Katleen skrifaði:
Hallo, Zou ik deze trui kunnen breien met brushed alpaca silk en alpaca bouclé ? 2 x C … Thanks !
18.11.2023 - 19:29DROPS Design svaraði:
Dag Katleen,
Ja, dat zou kunnen, deze garens vallen beide in garengroep C en kunnen dus als vervanging gebruikt worden.
21.11.2023 - 23:16
Alina skrifaði:
Is it correct that there is no difference between back and front? It seems that the front side will go up on the neck... otherwise there should be more rows on the back...
23.11.2022 - 19:58DROPS Design svaraði:
Dear Alina, that's right, both front and back piece will be the same. Happy knitting!
24.11.2022 - 09:31
Barbara Linders skrifaði:
Ik heb een vraag ben aangekomen bij verdeling lijf en armen. Staat er eerst deel van t achterpand breien. Dan de steken voor de mouw op de hulp draad. Én dan “zet 6 (maat M) steken op. Voor de zijkant mouw. Hier is mijn vraag over. Hoe doe je dat?
22.11.2022 - 08:44DROPS Design svaraði:
Dag Barbara,
In deze video kun je zien hoe je steken opzet aan het eind van de naald. Dit kun je ook toepassen voor die 6 steken.
22.11.2022 - 21:01
Barbara Linders skrifaði:
Ik gebruik een andere wol en naaldikte dan in het patroon. Ik heb alles omgerekent naar mijn wol en naalddikte . En A1 lukt mij ook. Maar het omrekenen van A2 en A3 lukt nog niet. Mijn vraag is hoe jullie in het patroon op de verhouding A2 en A3 zijn gekomen?. Als ik die weet kan ik het omzetten naar mijn eigen “patroon”. Ben erg benieuwd. Hoor graag van jullie
13.11.2022 - 09:28DROPS Design svaraði:
Dag Barbara,
Het is voor ons helaas niet mogelijk om patronen aan te passen naar persoonlijke wensen. De telpatronen zijn op elkaar afgestemd en voor A.2 zul je een meervoud van 6 steken op de naalden moeten hebben.
13.11.2022 - 18:25
Lisbeth skrifaði:
Strikker halskant - retten vender mod mig - er det korrekt ? Når jeg skal montere halskanten vender jeg vrangen udad og får en række meget grimme indtagninger i vrang - hvad er galt ?
11.09.2022 - 16:24DROPS Design svaraði:
Hei Lisbeth. Brett vrangborden øverst i halsen ned på INNSIDEN av plagget. Altså rettsiden av vrangborden / begynnelsen av vrangborden brettes innover. Sy deretter vrangborden fast slik at det blir en dobbel halskant. mvh DROPS Design
12.09.2022 - 13:29
Kat skrifaði:
Hei, hvilken størrelse har modellen på seg?
09.08.2022 - 20:47DROPS Design svaraði:
Hej Kat, modellen har M på sig, men du finder målene i måleskitsen nederst i opskriften. Vælg den størrelse med de mål som passer dig :)
10.08.2022 - 07:37
Ulrika skrifaði:
Hej! Första gången jag stickar en tröja med ert mönster.Jättesvårt att förstå mönstret!Sen stämmer inte maskantalet överens med hur ni beskriver att man ska öka och när?Ska ökningarna göras under ett eller flera varv framgår inte heller.Vad innebär A1,A2 å A3? Väldigt luddigt diagram för en nybörjare. Tacksam för hjälp. Mvh Ulrika
12.06.2022 - 21:01DROPS Design svaraði:
Hei Ulrika. Husk å oppgi hvilken str. du strikker, så kan vi hjelpe deg best mulig. Hvor er det du mener at maskenantallet ikke stemmer? Når du strikker etter diagrammene, ser du hvor du skal øke (oval sirkel på 1.rad i diagrammene) og i oppskriften står det forklart / hvor mange cm fra merket det skal være før du skal øke, og hvilken diagram du skal strikke. mvh DROPS Design
13.06.2022 - 13:39
Nadine skrifaði:
Hi. I made this pattern in Drops Andes size S. It was my first pattern knitted in the round, and I found it very easy to follow. However, having followed all the instructions on tension and getting the right gauge, the jumper is too small. I tried to find on your website what measurements size S corresponds to, but haven’t found anything. It would be helpful to know if, say for example, size S fits bust measurement of 32 inches etc. I want to make this pattern again but not sure of size.
09.03.2022 - 17:07DROPS Design svaraði:
Dear Nadine, to choose the appropriate size, always measure a similar garment you have and like the shape and compare them to the measurements in the chart (in cm). Read more here. And remember, in this kind of pattern, always remember to check your tension in height to get the correct height; Happy knitting!
