Sofia skrifaði:
Hej! Jag kan inte se att färgen "oliv" nummer 41 finns att köpa någonstans. Har ni slutat med den färgen och vad för färg ska man då använda sig av i så fall? Mvh Sofia
03.05.2025 - 17:49DROPS Design svaraði:
Hej Sofia, du kan bruge farve 52 grönt blad eller hvis du vil have en lysere stribe så kan du bruge 26 pistasj :)
08.05.2025 - 10:01
Hanne skrifaði:
Hei! Det står at i oppskriften under BÆRESTYKKET at man først skal strikke ca 2 cm med brunt før man begynner på mønsteret. I mønsteret skal du bare strikke 5 runder med brunt. Kan dette stemme? Det ser ut som at det egentlig er strikket mye lengre med brunt.
24.03.2024 - 21:27DROPS Design svaraði:
Hej Hanne, det stemmer helt fint, du måler efter ribkanten :)
03.04.2024 - 15:39
Sissi skrifaði:
Ihr Lieben, tausend Dank für die tollen Anleitungen. 🙏 Auf meinem Woll Etikett steht auf 10 cm 22 Maschen breite 29 Maschen Höhe Der Norweger Herrenpulli braucht Strickanleitung hat 21 Maschen breite 28 Maschen höhe Es geht um eine Masche mehr (bei mir laut Ettiket) bei Breite und Höhe. Wie könnte ich das ausgleichen? Liebe Grüße 🕊💌🕊
31.12.2023 - 10:27DROPS Design svaraði:
Liebe Sissi, nur die Maschenprobe ist wichtig, versuchen Sie mit verschiedenen Nadelgrösse, bis Sie die richtige Maschenprobe in der Breite sowie in der Höhe (hier auch wichtig) bekommen. Viel Spaß beim stricken!
02.01.2024 - 10:57
Alton Deslandes skrifaði:
In the diagram you have a small black box for light brown, but I do not see any such squares in diagram A1.
09.02.2023 - 20:02DROPS Design svaraði:
Hi Alton, Light brown are the filled in circles between arrows 1 and 2. The small black boxes are colour olive. Happy knitting!
10.02.2023 - 08:43
Anne-May Bueide skrifaði:
Hei, er det samme farge på bildet som oppgitt i oppskriften? Hovedfargen er nr 15 grågrønn, og den fargen er helt annerledes enn den på bildet som ser blå ut. Bildet ligner mer på nr. 19 gråblå.
23.01.2023 - 22:03DROPS Design svaraði:
Hei Anne-May Ja, det er samme farge på bildet som er oppgitt i oppskriften, hovedfarg nr. 15 lys grågrønn. Men husk fargene kan avvike fra skjerm til skjerm. Men farge nr. 19 lys gråblå vil også passe fint som hovedfarge om du syns det vil passe deg bedre. mvh DROPS Design
30.01.2023 - 09:35
Judit skrifaði:
Üdvözlöm, az L es méretet kötöm, ha össze adom a váll és testrész valamint a passzé hosszát : 29+33+6+1 cm =69 cm a pulóver teljes hossza , mégis azt írja a leírás : "A pulóver kb 68- 70- 72- 74- 76- 78 cm-es a vállrésztől lefelé mérve." tehát az Les méret kb 72 cm kellene legyen, hol a hiányzó 3 cm?
12.12.2022 - 19:04DROPS Design svaraði:
Kedves Judit, a vállrészt a nyakkivágás dupla szegélye után 4 cm harisnyakötéssel + 2 körrel kezdi, ez adja a "hiányzó" 3 cm-t. Sikeres kézimunkázást!
20.03.2023 - 07:20
Anlaug skrifaði:
Hei. Har ein gut på ca str 164 (dvs når eg er ferdig med genseren er han truleg nærare str 170). Dvs str 158/164 kan bli litt knapt. Er str S i herre for stort da? Eller kva gjer eg? Korleis bør ein tenke om ein t.d. finner ein barnegenser og vil tilpasse den til ein lengre gut enn maksstørrelsen i oppskrifta?
05.12.2022 - 22:29DROPS Design svaraði:
Hei Anlaug, Det finnes en målskisse for alle herrestørrelsene på bunnen av oppskriften. God fornøyelse!
06.12.2022 - 06:46
Siri Stiansen skrifaði:
Woolevo soft merino. Hvilken gruppe ligger dette under?
