 - 10:48
December Tide#decembertidesweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Flora og DROPS Kid-Silk eða DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með köðlum, háum kraga og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 226-25 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 58 lykkjur) mínus kantlykkjur (t.d. 4 lykkjur) og deilið þessum 54 lykkjum með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 20) = 2,7. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna ca aðra hverja og 3. hverja lykkju slétt saman (lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur). Ef auka á út þá er í þessu dæmi slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju og ekki er lykkjum aukið út yfir kantlykkjur. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig, neðan frá og upp. Handvegur er prjónaður fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Síðan er afgangur af ermi prjónaður í hring á hringprjóna / sokkaprjóna, ofan frá og niður að loka máli. Stykkið er síðan saumað saman eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum er prjónaður hár kragi í hálsmáli í stroffprjóni. BAKSTYKKI: Fitjið upp 126-134-142-154-170-182 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 4 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem lykkjum er fækkað og aukið út þannig: Prjónið 58-62-66-72-80-86 lykkjur slétt og fækkið jafnframt um 20-20-21-23-25-26 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING, prjónið A.1 yfir miðju 9 lykkjurnar (= 9 lykkjur fleiri), prjónið sléttprjón yfir síðustu 59-63-67-73-81-87 lykkjur og fækkið jafnframt um 21-21-22-24-26-27 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur = 94-102-108-116-128-138 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið og kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni). Skiptið yfir á hringprjón 5. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 4 kantlykkjur í garðaprjóni, 11-15-18-18-24-29 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2 (= 23-23-23-27-27-27 lykkjur), prjónið A.3 (= 18 lykkjur), prjónið A.2 (= 23-23-23-27-27-27 lykkjur), prjónið 11-15-18-18-24-29 lykkjur sléttprjón og endið með 4 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm, fellið af 5-7-8-10-14-17 lykkjur fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umferðum = 84-88-92-96-100-104 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður með 9-11-13-11-13-15 lykkjur sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar ca 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm og næsta umferð er prjónuð frá réttu, fækkið um 11 lykkjur mitt að aftan með því að prjóna miðju 22 lykkjurnar slétt saman 2 og 2 (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður) = 73-77-81-85-89-93 lykkjur. Í næstu umferð eru felldar af miðju 25-25-27-27-29-29 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið áfram eins og áður og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsi = 22-24-25-27-28-30 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 57-59-61-63-65-67 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 1 lykkju yfir ysta kaðal við handveg = 21-23-24-26-27-29 lykkjur eftir. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. Bakstykkið mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður. FRAMSTYKKI: Fitji upp jafn margar lykkjur og á bakstykki og prjónið alveg eins og á bakstykki þar til 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist ca 51-53-54-56-57-59 cm. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 11 lykkjur mitt að framan með því að prjóna miðju 22 lykkjurnar slétt saman 2 og 2 (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður) = 73-77-81-85-89-93 lykkjur. Í næstu umferð eru miðju 15-15-17-17-19-19 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 29-31-32-34-35-37 lykkjur á hvorri öxl. Prjónið áfram eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 3 sinnum = 22-24-25-27-28-30 lykkjur eftir. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 57-59-61-63-65-67 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 1 lykkju yfir ysta kaðal að handveg = 21-23-24-26-27-29 lykkjur eftir. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið hina öxlina á sama hátt. Framstykkið mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður. ERMI: Fitjið upp 74-76-80-84-86-90 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið í 3-4-5-6-8-10 cm – JAFNFRAMT í síðustu umferð er felld af 1 kantlykkja í hvorri hlið = 72-74-78-82-84-88 lykkjur. Ermakúpan hefur nú verið prjónuð til loka. Afgangur af ermi er prjónaður í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna, ofan frá og niður. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, prjónamerkið er notað þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2 cm í öllum stærðum frá þar sem stykkið var prjónað í hring, fækkið nú um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 1½ cm millibili alls 11-11-13-14-14-15 sinnum = 50-52-52-54-56-58 lykkjur eftir. Prjónið áfram þar til ermin mælist 43-42-41-40-38-36 cm frá þar sem stykkið var prjónað í hring (það er styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu). Nú eru eftir ca 6 cm að loka máli, mátið e.t.v. ermina og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 14-12-16-14-16-14 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 64-64-68-68-72-72 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Ermin mælist ca 52 cm frá uppfitjunarkanti í öllum stærðum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið hliðarsauma í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur – byrjið við handveg og saumið þar til eftir eru ca 15 cm neðst á fram- og bakstykki (= klauf). Saumið ermakúpuna við handveg innan við 1 kantlykkju. Saumið síðan klaufina efst á ermi við botninn á handveg – sjá teikningu. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við aðra öxlina og prjónið upp frá réttu ca 88 til 104 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 4 með 1 þræði í hvorri tegund (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4). Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 12-12-12-14-14-14 cm. Fellið laust af með sléttum lykjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #decembertidesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 36 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 226-25
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.