09.03.2022 - 19:00
Marie skrifaði:
Vore trevligt om ni tog tydligare bilder på detaljer o inte låter håret hänga ner. Jag vill se hur plagget sitter. Gäller många mönster. Tack
17.02.2022 - 08:55
Jutta Rieper skrifaði:
Ich wollte eigentlich den Pullover Monteverde ( Drops Wish und Kid Silk) stricken und habe schon das Garn bestellt. Brauche ich für diesen Pullover mehr Garn, auch wenn ich ihn Mit Wish und Kid Silk stricke?
06.02.2022 - 11:15DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Rieper, dann brauchen Sie diesselbe Lauflänge in Kid-Silk ask in Wish. Gerne wird Ihnen Ihr DROPS Laden damit helfen, wenn Sie Hilfe brauchen. Dann wie immer, Maschenprobe beachten. Viel Spaß beim stricken!
07.02.2022 - 10:22
First Rain#firstrainsweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Wish eða DROPS Andes. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 228-7 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 60 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 5) = 12. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 12. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna, ofan frá og niður. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 75-80-85-85-90-95 á hringprjón 6 með DROPS Wish DROPS Andes. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 4 cm, fækkið allar 3 lykkjur brugðið til 2 lykkjur brugðið = 60-64-68-68-72-76 lykkjur. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 16 cm. Síðar er kanturinn í hálsmáli brotinn niður og verður tvöfaldur, við frágang þá mælist hann ca 8 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 5-6-7-12-13-14 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 65-70-75-80-85-90 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 4 cm frá prjónamerki er aukið út þannig: FYRSTA ÚTAUKNING: Prjónið A.1 hringinn í umferð (= 13-14-15-16-18-19 mynstureiningar með 5 lykkjum). Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka eru 91-98-105-112-119-126 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 9-10-10-11-12-13 cm frá prjónamerki. ÖNNUR ÚTAUKNING: Prjónið A.3 yfir fyrstu 0-7-7-14-14-0 lykkjur (= 0-1-1-2-2-0 mynstureiningar með 7 lykkjum), prjónið A.2 yfir næstu 42-42-42-42-42-60 lykkjur (= 7-7-7-7-7-10 mynstureiningar með 6 lykkjum), prjónið A.3 yfir næstu 7-0-7-0-7-0 lykkjur (= 1-0-1-0-1-0 mynstureiningar með 7 lykkjum), prjónið A.2 yfir næstu 42-42-42-42-42-66 lykkjur (= 7-7-7-7-7-11 mynstureiningar með 6 lykkjum), prjónið A.3 yfir næstu 0-7-7-14-14-0 lykkjur (= 0-1-1-2-2-0 mynstureiningar með 7 lykkjum). Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka eru 121-130-139-148-157-168 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 14-16-17-19-20-22 cm frá prjónamerki. ÞRIÐJA ÚTAUKNING: Prjónið A.3 yfir fyrstu 0-7-0-7-0-0 lykkjur (= 0-1-0-1-0-0 mynstureiningar með 7 lykkjum), prjónið A.2 yfir næstu 54-48-66-60-78-84 lykkjur (= 9-8-11-10-13-14 mynstureiningar með 6 lykkjum), prjónið A.3 yfir næstu 7-14-7-14-7-0 lykkjur (= 1-2-1-2-1-0 mynstureiningar með 7 lykkjum), prjónið A.2 yfir næstu 60-54-66-60-72-84 lykkjur (= 10-9-11-10-12-14 mynstureiningar með 6 lykkjum), prjónið A.3 yfir næstu 0-7-0-7-0-0 lykkjur (= 0-1-0-1-0-0 mynstureiningar með 7 lykkjum). Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka eru 161-172-185-196-209-224 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 20-22-24-26-28-30 cm frá prjónamerki. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 24-25-27-29-32-34 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki), setjið næstu 33-35-38-40-40-43 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 47-51-55-58-65-69 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 33-35-38-40-40-43 lykkjurá þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 24-26-27-29-32-35 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 107-114-125-132-145-154 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist 30 cm frá skiptingu. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd - nú eru eftir ca 4 cm að loka máli. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 21-22-23-24-27-34 lykkjur jafnt yfir = 128-136-148-156-172-188 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 33-35-38-40-40-43 lykkjur frá þræði í annarri hliðinni á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 8 og prjónið að auki upp 1 nýja lykkju í hverja af 6-6-8-8-8-8 nýju lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 39-41-46-48-48-51 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-8-8 nýjar lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það er notað síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 6-5-3½-3-3-2 cm millibili alls 6-6-8-9-9-10 sinnum = 27-29-30-30-30-31 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 36-34-33-32-30-28 cm (það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd – nú eru ca 8 cm að loka máli. Aukið nú út um 5-7-6-10-10-9 lykkjur jafnt yfir = 32-36-36-40-40-40 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 6. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Ermin mælist ca 44-42-41-40-38-36 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #firstrainsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 228-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.