26.10.2022 - 14:05DROPS Design svaraði:
Hej Siri, vi anbefaler at bruge DROPS Merino Extra Fine til denne opskrift :)
27.10.2022 - 09:50
Klaudia Hobje skrifaði:
Sehr geehrte Damen und Herren, ich möchte diesen Herrenpullover "Edge of the Woods" Modell 241 gerne als Strickjacke stricken. Könnte ich dafür eine Anleitung bekommen? Mit freundlichen Grüßen Klaudia Hobje
12.02.2022 - 19:26
Gitte Andersen skrifaði:
Min mand ønsker i så mange farver i mønster. Hvilke farver / mønstre vil jeg kunne erstatte med grundfarven? Med venlig hilsen Gitte
19.12.2021 - 18:02DROPS Design svaraði:
Hej Gitte, hvis du klikker på keyword: nordisk lige under titlen, så finder du masser af nordiske mønstre i masser af forskellige farver. God fornøjelse!
21.12.2021 - 08:22
Edge of the Woods#edgeofthewoodssweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 224-20 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka/fækka eigi jafnt yfir, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 120 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d.20) = 6. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 6. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, prjónið í þessu dæmi 5. og 6. hverja lykkju slétt saman. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, ofan frá og niður. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 120-124-128-132-136-140 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með litnum brúnn í DROPS Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Haldið svona áfram með stroff í 11 cm. Síðar er kantur í hálsi brotinn saman tvöfaldur og við frágang þá verður hann ca 5 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 20 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 100-104-108-112-116-120 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan), berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið sléttprjón með litnum brúnn í 2 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-20-24-24-28-32 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 120-124-132-136-144-152 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Sjá LEIÐBEININGAR og prjónið næstu umferð þannig: Prjónið A.1 yfir allar lykkjur (= 30-31-33-34-36-38 mynstureiningar með 4 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur, ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1 eru lykkjur auknar út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA: Ör-1: Aukið út 42-50-54-62-66-70 lykkjur jafnt yfir = 162-174-186-198-210-222 lykkjur (nú er pláss fyrir 27-29-31-33-35-37 mynstureiningar A.1 með 6 lykkjum). Ör-2: Aukið út 46-50-46-58-62-74 lykkjur jafnt yfir = 208-224-232-256-272-296 lykkjur (nú er pláss fyrir 26-28-29-32-34-37 mynstureiningar A.1 með 8 lykkjum). Ör-3: Aukið út 52-48-52-64-68-72 lykkjur jafnt yfir = 260-272-284-320-340-368 lykkjur (nú er pláss fyrir 65-68-71-80-85-92 mynstureiningar A.1 með 4 lykkjum). Ör-4: Aukið út 48-56-68-72-76-80 lykkjur jafnt yfir = 308-328-352-392-416-448 lykkjur (nú er pláss fyrir 77-82-88-98-104-112 mynstureiningar A.1 með 4 lykkjum). Prjónið A.1 til loka, síðan er prjónað með litnum ljós grágrænn þar til stykkið mælist ca 26-28-29-31-33-35 cm frá prjónamerki við hálsmál. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 45-49-52-57-63-69 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki), setjið næstu 63-66-72-82-82-86 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 92-98-104-114-126-138 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 63-66-72-82-82-86 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 45-49-52-57-63-69 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= hálft bakstykki), Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 194-208-224-244-272-296 lykkjur. Haldið áfram með litnum ljós grágrænn og sléttprjóni. Prjónið þar til stykkið mælist 32-32-33-33-33-33 cm. Nú eru eftir ca 6 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Til að koma í veg fyrir að stroffið sem prjóna á dragi stykkið saman, þá eru lykkjur auknar út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan. Prjónið 1 umferð slétt og aukið JAFNFRAMT út 38-44-44-48-56-60 lykkjur jafnt yfir = 232-252-268-292-328-356 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Haldið svona áfram með stroff í 6 cm, prjónið síðan 1 umferð stroff með litnum brúnn. Fellið af með litnum brúnn, með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 68-70-72-74-76-78 cm frá öxl. ERMI: Setjið 63-66-72-82-82-86 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 69-72-80-90-92-96 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi (mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Prjónið sléttprjón með litnum ljós grágrænn. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-3½-2½-1½-1-1 cm millibili alls 9-10-13-17-18-18 sinnum = 51-52-54-56-56-60 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist ca 37-36-35-34-32-31 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Nú eru eftir ca 6 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 9-8-10-8-8-8 lykkjur jafnt yfir = 60-60-64-64-64-68 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 43-42-41-40-38-37 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi ekki stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #edgeofthewoodssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 224-20
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.